Vísir - 30.11.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 30.11.1962, Blaðsíða 6
FORSON WELLES var nýlega 1 staddur 1 París og bárust hon- Íum þá boðsmiðar að nýju Ieik- riti, sem verið var að sýna þar. | Fór Welles í leikhúsið með rj kunningja sínum. Fyrsti þáttur var mjög leiðin- legur, svo leiðinlegur að Orson Weiles stóð upp að honum lokn um og sagði við kunningja sinn að hann gæti ekkl setið þar lengur. — Þú getur ekki verið þekktur Ífyrir að fara, þar sem þú situr hér á boðsmiöa. — Jæja, það var nú verra, sagði Orson og settist aftur. En annar þáttur var engu betri og f lok hans stóð Orson aftur upp og kvaðst verða að fara. — Já, en þú ert á boðsmiða, sagði kunninginn. — Mér ^r alveg sama, ég ætla samt að fara, en ég get farið í aðgöngumiðasöluna og borgað miðana. JDONNA REED kvikmyndaleik- konan bandariska á heima i milljónavillu í Beverley Hills skammt frá HoIIywood. Hún fór fyrir nokkru i skemmtiferð til Mexíkó. Þegar hún kom aftur varð hún þess áskynja að þjóf- ar höfðu brotizt inn í villu henn ar og stolið frá henni skart- gripum að verðmæti um milijón krónur. [jlAMES MEREDITH, svertinginn sem sótti um inngöngu f há- skólann 'f Mississippi og mestu æsingamar urðu út af hefur nú gert samning um að skrifa kvik myndahandrit um atburðina i Oxford. EVGENI ANDREJEV heitir rúss- neskur fallhiifahermaður, sem hefur nú sett heimsmet f fail- hlífarstökki. Þetta var i 1510. stökki hans. Hann stökk út úr 25 þúsund metra hæð og lét sig falla fallhlífarlaus niður í 1 þús- und metra. Þá loksins opnaði hann fallhlífina og kom lifandi niður. En við sama tækifæri Iét félagi hans, Pjort Golgov, Iífið, þvi að fallhlíf hans opnaðlst ekki. í ALASKA auglýsti herstjórnin eftir sjálfboðaliðum, sem vildu gangast undir tilraun hvernig hermenn ættu að lifa í heim- skautaveðráttu. Mörg tilboð bár ust en því miður var fæstum þeirra hægt að taka, þar sem 87 umsóknlr höfðu komlð frá Eskimóum. I BANDARlKJUNUM varð kona ein að nafnl Mrs Shore vör við það er hún ók stórri Kadillac bifreið sinni, að eitthvað var óeðlllegt við bfl hennar. Það virtist eitthvað skrölta f honum. Svo að hún ákvað að aka á æsta viðgerðarverkstæði. Þar kom það líka f ljós að eitthvað var að. Bifreið af smábflategund hékk föst aftan í Kadillak-bfl hennar. ANDRÉ MAUROIS franski rit- höfundurinn frægi er enn hinn brattasti þótt aldurinn stígi yfir hann. Hann heldur oft erindi f Parísarútvarpið. Nýlega sagði hann í útvarpið: — Ég skal segja ykkur hver er munurinn á tímanum, þegar ég var að alast upp og nútfmanum. Hann er þessi: — I gamla daga voru menn hræddir við að verða fátækir. I dag eru menn hrædd- ir við að verða ekki ríkir. BRIGITTE BARDOT hefur unnið merkilega samkeppni f Frakk- landi. Gallupstofnunin þar í landi lagði þessa spumingu fyr ir franska karlmenn: — Með hvaða konu vilduð þér helzt bjargast upp á eyðiey í Kyrra- hafinu. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra svaraði: — Með Brigitte Bardot. GRACE FURSTAFRÚ af Mónakó hefur slitið öllu stjórnmálasam bandi við Frakkland sfðan tolla striðið við Mónakó hófst. Hún mun héðanífrá hætta að kaupa tízkufatnað í Parfs og ennfrem- ur hefur hún boðið 400 fermetra íbúð sína f Avenue Foch 32 i París til sölu. 1 TOKÍÓ notar lögreglan sjálfvirk tæki til að mæla hraða bifreiða og markast hraði þeirra á lítið pappaspjald. Nýlega stöðvaði lögreglan leigubíl sem ók með of miklum hraða. — Sjáið spjaldið hérna, sagði lögreglu- þjónninn við leigubilstjórann Ryozo Yada. Það sýnir að þér hafið gerzt brotlegur við um- ferðarlögin. — Já lof mér sjá, sagði leigubílstjórinn, tók spjald ið og át það og þar með var þetta mál úr sögunni. ¥ í SIR . Föstudagur 30. nóvember 1962. artinsson fær mans-verðlaun MAURICE CHEVALIER er mlkill vinur Englands, en þó getur hann stundum laumað út úr sér bröndurum á kostnað Eng- lendinga. Nýlega sagði hann eft- irfarandi: — Blað eitt