Vísir - 14.02.1963, Síða 2

Vísir - 14.02.1963, Síða 2
2 VÍSIR . Fimmtudagur 14. febrúar 1963. Áhorfendur á Hálogalandi mega stundum standa þétt, ekki sízt þegar spennandi leikir fara fram. Nýtt fyrirkomulag í 1. deild reyndist vel „Yfirleitt má segja að hið nýja fyrirkomulag á 1. deild gefist vel“, sagði Jóhann Einvarðsson, formaður Handknattleiksráðs Reykjavíkur í viðtali við okkur í gærkvöldi um ýmislegt varðandi Handknattleiksmót íslands, sem er í umsjá HKRR, sem kunnugt er. — Hvernig að aðsókn að leikjum í J. deild, Jóhann? '— Hún hefur aukizt talsvert frá í fyrra, en það kemur einkum til af færri seldur barnamiðum, en fleiri fullorðinsmiðum, því strang- ar er nú tekið á aldurstakmarkinu en fyrr, einnig vegna nýs fyrir- komulags á boðskortum og að lok- um höfum við rekið okkur á að bað fyrirkomulag að hafa einungis 1. deildarleiki sama kvöld hefur gefizt vel. — Hvað með 2. deild? — Léleg aðsókn, eins og menn sátu séð á dögunum, þegar aðeins 26 fullorðnir greiddu aðgang, þegar tvö af beztu liðunum voru að leika, að vísu gegn mun lélegri andstæðingum, en mjög léleg út- koma samt. — Hvað er bezta aðsóknin í ár? — Fyrsta kvöldið eftir nýjár var mjög gott, líklega metkvöld í handknattleiksmóti, en þá seldist upp fyrir ki. 8.30 og urðu fjöl- margir að snúa frá. Þá léku KR og Víkingur, bæði taplaus í mót- inu, og f seinni leiknum Fram og FH, 6n Fram vann sem kunnugt er. r------------------n Rabbað við lóhann Ein- varðsson, form. Handknatfleiks- róðs Reykja- víkur N_________________J — Hvað voru margir áhorfendur þetta kvöld? — Þvf miður megum við ekki selja meira en 750 miða, enda varla hægt að selja fleiri stæði í gamla Hálogalandshúsinu, en eflaust hefði talan orðið talsvert hærri annars. — Batnar ekki aðstaðan í nýju íþróttahöllinni í Laugardalnum? — Jú, það er hætt við að að- staða, bæði okkar og áhorfenda, breytist þá til batnaðar. Áhorf- endur geta þá væntanlega horft á leikina úr þægilegum sætum og við fengið betri aðstöðu á allan hátt, en á Hálogalandi er hún ekki upp á marga fiska. Með tilkomu góðs íþróttahúss væntum við þess líka að áhorfendatalan hækki til muna, sagði form. HKRR að lok- um. Námskeið i handknattleik Glímufélagið Ármann, hefur á- kveðið að halda námskeið f hand- knattleik fyrir unglinga. Námskeið þetta er fyrirhugað sem byrjenda- námskeið fyrir unglinga á aldrin- um 10 til 15 ára. Námskeiðið mun standa yfir f tvo mánuði minnst og fer það fram á Hálogalandi á fimmtudögum kl. 6. Beztu handknattleiksmenn Ár- manns munu sjá um kennsluna. Þarna er einstætt tækifæri til þess að kynnast handknattleiksíþrótt- inni og eru unglingar sérstaklega hvattir til að nota tækifæri þetta. Allir unglingar eru velkomnir og nánari upplýsingar verða gefnar á Hálogalandi á fimmtudögum kl. sex. , Handknattleiksdeild Armanns. KR-ingar á faraldsfæti KR-ingar hafa að sögn fengið DC-6B flugvél Flugfélags Islands leigða í tvær ferðir í sumar. Sú hin fyrri er ferð með 80 manna hóp féiagsmanna til London en þar verður m. a. horft á knatt- spyrnuleik milli Englendinga og heimsmeistaranna frá Brazilíu. Þessi leikur