Vísir - 17.09.1962, Blaðsíða 8
8
Mánudagur 17. september 1962.
Otgefandi: Blaðaútgafan VISIR
Ritstjörar Hersteinn Pálcson Gunnar G. Schrani
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Porsteinn O fhorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðslg Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er a5 krói.ur á mánuði.
f lausasölu 3 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur).
Prentsmiðja Visis. — Edda h.f.
v______________________________________________J
Hrökkluðust frá með háðung
Engin ríkisstjórn á íslandi hefur hrökklazt frá
völdum með annarri eins háðung og vinstri stjórnin
illræmda. Flestir muna enn ,þegar Hermann Jónas-
son kom í útvarpið, í byrjun desember 1958, og til-
kynnti þau válegu tíðindi, að ný verðbólgualda væri
að skella yfir þjóðina, en engin samstaða hefði náðst
í ríkisstjóminni um úrræði til bjargar. Það hljóta að
hafa verið þung spor fyrir þennan stjórnmálaleiðtoga,
sem hafði lofað svo miklu — ætlaði að gera „úttekt
í þjóðarbúinu“ og taka upp nýja stjórnarhætti - að
fara upp í útvarp og játa þennan ósigur fyrir alþjóð.
En hann hafði uppskorið eins og hann sáði. Vinir hans,
kommúnistamir, höfðu séð um það.
Nokkm áður en þetta skeði hafði forsætisráð-
herrann beðið þing Alþýðusambandsins um frest á
því, í stuttan tíma, að 17 stiga hækkun vísitölunnar
kæmi til framkvæmda. Þessi sami forsætisráðherra
hafði áður, um leið og stjóm hans settist að völdum,
lögbundið allt kaupgjald um nokkurt skeið og síðar
laumað að landsfólkinu nýjum álögum og sköttum,
sem námu um 1000—1100 millj. kr. á ári.
Það kom því engum á óvart, nema ef til vill for-
sætisráðherranum sjálfum, þótt viðtökurnar yrðu kald-
ar, þegar hann kom inn á þing Alþýðusambandsins
og bað um samþykki þess til að vega enn í sama kné-
mnn. Og ekki voru vinir hans og sálufélagar, komm-
únistarnir, að hjálpa honum þá. Þeir fylktu öllu sínu
liði gegn honum.
Kommúnistar vissu ,eins og Hermann Jónasson,
að efnahagskerfið þoldi ekki þessar sífelldu víxlhækk-
anir kaupgjalds og verðlags, en þeir vildu hrun, þá
eins og nú, og töldu sig hafa búið svo vel um hnútana
með vem sinni í ríkisstjórninni, að verðbólgualdan
yrði ekki stöðvuð, en hins vegar mundi þessi nýja
hækkun flýta nokkuð fyrir hruninu - og þá var auð-
vitað sjálfsagt að velja fljótvirkustu leiðina.
Lærðu ekki at reynslunni
Eftir þá dýrkeyptu reynslu, sem Framsókn fékk
af samstarfinu við kommúnista í vinstri stjórninni,
voru ýmsir svo bjartsýnir, að þeir gerðu sér vonir um
að leiðtogar Framsóknarflokksins mundu hafna allri
samvinnu við þá, a. m. k. næstu árin. Og þegar for-
mannsskiptin urðu í Framsókn s.l. vetur, töldu margir
víst að nú yrði breytt um stefnu. En þessar vonir hafa
brugðizt. Eysteinn Jónsson virðist ekki ætla að verða
eftirbátur fyrirrennara slns í þjónustunni við komm-
únista. Þeir hafa sömu völd í Framsókn nú og í for-
mannstíð Hermanns.
Þau hörmulegu tíðindi, að foringjar Framsóknar-
flokksins skuli ætla að fylkja liði sínu til stuðnings við
kommúnista í kosningunum til. Alþýðusambandsins
sanna það, að þjóðin getur hvorki treyst Framsóknar-
flokknum til ábyrgrar afstöðu í innanlandsmálum, né
heilinda í samstarfi vestrænna lýðræðisþjóða.
VISIR
Tilræðismenn dæmdir
Þessir fimm herramenn hér á
myndinni, sem eru reyrðir í
handjárn reyndu fyrir ári síð-
an að myrða de Gaulle Frakk-
Iandsforseta, er hann ók eftir
þjóðveginum frá París til sveit-
arseturs síns í Comobey-les-
Deux-Eglises. Höfðu þeir komið
sprengju fyrir við vegarbrún,
en svo tókst til, þegar bifreið
forsetans ók framhjá sprengj-
unni sprakk hún ekki, heldur
brann með neistaflugi og var
talið nálgast kraftaverki að
forsetinn skyldi sleppa þannig
ómeiddur frá tilræðinu.
Nú í vikunni voru þessir
fimm menn leiddir fyrir rétt og
hittist einkennilega á, að um
sama Ieyti slapp forsetinn i
annað sinn með undraverðum
hætti frá morðtilræði. Þeir voru
dæmdir en fengu tiltölulega
væga dóma. Á myndunum hér
fyrir ofan eru þeir talið frá
vinstri: Jean Rouviere sem bjó
sprengjuna til, en varð það á
að hafa efnasamsetningu henn-
ar ranga. Þá kemur Armand
Belvisi, í miðjunni er Henri
Manoury sem var forsprakki
samsærismannanna, þá kemur
Martial de Villimande og loks
Bernard Barbance.
