Vísir - 17.09.1962, Blaðsíða 10
Klukkan kallar
Framh. af bls. 9
tók að sér að geyma klukkuna
ásamt bi;æðrum sínum þar. Þar
er klukkan enn í dag og verður
afhent. nýju kirkjunni á Mos-
felli, þegar hún verður vígð.
Sonardóttir Hrísbrúarbónda, El-
inborg Andrésdóttir, býr nú á
Hrísbrú, og þar tók ljósmynd-
ari Vísis myndina af henni með
hina sðgufrægu og sigursælu
kirkjuklukku á dögunum.
Þótt Mosfellingar töpuðu
fyrstu orustunni í stríðinu fyrir
kirkju sinni, hafa aldrei þagnað
að fullu þær raddir, sem gerðu
tilkall til þess að Mosfellskirkja
yrði endurreist.
Fyrir þremur árum andaðist
hreppstjóri Mosfellssveitar,
Stefán Þorláksson í Reykjahlíð,
og kom í ljós, er erfðaskrá hans
var opnuð, að þessu kirkjumáli
var borgið. Stefán hafði alizt
upp á Hrísbrú með gömlu
kirkjuklukkunni og undir áhrifa
mætti þeirra minninga, sem við
hana og Mosfeliskirkju voru
bundnar. Hversu máttug þau
áhrif hafa verið, má bezt marka
af því, að Stefán, sem var ó-
kvæntur og barniaus stóreigna-
maður, stofnaði með erfðaskrá
sinni sjóð af þorra eigna sinna
og skyldi verja honum til að
endurreisa kirkju á Mosfelli
Þar með var hið mikla tilfinn-
inga- og metnaðarmál dalbú-
anna komið f höfn. /
Stefán lét eftir sig svo mikl-
ar eignir, að tflið er að þær
hrökkvi eigi aðeins fyrir bygg-
ingarkostnaði, heldur og fyrir
viðhaldi og reksturskostnaði
kirkjuhússins í framtfðinni. Með
al eigna þeirra, er Stefán arf-
Ieiddi kirkjusjóðinn að, er gróðr
arstöð, þar sem einvörðungu
eru reektuð blóm og kirkjubygg
ingarsjóður rekur f samvinnu
við garðyrkjumann, og má þvi
með sanni segja, að blómin
leggi sitt af mörkum til kirkju-
byggingarinnar.
Á sl. ári var efnt til verð-
launasamkeppni um teikningu
að nýju kirkjunni og þrenn
verðlaun veitt að tillögu dóm-
nefndar, sem fjallaði um teikn-
ingamar. Ekki var þó byggt
eftir neinni verðlaunateikning-
unni, heldur eftir teikningu,
sem Ragnar Emilsson gerði
Framkvæmdir við kirkjubygg-
inguna hófust strax og klaki fór
úr jörðu í vor. Nú hefur verið
steyptur grunnur undir kirkj-
una og verið er að slá upp fyr-
ir kirkjuskipinu og kórnum.
Nokkur hluti kirkjunnar er
byggður inn f gamla kirkjugarð-
inn. Þar kom upp töluvert mik-
ið af mannabeinum. Þeim var
öllum safnað saman f stóra
kistu, sem grafin var undir kór-
gólfi nýju kirkjunnar.
Stjórn dánargjafar Stefáns
Þorlákssonar skipa sóknarprest-
urinn, sýslumaður og biskup
landsins. Þá starfar og sérstök
kirkjubyggingarnefnd, sóknar-
presturinri, séra Bjarni Sigurðs-
son, formaður, og sést af þvf,
hve mikið hvílir á hans herðum
við þetta endurreisnarstarf.
Með honum eru f byggingar-
nefndinni Jónas Magnússon
safnaðarfulltrúi í Stardal. Ólaf-
ur Þórðarson, sóknarnefndar-
formaður Varmalandi, Ólaffa
Andrésdóttir, húsfreyja, Lauga-
bóli, og O’dur Ólafsson, lækn-
ir, Reykjalundi.
Mikil og almenn ánægja og
áhugi ríkir fyrir þessari kirkju-
smfði í Mosfellssveit, eins og
allur aðdragandi þessa bygginp
armáls gefur tilefni til, og mun
vart ofmælt, að fáar nútfma-
kirkjur á fslandi eigi sögulegr
aðdraganda.
Hin nýja kirkja á Mosfelli á
að rúma 110 manns í sæti. Hún
stendur á brekkubrún og sér
þaðan yfir dalinn. Grunnflötur
forkirkjunViar myndar þríhyrn-
ing, forhliðin er þríhyrnd og
allir fletir byggingarinnar þrí-
hyrndir. Turninn verður 23
metra hár og víkur frá venju
að því Ieyti, að hann rfs upp
af austurenda kirkjunnar, það
er að segja upp af kórnum. í
samræmi við aðrar línur kirkj-
unnar, er turninn þrístrendur
og opinn að nokkrum hluta.