verður 8. maí n. k„ en ferðalagið mun taka tvo daga. Hin ferðin er með þrjá flokka fé- lagsins sem fara saman til Kaup- mannahafnar í júlímánuði, en ferðalag þeirra er alger nýjung í ferðalögum íþróttahópa. Meistaraflokksmenn KR verða heldur ekki atvinnulausir I sumar. KR mun fara til Danmerkur eins og fyrr segir, en auk þess eru uppi ráðagerðir um að taka þátt í Evrópubikarkeppni bikarmeistara, sem mundi þýða a. m. k. enn eina utanför til viðbótar, kannski fleiri, ynni KR samanlagðan sigur fyrir fyrsta keppinaut sínum. KR á á- reiðanlega eftir að fá valda nokkra menn í landslið, en verkefni lands- liðsins eru aldrei fleiri en einmitt nú, þegar landsliðið er með I und- ankeppni OL og mun leika í Bretlandi í sumar. Fari svo að sig- urinn iendi í höndum íslendinga mundu leikmenn leika næst í Grikklandi, e. t .v. í haust. Ofan á þetta bætast 10 leikir í I. deild íslandsmótsins og fjöldi aukaleikja, m. a. landsliðsheim- sóknir og heimsóknir erlendra liða. Ólánið eltir Wilmu Rudolph WILMA RUDOLPH — „drottning Rómarleikjanna", eins og hún var kölluð eftir Olympluleikana í Róm og hefur hvað eftir annað vakið óskipta athygli tugþúsundanna fyrir hlaup sín, er nú skyndilega far- in að tapa í keppnum í sprett- hlaupum á mótum í Bandaríkj- unum. Ástæðan fyrir þessu er einfaldlega sú, að Wilma er ó- endanlega óhamingjusöm, eftir að hún skildi við mann sinn. Wilma giftist eins og kunn- ugt er samstúdent sínum Ward að nafni og voru þau ham- ingjusöm fyrst í stað, en upp úr áramótunum síðustu fékk Stórhriðarmót á Akureyri Um sl. helgi var svokallað stór- hríðarmót Akureyrar í svigi háð við svokallaðan Stromp í Hlíðar- fjalli, nokkru fyrir ofan skíðahótel- ið. Alls voru þátttakendur 34, sem telja verður mjög góða þátttöku. Keppt var i þrem flokkum fullorð- inna og tveim drengjaflokkum. Veð ur var hið fegursta og skíðafæri að sama skapi gott. Fyrstu menn í hverjum flokki urðu þessir: I A-flokki Magnús Ingólfsson KA á 86,7 sek. I B-flokki Viðar Garðarsson KA 1:04,1 sek. í C-flokki Sigurður Jakobsson KA á 89,1 sek. I drengjaflokki 13-15 ára Heiðar Jóhannsson, Þór, 49,9 sek. og í Wilma skilnað sem var veittur vegna „slæms samkomulags í hjónabandinu". Nokkru síðar var hin niður- dregna Wilma sigruð á hlaupa- brautinni, I 60 metra hlaupi, og það ekki aðeins af einni stúlku, heldur tveim bandarísk um stúlkum, en ósigur Wilmu er hinn fyrsti í langan tíma. Ofan á allt þetta tilkynntu læknar henni að hún yrði fyrr en síðar að ganga undir upp- skurð vegna illkynjaðrar botn- langabólgu, svo það er varla nein furða þó hún sé ekki vel upplögð á þessum sfðustu og verstu tímum. drengjaflokki 12 ára og yngri Árni Óðinsson KA á 41,2 sek. í dag og næstu daga seljum við: Austin Gibsy ’62 — Landrover ’62 diesel — VW flestar árgerð- ir — Opel Record og Caravan, allar árgerðir. Auk þessa höfum við ávallt til sölu allar gerðir og árgerðir af 4, 5 og 6 manna bílum. — Munið a ðmiðstöð vörubílavið- skiptanna er hjá RÖST. Það er beggja hagur að RÖST annist viðskiptin. R ö S T , Laugavegi 146 Sími 11025.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.