Vísir - 07.03.1963, Side 2
f 2
VÍSIR . Fimmtudagiu' 'T. marz 1963.
“T
^&Lr~l 1 n1 H3. c=n r* ‘n
i_l zw//////^ 1 W///////L
TVÖ SKÍÐAMÓT
Á AKUREYRI
Sunnudaginn 24. febrúar var
haldið skíðamót I Hlfðarfjalli. Var
það flokkasvig, og tóku fjórar sveit
ir þátt I því. Þrjár frá Akureyri og
ein úr Menntaskólanum. Brautar-
lengd var 250 m., fallhœð 85 m.
og 35 hlið.
Leikar fóru þannig, að A-sveit
Akureyringa sigraði á 354.8 sek.
samanlagt, en sveitin var skipuð
þessum mönnum: Otto Tulinius,
MagnUsi Ingólfssyni, ívari Sig-
mundssyni og Reyni Brynjólfssyni.
1 öðru sæti varð sveit Menntaskól-
ans á 387.2 sek. samanlagt, en sú
sveit var skipuð eftirtöldum mönn-
um: Guðmundi Tuliníus, Eirfki
Ragnarssyni, Birni M. Bjarnasyni
og Theodór Blöndal. í þriðja sæti
varð C-sveit Akureyringa á 401.6
sek. samanlagt, en B-Sveit Akur-
eyringa var dæmd úr leik.
Skíðaráð Akureyrar sá um mót-
ið. Óvenju margt áhorfenda var á
mótinu, enda hið fegursta veðúr.
Sunnudaginn 3. marz fór fram
Akureyrarmótið 1 svigi, og urðu
úrslit sem hér segir:
A-flokkur
1. Magnús Ingólfsson KA 99.0
samanl. 2. Guðmundur Tulinius KA
99.2 samanl, 3. Ottó Tulinius KA
103.9 samanl. Brautarlengd 375 m.,
fallhæð 130 m. og hlið 49.
, B-flokkur
1. Reynir Pálmason KÁ 109.2
samanl. 2. Reynir Brynjólfsson Þór
109.5 samanl. 3. Eggert Eggertsson
Þór 111.0 samanl. Brautarlengd 360
m,, falihæð 120 m. og hlið 46.
C-flokkur
1. Sigurður Jakobsson KA 106.6
samanl. 2. Theodór Blöndal IMA
112.8 samanl. 3. Björn M. Bjarna-
son iMA 115.2 samanl. Brautar-
lengd 345 m., fallhæð 110 m. óg
hlið 44.
13—15 ára
1. Heiðar Jóhannsson Þór 70.1
samanl. 2. Ingimar Karlsson Þór
79.9 samanl. 3. Bjarni Jensson Þór
82.7 samanl. Brautarlengd 180 m.,
fallhæð 50 m og hlið 23.
12 ára og yngri
^Árni Óðinsson KA 68.1 samanl.
2. Sigurður Sigurbjörnsson KA
74.0 samanl. 3. Öm Þórsson KA
80.0 samanlagt.
} HEIMKOMA
IMEISTARANNA
!
Svíar og Norðmenn tóku vel á
móti skautahlaupurum sínum í síð-
ustu viku, er þeir komu heim eftir
árangursríka ferð til Japan, Svlar
fögnuðu heimsmeistara, en Norð-
mehn fögnuðu „kvintettinum", sem
undirstrikaði gífurlega yfirburði
Norðmanna sem skautaþjóðar.
Stóra myndin er frá hinum ný-
tízkulega flugvelli á Arlanda,
skammt fyrir utan Stokkhólm, en
’þar er Bertil prins að heilsa Jonný
Nilsson. Stúlkan til vinstri er
skautastúlkan Gunilla Jakobsson,
sem stóð sig með prýði í keppn-
inni. Minni myndin er frá móttöku-
athöfn Norðmanna á Bislet, en þar
voru skautakapparnir dregnir inn
á Jeikvanginn á sleða. Frá vinstri á
myndinni eru Per Ivar Moe, Magne
Thomassen, Knut Johannessen,
Nils Aaness, Fred Maier. — Fjöldi
fólks tók á móti meisturunum í
báðum löndunum.
•V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.
!■■■■■!
NATO - VÍSINDASTYRKIR
Menntamálaráðuneytið hefur fyr
ir nokkru úthlutað fé því, sem
kom 1 hlut íslendinga af vislnda-
styrkjum Atlantshafsbandalagsins
1962 („Nato Science Fellowships")
Eftirtaldir menn hlutu styrki, 18
þús. kr. hver:
Baldur Johnsen, læknir, til að
kynna sér og stunda krabbameins-
rannsóknir á Norðurlöndum.
