Vísir - 10.12.1962, Síða 8
f4
VISIR . Mánudagur 10. ðeseinuei iiwr
¥■
W4
(0
4
☆
Montgomery marskálkur hefur
hlotið mörg virðingartál.n. M.a.
var hann á sfnum tíma kjörinn
heiðursforseti knattspyrnuliðs
Portsmouth og hefur nokkrum
sinnum verið viðstaddur leiki
þess. Nú hefur stjórn klúbbsins
óskað þess að Montgomery
verði ekki oftar viðstaddur.
Það hefur sem sé komið í ljós,
að liðið hefur tapað hverjum
einasta leik, þegar Montgomery
var viðstaddur, en unnið hvern
leik, sem hann var fjarverandi.
*
Sofia Loren er nú vinsælasta
kvikmyndaleikkonan næst á
eftir Elisabeth Taylor. Er þetta
metið eftir þeim tekjum sem
þær hafa. Tekjur Sofiu á síð-
ast ári námu 100 milljón fsl.
króna.
Selwin Lloyd fyrrum fjármála-
ráðherra Breta, sem Macmillan
vék svo harkalega úr embætti
fyrir nokkru, var óheppinn á
dögunum. Hann hafði keypt sér
bíl nýlega og borgað til fulls,
en þremur klst. síðar tilkynnti
núverandi fjármálaráðherra að
söluskattur á bílum lækkaði
svo mikið að verðið á þeim
varð 45% lægra en áður.
— Þetta er ekki kurteisislegt
af eftirmanni mínum, sagði
Lloyd rólega er hann frétti
þetta.
Serghei Korchagin heitir for-
stjóri timburverksmiðju f Rúss-
landi, sem nýlega var dæmdur
til dauða fyrir að selja timbur-
vörur á svörtum markaði og
hirða sjálfur gróðann. Með hon-
um voru skotnir þrír aðstoðar-
menn hans, sem voru meðsekir.
»*•** '***' *•••••
.......-~~~T.£~'rr4Í'
Kona ein í bænum Wickham
í Englandi var nýlega handtek-
in og tekin til skoðunar. Hún
hafði svc mánuðum skipti
truflað ró nágranna sinna með
því að berja með langri og
léttri bambusstöng á glugga
þeirra.
*
Brigitte Bardot hefur lagt
fram formlega beiðni um skiln-
að frá öðrum eiginmanni sínum
Jacques Charrier. Þó er langt
síðan hún fór frá honum, en
viss tími þarf að líða í Frakk-
landi áður en formlegur skiln-
aður fæst. Þau eignuðust son
í júní 1959 sem heitir Nicolas.
Hann dvelst nú hálft árið með
föður sfnum og hálft árið með
móður sinni.
Elvis Presley, sem áður var
vörubflstjóri en er nú heims-
frægur Rock og Roll-kóngur,
hefur látið byggja stóra við-
byggingu við hús sitt í Holly-
wood. f henni eru eingöngu
klæðaskápar og búningsher-
bergi. Þá hefur hann fengið sér
enskan húsvörð af gamla skól-
anum. — Nú loksins finnst mér
að ég sé orðinn raunverulegur
Gentlemaður segir Elvis Pres-
ley.
*
Joseph Kennedy, faðir Banda
ríkjaforseta, fékk slag fyrir
einu ári, en þykir nú hafa náð
sér furðulega vel eftir þetta á-
fall. Hann er nú farinn að mæta
á venjulegum skrifstofutíma f
skrifstofum sínum í New York.
Prjónakeppni var nýlega háð
í Kaupmannahöfn. Var hún í
því fólgin hver prjónaði lengsta
sokkinn á fyrirfram ákveðnum
tíma. Sigurvegarinn varð frú
Elke Anderson. Hún prjónaði
2y2 metra langan sokk.
Igor Stravinsky hið kunna
tónskáld er rússneskur flótta-
maður. En nýlega var honum
boðið til Moskvu og líkuðu
honum móttökurnar svo vel, að
hann hefur tileinkað Nikita
Krúsév nýjasta tónverk sitt.
Pierre Larcher og Raymond
Rolland, frönsku glæpamennirn
ir, sem rændu syni Peugeot
franska bíla':'ngsins ' J.ána nú
langa fangelsisdóma, en báðir
vinna þeir að því í fangelsinu
að skrifa endurminningar sínar
og er þess vænzt að það verði
metsölubækur.
Guðlaugur Einursson, lögfræðingur:
Spírítisminn n ekkert skylt
við krístindóm og vísindi
Að undanförnu hafa staðið yf-
ir allsnarpar deilur f sambandi
við trú og vfsindi milli nokkurra
þjóðkunnra manna, sem þátt
tóku í umræðuþætti útvarpsins
„Spurt og spjallað". Hafa umræð
urnar nú færzt yfir á vettvang
dagblaða. Þessi málefni snerta
bókstaflega hvert mannsbarn og
það getur því ekki talizt óeðli-
leg framhleypni, þó ég leggi orð
f belg.
