Vísir - 02.02.1963, Page 3
3
VISIR . Laugardagur 2. febrúar 1963.
Hér sést hið myndarlega hæli Náttúrulækningaféiagsins austur við Hveragerði
BUFFiÐ GERT ÚR BAUNUM
Við vorum farnir að hlakka
til matartímans, þegar kallað
var á okkur félaga inn til rit-
stjórans. I'egar þaðan kom vor-
um við heldur rislágir, enda
ekki nema von. Við höfðum
nefnilega fengið skipun um að
sleppa matnum og fara austur
í Hveragerði á Náttúrulækninga
hælið. Ekki svo að skilja, að
heilsa okkar væri svo mikils-
vert atriði í augum ritstjórans.
Þegar við komum niður að
rútunni, sem beið okkar, sáum
við að þar voru einnig staddir
blaðamenn frá hinum blöðunum
og komumst við í örlítið betra
skap við tilhugsunina um að
þeir myndu líklega líka missa
af hádegismatnum.
Var nú haldið af slað og gckk
ferðin vel, nema stundum virt-
ist það vera vafamál hvað væri
framendi bílsins.
Þegar til Hveragerðis kom,
var okkur boðið að borða, og
var þá hark mikið og virtist
enginn blaðamanna kannast við
hina göfugu reglu: „konur og
börn fyrst“. Þegar komið var að
borðinu, gaf þar að líta eitt-
hvað sem líktist mjög safaríku,
mjúku nautabuffi, og hlóðum
við diska okkar svo, að fram-
reiðslustúlkurnar urðu stóreyg-
ar af undrun.
En þegar tekið var til að
borða, komumst við að raun
um, okkur til mikillar skelfing-
ar, að „buffið“ var þurrkaðar
sojabaunir, og þar ofan á höfðu
flestir hrúgað að minnsta kosti
kýrfóðri af grænum baunum.
Maturinn reyndist samt prýði-
legur o’ brauðin með afbrigð-
um góð. Þegar diskarnir voru
hroðnir var svo farið um hælið
og það skoðað.
Þetta er merkileg stofnun að
öllu leyti og verðskuldar miklu
meiri athygli en henni hefur
verið veitt liingað til. Læknarn-
ir tveir, Karl Jónsson og Högni
Bjarnason, ásamt Árna Ásbjarn
arsyni, forstjóra hælisins og frú
Arnheiði Jónsdóttur námstjóra,
sýndu blaðamönnunum hælið
og svöruðu spurningum.
Hlutverk hælisins er að hjálpa
fólki til nýrrar og betri heilsu
og beita I því skyni, eins og
nafnið bendir til, mestmegnis
gróðri og heilsumagni jarðar.
Lögð er áherzla á hollt fæði,
og er það að miklu Ieyti ávextir
og annað grænmeti.
Þá erVreynt að fá sjúklinga
til þess að forðast notkun tó-
baks, áfengis og annarra skað-
Iegra Iyfja. Gigtarsjúklingar
stunda nudd, sjúkraleikfimi,
leirböð, hveravatnsböð og ýmis
konar Ijósböð. Einnig er á
staðnum finnsk baðstofa og
tvær sundlaugar.
Fyrir skömthu var tekið í
notkun nýtt tæki, svonefnt
„vatnsnudd“. Er sjúklingurinn
látinn liggja I sérstaklega út-
búnu baðkerl, og vatnsbunu
beint með miklum krafti á hinn
sjúka likamshluta. Vatnsnuddið
hefur reynzt mjög vel, og er sér
staklega vel fallið til lækningar
gigtar.
Þegar við höfðurn skoðað hæl
ið og sannfærzt um að betri
stað er ekki hægt að hugsa sér
til heilsubótar, fóru blaðamenn
irnir óspart að ráðleggja hverjir
öðrum langan dvalartíma til
bóta á sínum synduga skrokk.
Þá var kominn tími til að
kveðja. Að skilnaði bergjum
við á blóðbergstei með hun-
angi og röltum svo af stað,
ánægðir yfir að vera búnir að
finna stað til þess að eyða elli-
árunum á.
Hér er eingöngu notað heilhveiti,
hvítur sykur.
— ekkert hvítt hveiti, enginn
Nei, þú verður að taka myndir. Heilsulindin, — bað og nudd.
á þverveginn,
«oa
> i .