Bergsteinn Gizurarson, verkfræð
ingur, til framhaldsnáms í bygg-
ingaverkfræði í Bandaríkjunum.
Einar Ingí Siggeirsson, grasa-
fræðingur, til framhaldsrannsókna
á sviði jurtakynbóta við háskóla
í Þýzkalandi.
Gunnar Vagnsson, viðskiptafræð
ingur, til að kynna sér aðgerðir
við að áætla hagkvæmni iðnaðar-
og rannsóknarverkefna.
Gunnar B. Guðmundsson, verk-
fræðingur, til að kynna sér nýj-
ustu tækni í gatnagerð I Evrópu.
Hjaltl Þórarinsson, dósent, til
framhaldsrannsókna á sviði brjóst-
holsskurðlækninga f Svíþjóð eða
Bretlandi.
Ingi Þorsteinsson, M.Sc., til að
kynna sér beitarrannsóknir (varð-
andi hagnýting beitilanda og á-
kvarðanir á beitarþoli þeirra) við
rannsóknarstofnanir í Bretlandi,
Svíþjóð og Noregi.
Jóhannes Guðmundsson, verk-
fræðingur, til framhaldsnáms í
jarðstiflugerð og skyldum grein-
um við Rannsóknarstofnun Noregs
í „geoteknik".
Ófeigur J. Ófeigsson, læknir, til
framhaldsrannsókna á meðferð
brunasára við Dept. of Pathology,
Royal Infirmary, Glasgow.
Pétur Gunnarsson, deildarstjóri,
til að kynna sér fóðurrannsóknir
við háskóla í Bretlandi og Dan-
mörku.
Theódór Diðriksson, verkfræð-
ingur, til framhaldsnáms og rann-
sókna i burðarþolsfræði við Kali-
forníuháskóla, Berkeley.
Örn Helgason, sálfræðingur, til
að kynna sér starf sálfræðinga að
barnaverndarmálum f Danmörku
og Noregi.
Haldinn verði
Evrópudagur
Evrópuhúsið í Strassborg, en þar eru aðalstöðvar Evrópuráðsins.
Alþjóðasamband sveitarfélaga
hefir farið þess á leit við Samband
ísl. sveitarfélaga að það beitti sér
fyrir því, að haldinn yrðl Evrópu-
dagur hér á landi, en hans mun
verða ninnzt í dag í þeim 15 Ev-
rópurfkjum, sem aðiljar erii að Ev-
rópuráðinu og munu sveitarstjórn-
ir hvarvetna hafa frumkvæði að
því.
Einn þátturinn í starfi Evrópu-
ráðsins er að efla samvinnu og
samstarf milli sveitarfélaga Evrópu
ráðslandanna.
í því skyni starfar föst nefnd,
Sveitarfélaganefnd Evrópuráðsins.
Nefnd þessi átti frumkvæði að þvf,
að sveitarstjórnarþingi Evrópu var
komið á fót. Þingið sitja 138 full-
trúar eins og ráðgjafarþingið, en
þeir eru ekki valdir af þjóðþing-
unum, heldur úr hópi sveitarstjórn-
armanna. Þingið er nú orðið föst
stofnun, sem heldur árlega fundi.
I’sland á 3 fulltrúa á þessu þingi
og er einn þeirra tilnefndur af ut-
anríkisráðuneytinu, einn af stjórn
Sambands íslenzkra sveltarfélaga
og einn af Reykjavíkurborg, en
mæta þó allir sem fulltrúar Sam-
bands ísl. sveitarfélaga, þvf að að-
ilarnir að þinginu eru sambönd
sveitarfélaga f hverju landi.
Fulltrúar íslands á undanförnum
þingum hafa verið: Jónas Guð-
mundsson, formaður Samb. ísl.
sveitarfélaga, Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, Hálfdán Sveins-
son, fyrrv. bæjarstjóri á Akranesi,
Stefán Gunnlaugsson, fyrrv. bæj-
arstj. i Hafnarf.. Páll Lfndal, skrif-
stofustjóri borgarstjórans f Reykja-
vík og Gunnlaugur Pétursson borg-
arritari.
Á sveitarstjórnarþingum Evrópu-
ráðsins hafa verið til meðferðar
ýmis mikilvæg mál, sem sveitar-
félögin varða og samskipti þeirra
við borgarana. Þótt sum þeirra séu
ekki miðuð við fslenzka staðhætti,
þá er þó mjög margt tekið þar fyr-
Framh. á bls, 5
t