Vísir - 05.07.1962, Side 16
Olíuskip sökk í Hvalfirðinum
Olíuflutningapramminn LW Haskell á Reykjavíkurhöfn.
EyMeggur okubrák hvaívertíðina?
Fimmtudagur 5. júlí 1962.
TOGARADEILAN:
Nýr
fundur
/ dag
Mikið kapp er nú lagt á að reyna,
til þrautar, að leysa togaradeil- j
una, eins og sjá má af því, að
nú hafa verið haldnir fundir.
tvær nætur í röð fram á morgun, j
og framhaldsfundur er boðaður
kl. 2 e. h. í dag.
Fundimir era haldnir í Alþing
ishúsinu. — Fundimir í fyrra-
kvöld og gærkvöldi byrjuðu báð-
ir kl. hálf níu að kveldi og lauk
7 að morgni.
Samninganefndum er ekki
heimilt að segja frá gangi mála
á sáttafundum, en það hefur
jafnan verið svo, þegar fundir
era orðnir jafn tíðir og langir og
nú, að augljóst er að dregur til
úrslita. En þótt það bendi til„ að
sáttahorfur kunni að hafa batn-
að, era horfur enn óvissar.
Um hálfsexleytið í gærdag sökk
olíupramminn LW Haskell, eign
Olíufélagsins h.f., út af Hvammsvík
í Hvalfirði. Áhöfnin, þrír menn,
bjargaðist öll. Pramminn var
næstum fullhlaðinn af svartolíu.
Vísir átti £ morgun tal við skip-
verjana og telja þeir. að skilrúm
hafi brotnað og olía runnið fram
í hásetaklefann. Skipti það engum
togum, að pramminn stakkst á end-
ann.
Skipverjar settu þegar út árabát
sem um borð var og komust þeir
klakklaust í land, án þess svo
mikið sem að blotna. Er í land
kom, fóru þeir heim að bænum
Hvammi í Kjós og tóku þeir svo
þaðan áætlunarbifreið til Reykjavík
ur og komu þangað um tíuleytið
í gærkvöldi.
Olíubáturinn LW Haskell var orð
inn um "jörutíu ára gamall og var
keyptur hingað til lands fyrir all-
mörgum árum, en vegna þess, að
hann var eldri en tólf ára fékkst
hann ekki skráður, en samkvæmt
íslenzkum lögum má ekki skrá
skip, sem keypt eru eldri en 12
ára erlendis, var skipið því skráð
í London.
Mikið þarfaþing
Áður en Haskell kom hingað, var
hann notaður til flutnings á soya-
baunum, en hér hefur hann ein-
göngu verið notaður til olíúflutn-
inga, og er burðarmagn hans rúm
tvö hundruð tonn af svartolíu,
einnig voru settir á hann dekktank-
ar til flutnings á gas-olíu.
LK Haskell var mikið notaður
og hið mesta þarfaþing, annaðist
hann olíuflutninga upp í Hvalfjörð
og til Hafnarfjarðar, einnig var
hann mikið notaður til að setja oliu
á togarana hér í höfninni og þau
skip, sem ekki komust inn í höfn-
ina, og flutti hann þá einnig fyrir
hin olíufélögin, enda eini olíu-
pramminn í Reykjavíkurhöfn.
Hætta á tjóni
Menn eru nú mjög kvíðnir yfir
því, að olía kunni að renna út úr
prammanum, og getur það haft
hina mestu hættu í för með sér
fyrir fuglalífið á stóru svæði við
fjörðinn, auk þess sem það getur
eyðilagt hvalveiðar að miklu leyti,
þar sem draga þyrfti þá veidda
hvali gegnum olfuflóðið.
í ráði er að fara með kafara og
björgunarskipið Leó upp' eftir og
reyna að stöðva olíurennslið, ef
Frá þvi i gærmorgun og þar til
kl. 8 £ morgun tilkynntu 67 skip
afla til sildarleitarinnar, samtals
nær 30 þúsund mál. Það bar helzt
til tíðinda að allmikil veiði var nú
fyrir austan. t gærkvöldi tilkynnti
Ægir um síld út af Dalatanga og
höfðu 18 skip fengið þar samtals
13200 mál og tilkynnt um það kl.
8 f morgun. Veiðin var út af Kögri
og Glettinganesi og norður á Hér-
aðsflóa.
Um svæðið austur af Kolbeins-
ey er það að segja, eins og Vísir
drap á £ gær, að þar veiðist nú sú
sild, sem menn binda mestar vonir
við til söltunar. Hún reyndist allt
einhvert væri. Blaðið átti i morgun
stutt samtal við Loft Bjarna-
son £ hvalstöðinni og spurði hann
um hættu þá, er gæti verið þessu
samfara. Hvaðst Loftur ekki enn
hafa kynnt sér þetta mál, en skip
væru væntanleg með hval inn £
kvöld.
að 24% feit af þeim skipum, sem
saltað var af á Raufarhöfn f gær,
en þau voru Ólafur Magnússon með
600 tunnur, Þorbjörn með 600,
Helga RE 100, Héðinn ÞH 200,
Ljósafell SU 150 og Áskell með
200 tunnur. Megnið af þessari síld
var saltað, og er það fyrsta sölt-
unin á Raufarhöfn. Tvö skip af
Kolbeinseyjarsvæðinu komu til
Siglufjarðar í gær með söltunarsíld,
sem er einnig fyrsta síldin, sem
þar er söltuð á sumrinu með fullu
leyfi sildarútvegsnefndar. Allmargt
skipa var komið á svæðið austur
af Kolbeinsey í gær, en aflinn var
Framh. á bls. 2.
