Vísir - 07.03.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 07.03.1963, Blaðsíða 8
ð V1SIR . Fimmtudagur 7. marz 1963. Otgefjtndi: Blaöaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarriéstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 lfnur). » Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. am Endurskoðun vinnulöggjaf- arinnar Hvað er ofbeldi í verkföllum, spyr Þjóðviljinn í gær. Því er auðsvarað. Þegafr forseti ASÍ hótar því að rafmagn skuli tekið af sjúkrahúsunum þá er það ofbeldi. Þegar hann hót- ar því að flutningur mjólkur og annarra nauðsynja til sjúkra og ungbarna skuli hindraður þá er það ofbeldi. Þegar hann hótar því í nafni verkalýðshreyfingarinnar að rafmagnið skuli tekið af frystihúsunum, svo hundr- uð milljóna króna þjóðarframleiðsla eyðileggist þá er það ofbeldi. Það er gegn slíku háttarlagi sem allir góðir ís- lendingar þurfa að sameinast. Hver sanngjarn maður skilur að vinnulöggjöf, sem gerir slíkt ofbeldi kleift, er úrelt. Henni verður að breyta. Það er ekki hagur verka- manna að lögum sé beitt til ólaga. Það kemur þeim í koll ekki síður en öðrum borgurum þjóðfélagsins. Verkamenn þurfa á skilningi að halda í kjarabaráttu sinni. Þeir þurfa að hafa þjóðina með sér en ekki á móti sér. En þegar ofstopafullum foringjum þeirra ey, kleift að hóta stórkostlegum árásum á almenná hags- muni innan ramma vinnulöggjafarinhar þá eru það verkamennirnir sem sízt hagnast á slíku háttalagi. Ritstjóri Þjóðviljans kann ekki að lesa ef hann hygg ur að tillaga Sjálfstæðismanna um endurskoðun laga um stéttarfélög og vinnudeilur boði það að skerða eigi starfsfrelsi verkalýðshreyfingarinnar. Hér er aðeins um að ræða að Iagíæra þá augljósu annmarka á gam- alli löggjöf, sem minnzt hefir verið á hér að framan. Og því skal ekki trúað að íslenzkir verkamenn telji málstað sínum í vinnudeilum bezt borgið með því að grípa til slíkra ráða sem forseti ASÍ hótaði á Lækjar- torgsfundinum 1955. Að velja sér starf Hér á landi hefir lengi skort brú milli atvinnulífs- ins og menntastofnananna. Allt of margir hafa gengið í gegnum langskólanám, sett á sig hvítan flibba og horfið inn á skrifstofurnar. , Starfsfræðslan er því mikil happasending. Hlut- verk hennar er tvíþætt: að hjálpa unglingum að kom- ast á rétta hillu í lífinu og jafnframt að sjá svo um að hæfileikar hvers einstaklings nýtist sem bezt í þágu atvinnulífsins. Það eru einnjiitt atvinnuvegirnir, sem standa undir menntastofnunum þjóðarinnar, en þeir hafa verið af- skiptir um ungt hæfileikafólk, Ólafur Gunnarsson er sá maður, sem byggt hefir upp þessa mikilvægu nýju fræðslugrein hér á landi. Þar hefir hann séð lengra en flestir aðrir og þar hefir hann unnið óvenju hagnýtt starf. • • Orlög vor stór og smá Guðmundur Böðvarsson: Salt- kom í mold, ljóð, 102 bls. — Verð kr. 154.50. Bláfellsút- gáfan. /^uðmundur Böðvarsson hefur ** um alllangt skeið talizt til beztu núlifandi ljóðskálda ís- lenzkra þótt undarlega hljótt hafi stundum verið um hann enda er Guðmundur ekki mikið gefinn fyrir að ota sjálfum sér fram persónulega. Saltkorn í mold er 7. Ijóðabók Guðmund- ar, en auk þess hefur hann gef- ið út eina skáldsögu, Dyr í vegginn (1958). Fyrri ljoðabæk- ur hans eru: Kysstu mig sól (1936). Hin hvítu skip (1939). Álfar kvöldsins (1941) Undir óttunnar himni (1944). Kristall- inn í hylnum (1952). Mlnn guð og þinn (1960). 