Vísir - 24.11.1962, Page 16

Vísir - 24.11.1962, Page 16
Laugardagur 24. nóvember 1962. Ólögleg stjórn A.S.Í. Miðstjóm Alþýðusambands íslánds skipa næstu tvö árin: Hannibal Valdimarsson forseti, Edvarð Sigurðsson varaforseti, Jón Snorri Þorleifsson ritari. Aðrir í miðstjórn: Snorri Jóns son, Helgi S. Guðmundsson, Margrét Auðunsdóttir, Einar Ögmundsson, Sveinn Gamalíels- son og Óðinn Rögnvaldsson. Auk þess voru kjömir fjórir varamenn. Gert var ráð fyrir að þingi Iyki í nótt. Sýningu Vnltýs nð Ijúfcn I Listamannaskálanum stendur nú yfir sýning Valtýs Péturssonar listmálara. Sýningin var opnuð 10. nóvember og mun standa til sunnu dagskvölds, 25. nóvember. Margar myndir em þegar seldar. Sýningin er opin frá kl. 2 — 10 daglega. LtTLA ÞÚFAN SCM VIL Wt SAS Árás SAS á Loftleiðir er sú langmesta og bezta auglýsing, sem Loftleiðir hafa fengið f Svíþjóð, skrifar fslendingur einn, sem staddur er f Stokk- hólmi, til Vfsis. Með bréfinu lætur fslending- urinn fylgja úrklippu úr sænska stórblaðinu „Aftonbladet“, sem birtir á útsiðu stóra grein með myndum um hið „litla“ flugfé- lag Loftleiðir. Greinin er mjög hlynnt íslenzka félaginu, sem risasamtökin SAS eru að ráðast gegn. Á myndinni sem hér fylgir segir í hinni stóm fyrirsögn: „Lítil þúfa veltir stóru SAS“ og síðan er bætt við: — ís- lenzka Loftleiðir (= þúfan) 400 sinnum minni en SAS — en græðir mcira! Blaðið gerir samanburð á þessum tveimur flugfélögum. Það segir: SAS hefur 13 þús- und manna starfslið, — Loft- leiðir 350. Hlutafé. SAS er 200 millj- ón krónur. Hlutafé Loftleiða er 4 milljónir ísienzkra króna eða um 500 þús. í sænskri mynt. SAS hefur heilan hóp fram- kvæmdastjóra og stjórnenda í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Osló. Loftleiðum stjórna fjórir menn í Reykjavík. SAS á flugflota með 50 flug- vélum. Loftleiðir eiga fimm. SAS hefur nokkrum sinnum fengið stórfelld fjárframlög frá skattborgurum Norðurlanda. Af ÝVETNINGAR FÁ EIGID RAFMAGN FYRIR JÓLIN Mývetningar eru nú I fyrsta sinn að fá rafmagn frá sínu eigin orkuveri eins og þeir kalla það. Eru nú liðin um 25 ár síðan Laxá var virkjuð og hefur Mývetning- um þótt súrt í broti allan þennan tfma, að fá ekkert af rafmagninu, sem þessi á þeirra framleiðir. Nú er verið að leggja rafmagnið á öll býli meðfram suður- og austurströnd Mývatns. Eru það rúmlega 30 býli á öllu svæðinu frá Reykjahlíð til Skútustaða, en þar seir. fleirbýlt er á sumum bæjum eru spennistöðvar ekki nema ellefu. 1 sumar var unnið að því að Ieggja háspennulínu frá Laxár- orkuverinu um sveitina, en í haust hefur verið unnið að þvi að setja innlagnir í hús. TIME BIRTIR „KRITIKK" UM PARADÍSARHEIMT Bandaríska vikuritið Time birtir í síðasta hefti, sem nú er til sölu í bókaverzlunum, grein um bók Halldórs Kiljan Laxness, Paradís- arheimt: Mikið af ævi Islendings- ins Halldórs Laxness hefur verið Ieit að jarðneskri paradís. Hann Varðar-kaffi i Valhöll i dag kl. 3-5 Ieitaði hennar í klaustri í Luxem- burg, meðal surrealista í París, í Kommúnistaflokknum. Skáldsögur hans hafa endurspeglað þessa leit. TJálfstætt fólk, svo nefnt sé dæmi, sem aflaði honum Nóbelsverðlaun- anna 1955, fjallar um baráttu ís- Ienzkra sjálfseignarbænda við kapitaliska landeigendur. I siðustu skáldsögu sinni virðir Laxness, sem nú er 60 ára, á yfirvegaðan hátt fyrir sér Ieit gamals manns að paradís og sýnir f fínlega bundnu kfmnimáli, hversu erfitt er að höndla paradís,“ segir f lausl. þýddum upphafsorðum greinar- innar. Síðan er rakinn söguþráður bók- arinnar, nokkuð nákvæmlega, en engin beinn dómur felldur um bók- ina. Bókin er gefin út hjá forlaginu Crowell, er 253 blaðsíður og ar $4.50. Slys við • •• kost- f fyrrakvöld urðu tveir átta ára gamlir krakkar fyrir bifreið á Hraunsholti við Hafnarfjörð. Meidd ust þau eitthvað og voru flutt í slysavarðstofuna f Reykjavík til athugunar og aðgerðfar. j Þessir tveir krakkar Hallgrímur Jónsson Hraunteigi við Engidal og i Vilhelmína Einarsdóttir Hraunhól- j um í Garðahreppi munu hafa verið ! saman á reiðhjóli er bifreið bar að. j Lentu þau fyrir bílnum og voru j bæði flutt í slysavarðstofuna í I Reykjavík til aðgerðar. // Þetta er löggan Með þenna litla snýða, sem sennilega er á 3. ári, var komið í húsakynni umferðardeildar lög reglunnar í Skátaheimilinu ein- hvern tíma á fjórða tímanum eftir hádegi í gær. Það voru telpur, sem fundu drenginn heimilisvilltan og ráð lausan úti á götu í Norðurmýr- inni og tóku það til bragðs að fara með hann til lögreglunnar, þar sem hann vissi ekki hvar hann átti heima. Snáðinn var hinn rólegasti og át lakrís, sem lögreglumennirn ir gáfu honum af beztu lyst. Hins vegar gat hann litlar upp- lýsingar gefið um heimili sitt, nafn sitt eða foreldra. Hann vissi það eitt, að mamma hans var inni og pabbi hans úti, en hvað þau hétu vissi hann ekki. Hann sá mynd af lögreglu- þjóni uppi á vegg, benti á mynd ina og sagði: Þetta er löggan. Um annað var hann fámáll Þegar lögreglan sá fram á að erfitt myndi véra að fá nokkrar upplýsingar hjá drengn um, fór hún með hann í ferð um götur Norðurmýrar og ná- grennis til að vita hvort hann kannaðist ekki við sig, en það gerði hann reyndar ekki. Sanjt fór svo um síðir að vitneskja barst um heimilisfang hans og hann komst til skila. (Ljósm. Vísis. B. G.). /

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.