Vísir - 19.03.1963, Síða 2
2
V í SIR . Þriðjudagur 19. marz 1963.
Totty- Totty hrópuðu 35 þús.
áhorfendurá ÞÓRÓLFBECK
—i er hann jafnaði fyrir St.Mirren
„Þórólfur hefur staðið
sig með afbrigðum vel í
tveim síðustu leikjum sín-
um“, sagði Ólafur Jónsson
hjá Flugfélagi . íslands í
Glasgow okkur fyrir helg-
ina.
Hljótt hefur verið um Þórólf
sem aðra knattspyrnumenn í Bret-
landi undanfarnar vikur, enda að-
eins örfálr leikir farið fram og lítið
að marka frammistööu leikmanna
á spllltum völlunum.
Eltt skozku blaðanna ( sagði í
síðustu viku að útilokað megi
telja, að Þórólfur geti skorað
mark öðru sinni, sem verður fagn-
að jafn innilega og Paislayáhorf-
endur á Celtu Park gerðu þegar
Þólólfur tók sig út úr þvögunni á
vítapunkti og jafnaði 1:1 fyrir St.
Mirren á 35. mín. fyrri hálfleiks,
en úrslit leiksins urðu einmitt þau
sömu.
Var mark Þórólfs mjög laglegt,
og notfærði hann sér háa fyrir-
gjöf af kanti, en tveir varnarmenn,
sem höfðu hann á milli sín sáu
ekki við honum.
Úrslitin voru talin sanngjörn og
er St. Mirren greinilega á réttri
leið því Celtic er geysisterkt fé-
Iag.
Þórólfur fær, sem fýrr segir, lof-
samlega dóma og má búast við
áframhaldi á góðum fréttum af
honum og liði hans, sem enn er
meðal Iiða, sem eftir eru í skozku
bikarkeppninni.
Dick Beatty markverði St.
Mirren var fagnað ákaflega er
hann hljóp inn á með St. Mirren
sem fyrirliði liðsins. Hann lék með
Celtic fyrir 5 árum síðan en er nú
fyrir alllöngu orðinn St. Mirren-
maður. Sömu menn og hrópuðu
•„velkominn Beatty“ f byrjun Ieiks,
voru ekki jafn hrifnir í leikslok,
því Beatty varði skot gömlu félag-
anna stórkostlega og færði St.
Mirren, ásamt Þórólfi, dýrmætt
stig.
Floyd Patterson.
Sonny Liston.
Nú er uð dugu eðu drepust
Floyd Patterson hefur mánuðum saman
lokað sig inni til að sinna íþrótt sinni
Ég skal hefna 126 sek. keppninnar "
##
Glæsileg Lincolnbifreið
tneð hvítum síma og njim-
erinu EP 1 ekur til Miami
Beach. Við stýrið situr
eigandi bifreiðarinnar og
fyrrverandi heimsmeistari
í þungavigtarflokki í hnefa
leikum, Floyd Patterson,
sem var velt úr sessi af
hinum skuggalega kyn-
bróður sínum Sanny List-
on, sem vann hann á rot-
höggi á aðeins 126 sek-
úndum!
Eftir ósigurinn var Patterson
ekki mönnum sinnandi og hann
skauzt út um hliðarútgang í
Comiskey Park og ók út í nóttina,
dulbúinn með falskt yfirskegg.
Hann vissi ekki hvert hann vildi
fara, bara eitthvað burtu, burtu frá
niðurlægingunni. Flestir héldu að
Patterson hefði hér með kvatt
hringinn að fullu og öllu, en svo
var þó ekki því hann ákvað
skömmu síðar að notfæra sér rétt-
inn til annarar keppni við Liston.
Fyrir nokkrum dögum setti
Floyd upp æfingabúðir sínar í
Tropical Park, sem er frægur fyr-
ir veðhlaupabrautir sínar, en eftir
tæpan mánuð, eða 10, apríl, munu
þeir Liston og hann berjast öðru
sinni, þá í Convention Hall á
Miami.
Liston tekur hlutunum ekki jafn
alvarlega og Patterson og lifir enn
meðal þægindanna á Hótel Casa-
Fyrir nokkru keppni St. Mirren, lið Þórólfs Beck, við Celtic. Var þessi
mynd tekin í þeim leik. örin sýnir hvar markmaður St. Mirren liggur
emjandi eftir meiðsli, sem hann fékk við það að einn af félögum hans
sparkaði í hann af misgáningi. En þrír leikmenn fóru í markið og tókst
að verja skot á það. Þeir sjást hér þrír f markinu_og hafa stöðvað
knöttinn við hornstöngina.
blanca í New York og æfir ekkert
að ráði. Framkvæmdastjóri hans
segir þó að ekki sé neitt að ótt-
ast, sinn maður muni ekki lenda
í erfiðleikum. Þó Nilon fram-
kvæmdastjóri segi það ekki beint
má skilja að meiri ástæða sé að
óttast hinn unga, sjálfumglaða
Cassius Clay. Vinni Clay Doug
Jones þann 13. marz munum við
gefa honum tækifæri gegn Liston
í júlí n. k. Sú keppni ætti að færa
okkur 5 millj. dala I kassann og
keppni við Ingemar Johannsson í
september mundi gera a. m. k. 4
milljónir og að um 2 millj. af
þessu fé rynni til Clay og Ingo,
gæti Sonny tekið sér nokkurt frí
frá störfum, peninganna vegna.
Sérfræðingar reikna fastlega
með sigri Listons og um leið síð-
ustu keppni Pattersons, en þó er
spenningur mikill í sambandi við
keppnina.
Patterson hefur frá þvf í haust
er hann tapaði í Comiskey Park
á 126 sekúndunum, lagt geysivinnu
í þessa keppni. Hann hefur engu
öðru sinnt en íþrótt sinni og hrein-
lega lokað sig inni við æfingarnar,
með þjálfara • og æfingafélögum, í
yfirgefnu veitingahúsi í New
York. Veitir þetta sumum nokkrar
vonir um að Patterson geti varizt
hina hræðilegu hramma heims-
meistarans.
Það sýnir sig nú þegar, að mik-
III áhugi er fyrir keppninni. Miða-
sala hófst fyrir viku síðan og eftir
þeirri eftirsprn sem var þá strax,
er reiknað með fullu húsi, 15.000
manns. Þó kosta miðarnir frá
4300 krónur við hringinn) og nið-
ur í 215 krónur, stæði úti í salar-
hornunum.
Danmerkurmeisf-
ararnir hingað
I danska blaðinu B. T. gat að 1
1 líta í síðustu viku þá frétt, að I
I Danmerkurmeistararnir f hand-
| knattleik karla 1963 Aarhus ,
, KFUM hefðu fengið um 20 boð
frá flestum löndum heims um!
að koma og keppa þar en þeir (
I hefðu aðeins áhuga fyrir einu .
I þeirra og það kæmi frá íslandi,
þar væri þeim boðið 8 daga ^
I frítt uppihald og að keppa við (
| hin sterku íslenzku handknatt-
l leikslið sem þeir hafa mikinn'
áhuga fyrir að reyna sína hæfni I
1 við, — Blaðið hefur reynt að ,
I kynna sér hvaða félag sé að
| bjóða þessu góða liði heim en I
hefir ekki komizt að því enn |
|með vissu, en líklegasta' liðið .
er Ármann sem á næstu heim-'
' sókn.
Loftfesting
Veggffesting
RENNIBRAUTIN
FYRIR AMERÍSKA
UPPSETNINOU.
Mælum upp
Setjum upp
• SlMI 1374 3
L I NDARGOTU 25
I