Vísir - 14.07.1962, Blaðsíða 3
Knattspyrnumenn
skemmta sér
Á þriðjudaginn var haldið
kveðjuhóf í Klúbbnum fyrir
norska landsliðið í knattspyrnu.
Var þar margt manna, bæði
yngri og eldri knattspyrnu-
manna, forystumenn í knatt-
spyrnumálum, stúlkur sem hafa
áhuga á útlcndingum og knatt-
spyrnumönnum og svo fram-
vegis.
Norska landsliðið var þarna
allt, auk fararstjóra og annarra
fylgdarmanna. Virtust þeir
skemmta sér hið bczta og nutu
hinna mestu vinsælda hjá stúlk-
unum. Ekki varð séð, að ósigur-
inn á vellinum hefði haft sjáan-
leg áhrif á lífsgleði fslcnzkra
landsliðsins, sem var þarna svo
að segja allt.
Samkoma þessi stóð við mik-
Inn glaum og gleði, tll klukkan
tvö um nóttina.
ásamt starfsbróður sínum, Jan Fryden frá Noregi. Fryden
lýsti leiknum fyrir norska útvarpið og var lýsingunni út-
varpað jafnóðum í Noregi. Vakti lýslngín geysilega athygli,
enda i fyrsta sinn sem norska útvarpið sendir hingað mann.
Þórólfur Beck rœðir við einn meðlima norskú. landsliðsnefnd-
arinnar.
Nokkrir Valsmenn saman komnir: Frá vinstri Hermann Hermannsson, sem var markvörður
Vals um árabil. Ormar Skeggjason, varamaður i landsliðinu, Mordo McDougall, sem hefur
þjálfað alla þessa menn, og Ámi Njálson bakvörður í landsliðinu.
Þrjár „knattspyrnuekkjur“, sem oft verða að sjá af mönnum sínum kvöld eftir kvöld allt Norsku knattspyrnumennirnir virtust vera mjög vinsælir
sumarið. Talið frá vinstri Anna Ásgirsdóttir, unnusta Ellerts Schram, Álfheiður Gísiadóttir, meðal kvenna. Hér sést einn þeirra að ræða við íslenzkar
kona Bjarna Felixsonar, og Kristín Helgadóttdóttir, kona Árna Njáissonar. yngismeyjar.