Vísir - 24.11.1962, Síða 10

Vísir - 24.11.1962, Síða 10
V1SIR . Laugardagur 24. nóvember 1962. w œmm \ Höfum kaupanda að amerfskum tveggja dyra 8 cyl. bíl. Má vera sjálfskiptur. Hafnarfjörður— Hafnarfjörður Ungling vantar til að bera út Vísi í Hafnarfirði, Upplýsingar í síma 50841. Afgreiðslan, Garðaveg 9, uppi. Bíla og búvélasalan S E L U R Bíla og búvélasalan V/MIKLATORG — Sími 2 31 36. tliolbarðaverkstæðid Millan Opin alla daga frá kl. 8 að morgni til kfc 11 að kvöldi. Viðgerðir á alls konar hjólbörðum. — Seljum einnig allar stærðir hljóbarða — Vönduð vinna. — Hagstætt verð. M I L L A N Þverholti 5. — B í L A V A L - FORD '■ Nýir bílar, allar tegundir til sölu hjá okkur Skoðið sýningarbíla á sölusvæði okkar. Nýir og notaðir bílar ávallt til sýnis á staðnum. Salan er örugg hjá okkur. BÍLAVAL Laugavegi 90—92 . Símar 18966, 19092 og 19168 Sextíu úr — Framhald af bls. 4. okkur að hífa skipið, hinir gengu hlæjandi burtu. Þetta var ólíkt Bolvlkingum, en svona voru fyrstu móttökurnar, sem mótor- vélin fékk þar. Flýgur fiskisagan. Þessi ótrú á mótorvélinni fékk skjótan enda. Daginn eftir var gott veður, og fór ég á sjó eins og allir aðrir og var kominn í land aftur um hádegi með hlað- afla. Þar sem veðurútlit var gott, beitti ég þá strax aðrar lóðir, og fórum við fjórir á sjóinn, þegar beitingu var lokið, en ég skildi eftir einn hásetann til þess að gera að aflanum. Um kvöldið kom ég úr annarri sjóferðinni með engu minni afla en í þeirri fyrri. Þessi fiskisaga flaug fljótt um Bolungarvíkur-Malir, og kom fjöldi manna til þess að fullvissa Chervolet station ’55 Consul 315 62, Austin Gipsy ’62 diesel Vörubílai Volvo '55—’58. Mercedes Benz ’55, ’60, '61. Chervolet ’52, ’55, '59 og '61 Lóð undir cinbýlishús í Kópavogi. Góð kjör. Bíll óskast í skiptum. Gamla bílasalan hefir alltaf til sölu mikið árval af nýjum og eldri bílum, af öllum stærðum og gerðum og oft litlar æm engar útborganir. Gomla bjlasolan //Rauðará Skúlagötu 55 Sími 15812. Húsmæður « einsfaklingar Látið ^.ckur annast slcyrtuþvottinn. Þ V T 1 AHÚSIÐ Skyrtur & sloppar irautarholti 2. Sími 15790 SMÁLFUNDAFÉLAGIÐ ÓÐINN Félag sjálfstæðismanna í launþegasamtökum. Aðal- fundur félagsins verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu n. k. sunnudag 25. þ. m. kl. 2 e. h. DAGSKRÁ: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Tillaga stjórnar og trúnaðr>» \ mannaráðs um lagabrev' ’ 3) Önnur mál. Stjórnin. sig um áreiðanleik hennar. Upp frá þessu varð snögg breyting á áliti almennings á mótorvélinni. Nú vildu allir hjálpa við lendingu, eins og áður og fá að sjá þenna undragrip, sem ég hafði fengið. Tók 28 farþega í ferð. Um helgar, þegar ég fór heim til Isafjarðar, var fyrir fram pantað far af fleirum en ég gat flutt. Tók ég fimmtíu aura í far- gjald báðar leiðir, frá og til Bol- ungarvíkur. Vanalega munu hafa verið 28 farþegar í hverri ferð, meðan nýbreytnin var mest hjá fólkinu. Ég lét fargjaldið ganga til þess að borga olíu, sem átti að greiðast af óskiptum afla, og nam það vel fyrir olíueyðslunni um vorið. Skipti á vélbát mínum var í níu staði, eins og áður var á sexæringunum, en ég hafði ein- um manni færri, og fékk vélin þann hlut, sem við það sparaðist. Lendingin lánaðist alltaf vel, og má heita, að skip hafi sjaldan brotnað í lendingu í Bolungarvík. Allir vildu þá vélar. Þegar fyrsta reynslan var fengin, vildu allir fá mótorvélar. Við Nielsen urðum umboðsmenn fyrir Möllerups-mótora, og strax sumarið 1903 var byrjað að panta vélar og smíða nokkur skip undir vélar. Fyrstur tíl þess að panta vél hjá okkur varð Guðmundur bátasmiður og Ágúst sonur hans. — Mátti heita, að hver vélarpöntunin ræki aðra, og urðu þær miklu fleiri en við mátti búast. Fyrstu tvö árin, 1903—05, voru mest keyptar vélar frá Möllerup í Esbjerg og frá Dan- mótorverksmiðjunum í Kaup- mannahöfn. Eftir það hófust kaup á Alpha-mótorum frá