Vísir - 02.02.1963, Síða 5

Vísir - 02.02.1963, Síða 5
V í S IR . Laugardagur 2. febrúar 19ð&. 5 inn þá nð verki - Framhald af bls. 16. und krönur. Áfgreiðslustúlkan kærði málið strax til lögreglunnar, en nokkru seirina kom einn drengjanna þriggja inn í verzlunina og færir stúíkunni ávísunina og meiri hluta peninganna, en þó vantaði nokkur Iiundruð krónur. Sagði drengurinn einnig til nafns sfns og kvaðst hafa hitt, hina tvo drengina af tilviljun rétf áður. Sagði hann að þegar fé- lögum hans sem stóðu að þjófnað- inum hafi orðið ljóst hve mikil verðmæti voru geymd í töskunni hafi þeir orðið hræddir og það hafi orðið úr að hann tók á sig að skila megninu af þýfinu. Aðal þjófarnir höfðu sig á brott með nokkur hundruð krónur í vasan- um .,og lögreglan bjóst í gærkveldi við .að þeir væru þá að eyða fénu. Var verið að leita þeirra en voru ófundnir þegar blaðið vi'ssi síðast. ifómas Einarsson rannsóknarlög- reglumaður, sem fjallar einkum um mál afbrotaunglinga, sagði Vísi í gærkveldi að það væri vitað að drengirnir tveir sem stálu úr töskunni í gær hafi verið þeir sömu og brutust inn í Nýja bíó, og Vísir skýrði frá í gær. Aftur á móti hafi sá, sem skilaði þýfinu, ekki verið meðal þeirra, og taldi Tórrias það virðingarvert og sýna í sehn kjark og drengskap hvernig hann brást við í þessu efni. Tómas sagði ennfremur að annar tveggja sem þarna voru að verki, sé einkar kræfur. Hann er aðeins 12 ára gamall en hefur margoft komið við sögu hjá lögreglunni allt frá því er hann var 9 ára gam- all. Hann tæki engum fortölum hvernig sem að honum væri farið og reynt að tala um fyrir honum. í þessu sambandi kvaðst Tómas sérstaklega vilja benda á þau vand kvæði sem væru að því að koma vanÖræðabörnum fyrir utan kaup- staðanna. Aðeins eitt uppeldis- heimili fyrir vandræðabörn væri til á öllu landinu — vestur í Breiðuvík — en það væri lokað í vetur vegna viðgerða. Auk þess er það alltof lítið, tekur aðeins 15 börn og er alltaf meir en yfir- fullt. Fram til þessa hefur Reykjavík mátt heita ein um hituna við að koma börnum þar fyrir. En nú virðast fleiri kaupstaðir landsins hafa eignazt líka vandræðabörn og - sótzt eftir að koma þeim á uppeldisheimilið í Breiðuvík. Ekki væri viðlit lengur að koma vand- ræðkbörnum fyrir á sveitaheimil- um, sízt á veturna og það væri alltóf stór hópur barna, sem for- eldrár, lögregla og barnavernd væri í hreinum vandræðum með vegna þess að hvergi væri unnt að koma þeim fyrir á rólegum og afskektum stöðum eða þá á upp- eldisheimilum sem æskilegast væri og í rauninni sjálfsagt. Dæmið um þessa unga drengi sem að framan er nefnt, þar sem þeir ráðast í hvert afbrotið af öðru, þótt þeir séu teknir og talað um fyrir þeim, sýnir átakanlega hvílík þörf er fyrir uppeldisheimili fyrir afbrotaæsku landsins. Næturvakfsn — Framhald af bls. 16. það að einn okkar varð að sjá um að „klarera“ skipin. Við uriðum að taka við skipspappír- um, fara með lækni um borð og innsigla tollinn. Lögreglumenn leituðu í skipunum, í auka- vinnu. Ef við fundum ekkert fengum við ekkert borgað, en ef eitthvað