Vísir - 10.12.1962, Side 7

Vísir - 10.12.1962, Side 7
V1SIR . Mánudagur 10. desember 1962. 23 MERKIR ÍSLENDINGAR Fyrir fimm árum lauk Bókfells- útgáfan útgáfu ritsafnsins „Merk ir íslendingar“ og voru þá komin út sex bindi. Þá mun ekki hafa verið gert ráð fyrir frekari útgáfu af þessu tagi, en Bókfellsútgáfan mun hafa orðið þess vör, að mikill áhugi var á ritum þessum, enda ekki að ástæðulausu, og má segja, að það sé fyrir áskoranir fjölda manna, að nú hefir verið ráðizt í að hefja útgáfu nýs flokks þess- ara merku bóka. Það er séra Jón Guðnason, hinn ættfróði maður, sem fenginn hef- ir verið til að sjá um þessa nýju útgáfu, og verður hún því í góð- um höndum, eins og hin fýrri, sem dr. Þorkell Jóhannesson há- skólarektor hafði umsjá með. Höf undar eru ýmsir, eins og var um fyrri útgáfuna, en hér skal getið nokkurra þeirra, sem um er ritað, svo og höfunda greinanna: Skafti Þóroddsson lögsögumaður eftir sr. Janus Jónsson, Björn Einars- son Jórsalafari eftir sama höf- und, Jón Árnason Skálholts- biskup eftir Grím Thomsen, Snorri Björnsson prestur í Húsa- felli og Hannes Stephensen pró- fastur, hvort tveggja eftir Sig- hvat Gr. Borgfirðing, Þorleifur Guðmundsson Repp eftir Pál E. Ólason, Jörgen Pétur Havstein amtmaður, eftir Jón Aðils, Jón Borgfirðingur eftir sama höfund, Jón Stefánsson — Þorgils gjall- andi skáld, eftir Þórólf Sigurðs- son, Pétur Jónsson á Gautlöndum eftir SigfiL Bjarnason, Guð- mundur Magnússon prófessor eft ir Sæmund Bjarnhéðinsson og Magnús Guðmundsson ráðherra eftir Jón Sigurðsson. Þessi þurra upptalning sýnir, að val viðfangsefna hefir verið valið eins og endranær, og grein- ar teknar eftir nafnkunna höf- unda. Er hvort tveggja trygging þess, að hinn nýi flokkur verður vinsæll og talinn þörf lesning eins og hinn fyrri. Bókfellsútgáfan hefir ekkert til sparað að gera bók þessa sem bezt úr garði, en ytri búningur er unninn í Odda h.f. og Sveinabók- bandinu h.f. Gjafabók Almenna bókafélags- ins að þessu sinni er Galdramálin í Thisted eftir bókamanninn mikla Árna Magnússon. Hefur þessi merkilega bók ekki komið áður út á íslenzku. Hefur Andrés Björnsson annazt þýðingu hennar og ritað formála fyrir henni. Bókin kom fyrst út í Kaup- mannahöfn árið 1699 (2. útg. 1891), en tilefni hennar voru galdramál, sem áttu sér stað í sveitaþorpinu Thisted á Norður- Jótlandi og hófust 1696, þegar sóknarpresturinn þar á staðnum lýsti yfir í heyranda hljóði, að kona í söfnuði hans væri djöful- óð. Dró 1 ' yfirlýsing þann langa sló *f' :n lýst er í bókinni. Fólk og forlög Ævar Kvaran, sem undanfarin ár hefur annazt hinn vinsæla út- varpsþátt ,,Úr ýmsum áttum“ hef ur tekið saman bók um þessi efni. Er bókinni skipt í 20 kafla, frásagnir af sögufrægum persón- um og mikilfenglegum atburðum, sem iíkari eru ótrúlegustu ævin- týrum, þótt sannar séu. Kemur lesandinn því víða við. Hann er viðstaddur, þegar hin fræga Kleó patra stígur hlæjandi innan úr teppavafningi fyrir framan hinn mikla Júlíus Cæsar. Hann ferðast frægasta gímsteinþjóf Bandaríkj- anna 1 gervi venjulegs veitinga- manns. Hann fylgist með hetju- legri baráttu vísindamannsins Ponzíos prófessors, föður geisla- fræðinnar, sem fórnaði hverjum lim sínum á fætur öðrum í þágu vísindanna. Og þannig rekur hver frásögnin aðra. Bókin er 216 bls. að stærð, gefin út af Skuggsjá. Galdramáiiu í Thisted hefur ver ið nefnd merkilegasta sakamála- saga, sem til sé á dönsku, enda gefur ritið ekki einungis glögga mynd af gangi málsins fyrir dóm- stólunum, heldur einnig af hugs- unarhætti æðri sem lægri stétta fólks í Danmörku um aldamótin 1700 og er hinn' merkilegasti ald- arspegill. Bókina prýða nokkrar gamlar galdramyndir og ljósmynd af tit- ilsíðu fyrstu útgáfu hennar er gegnt titilsíðu. Prentun hefur ann azt Félagsprentsmiðian h.f. Guðmundur Daníelsson. Tvier fallegar barnabækur eru komnar út eftir Enid Blyton á vegum Myndabókaútgáfunnar. Þessar litluVen skemmtilegu „Dodda“-bækur eru gott lestrar- efni fyrir unga lesendur. Þær eru einnig fagurlega myndskreyttar með litmyndum — að jafnaði tveim myndum á hverri opnu. Frágangurinn er að