Frið- rikshöfn. Þóttu Alpha-vélarnar taka hinum fram, og þær urðu um tíma mest notuðu mótorvél- arnar hér við Djúp og á Vest- fjörðum. Aldan var óstöðvandi. Þeir menn voru ekki fáir, sem þótti þarna geyst farið og spáðu, að þetta nýjabrum myndi skammt endast. En slíkar raddir náðu engu veðri. Ekkert gat stöðvað þá þungu öldu, sem risin var með mótorvélunum. Eftir þrjú ár frá því að fyrsta mótor- vélin kom hingað til Iands, voru allir sexæringar 1 Bolungarvík komnir með mótorvélar, tveggja til fjögurra hestafla... Breyt- ingin skapaði nýja tíma og nýtt líf. Menn urðu að trúa á fram- tíðina, og annað hvort var að duga eða drepast í þessu kapp- hlaupi .... Bílcs- búvélasalan Selur: Mercedes Benz 219 '57 og Mercedes Benz 190 ’57 og Opel Capitan ’57. Allir bílarnir nýkomnir tii landsins. Bíla- o§ Húvélasalan við Miklatorg, sími 23136 Þrjú fyrstu ár vélbátaútgerðar- innar, sem ég geri hér að um- talsefni, voru sögurík að mörgu leyti. Eins og vita mátti, gekk mönnum ærið misjafnt að fara með mótorvélarnar. Sumir voru fljótir að læra meðferð þeirra, og hirtu þær prýðilega, aðrir voru kærulausir og lögðu sig ekki fram með meðferð vélanna og urðu hjá, þeim tíðar bilanir, margar vegna trassaskapar. Verkstæði stofnað. Fjórum árum síðar en fyrsta mótorvélin kom hingað til lands, tók til starfa mótorverkstæði hér á ísafirði, og var það hið fyrsta á landi hér. Forstöðumaður þess og eigandi var J. H. Jessen, pilt- urinn, sem sendur var hingað til að setja hiður fyrstu mótorvél- ina, og fyrr er frá sagt. Gengu fjórtán útgerðarmenn og Jón Laxdal verzlunarstjóri sá fimmt- ándi í 15 þúsund króna ábyrgð til þess að koma verkstæðinu á fót. Veitti sparisjóðurinn hér lán þetta, og mun það hafa verið stærsta lánið, sem sú stofnun veitti fram að þessum tíma. Ekki man ég með vissu, hve margar mótorvélar voru þá komnar í fiskibáta hér við Djúp og í næstu byggðarlögum, en þær munu hafa verið upp undir hundrað. Var því hin mesta þörf á mótorverkstæði, enda strax mikil aðsókn að því. Jessen var lipurmenni og góð- ur vélsmiður. Varð hann fljót- lega sem íslendingur, enda kvæntist hann íslenzkri konu, Sigþrúði Guðmundsdóttur (báta- smiðs). Fyrstu vélstjórarnir. Jafnframt því sem mótorverk- stæði þetta bætti úr aðgerðar- þörf vélbátaútvegsins, varð það grundvöllur og upphaf inn- lendrar vélaþekkingar og vél- stjórnar. Lærðu margir hjá Jessen, sem síðar gátu sér ágæt- an orðstír sem vélstjórar eða vélsmiðir. Má meðal þeirra nefna Gísla Jónsson, þingmann Barð- strendinga, Hallgrím Jónsson, yfirvélstjóra á Dettifossi, Sören- sen, yfirvélstjóra á Brúarfossi, Gunnlaug Fossberg, vélfræðing, Ágúst Guðmundsson og Kjartan Tómasson, sem báðir eru vél- stjórar við Rafveitu Reykjavíkur, og Þorstein Árnason, núv. fé- hirði Vélstjórafélags Islands. Afkoma vélbátaútgerðarinnar fyrstu árin var auðvitað ærið misjöfn. Margir græddu talsvert fé a skömmum tíma, aðrir töp- uðu meira og minna, oftast fyrir sérstök óhöpp og stundum fyrir slóðaskap. En óhikað má segja, að ísfirzk sjómannastétt hafi á þessum árum lyft Grettistaki, og á hún fyrir það alþjóðarþökk. Tel ég, að vélbátaútvegurinn, sem nú er aðalútgerð Vestfirðinga. hafi reynzt happadrjúgur og heiliaríkur. Hann hefir stöðugt færzt í aukana — skipunum /jölgað og þau stækkað, eftir því sem kringumstæður hentuðu og reynslan kenndi mönnum bæði um stærð og allan útbúnað skipanna. Undanfari þess fríða vélbátaflota, sem landsmenn eiga nú, voru litlu bátamótorarnir. sem hér bar að landi í byrjun aldarinnar." Þeir Árni og Nielsen seldu síðar Stanley, og var'-kaupandi Bjarni Sigurðsson bóndi 5 Borg í Skötufirði. Þau urðu endalok bátsins, að hann rak á land í Borgarbót í norðanveðri og brotnaði í spón. Sökk vélin op náðist aldrei, en Fiskifélag ís- lands átti lengi vel landmótor sömu gerðar og var í Stanley, og á hana ef til vill enn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.