Vísir - 17.09.1962, Side 4

Vísir - 17.09.1962, Side 4
■/ r SIR Mánudagur 17. september 1962. y n Þurfum ekki Vi8 hittum að máli fjóra af blaðamönnunum frá ísraei, sem hér eru staddir i tilefni af komu Ben-Gurion, forsætisráðherra, hingað til lands. Menn þessir eru Amos Gordon, sem er yfir- maður fréttadeildar rikisút- varpsins I ísrael, er nefnist „Rödd ísraeis", Y. Ben Porat er frá eftirmiðdagsblaðinu Yediot Ahronot, auk þess sem hann er fulltrúi fréttastofu, A. Maron er frá fréttastofu rikis- ins og sér um aö senda fréttir til blaða sem ekki hafa sent menn í ferðina, Ari Rath, sem segist mundi heita Ari Jósefs- son, ef hann væri íslendingur, er frá Jerúsalem Post, sem er eina dagblaðið f ísrael, sem gef- ið er út á ensku. B. G. STJÓRN- SKÖRUNGUR. — Flokkur Ben-Gurions hef- ur ekki meiri hluta á þingi? Gordon: — Flokkur hans, sem er verkamannaflokkur, er sá stærsti, með einn þriðja þingsæta. Hann hefur stjómar- samvinnu við þjóðlega trúar- flokkinn, sem er hægfara vinstri flokkur. — Er Ben-Gurio vinsæll meðal almennings I Israel? Maron: Það er einn þeirra hluta sem ekki er auðvelt að mæla. Þó er enginn vafi á því, og jafnvel andstæðingar hans viðurkenna, að hann hefur unn- ið landi sínu mikið gagn og ver- ið mjög einbeittur þjóðemis- sinni. Gordon: — Ben-Gurion, eða B. G. eins og hann er jafnan kallaður I Israel, er í þeirri erf- iðu aðstöðu að taka þátt í dæg- urþrasi stjórnmálanna og vera auk þess okkar elzti stjórnskör- ungur. Sem stjórnskörungur nýtur hann mikillar virðingar, en ekki verður hjá því komizt að menn sem eru í stjómmálum hafi andúð margra, sem eru á annarri skoðun í stjómmálum. Maron: — Það dregur þó enginn í efa að B. G. er einn helzti leiðtogi sjálfstæðisbar- áttu okkar og hefur átt meiri þátt í því en flestir aðrir, að ísrael er til I dag. — Það hefur vakið athygli hve vandlega hefur verið geng- ið frá öllum öryggisráðstöfun- um í sambandi við komu for- sætisráðherrans hingað. Er ótt- azt um líf hans? Rath: — Það verður ekki sagt að beinlínis sé óttazt um líf hans. Hins vegar er alltaf möguleiki á að sú hætta skap- ist, þegar um er að ræða þjóð- arleiðtoga ríkis, sem umkringt er óvinsamlegum ríkjum. Gordon: — Aðeins einu sinni hefur lif hans verið f veru- legri hættu. Þá var kastað handsprengju í þinginu og meiddust nokkrir menn. Það var gert af ungum pilti í brjál- æðiskasti og alls ekki af póli- tískum toga spunnið, enda var því ekki frekar stefnt gegn B. G. en öðrum þingmönnum. SAMBÚÐIN VIÐ NÁGRANNANA. — Hvemig er sambúðin við Arabaríkin? Gordon: — Á sínum tíma var undirritaður vopnahléssátt- máli við öll Arabaríkin og var hann undirritaður við Egypta- land fyrst. Samt hefur reynzt erfitt að búa með þeim. Vopna- hléssáttmáli er ekki annað en fyrsta skref I átt til friðar, en Arabaríkin hafa ekki fengizt til að stíga fleiri skref. Rath: — Við höfum landa- mæri að fjórum ríkjum. í norðri er Libanon og hefur samkomulag þar verið ágætt síðan 1948. Það stafar meðal annars af því að um helmingur þjóðarinnar er kristinn og á talsverðum erfiðleikum með Múhameðstrúarmennkia heima fyrir. 1 norð-austri er Sýrland og hata það verið ófriðlegustu landamærin. Það stafar meðal annars af því að þeir eru á móti áætlun okkar um að nota vatn- ið úr Jordan og Galileuvatninu til áveitu á suðurhluta lands- ins. Þriðju landamærin eru við Jórdaniu og þau lengstu. Þar er sambúð yfirleitt góð, þó að lítils háttar óþægindi hafi orðið. Verða þau yfirleitt án vilja Y. Ben Porat. stjórnar Jórdaníu. Fjórðu landa mærin eru svo við Egyptaland og hefur allt verið friðsamlegt þar síðan 1956, er Sinai herferð- in var farin. Eftir það hafa Sameinuðu þjóðirnar haft þar gæzlulið. — Hvað viljið þið segja um eldflaugar Nassers? Ben Porat: — Þær eru mjög hættulegar fyrir okkur, þó að þær séu ekki eins hættulegar og Nasser vill vera láta. Eins og Ben-Gurion sagði í Osló verðum við að gera eitthvað til að vega á móti þessu. Gordon: — Við vorum komn ir með