Vísir - 28.12.1962, Blaðsíða 1
52. árg. — Föstudagur 28. desember 1962. — 292. tbl.
80 BRENNUR
Mesti löndunardagur
í söga Akraness
í morgun hafði verið
landað nálægt 30 þús. tn.
á Akranesi frá klukkan 2
í fyrrinótt og hefur stanz-
laust verið landað og er
enn.
að sinn. Taldi fréttaritar-
inn, að ýkjalaust væru
komnar á land frá í fyrri-
nótt og þar til í morgun
(kl. rúmlega 9) 28—29 þús.
tunnur Dagurinn í gær var
Iangmesti síldarlöndunar-
dagur sem þar hefur kom-
ið fyrr og síðar, en þá var
landað 17.000 tunnum úr
14 bátum.
Framh á bls. 5
í morgun hafði lögreglan í
Reykjavík gefíð leyfi fyrir nær 80
áramótabrennum víðs vegar um
bæinn.
Að því er Erlingur Pálsson yfir-
lögregluþjónn tjáði Vísi, er hér þó
ekki um endanlega tölu að ræða,
því enn má búast við að komi
beiðnir um einhverjar smábrennur
hingað og þangað um bæinn.
Eftirlitsmaður frá lögreglunni fer
á alla þá staði, sem sótt er um
leyfi til að halda brennur á, at-
hugar staðhætti, eldhættii og þess
háttar. í sumum tilfellum bendir
hann á þentugri og hættuminni
staði og fer fram á að brennan
sé færð eitthvað úr stað.
Aðalbrennan á gamlárskvöld og
sú eina, sem Reykjavfkurborg stend
ur fyrir, verður á Klambratúni vest
anverðu, á sama eða svipuðum
stað og brennur hafa verið á und-
anfðmum gamlárskvöldum. Auk
þess verða aðrar smærri brennur
á Klambratúni. Hringakstur verður
um þetta svæði um Rauðarárstíg,
Flókagötu, Lönguhlíð og Miklu-
braut.
Aðrar stærstu brennur verða m.
a. í Laugardalnum, syðst á leik-
vangssvæðinu við gamla Þvotta-
laugaveginn og stendur íþrótta-
bandalag Reykjavíkur fyrir henni.
Önnur brenna, einnig talsvert stór,
verður einnig staðsett í Laugardaln
um og verður hún fyrir austan nýju
sundlaugina.
Við Sörlaskjól verður, eins og
áður, stór brenna og tvær aðrar
brennur, einnig nokkuð stórar,
verða á Ægissíðunni, en þessar
brennur við sjóinn hafa vakið mikla
athygli á undanförnum árum. Auk
þessa verður fjöldi af smærri brenn
um víðs vegar um borgina.
Fréttaritari Vísis á Akra
nesi sagði frá þessi í morg-
un og væru sumir bátar
búnir að landa tvisvar á
þessum tíma, en aðrir í
þann veginn að landa í ann
Strax og veður batnaði upp úr
jólunum kom f ljós að mikil síld
var f Flóanum og þegar bátar
komu að landi eftir einnar
ur útivist voru þeir drekkhlaðn
ir af spriklandi sfld. Á Akranesi
voru öll fyrri löndunarmet sleg-
in og höfnin f Reykjavík leit út
eins og nýr Siglufjörður væri
kominn hér við Flóann. Fjöldi
ungra stúlkna fékk atvinnu við
síldarvinnu og sést ein þeirra
hér við að panna sfldlna.
í dag um hádegisleytið
var flugvél Björns Pálsson
ar væntanleg til Reykjavík
ur frá Egilsstöðum og
hafði hún meðferðis lík
ungs Seyðfirðings, sem
Stal
hákarli
lézt í fyrrinótt í fanga-
geymslu á Seyðisfirði. Á
rannsókn á líkinu að fara
fram í rannsóknadeild Há-
skólans til þess að komast
fyrir um dánarorsakir.