Sigurjón Björnson, sálfræðing-
ur, ritaði athyglisverða grein f
Mbl. þ. 27. nóv. s. 1. og gerði þar
grein fyrir sínum sjónarmiðum
gagnvart kenningum spíritista og
afstöðu þeirra til Kristindóms og
vísinda. Ekki kveðst hann
geta fallizt á, að trú og vísindi
séu „ósættanlegar ándstæður".
Hér sé um að ræða tvær megin-
stoðir menningarþjóðfélags, sem
umfram allt megi ekki lenda í
árekstrum innbyrðis. Þetta er
hyggilega mælt. Sigurjón Iýkur
grein sinni með þvf að hvetja til
andófs gegn hvers konar hjátrú,
þ. á m. spíritismanum, sem sé
„hinn mikili fjötur um fót krist-
innar trúar og vfsindamennsku".
★
Síra Sveinn Víkingur svaraði
þessari grein Sigurjóns í Mbl. 1.
des. Presturinn leitast við að
skýra og rökstyðja mikilvægi
sálarrannsókna og spfritisma,
sem hann segir vera sitt hvað.
Þannig kveður hann sálarrann-
sóknir vera vísindagrein, en spíri
tisminn hafi upphaflega verið
heimspekistefna, en sé nú orðið
rökstudd tilgáta, um að mörg
dulræn fyrirbæri stafi frá sam-
bandi við framliðna menn. í grein
sinni kallaði sálfræðingurinn
þessi „tvíþættu" málefni „hræri-
graut". í Biblíunni er slíkt kukl
Iagt að jöfnu við galdur, spár,
fjölkyngi, töfra, gjörninga, og
særingar, og einu nafni nefnt
svfvirðing.
Aðalinntak greinar sr. Sveins
eru tilraunir hans til að renna
stoðum undir skilgreiningu sína á
sálarrannsóknum og spíritisma
og réttlæta kenningar og stefnu-
mið þeirra manna, sem fást við
þessi efni.
★
í Biblfunni, Hebr., 11. kap. seg-
ir: „Trúin er fullvisa um það,
sem menn vona, sannfæring um
þá hluti, sem eigi er auðið að
sjá“, og enn fremur að „án trúar
er ómögulegt að þóknast
Drottni . . . “. Hér er það full-
komlega skilgreint, hvað sé trú.
Orð Drottins er óraskanlegt, en
skv. þvf er mönnum boðað eilíft
líf, ef þeir trúi, því „án trúar er
ómögulegt að þóknast Drottni".
ÖIl mannaboðorð verða hjóm eitt
og hismi, ef þau á nokkurn hátt
raska Orði Guðs. Leit að sönn-
unum f þessu efni lýsir hryggi-
legri vantrú, og sá sem það gerir
getur ekki talist kristinn. í Opin-
berunarbókinni, 22. kap. er þeta
staðfest, því þar stendur, að
„leggi nokkur við þau (þ. e. orð
Bíblíunnar), mun Guð á hann
leggja þær plágur, sem um er
ritað f þessari bók. Og taki nokk-
ur burt nokkuð af orðum spá-
dómsbókar þessarar, þá mun Guð
burt taka hlut hans í tré Iffsins
og borginni helgu, sem um er
ritað í þessari bók“.
★
Þeir menn sem gera spíritis-
mann að trúaratriði og tengja
hann Kristindómi sitja á bekk
með þeim, sem ekki hafa höndlað
trúna, því orð Drottins segir að
enginn geti nokkru við bætt,
breytt eða fellt niður úr heilagri
ritningu, án þess að verða and-
kristinn.
Sr. Sveini hljóta að vera þessi
sannindi Ijós, hvað svo sem veld
ur fráhvarfi hans. Presturinn
hneyklast á þvf, að sálfræðingur-
inn skuli halda því fram í blaða-
grein sinni, að „spíritisminn sé
afsprengi efahyggjunnar, sem
krefst sannanna", og að spfritism
inn reyni að „sanna það, sem
ekki á að sanna og ekki þarf að
sanna, ef menn trúa“. Það mætti
GuSlaugur Einarsson.
máske skilja aðhlátur og athuga-
semd prestsins við þessu svo, að
hann teldi, þrátt fyrir skýlaust
Orð Guðs, að maðurinn þyrfti að
afla sér sannana, áður en hann
gæti öðlast trúna. Presturinn tek
ur fram að sjálfsagt geti menn
deilt um það, hvort rökin fyrir
kenningum spíritista séu nægi-
lega sterk og sannfærandi. Enn
segir hann, að grundvöllur allrar
Vísindalegrar þekkingar sé að ef-
ast og krefjast sannana. Þessi
ummæli prestsins sýnist mér bein
línis vera staðfesting á þvf, að
spíritismi og sálarrannsóknir séu
í rauninni óskyldar Kristindómn
um. Spfritisminn miðar að þvf að
brjóta niður og spilla eðlilegu trú
arlífi manna. Kenning hans er
eitt hættulegasta viðfangsefni
mannshugans. Spíritismi starfar f
skjóli trúar og vísinda, en er í
innsta eðli sínu hvorugu skyldur
og á engan rétt á sér.