eldflaug, sem dregur 300 kílómetra fyrir meira en ári síðan. Hún er að vísu ekki þannig, að hægt sé að stýra henni, en það er ekki hægt heldur við eldfiau^ar Égypta. EGYPTAR ERU ERFIÐIR. . Maron: — Okkur stafar ekki mikil hætta af Egyptunum sjálfum, heldur því að þeir nota mikiS af erlendum sér- fræðingum, aðallega Rússum, sér til aðstoðar. Við höfúm hins vegar gert allt sjálfir. Ben Porat: — Önnur hætta sem stáfar af þessu er sú, að þetta komi af stað vígbúnaðar- Amos Gordon. kapphlaupi í nálægum Austur- löndum. Maron: — Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum ekkert að óttast frá Egyptum á meðan að þeir berjast einir. Það skipt- ir ?kki öllu máli með hvaða vopnum er barizt. Við höfum miklu betur þjálfaðan her og okkar her veit fyrir hverju hann er að berjast. Hann er að berjast fyrir réttinum til að vera til. Ben Porat: — Ef ekki væri fyrir Egyptaland hefðum við getað haft frið og sátt við nár grannalöndin í mörg ár. Gordon: — Það sem gerir þetta mál flóknara, er það að Egyptar hafa ekki aðeins áhuga fyrir að vinna ísrael, heldur einnig öll Arabarikin. Þó að Nasser hafi mistekizt í samein- ingunni við Sýrland, þýðir það ekki að hann hafi gefizt upp við draum sinn um Arabaheims- veldi, sem nær allt að Persaflóa. Ben Porat: — Þá stendur « Pjérif blaða- ■’ menn frá ísrael I a segja fró ° viðbrfum ° í heima- a landi sínu það einnig í vegi fyrir friðsam- legri sambúð að ekkert Araba- ríkjanna þorir að semja við okkur af ótta við að hin álíti þá svikara. ÁHRIF EICHMANN- MÁLSINS. — Hvaða áhrif teljið þið að Eichmann-málið hafi haft út á við? Ben Porat: — Réttarhöldin höfðu siðferðileg áhrif um all- an heim. Maron: — Þau gerðu mönn- um ljóst hver hætta getur fylgt stjórnkerfi eins og nazisman- um. Það var ekki um að ræða persónulega hefnd viðEichmann heldur er þetta ámin ning til heimsins um að gleyma ekki þessum kafla mannkynssög- unnar. — Teljið þið það réttmætt, að ræna mönnum í öðrum löndum, eins og gert var við Eichmann? Rath: — Ég tel það fullkom- lega réttlætanlegt. Það er líka rétt að hafa í huga að hvorki þýzk né argentínsk stjórnarvöld reyndu neitt til að koma hon- um fyrir rétt, þó að vitað væri að maðurinn var stórglæpamað- ur. Gordon: — Við byggjum mjög mikið á enskum lögum. Þar er ekki talið skipta máli hvernig manni er komið fyrir rétt. Aðalatriðið er að réttlætið fái fram að ganga. Rath: — Þetta atriði kom fram £ réttarhöldunum, en var ekki talið skipta máli. Þvi til stuðnings var vitnað í fordæmi fyrir slíkum aðgerðum bæði frá Bandarlkjunum Og Bretlandi. — Teljið þið að Eichmann hafi fengið réttláta meðferð frá dómstólsins hendi? Gordon: — Dómstólar okkar eru mjög sjálfstæðir og alls ekki undir pólitískum áhrifum. Það er ekki hægt að segja þeim fyrir verkum og algengt er að ríkið verði að beygja sig fyrir þeim. Hvað stríðsglæpamönn- um viðvfkur eru lög okkar mjög ákveðin. Maron: — Ef um hefði verið að ræða málamyndaréttarhöld hefðu þau aldrei staðið í eitt ár. Þá hefði mátt ljúka þeim á nokkrum dögum. HARMLEIKUR DR. SOBLEN. — Hvað viljið þið segja um Soblen-málið? Rath: — Það var mikill mannlegur harmleikur, sem við blönduðumst inn í gegn vilja okkar. Það var allt mjög dapurlegt. Gordon: — Það er mjög ein- falt. ísland vill ekki fá glæpa- menn inn í landið og það viljum við ekki heldur. Ben Porat: — í stjórnarskrá okkar er öllum Gyðingum tryggður réttur til að koma til ísrael og setjast að. Eina und- antekningin eru glæpamenn. EFNAHAGUR BATNANDI. — Hvernig er hagur ríkisins? Maron: — Við gætum verið mjög vel á vegi staddir ef við tækjum ekki við öllum þessum þúsundum innflytjenda. En þar sem það er einn megintilgang- urinn með stofnun ríkisins, ber- um við þessa byrði með gleði. Fyrstu árin voru mjög erfið. Vöruskortur var mikill og bið- raðir við búðir. Þetta er orðið miklu betra núna, og er óhætt að segja að velmegun sé í landinu. Framhald á bls. 10. (

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.