Vísir - 02.02.1963, Side 7
V1 S I R . Laugardagur 2. febrúar 1963.
7
Undanfarin ár hefur
verið unnið á Lands-
bókasafninu að skrásetn
ingu efnis í íslenzkum
blöðum og tímaritum.
Þetta et seinlegt verk,
sem stundum hefur orð-
ið að víkja fyrir fjöl-
mörgum öðrum verkefn
um. Því miðar samt stöð
ugt áfram svo að nú er
sennilega búið að skrá-
setja á um 100 þúsund
kort, efni 49 tímarita
og fylgirita, en meðal
þeirra eru öli helztu rit-
in, sem komið hafa út.
hyggju að fá dagblöðin til að
annast skráningu efnisins eftir-
leiðis, vegna þess að bókaverð-
ir Landsbókasafnsins hafa ýms-
um öðrum hnöppum að hneppa.
Þeir líta svo á, að þetta yrði
ekki nema augnabliksverk á
degi hv'erjum. Hins vegar geta
þeir ekki annazt daglega skrán-
ingu, þar sem blöðin berast
þeim ekki í hendur nema með
nokkurra mánaða millibili.
jj^innur Sigmundsson hóf þessa
skráningu og vann að henni
þar til hann varð landsbóka-
vörður. Um skeið vann Karölína
heitin Einarsdóttir að skráning-
unni, en nú starfar Haraldur
Sigurðsson bókavörður ein-
göngu að þessu.
blaða og
^uk þess er búið að skrá efni
Vísis og Morgunblaðsins frá
byrjun til ársins 1944. Verið er
að skrá efni Tímans og er lok-
ið við að skrá efni blaðsins til
ársins 1940. Ætlunin er að efni
allra dagbiaða frá upphafi þeirra
til ársins 1944 verði skráð í
fyrstu lotu, en síðan verði byrj-
að á annarri umferð, og iokið
við það, sem eftir er. Jafn-
framt hefur Landsbókasafnið í
Hann kveðst skrá öll eftir-
mæli og afmælisgreinar, alla rit
dóma, ieikdóma og listgagnrýni,
ritgerðir, sem ekki fjalla um
dægurmál, utan prógrammgrein
ar stjórnmálaforingja. Einnig
eru skráðar helztu fregnir af
þeim mönnum, sem helzt má
ætla að framtíðin láti sig skipta.
Yfirleitt má segja að þarna séu
skráðar allar greinar, sem birt-
ar eru undir nafni höfundar,
ef þær fjalla ekki um mál dags-
ins í dag.
þess vegna er t. d. forystu-
greinum dagblaðanna sleppt
með öllu. Yrði reyndar óhægt
um vik við skráningu þeirra,
þar sem margar bera sömu heiti,
og svo er það oftast að heitin
gefa ekki mikið til kynna um
efni þeirra. Þá myndi skráning
þeirra verða gífurlegt verk, þar
sem þegar hafa birzt um 50
þúsund forystugreinar í íslenzk-
um dagblöðum. Þýddar sögur
og kvæði eru skráð til að hægt
sé að fylgjast með því hvaða
erlendir höfundar eiga verk sín
eða hluta þeirra þýdd á íslenzka
tungu.
íslenzkar blaða- og tímarits-
tímaríta
greinar eru ósjaldan merkar
heimildir um menn og málsefni,
stundiim þær einu, sem völ eru
á. Það er því til mikils hag-
ræðis fyrir þá, sem þurfa að
styðjast við heimildir þessar að
hafa fengið jafn ítarlega spjald-
skrá sem þessa. Hún flýtir fyr-
ir þeim og auðveldar starfið um
leið og hún ætti að tryggja að
ákjósanlegt efni þurfi ekki að
fara framhjá þeim. — á. e.
asti og afturhaldssamasti Hokkurím
Vitnisburður Einurs Olgeirs-
sonur n Alþingi
Tjað hefur löngum verið venja
Framsóknar að saka Sjálf-
stæðisflokkinn um afturhaldsemi
og jafnvel ólýðræðislegar tilhneig
ingar. Hins vegar er það á vitorði
ails almennings, að enginn flokk-
ur í Iandinu hefur verið jafn harð
svíraður afturhaldsflokkur og ein
mitt Framsóknarflokkurinn og
enginn Iýðræðisflokkur jafn
hneigður til ólýðræðislegra vinn>’
bragða og hann, og það hefur
löngum verið hlutverk Sjálfstæð-
isflokksins, þegar þessir flokkar
hafa starfað saman, að hafa hem-
il á einræðistilhneigingu Fram-
sóknar, svo að lýðræðið mætti
vera í hciðri haft í þessu landi.
J^ommúnistar hafa nianna sízt
verið orðaðir við lýðræði og
frelsisást, en jafnvelþeint ofbýður
einræðishneigð Framsóknar og
þeir saka ekki Sjálfstæðisflokk-
inn unt mestu afturhaldsstefnuna
í stjórnmálum og almennum mál-
um, heldur eðlilega Framsóknar-
flokkinn, þá sjaldan að þeir segja
sannleikann, allan sannleikann og
ekkert nema sannleikann, eins og
fyrir kom í ræðu, sem Einar Ol-
geirsst hélt í þinginu s. 1.