★
Hér verður nú settur punkt-
ur. En byggingu Mosfellskirkju
verður haldið áfram, unz hún
verður fullgerð og vfgð, og
gefst þá væntanlega tækifæri
til þess að rekja þann kafla,
sem enn er óskráður. Hér hef-
ur óumdeilanlega gerzt sér-
kennileg saga, og er að gerast
„í henni speglast hjartsláttur
dalsins", eins og séra Bjami á
Mosfelli komst að orði, þegar
við heimsóttum hann.
E. Bj.
Þurfum ekki
Framhald af bls. 4.
Rath: — Við eigum við þrjú
megin vandamál að stríða. f
fyrsta lagi að koma efnahagn-
um á traustari grundvöll. í
öðru lagi að halda uppi full-
nægjandi landvörnum og í
þriðja lagi að sjá fyrir mennt-
un þeim þúsundum barna, sem
flytjast til landsins á hverju
ári. Þetta eru allt vandamál,
sem ekki er séð fyrir endann
á, því að við reiknum með
stöðugum innflytjendastraumi í
framtfðinni.
— Hafið þið rióg landrými
fyrir allt þetta fólk?
Rath: — Tveir þriðju hlutar
landsins er Negev eyðimörkin.
Á henni búa aðeins 80 þúsund
manns af tveim milljónum, sem
eru f landinu öllu. Ef hægt er
að rækta, þó ekki væri nema
einhvern hluta þess svæðis,
höfum við nóg land fyrst um
sinn.
Maron: Það er einmitt til
þess, sem við ætlum að nota
vatnið úr Galileuvatninu, sem
hefur orsakað deilur við Sýr-
land.
REYKJAVÍK
ER TÖFRANDI.
— Hvað viljið þið segja um
ísland eftir svo stutta við-
kynningu?
Rath: — Sem blaðamaður
get ég fullyrt að okkar pressa
gæti aldrei gert hluti eins og
þið hafið gert hér, í sambandi
við komu Ben-Gurions. Það er
ótrúlegt en satt, að ykkar
stærsta blað hefur nærri því
eins mikla útbreiðslu og út-
broiddasta blað okkar, þó að
við séum meira en tíu sinnum
fleiri.
Maron: — Mér þykir það sér-
lega merkilegt, að mér er sagt,
að þið gefið út um 300 bækur
á ári. Það er óskiljanlegt að
þetta skuli vera hægt f svo fá-
mennu landi. Ég var einnig
mjög hrifinn af forsætisráðherr-
anum Ólafi Thors. Hann er
mjög sérstæður og skemmtileg-
ur maður og auk þess hafði ég
ekki hugmynd um að hár B. G.
ætti svo skæðan keppinaut.
Gordon: — Reykjavík er
töfrandi borg. Þegar ég lít út
um gluggann minn og sé öll
þessi litskrúðugu og vel hirtu
hús, kemst ég ósjálfrátt í gott
skap. Þ’að er satt að segja ó-
trúlegt hve Iítið ísland er
framandi fyrir okkur, þó að við
séum langt að.
Ó. S.
/
Héraðsmót
Framhald af bls. 8.
félagsins, Egill Júlfusson, útg. m.
Ræður á þessu móti fluttu Ingólf
ur Jónsson, ráðherra, og Jónas G.
Rafnar, alþingismaður. Var ræðu-
mönnum mjög vel fagnað.
Á báðum þessum héraðssamkom
um var fluttur hinn ágæti gaman-
leikur „Mótlæti göfgar“ eftir
Leonard White, en með hlutverkin
fóru leikararnir Valur Gíslason og
Helga Valtýsdóttir.
Enn fremur var til skemmtunar
einsöngui og tvísöngur, en flytjend
ur voru Kristinn Hallsson, óperu-
söngvari, Þórunn Ólafsdóttir, söng
kona og Skúli Halldórsson, píanó-
leikari.
Var listafólkinu sem ræðumönn
unum mjög v'-' tekið á báðum þess
um samkomum.
ITALSKI BARINN
OPÍNN í KVÖLD
NEO-tnoið
og
Margit
Calva
Kl.l liBUilW
GLAUMBÆR
I kvöld leikur Glaumbæjartríó. Dinner -
og dansmúsik. - Komið og látið yður líða
vel.
GLAUMBÆR
SKRIFSTOFUR
VORAR
ERU
FLUTTAR
AÐ
LAUGAVEGI178
TRYGGING hf.
SIMAR
15434 - 16434 - 24496 - 24497
- 38280
ATVINNA
Járniðnaðarmenn og aðstoðarmenn óskast
strax.
Vélsmiðjan Héðinn
BIFVÉLAVIRKI
\
eða maður vanur bifreiðaviðgerðum, óskast.
Einnig maður vanur rafsuðu.
i
Bifreiðasföð Sfeindérs
Sími 18585.
RÖSKUR
sendisveinn óskast. Vinnutími 8,30 til 12 f. h.
Upplýsingar í prentsmiðjunni Laugaveg 178.
Dagbldðið Vísir