1 þessum bókum hefur Guðmundur birt mikið af sjálfum sér, kannski enn meira en mörg önnur skáld. Tónninn í ljóðum hans er ævinlega hlýr, mjúkur og þægilegur og þa|i hafa sama eiginlcika og flautan meðal hljóðfæranna: hún lætur' ekki mikið yfir sér við fyrstu kynni en býr yfir ótrúlegu kynngimagni við frekari kynni. Yrkisefni hans bafa verið marg visleg en alltaf hefur þó borið á tengslum mannsins við nátt- úruna. Guðmundur er bóndi og hefur lesið umhverfi sitt trú- verðuglega, gengið á vit heims ins sem hversdagsmaður án uppskrúfaðrar fordildar og ver- ið trúr eðli sínu sem skáld og maður. Caltkorn f mold birtir okkur ^ nýja mynd af skáldskap Guðmundar Böðvárssonar. Yrk isefni hans f þessari bók er yfirgripsmikið og ákaflega vand meðfarið. Hann gengur um kirkjugarð, virðir fyrir sér leið in og rekur minnisverð atvik frá liðinni ævi þeirra sem nú hvíla I mjúkum faðmi moldar- innar. Hér er því á ferðinni að nokkru leyti samfelldur bálkur 22 ljóða sem þó geta staðið hvert út af fyrir sig. En kvæð- in eru samt miklu sterkari sem heild. Ekki er hægt að segja að hér sé á ferðinni saga sveit- ar heldur saga einstaklinga, „örlög vor stór og smá“ eins og segir í siðustu lfnu bókar- innar. Segja má að efnisvalið, sé mjög fjarri „nútfmaljóðinu" samkvæmt þeim skilningi sem ungir höfundar hafa lagt í það orð. En bæði er það að orðið „nútímaljóð" er hæpin flokkun i sjálfu sér og svo hitt að góð- ur skáldskapur sprengir af sér allar skilgreiningar. Góðu skáldi er f rauninni allt leyfi- legt svo framarlega þvf tekst að nýta yrkisefni sitt innan þeirra takmarka sem það setur sjálft. Ég veit ekki hvort hægt er að kalla þessi Ijóð Guðmundar fabúlur en bálkurinn er þó sem heild að nokkru leyti sagnaljóð og það kæmi mér ekki á óvart þótt samsveitungar Guðmundar könnuðust við eitt og annað úr þessum kvæðum. Þau eru sett þannig fram að þau hljóta eiginlega að styðjast að ein- hverju við raunverulega at- burði. /"'agnstætt því sem ungir höf- 'Jr undar birta lesandanum yrkisefni sín er Guðmundur að segja lesandanum sögu í ljóði og heldur sig að því leyti inn- an ævafornrar hefðar íslenzks ljóðforms. Hann gerir grein fyrir þessum vinnubrögðum f inngangs- og niðurlagkvæðum í bókinni og hvern fjársjóð hann hafi sótt í sögu föður sins í dagsins önn. Hann játar einnig þakkarskuld sína við horfin W®tll Guðmundur Böðvarsson skáld Þjóðarinnar, ekki sfzt þau sem höfðu til að bera hið fá- gæta „stolt að stytta / stundir með glettnum brag“ meðan þjóðin bjó við hörmungar og skort: Enn varpar ljósgeisla löngum langt yfir rúm og tfma orðtak, sem ekki gleymdist, atvik, sem sagt var frá, yfir ást vora og hatur, yfir líf vort og dauða, yfir ættstofnsins sögu, örlög vor stór og smá. Yfir mörgum ljóðunum er skemmtilega kfmilegur blær án þess að nokkum tfnia sé farið of langt burt frá þeirri ögun sem skáldið hefur sett sér f framsögn. Ég kæri mig ekki um að fara að rekja örlagasögu þeirra einstaklinga sem Guð- mundur Böðvarsson kfefur sagna. Það væri einungis til að spilla ánægju lesandans. Ég get þó ekki stillt mig um að taka dæmi til þess að varpa Ijósi á fáguð vinnubrögð höf- undarins og þann árangur sem slík vinnubrögð veita. Sjöunda Ijóðið segir af tveimur drykk- felldum bræðrum sem hleyptu hestum sínum trylltum á hús- þekjur sofandi manna svo fólk- ið þusti út og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Nú liggja þessir bræður lágt f mold og Guðmundur Böðvarsson kveð- ur hjá leiði þeirra: Ef grundir í nálægð glymja af gnýför æðandi fáka og loftið ymur af ópum og ærslum þeysandi stráka, i þá dunar í dimmum moldum svo dauðir leggja við eyru og grasið þærist á gröfum garpanna tveggja frá Leiru. Fjannig mætti halda áfram að rekja dæmi en þess er ekki kostur í svo stuttri blaðagrein. Þetta ætti að nægja til að sýna að Guðmundi Böðvarssyni tekst á fágætan hátt að skapa agaða list úr erfiðu og sundurlausu yrkisefni. Hann fetar að þessu sinni í fótspor þeirra sem „stytta stundir með glettnum Framhald á bls. 10. .\V í

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.