Saksóknari krafðist dauða-
dóms yfir forsprakkanum en 20
ára fangelsis fyrir sökunauta
hans, en dómurinn hljóðaði
upp á 20 ára fangelsi fyrir
Manouri en 10 og 15 ára fang-
elsi fyrir hina.
Sama daginn og dómur var
upp kveðinn tiikynnti franska
lögreglan, að hún hefði hand-
tekið aðra fimm samsærismenn,
þá sem stóðu að vélbyssutil-
ræðinu við de Gaulle á dögun-
um.
Fjögur héraðsmót
S j álf stæðismanna
- iBönduós
Sunnudaginn 2. sept. s.l. efndu
Sjálfstæðismenn í Austur-Húna-
vatnssýslu til héraðsmóts í hinu
nýja félagsheimili á Blönduósi. Var
mótið vel sótt og fór mjög vel
fram.
Samkomuna setti og stjórnaði
Stefán A. Jónsson frá Kagaðarhóli.
Dagskráin hófst með því að Guð-
mundur Jónsson, óperusöngvarj,
söng, einsöng, undirleik annaðist
Fritz Weisshappel
Þá flutti sr. Gunnar Gíslason,
alþingismaður, ræðu. Síðan söng
■ frú Sigurveig Hjaltested, óperu-
söngkona, einsöng.
Þessu næst flutti prófessor Ólaf-
ur Björnsson, ræðu.
Fluttur var gamanleikurinn
„Heimilisfriður“ eftir Georges
Courteline og fóru með hlutverk
leikararnir Rúrik Haraldsson og
Guðrún Ásmundsdóttir.
Að leiksýningu lokinni sungu
þau Guðmundur Jónsson og frú
Siguryeig Hjaltested, tvísöng við
undirleik Fritz Weisshappel
Var ræðumönnum og listafólki
ágætlega teki“ Lauk sfðan þess-
ari samkomu með- dansleik.
Sfðasliðinn laugardag efndu
Sjálfstæðismenn á ísafirði til hér
Héraðsmót á ísafirði 12346 :
aðsmóts, er haldið var i Alþýðu I
húsinu á staðnufn.
Samkomuna setti og stjórnaði
Eyjólfur Bjarnason, formaður
Sjálfstæðisfélagsins á ísafirði.
Dagskráin hófst með einsöng
Guðmundar Jónssonar óperusöngv
ara. Undirleik annaðist Fritz Weiss
happei píanóleikari.
Þá flutti Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra ræðu. Síðan söng
frú Sigurveig Hjaltested, óperu-
söngkona, einsöng.
Þessu næst flutti Kjartan J. Jó-
hannsson, aiþnigismaður, ræðu.
Fluttur var gamanleikurinn
„Heimilisfriður“ eftir Georges
Courteline, og fóru með hlutverk-
in leikararnir Rúrik Haraldsson og
Guðrún Ásmundsdóttir.
Eftir leiksýningu sungu þau Guð
mundur Jónsson og frú Sigurveig
Hjaltested tvfsöng við undirleik
Fr Weisshappel.
Var ræðumönnum og listafólk
inu mjög vel fagnað. Var'mót þetta
i hið ánægjulegasta og fór hið bezta
fram.
lirkjubæjar-
klaustur
Laugardaginn 8. september efndu
Sjálfstæðismenn í Vestur-Skafta-
f "'ssýslu ,til héraðsmóts, er haldið
var í samkomuhúsinu að Kirkju-
bæiarklaustri.
Var mót þetta með fjölmennustu
mótum, sem þarna hafi verið hald
m Sótti það fólk víðsvegar að úr
sýslunni.
Samkomuna setti og stjórnaði
Siggeir Björnsson, bóndi í Holti.
Dagskráin hófst með því, að
Kristinn Hallsson, óperusöngvari,
söng einsöng. Undirléik annaðist
Skúli Halldórsson, píanóleikari.
Þá fiutti Sigurður Ó. Ólafsson,
alþingismaður, ræðu. Síðan söng
Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, ein-
söng.
Þessu næst flutti Ingólfur Jóns-
son, landbúnaðarráðherra, reeðu.
Fluttui var gamanleikurinn
„Mótlætið göfgar" eftir Leonard
White, og fóru með hlutverk leik
ararnir Valur Gíslason og Helga
Valtýsdóttir. Að leiksýningu lok-
inni sungu þau Kristinn og Þórunn
tvfsöng við undirleik Skúla Hall-
dórssonar.
Var ræðumönnum og listafólkinu
mjög vel fagnað. Lauk síðan þess-
ari samkomu með því að stiginn
var dans fram eftir nóttu. Þótti
héraðsmót þetta takast með ágæt-
um op vera öllum aðilum til sóma
Laugardaginn 1. sept. s. 1. héldu
Sjálfstæðismenn á Ólafsfirð héraðs
mót sitt f samkomuhúsi bæjarins.
Var það vel sótt og fór hið bezta
fram.
Ræður á mótinu fluttu þe. Ing-
ólfur Jónsson, landbúnaöarráð-
herra, og Gísli Jónsson, mennta-
; skólakennari, og var gerður góður
j rómur að máli þéirra.
Á sunnudagskvöldið 2. sept
efndu svj Sjálfstæðismenn á Dal-
vfk einnig til .nnfagnaðar í sam
komuhúsi sínu. Var mót þett®
mjög fjölsótt og þótti takast með
miklum ágætum. i Samkomuna setti
og stjórnaf formaður Sjálfstæðis-
Franíhald á bls. 10.