★
Jesú Kristur boðaði eilíft líf
hverjum þeim sem trúir og án
trúar er ómögulegt að þóknast
Guði. Hvergi er þess krafist f
fagnaðarboðskapnum, að maður
inn sjálfur sanni, að til sé áfram
haldandi líf, eftir jarðneskan
dauða. Að mínu viti er spíritism
inn ein samfelld eyðimörk, þar
sem ekki festir annað rætur en
efasemdir og vantrú.
Sr. Sveinn*segir f grein sinnl
að færustu vfsindamenn á sviði
sálarrannsókna, telji að almennar
og óyggjandi sannanir fyrir fram
haldslífi skipti miklu máli „til
þess að hafa gagnger áhrif til hlns
betra á lífsviðhorf manna og
breytni, ábyrgðartilfinningu og
siðgæði“. Af þessu verður gagn
ályktað, að ekki telji þessir vís-
indamenn að boðskapur Jesú
Krists áorki slíku nægilega með-
al mannanna. Það er mikið al-
vörumál, að þeir menn skuli fyrir
finnast, sem sérstaklega boða
„gagnger áhrif til hins betra“ á
bókstaflega öllum sviðum mann-
legs lífs, þegar og ef fram komi
óyggjandi sannanir fyrir fram-
haldslífi frá framliðnum mönn-
um, en sinna engu um eilífðar
boðskap Kristindómsins, sem þó
er hinn sannni boðskapur, sem
einn getur komið að gagni.
Sr. Sveinn kveðst stórfurða sig
á þeirri . yfirlýsingu Sigurjóns
Björnssonar, sálfræðings, að telja
rannsóknir dulrænna og sálrænna
fyrirbæra vera „vanhelgun á
trúnni, móðgun við vísindalega
hugsun og f fyllsta máta óheiðar-
Iega“, þar sem „margir heims-
kunnir vísindamenn, sem notið
hafa trausts og virðingar, ekki
aðeins f heimalöndum sfnum,
heldur um allan heim“, hafi feng
ist og fást enn við slíkar sálar-
rannsóknir. Þannig byggir prest-
ur rökleiðslu sína á þvf, hvað
„heimskunnir vísindamenn“ telji.
Hitler og Stalin voru t. d. báðir
heimskunnir menn m. a. fyrir
grimmd og hryðjuverk, og þeir
nutu „trausts og virðingar" í sfn
um hópi. Mér sýnist það hald-
lítil rökfærsla hjá presti, ef þesar
staðreyndir um einræðisherrana
sálugu ættu að réttlæta það, að
maður drepi náunga sinn.
★
í ritningunni, V. Mosebók, 18.
kap. er tekið fram, að „eigi skal
nokkur finnast hjá þér . . . er
leiti frétta af framliðnum. Því að
hver sá er slíkt gjörir er Drottni
andstyggilegur og fyrir slfkar
svfvirðingar rekur Drottinn, Guð
þinn, þá burt á undan þér“. Sjálf
ur Guð leggur þannig algjört bann
við athöfnum spfritista. Jesú
Kristur kom til að uppfylla lög-
málsorð Guðs og staðfesta þau.
Þannig segir í Matt., 5. kap.:
„Ætlið ekki að ég sé kominn til
þess að niðurbrjóta lögmálið eða
spámennina, ég er ekki kominn
til þess að niðurbrjóta, heldur til
þess að uppfylla". Hér fer ekert
á milli mála og mennirnir fá
engu um þokað.
■k
Spíritistar gera engan mun a
því framhaldslífi, sem þeir leit-
ast við að sanna og eilífðarboð-
skap Jesú Krists, en þar er um
tvennt, öldungis óskylt að ræða.
í þessu sambandi mætti minna á
„andaverur vonzkunnar í himin-
geimnum", sem um er rætt i
ritningunni. Það er ugglaust, að
ekki leita spíritistar samneytis
við slíkar andaverur viljandi, en
eins er jafnvfst, að þeir séu að
gera það með kukli sínu. Og spíri
tistar virðast enga áherzlu leggja
á það, að afla upplýsinga um upp
runa og heiðarleik þeirra fram-
liðnu manna og kvenna, sem þeir
hafa samband við. Það er einung
is leitað sannanna fyrir fram-
Framh. á 27. síðu.
whwi.o*1--