hefur heitið Iesend um sínum verðlaunum og eru verðlaunin þessi: — Fyrstu verð laun vikudvöl í Englandi. — Önnur verðlaun hálfsmánaðar- dvöl í Englandi. — Þriðju verð- laun mánaðardvöl í Englandi. DARIO MORENO heitir einn frægasti dægurlagasöngvari Frakka. Nú 1 haust hefur lag hans „Skartgripum mínum hef- ur verið stolið" slegið í gegn í París og er nú eitt vinsælasta Iagið. Það kemur þvf engum á óvart að Dario varð fyrir því um daginn, að þjófur brauzt inn í íbúð hans og stal öllum skart- gripum hans og konu hans. CARLIE CHAPLIN er nú eins og allir vita aö skrifa endurminn- ingar sínar. Hann hefur nú skýrt frá því, að þegar hann hefur lokið við þær ætli hann að skrifa skáldsögu. * LEOPOLD fyrrum Belgíukonung- ur er mikill sportmaður og ferð- ast víða í fjallgöngur og dýra- veiðar. Hann er nú staddur í Amazon frumskógunum og tek- ur þátt í belgískum landkönn- unarleiðangri. Sænska blaðið Dagens Ny- heter hefur skýrt frá því, að hin svokölluðu Bellmansverð- laun, sem sænska akademfan veitir, verði í ár veitt rithöf- Harry Martinsson undinum Harry Martinsson, og er það í annað skipti, sem hann hlýtur þessi verðlaun, hann fékk þau árið 1951. í fyrra voru verðlaun þessi í fysta skipti veitt höfundi í annað sinn, hlaut þau þá skáld ið Gunnar Ekelöf, sem áður hafði fengið þau 1953. Eru verð launin til komin fyrir frum- kvæði hjónanna Emmu og Anders Zorn, sem mæltu svo fyrir, að þau skyldu aðeins veitt þeim skáldum, er veru- lega sköruðu fram úr. Akadem- ían hefur látið þau orð falla, að vegna þess. hve fá skáld geti með réttu kallazt afburða- skáld, hafi verið gripið til þess ráðs að veita þau sama skáldi oftar en einu sinni. Þau sænsku skáld sem hlotið hafa verðlaun til þessa, auk þeirra sem þegar eru nefndir eru: Bo Bergman, Pár Lagerkvist, Sigfried Siwertz, Anders Osterling, Evert Taube, Erik Blomberg, Johannes Edfelt, Rabbe Enc- kell, Olof Lagercrantz, Erik Lindegren, Werner Aspen- ström og Karl Vennberg. Þess skal að lokum getið, að verðlaunaupphæðin er hvorki meira né minna en 30 þúsund sænskar krónur eða um 250 þúsund íslenzkar krónur. Fimm hagfræðings styrkir veittir Vísir fékk þær fregnir í viðskipta málaráðuneytinu í morgun að Éfnahags- og framfarastofnunin i París (OECD) hafi ákveðið að veita Islendingum allt að 5 styrki til framhaldsnáms í hagnýtri hag- fræði, svo sem gerð þjóðhagsáætl- ana, þjóðhagsreikninga og hag- skýrslna, búnaðarhagfræði og stjórnsýslu. Styrkirnir fela í sér greiðslu á ferðakostnaði, skóla- gjöldum, fæði og húsnæði. Eru styrkirnir miðaðir við 3 — 24 mán- aða nám er hefjist haustið 1963. Geta umsækjendur valið á milli námskeiða við ýmsar stofnanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Umsóknir um styrki þessa þurfa að berast ráðuneytinu fyrir 15. desember n.k. vegna náms í Banda ríkjunum, en fyrir 1. marz 1963 vegna náms í Evrópu. Hlustunarskilyrði hafa stórbatnað Eins og menn eflaust muna var lengi talað um það, hve illa send- ingar Ríkis varpsins bærust til Austurlands og Norðurlands. Ó- hætt er að segja að úr þessu hafi verið bætt. Á síðasta ári voru settar upp nokkrar litlar endurvarpsstöðvar á Austurlandi og seinna á Norðaust- urlandi. Hafa þær gefið góða raun. Segir útvgrpsstjóri, Vilhjálmur Þ. Gíslason, að kvartanir hafi ekki borizt. Þó veit Ríkisútvarpið um að hlustunarskilyrði eru ekki sem allra bezt innst inni í dölum eða á stöðum allfjarri endurvarpsstöðv- unum. Kúbukosfnaðurinn varð 100 milljón dollarar mm í Washington er tilkynnt, að kostnaður Bandaríkjastjórnar vegna sérstakra ráðstafana í október og nóvember af hafn- banninu á Kúbu og ýmsu í því sambandi muni nema um 100 milljónum dollara. Megnið af þessu fé fer til greiðslu mála varaliðsmanna, sem kallaðir voru til vopna, svo og her- manna, sem urðu að vera leng- ur í herþjónustu en ella vegna þessa þáttar Kúbudeilunnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.