öðru leyti mjög snotur. mémMtmmmts** Meðal unglingabóka sem út koma fyrir þessi jól er bókin Corro, sem segir frá ævintýrum mexikönsku hetjunnar Don Die- go, sem var af spænskum ættum, í hópi þeirra spænsku landnema, sem settust að í Kaliforníu, en snerust síðan gegn spænsku ný- lendustjórninni og gerði henni margan grikk. Varð hann síðan eins konar þjóðhetja hinna fá- tæku landnama, líkastur hinum enska Hróa hetti. Þetta er þýðing á bók sem hinn kunni teiknari Walt Disney hefur gefið út, en hér er það Bókaút- gáfan Vitar, sem gefur hana ýt- Sagan er sögð af Steve Frazee, en myndir teiknaði Henry Luhrs. Bókin er nærri 100 bls. með all- mörgum teikningum. ísafoldarprentsmiðja h. f. hefur gefið út bókina Verkamenn í vín- garði, viðtöl og þætti eftir Guð- mund Daníelsson. Þetta er 23. bók Guðmundar, en önnur við- talabók hans, hin fyrri kom út 1959 og nefndist í húsi náungans. í þessari nýju bók Guðmundar eru 28 þættir og viðtöl við ýmsa merka menn, svo sem Sigurð Ein arsson prest og skáld í Holti, Bjarna Bjarnason á Laugarvatni, Gunnar Dal skáld, Sigurð Greips- son í Haukadal, sr. Árelíus Niels- son og marga fleiri. Af þessu stutta yfirliti má sjá, að víða er komið í bókinni, umræðurnar spanna óravíddir mannshugans, en auk viðtalanna eru meðal ann ars 6 ferðaþættir frá Ameríku, þar á meðal hinn frægi og um- deildi þáttur Með doktor Stefáni í lífshættu. í bókinni er mikill aragrúi af myndurn og til útgáf- unnar vandað á allan hátt. Bókin er 256 bls. Ævar Kvaran. með heimsins frægustu ferða- mönnum, Póló-bræðrum, yfir víð- áttur Asíu á fund hins mikla Khans. Hann heyrir rödd samvizk unnar þr-ma yfir Evrópu, þegar hann fylgist með baráttu Voltairs , fyrir frelsi og mannréttindum. Hann rekur ótrúlegan æviferil ólánsmannsir. Jörundar hunda- dagakonungs, sem eitt sinn var æðsti maður íslands. Hann hittir Ný bók eftir Jóhannes Setberg hefur gefið út nýja bók eftir Johannes Helga. Þetta er endurminningabók Andrésar P. Matthíassonar sjómanns í Keflavík. Matthías segir vel frá en frásagnarhætti Jóhannesar Helga kynntust menn í fyrra af viðtalsbókinni við Jón Engil- berts SAGNIR ÚR Andrés Matthíasson hefur ver- ið á sjónum alla ævi, en hann er nú um sjötugt. Hann reri hér heima og stundaði sjó á nær öll- um skipategundum, en síðan sigldi hann um heimshöfin og meðal annars á gömlu stóru segl skipunum, en þeir munu nú vera fáir á lífi hér, sem það gerðu Hann kynntist miklum fjölda manna, bæði hér heima og eins á erlendum skiþum og segir Út er komið 5. og síðasta bindi ritsafnsins Svipir og sagnir, sagnaþáttum úr Húnaþingi, sem Bókaforlag Odds Björnssonar hef ir gefið út. Aðalhöfundar þessa bindis eru þeir sr. Gunnar Árnason, sem lengi var prestur að Æsustöðum en er nú prestur Bústaðasóknar, Magnús Björnsson á Syðra-Hóli og Bjarni Jónasson á Blöndudals hólum, en auk þess eru í ritinu þættir eftir Björn H. Jónsson, Jónas B. Bjarnason og Rósberg G. Snædal. Um bók þessa má segja í stuttu máli, að þar fari saman ágætt og fróðlegt efni, ljós framsetningur og vönduð bókargerð. Þættirnir eru meðal annars um slys og mannskaða, dulsagnir og fyrir- burði, forspá og fyrirboða, svo og þættir um einstaka menn og afkomendur þeirra og staði inn- an Húnaþings. Með þessu síðasta bindi rit- safnsins er nafnskrá yfir það allt og eykur það gildi þess til rnuna. Frágangur er allur hinn vandað- asti á bókinni. Út er komin önnur útgáfa Is- lenzkrar bókmenntasögu eftir Er-' lend Jónsson. Fjallar bókin um íslenzkar bókmenntir á árabilinu 1750 — 1950. Er hún ætluð til kennslu í framhaldsskólum lands ins og er ,það Ríkisútgáfa náms- Jóhannes Helgi. margar sögur af þeim og kennir þar margra þjóðerna. Munu margar þessara sagna festast i minni mnna. Bókin er í stóru broti. Skreytingar 1 bókina gerði Jón Engilberts, en Atli Már teikn aði kápuna. tasaga bóka sem hana gefur út. Bókin er 126 síður að stærð mjög mynd skreytt, og er þar í stuttu máli fjallað um íslenzka höfunda i lausu máli og bundnu. Bjarn: Jónsson hefir teiknað myndir og skreytingar í bókina. LVBlMtZ

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.