fannst, fengum við borgað tímakaup fyrir þetta. — Hvað var bærinn stór þá? — Hann náði frá Snorrabraut og vestur í Kaplaskjól. Við vorum bíllausir og reyndum því að halda sambandi við stöðina með þvl að fá að hringja hér og þar. Fram til tólf, þegar sjoppurnar lokuðu, vorum við alltaf tveir og tveir saman, en eftir það dreifðum við okkur, um bæirin. Ef stöðvarmaðurinn þurfti að senda okkur eitthvað, varð hann að fara út á götu og leita að okkur. — Var mikið um slagsxnál? — Það kom varla fyrir kvöld að ekki væru slagsmál og var mest um það í Miðbænum. Stundum var það þó um allan bæ. Veit varla hvernig stóð á því að við sluppum yfirleitt vel úr" þeim. Það er miklu minna um slagsmál núna. Ég held að þeir þori ekki eins I lögregluna núna. Svo var líka miklu meira af útlendingum hér þá. — Kom oft fyrir að Tugthús- ið væri fullt? — Það var mjög oft. Ég held að þeir geri miklu meira af að sleppa þeim lausum aftur núna, vegna rúmleysis. — Hvað voruð þið lengi á næturvakt í einu? — Þá voru fastir menn á næt urvakt. Ég var á næturvaktinni frá 1923 til 1930. Við fengum aldrei frí, hvort sem var um helgar eða á stórhátfðum, svo sem jólum. Við vorum líka oft kallaðir út á daginn til viðbótar og fengum aldrei borgaða neina aukavinnu. — Þótti þér þetta skemmti- lega vinna? —■ Ekki get ég sagt það. Það var dag eftir dag og ár eftir ár verið að eiga við sömu menn- ina. Stundum varð maður svo að fara með menn fulla heim til konu og barna og þá var allt vitlaust. Söngvarinn — Framhald af bls. 6. og gamla mannsins. Ég hlakka mikið til að syngja hérna, segir Tajmer og ég vona bara að fólkinu líki við mig. Hvað verðið þið lengi hérna á íslandi? Við verðum út þennan mán- uð, en síðan verður haldið aftur til Danmerkur og þar syng ég í Zigeunerhallen og Dyrhavs- bakken. Finnst yður ekki leiðinlegra að koma hingað um vetur, þá eru ekki eins mikil tök á að skoða landið? Sussu nei, mér er alveg sama, við förum samt, við erum mjög spennt að sjá hverina ykkar hér á íslandi, og viljum ekki „missa af því fyrir nokkurn snjó!“ 79 af stöðinni — Framhald af bls. 8. farirnar sjást frá upphafi til enda — m. a. frá öðrum og að sínu leyti ekki ófróðlegri sjón- armiðum — eru m. ö. o. raun- verulegar? Spyr sá sem ekki veit. Almenningur getur alls ekki verið þess fullviss með sjálfum sér að ekki sé, frammi fyrir kvikmyndavélinni leikið til muna meira en honum er sýnt. Slíkur vafi á þátt í því, að éta sundur siðgæðisundir- stöður hans, svo sem raun ber vitni á vorum dögum. Slíkt og hvilíkt er tönn í kjafti Níð- höggs, sem hann nagar með rót asks Yggdrasils — lífstrés þjóða og mannkyns. að var ósvikin fegurð, sem Ieikkonan sýndi í framan- greindu atriði. En jafngilda fegurð hefði hver lítt spillt kona, við viss skilyrði, getað sýnt. Til þess hefði ekki þurft neinn leikara. (Skrifað eftir komu í Bæjar- bíó 27. janúar 1963.) Björn O. Bjömsson. Teikning af hinni nýju byggingu Heildverzlunarinnar Heklu. Guðni Magnússon teiknaði húsið i samráði við Þór Sandhoit. í kringum húsið eru steinsteypt bifreiðastæði. BIFREIÐA