fimmtudag. Hún vakti sérstaka
athygli vegna þéss að þar sagði
kommúnisti einu sinni sannleik-
ann og sýndi Framsóknarflokkinn
í sínu rétta Ijósi eins og hann
hefur verið frá upphafi vega, og
varð Einar nú að viðurkenna það,
sem almennt er viðurkennt, en
kommúnistar hafa að jafnaði
reynt að dylja, að Framsóknar-
flokkurinn er hinn eini sanni aft-
urhaldsflokkur í landinu, seni
alla tíð hefur haft það ntark og
tnið að berjast gegn launahækk-
unum og bættum kjörum almenn-
ings, eins og Einar nefndi óhrekj-
andi dærni um, og jafnvel viljað
banna aðra flokka, að því er Ein-
ar gaf nú fyllilega í skyn
Einar fullyrti sem sé að það
hefði verið rætt um það í rikis-
stjórninni 1941, að banna Komm-
únistaflokkinn hér á landi og
einnig útkomu Þjóðviljans og það
var auðheyrilega skoðun hans, að
Framsóknarflokkurinn hefði viij-
að beita sér fyrir þeim aðgerðum,
en Sjálfstæðisflokkurinn ekki tek
ið slíkt í mál og sýnt þar með
að hann var lýðræðissinnaður í
orði og á borði, en Framsóknar-
flokkurinn aðeins í nösunum.
Þetta er þungur áburður á flokk,
sem þykist vera lýðræðisflokkur,
jafnvel þótt ásökunin sé af hálfu
kommúnista, og er nú ekki nema
um tvennt að gera fyrir Fram-
sókn, að hreinsa sig af þessum
áburði eða hverfa úr tölu lýðræð-
iflokkanna og vera flokkaður
undir sama númer og kommúnst-
ar í framtíðinni.
17inar Olgeirsson nefndi mörg
fleiri dæmi til sönnunar þvi
að í öllum tilfellum hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn reynzt trúr hug-
sjónum lýðræðisins. En Framsókn
arflokkurinn er ótrúr þeim og
hneigður til ofbeldis. Hann nefndi
einnig mörg dæmi þess að Fram-
sóknarflokkurinn hefði barizt
gegn eðlilegum kauphækkunum
og kjarabótum almennings og
beinlínis haft þröngsýni og aftur-
haldssemi að Ieiðarljósi, en Sjálf-
stæðisflokkurinn alltaf.sýnt skyn-
semi og sanngirni í þeim málum
og alltaf verið fylgjandi raunhæf-
um kjarabótum verkafólks og alls
almennings. Auðvitað þóttist Ein
ar tala sem fulltrúi alþýðunnar,
og er því athyglisvert og vert að
festa það í minni, að alltaf hafði
Framsóknarflokkurinn, en alls
ekki Sjálfstæðisflokkurinn, verið
höfuðóvinur alþýðunnar á undan-
gengnum áratugum.
o ---- r----- -
að batnandi manni væri bezt að
lifa og Framsókn hefði reynzt
alþýðunni (það er kommúnistum)
auðsveipt og gott barn og trygg-
ur bandamaður í tíð núverandi
ríkisstjórnar. Duldist engum að
það hlakkaði í honum að hafa
getað dinglað Framsókn eins og
hala Kommúnistaflokksins á
þessu kjörtímabili. En hann sló
einn varnagla, og hann ckki ódigr
an, sem sé þann, að aldrei hefði
verið að marka Framsókn í stjórn
arandstöðu, hún reyndi þá ætíð
að leyna sínu rétta innræti en
sýndi því betur sitt rétta andlit
er hún kæmist í ráðherrastólana,
andlit afturhalds og einræðis-
hneigða.
Geta menn svo dregið sínar
ályktanir af því hver útkoman
yrði, ef sú ógæfa ætti eftir að
henda þjóðina að fela slíkum
flokki í félagi við kommúnista
meirihluta á löggjafarsamkomu
þjóðarinnar og stjórn landsins.
Krabbameini í maga finnst
fljótt með efnarannsékn
í síðasta hefti af danska lækna
tímaritinu Ugeskrift for Læger er
skýrt frá því, að nýjar aðferðir
hafi nú verið teknar upp til að
finna krabbamein í maga og þörm
um. Segir í greininni að þetta sé
nú prófað með efnafræðilegum
rannsóknum. Það er kunnur dansk
ur læknir Torben Jersild, seni rit-
ar grein um þetta og er það niður
staða hans, að sjálfsagt sé að all-
ir þeir sem komnir eru yfir 40 ára
aldur láti framkvæma læknisskoð
un á sér einu sinni á ári og þá
sé það m. a. kannað með þessari
einföldu aðferð hvort krabbamein
sé farið að .grafa um sig.
Leeknirinn segir, að það sé hægt
með þessum efnafræðilegu rann-
sóknum að komast að þvf miklu
fyrr en með röntgenskoðun, hvort
krabbamein sé farið að búa um
sig. Hann segir að það sé undar-
legt, hve fáir læknar séu búnir
að taka þessa efnafræðiathug-
un í notkun, þrátt fyrir það að hún
sé bæði ódýr og auðveid.
Aðferðin hefur um skeið verið
notuð við menn, sem hafa fengið
magasár. Er þá siður að þeir eiga
að koma með stuttu millibili og er
þessi efnafræðirannsókn á saurn-
um framkvæmd. Þannig er hægt að
fylgjast með því, hvort illkynjað
mein kemur upp í maga eða þörrr,-
um.
Jersild yfirlæknir telur að menn
sem komnir eru yfir fertugsaldur-
inn eigi árlega að láta framkvæma
ýtarlega skoðun á sér. Þeir þurfa
t.d. að láta kanna hvort blóðþrýst-
ingur sé réttur og hvort hjarta,
lungu og nýru starfi eðlilega.