Vísir - 10.12.1962, Page 3
VlSIR . Mánudagur 10.’d'*-"u"r 1962.
ry'
Silki- og flauelisbönd
EruS þið að hugsa um að fá
ykkur nýjan kjól fyrir jólin eða
gámlárskvöld? Eða eigið þið gaml
an kjól sem þið eruð orðnar leið-
ar á og langar til að breyta? Ef
þið eruð í slíkum hugleiðingum
skuluð þið líta á þessa kjóla, sem
eru nýkomnir frá París. Og takið
eftir, að á þeim öllum eru ein-
hvers konar bönd eða slaufur,-
Flaueis- eða silkibönd á kjólum
eru sem sagt nýjasta tízkan frá
París. Böndin eru ýmist í mitt-
inu, við hálsmáiið eða yfir öxlina,
allt eftir því hvað fer bezt á hverj
um kjól og á hverri stúlku.
Þegar böndin eða efnin í þau
eru keypt. er mikilvægt að hafa
í huga að það marg borgar sig
að hafa þau úr góðu efni, jafnvel
þótt kosfnaðurinn sé nokkur.
Bönd og slaufur úr lélegum efn-
um krumpast fljótt og verða
drusluleg. Sviss er frægt fyrir sín
bönd og er okkur sagt að böndin
á þessum kjólum séu einmitt það-
an — og vfst er, að falleg eru
þau.
Kjólarnir á myndunum eru frá
nokkrum frægustu tfzkuhúsunum
í Parfs, Cardin, Dior, Balmain,
Goma og Lanvin.
1. Svart flauelisband, bundið í
skemmtilega slaufu, gefur hinu
síða mitti kjólsins sérkennileg-
an svip. Sniðið á kjólnum er
mjög einkennandi fyrir vetrar-
tízkuna. Gardin.
2. Slaufan f barminum er úr
svörtu satfni og á hana er næld
rós. Sláin og blússan á kjólnum
eru úr svörtu flaueli. Cardin.
3. Beinn kjóll úr svörtu flaueli.
Svarta flauelsbandið liggur frá
bakinu og fram fyrir hálsinn og
á það er fest pífa úr þunnu
svartleitu efni. Kjólar úr
tvenns konar efnum eru nú
mjög í tfzku. Balmain.
4. Á þessum fallega ballkjól er
stór satínslaufa og á hana
miðja er fest glitrandi næla.
Dior.
5. Kjóllinn er sléttur að ofan og
með svörtu satínslaufunni má
„færa mittið“ upp og niður.
Dior.
6. Svart satínband um mittið er
bundið í slaufu að framan á
þessum fallega sfðdegiskjól, en
snið sem þetta hefur náð mikl-
um vinsældum. Goma.
7. Stóra svarta slaufan með löngu
böndunum fer mjög vel á þess-
um kjól, sem er úr hvftu
brokade efni. Takið eftir hvem-
ig band af henni liggur aftur|
og yfir hálsinn. Lanvin.
8. Pliseraðir kjólar eru mjög vin-
sælir um þessar mundir. Þessi;
er úr svartleitu ullarmússelíni;
og slaufan úr svörtu satíni.
Dior.
t *. ,i
I l i