VERKSTÆÐI Heildverzlunin Hekla er flutt í nýja skrifstofu- byggingu við Laugaveg. Jafnframt hefur verið byggt yfir bifreiðaverk- stæði fyrirtækisins, og verður verkstæðið hið fullkomnasta, sem hér er á landi. í skrifstofubygg- ingunni er einnig stór varahlutaverzlun fyrir- tækisins, ásamt ýmsum öðrum fyrirtækjum. Heildverzlunin Hekla hef- ur .m. a. umboð fyrir Volkswag- en bifreiðar og Land-Rover bif- reiðar, og mun viðgerðarþjónusta fyrirtækisins fyrst og frems mið ast við þessar tegundir svo og viðgerðir á Porchebifreiðum, sem heildverzlunin hefur einnig um- boð fyrir. Þá hefir Hekla um- boð fyrir Caterpillar vinnuvélar. Bifreiðaverkstæðinu er skipt í deildir: Þvottadeild, kvoðunar- deild, smurstöð, mælingadeild, skyndiviðgerðadeild, aðalviðgerða deild, vélaviðgerðadeild og rétt- ingar. Auk þess eru þar húsa- kynni fyrir móttöku- og biðstofu viðskiptavina o. fl. Er skipulag verkstæðisins mjög fullkomið og er þar lögð áhersla á að allt geti verið sem þrifalegast, nákvæmast og fljótlegast unnið. T.d. er bif- reiðin þvegin áður en hún er tekin til skoðunar, þá er vélin þvegin áður en hún er tekin til viðgerðar. Sérstakt tæki leitar að bilunum í vél, mælitæki at- huga allar stillingar og má þann- ig lengi telja. Bifreiðavarahlutaverzlunin er með stærstu verzlunum borgar- innar. Þar eru 160 skápar hólfað- ir fyrir 117 mismunandi hluti hver skápur. Framhlið verzlunar innar er um 27 metra löng, björt og rúmgóð. í húsakynnum verzlunarinnar, verkstæðisins og skrifstofunnar er mikil áherzla lögð á rétta lýs- ingu, auk þess sem vinnuskilyrði eru öll eins góð eins og bezt verður á kosið. í tilefni af opnun hinna nýju húsakynna koma hingað til lands fulltrúar nokkurra þeirra fyrir- tækja, sem Hekla hefur viðskipti við. Gestirnir eru þessir: Con- stantin von Velsen, framkvæmda stjóri utanríkisdeildar Dresdner Bank í Hamborg. Sá banki hefir lánað DM 800.000.00 í bygging- una með góðum kjörum vegna fyrirgreiðslu Volkswagen. Leyfi til þess að taka erlent lán fékkst eingöngu vegna þess að gjald- eyristekjur bankanna af sölu Volkswagenbifreiða til erlendra starfsmanna Keflavikurflugvall- ar hafa numið milljónum króna á undanfömum árum, og er Á EVRÓPUMÆLIKVARÐA í skoðunarverkstæði Volkswagenumboðsins. Þar er allt búið full- komnustu tækjum sein og aðrar deildir verkstæðisins. Hekla að því leyti útflytjandi. Mr. E. Schneider, umdæmis- stjóri Volkswagen, en umboð hans nær yfir ísland og Bret- landseyjar. Hefir hann aðsetur í London. Mr. H. Hiller, einnig frá Volks wagen, sem komið hefur nokkr- um sinnum áður til ráðuneytis í sambandi við rekstur verkstæðis ins. Mun hann nú starfa hjá Heklu í mánuð, meðan verið er að koma nýja verkstæðinu yfir byrjunarörðuleikana. Mr. Oscar von Seeger, sölu- stjóri Caterpillar I Evrópu. Mr. R. Richter, útflutnings- stjóri Land-Rover. Heildverzlunin H(Lla er stofn uð árið 1933 af Sigfúsi Bjarna- syni, núverandi forstjóra þess og nokkrum öðrum, en hefur síðan 1940 algjörléga verið í eigu'fjöl- skyldu hans. .. - V.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.