Þessi hörmulegi atburður gerðist
í fangageymslunni á Seyðisfirði í
fyrrinótt. Hinn ungi maður sem
hét Magnús Ólafsson hafði verið
tekinn- fastur fyrir ölvun seint um
kvöldið á annan í jólum og var
hann lokaður inni f fangageymsl-
unni. Engin föst varðgæzla er í
fangageyrrtslunni og með einhverj-
um hætti sem ekki er upplýst hefur
eldur komizt í dýnu fangans sem
hann lá á og þegar komið var að
honum í gærmorgun var hann lát-
inn. Magnús var 21 árs, ókvæntur
og barnlaus, en foreldrar hans
og systkini búa á staðnum.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði, Er-
lendur Björnsson, úrskurðaði að
þar sem hann væri yfirmaður lög-
reglunnar á staðnum, að hann sjálf-
ur skyldi víkja sæti við framhalds-
rannsókn þessa máls. Var því á-
kveðið að einn af fulltrúum saka-
dómarans í Reykjavík, Ólafur Þor-
láksson skyldi fara austur og taka
að sér rannsókn málsins. Flaug hnn
austur í morgun með flugvél Björns
Pálssonar.
LlK FANGA SEM LtlT I
HALDITIL RANNSÓKNAR
og riklingi
Eitthvert átvagl Reykjavíkur
mun hafa fyllt svanginn af stoln-
um hákarli og steinbítsriklingi um
jólahátfðina, en miklu magni af
þessum fæðutegundum var stolið
úr hjalll inni f Laugarncsi rétt fyr
ir helgina.
Hafði verið brotizt inn í hjall-
inn og þaðan stolið heilum hest-
burði af hákarli, eða 80—100 kg.
Þetta voru stórar lengjur af skyr-
hákarli. Þá hafði þjófurinn enn
fremur afgreitt sjálfan sig með 40
—50 kg. af steinbítsriklingi, sem
einnig hékk uppi í hjallinum.
Ef enn er eitthvað eftir af þess-
um matarleifum og einhver kynni
að hafa orðið var við þær, eða þá
ferðir þjófsins, er sá vinsamlegast
beðinn að tilkynna það rannsókn-
arlögreglunni.
Yfirnefnd Inuk störfum í gærkvöld:
Meialfískverð hækkar um 9,5 %
Yíirnefnd Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins
gekk endanlega frá fisk-
verði fyrir árið 1963 á
fundi sínum í gærkvöld
og HÆKKAR meðalfisk
verð í landinu til sjó-
manna og útvegsmanna
um 9*/2% frá síðasta ári.
Verð á þorski og ýsu í
fyrsta flokki A, miðað
við slægðan fisk með
haus, hækkar um 39
aura pr. kíló, eða úr kr.
3,21 í kr. 3,60, sem er
nær 12% hækkun.
Verð á þorski og ýsu
í fyrsta flokki B verður
kr. 3,16 og í öðrum
flokki kr. 2,59. Þessi
verðhækkun kemur til
framkvæmda um ára-
mótin.
Segja má að unnið hafi verið
sleitulaust síðan f byrjun des-
ember að undirbúningi ákvarð-
ana um fiskverð á næsta ári.
Verðlagsráð sjávarútvegsins sat
á stöðugum fundum fram yfir
miðjan mánuð og gekk frá ýms-
um veigamiklum atriðum og út-
reikningum, nn vísaði siðan til
endanlegrar ákvörðunar yfir-
nefndar 18. desember. Yfirnefnd
in hefir unnið að málinu þar til
í gær að hún gekk endanlega frá
ákvörðunum sfnum. Gunnlaugur
G. Bjömsson, bankafulltrúi, var
tilnefndur með samkomulagi for
maður yfimefndar, en aðrir í
nefndinni eru Helgi Þórarinsson
framkvæmdastjóri Reykjavik,
Guðlaugur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Vestmannaeyjum,
Sigurður Pétursson útgerðarmað
ur Reykjavík og Tryggvi Helga-
son sjómaður Akureyri.