Noregur og ESE
ræða um aðild
Tekið hefur verið fyrsta skrefið óskaði eftir, að öll málsmeðferð
til væntanlegrar þátttöku Noregs i yrði með sama hætti og á samkomu ,
Efnahagsbandalagi Evrópu, Þannig , lagsumleitunum Bretlands og EBE
var að orði komizt í NTB-fréttum i Danmerkur og EBE um skilyrði fyr-
gærkvöldi, þar sem sagt var frá jr aðild. Hann tók og fram, að
því að hafnar væru samkomulags-, það samkomulag sem kynni að
umleitanir unt skilyrði fyrir aðild j Verða gert, yrði að staðfesta af
Noregs að EBE. j Stórþinginu og auk þess væri ætlun
Á fundi, sem haldinn var ár- in, að þjóðaratkvæðagreiðsla færi
degis í gær, bauð iðnaðar- og fram um málið. Flutningur greinar
verzlunarráðherra Italíu norsku gerðar utanríkisráðherrans tók 3
samninganefndina með Halvard stundarfjórunga og var á frönsku.
Lange utanrikisráðherra f broddi j I henni var lögð áherzla á sérstöðu
fylkingar, hjartanlega velkomna, og Norðmanna sem fiskveiðiþjóðar.
bauð þar næst Halvard Lange að Kann kvaðst telja gerlegt að ná
taka til máls. j viðunandi samkomulagi um hin
Hann tók skýrt fram, að hann j sérstöku vandamái Noregs innan
j vébanda Rómarsáttmálans.
Hann sagði og, að ef samkomu-
lagsumleitanir Bretlands um kil-
yrði fyrir aðild bæru ekki árangur
yrði um aiveg ýtt' viðhorf að ræða
fyrir Norðmenn og þeir mundu þá
neyðast til þess að taka afstöðu
sína til nýrrar athugunar.
Búizt er við samkomulagsum-
leitanir Noregs og EBE standi fram
yfir miðjan október.
Síðustu
síMurfréttir
Kl. 12 á hádegi í dag rafði
blaðið samband við síldarleit- J
ina á Seyðisfirði. Veður var þá )
ágætt íyrir austan, en þoka. og '
skipin að kasta 36 mílur 8C .'ráð >
ur réttvísandi út af Dalatanga. \
Skipin voru þá að koma að
norðan á austursvæðið. )
Halvard Lange
Þjóðleikhúsgestsr 42 þús.
fleiri nú en árið áður
Leikári Þjóðleikhússins lauk
sunnudaginn 1. júlí neð tveimur
sýningum sama daginn fyrir full-
skipuðu húsi á MY FAIR LADY.
Var þetta 68. sýning og höfðu þá
42.027 manns séð söngleikinn og
aðgöngumiðar selst fyrir 7 niillj.
og 314 þúsund krónur.
Sýningar Þjóðleikhússins urðu
203 i Reykjavík, auk þess 8 úti á
landi, og urðu leikhúsgestii sam-
tals 109.401, þar af 1031 úti á
landi. En aðgöngumiðar oöfðu
selzt fyrir 12 milljónir króna á
leikárinu. Hagnaður á söngleiknum
MY FAIR LADY mun nema um
2.5 millj króna (ekki er allt upp-
gert enn þá, svo að nákvæmar töl-
ur liggja ekki fyrir) og er slikur
hagnaður einstæður i sögu leik-
hússins og mun það vera um það
bil 10 sinnum meira en mestur
hagnaður sem hefur orðið á nokk-
urri annari sýningu. Tala leikhús-
gesta í ár er sú mesta sem verið
hefur og er um 42 þúsundum hærri
en hún var á síðastliðnu ári, en þá
var hún sú lægsta.
Fer hér á eftir skrá um leiksýn-
ingár Þjóðleikhússins á liðnu leik-
ári og tölur sýningar og leikhús-
gesta:
„Horfðu reiður um öxl“ eftir
John Osborne Leikstjóri: Baldvin
Halldórsson. Sýningar 8 úti á
Framh. á bls. 2.
Jose Greco í Þjóð-
leikhúsinu í ágúst
Næsta leikái Þjóðleikhússins | legar vinsældir fyrir glæsibrag,
hefst nokkru fyrr en venjulega góðan dans og ágæta túlkun
eða 21. ágúst með sýningum hins
heimsfræga José Greco balletts.
Þessi spánski ballettflokkur
hefur undanfarin 15 ár sýnt í flest-
um stórborgum, bæði Evrópu og
Ameríku, og hvarvetna hlotið geysi
Greco , höfundur og stjórnandi
ballettsins kemur sjálfur moð og
dansar aðalhlutverk i mörgum
dönsum. Ballettflokkurinn mun
verða hér í vikutíma.
Framh. á bls. 2.