Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 6
VI SIR . ÞrifSjudagur 19. marz 1963.
HRraKS
Fást í öllum bókabúðum.
Ef ni:
Leikdómar
Leikhúsfréttir, inn-
lendar og erlendar
Viðtöl
Gagnrýnd gagnrýni
Almennar greinar
Umsögn um útvarp
og kvikmyndir.
Leikrit: Saga úr dýragarðinum eftir E. Albee
í þýðingu Thors Vilhjálmssonar.
Heiisuhæli N.L.F.Í.
Hveragerði, auglýsir:
Starfsstúlkur vantar nú þegar.
Upplýsingar hjá yfirhjúkrunar-
konu hælisins, Hveragerði.
Framtíðarátvinna
Tveir ungir menn, sem hafa áhuga fyrir vél-
um, geta fengið framtíðaratvinnu við fram-
leiðslu á nýtízku vélum við pappírsiðnað.
PAPPÍRSPOKAGERÐIN,
Vitastíg 3 (Uppl. ekki í síma).
2 - 3 herb. íbúð
Nýtízku íbúð óskast nú þegar fyrir erlend hjón
(sænsk) með 5 ára dreng. Helzt með hús-
gögnum. Fyrirframgreiðsla eftir samkomu-
lagi eða allt leigutímabilið.
Uppl. í síma 33039.
PAPPÍRSPOKAGERÐIN,
Vitastíg 3.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofustarfa í landbún-
aðarráðuneytið (jarðeignadeild) frá næstu
mánaðamótum.
Skriflegar umsóknir sendist Jarðeignadeild
ríkisins, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10.
Speglar — Speglar
Speglar í TEAK-römmum.
Nýkomið fjölbreytt úrval.
Ennfremur:
Baðspeglar — Rakspeglai
Handspeglar — Veggspeglar
SPEGLABÚÐIN,
Laugavegi 15. Sími 1-96-35.
ÍFELAGSLIF
Körfuknattleiksmót skólanna hefst
föstudaginn 22. marz kl. 13.00 f
íþróttahúsi Háskólans. Þá fara
fram eftirtaldir leikir:
Kvennaflokkur: 13.00—13.30 Kenn-
araskólí íslands — Hagaskóli,
Menntaskólinn í Rvík situr hjá.
II. fl. karla: 13.35—14.05 Gagn-
fræðask. Vesturbæjar — Laugar-
nesskóli — 14.10—14.40 Gagnfr.-
sk. við Vonarstr. — Verknám —
14.45—15.15 Verzlunarsk. íslands
Hagaskóli — 15.20—15.50 Lang-'
holtsskóli—Menntask. í Rvík. —
15.55—1625 Gagnfr.sk. Austurb.—
Vogaskóli, — Leiktími er: Kvenna-
fl. 2x15 mí., II. fl. karla 2x15 mfn.
og 1. fl. karla 2x20 mín. -— Keppni
heldur áfram laugard. 23. marz
kl. 13.00 og sunnudaginn 24. marz
kl. 13.00. — Ath.: Skólar verða að
skrá lið sitt 15 mín. fyrir leik.
Þægileg atvinna
Nokkrar stúlkur eða miðaldra konur geta
fengið þriflega og góða atvinnu nú þegar.
Uppl. í dag og á morgun kl. 5—7 á Vitastíg 3.
PAPPÍRSPOKAGERÐIN,
(uppl. ekki í síma).
Auglýsið í Vísi
KFUK, ad. Aðalfundur í kvöld
kl. 8.30. Kaffi. Fjölsækið.
Um erlendan atvinnurekstur hér á landi —
Hið rétta um afstöðu ríkisstjórnarinnar - Furðu-
legur málflutningur Þórarins - Stjórnin
má vel við una.
A llsnarpar umræður urðu f
neðri deild Alþingis f gær,
og létu þar að sér kveða, sem
oft fyrr, viðskiptamálaráðherra
Gylfi Þ. Gfslason og Tfmarit-
stjórinn Þórarinn Þórarinsson.
Umræðuefnið var þó, því mið-
ur, ekki nýtt af nálinni, því til-
efnið var tillaga Þórarins um að
banna útlendingum að reka hér
lendis fiskiðju og talið snerist
nær samstundis um Efnahags-
bandalagið og afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til erlends at-
vinnurekstrar og fjármagns.
Þórarinn hélt því fram, eins
og hann hefur gert sf og æ í
allan vetur í Tímanum, að við-
skiptamálaráðherra og ríkis-
stjórnin öll vilji koma útlend-
ingum inn f fsl. atvinnurekstur,
að hún vilji opna útlendingum
leið inn f fiskiðnaðinn. Las Þór
arinn upp kafla úr ræðu þeirri,
er viðskiptamálaráðherra flutti
á aðalfundi yerzlunarráðs síð-
ast, og vildi með því renna stoð-
um undir þessa ályktun sína.
/^ylfi Þ. Gíslason svaraði þess-
'Jr ari fullyrðingu Þórarins,1
með því að lesa upp annan
kafla úr annarri ræðu, ræðu
þeirri, er ráðherrann flutti sem
skýrslu stjórnarinnar um EBE
fyrr í haust á Alþingi. Segir þar
orðrétt:
„Mér viröist kjarni mólsins
vera þessi:
Annars vegar getur atvinnu-
rekstur útlendinga og störf sér-
menntaðra erlendra manna hér
á landl orðið okkur tll mikilla
hagsbóta. 1 því sambandi er
sérstaklega vert að benda á að
tæknikunnáttu er oft á tíðum
ekki hægt að verða aðnjótandi
nema í sambandi við hagnýt-
ingu erlends fjármagns. Hins
vegar fylgir atvlnnurekstri út-
lendinga og erlendri fjárfest-
ingu hér á landi sú hætta, að út
lendingar gætu nóð úrslitaáhrif
um í einstökum atvinnugreinum
og starfsemi þeirra stuðlað að
eyðingu náttúruauðlinda. Gegn
þessu hvoru tveggja verðum við
að geta tryggt okkur. Við verð-
um að hafa það á okkar valdi
hvern atvinnurekstur útiending-
eftir Elleri B. Scliram
ar megi stunda hér og hver á-
hrif þeirra í hverri atvinnugrein
megi verða“.
^llir þeir sem sæmilega skyn-
semi hafa og vilja skilja, sjá
í þessum ræðukafla vilja og af-
stöðu ríkisstjórnarinnar. Ein-
mitt þessi afstaða, að vera á
verði gegn útlendingum, varð til
þess, að ríkisstjórnin, þegar í
upphafi og æ sfðan, hefur lýst
því yfir, að full aðild að EBE
komi ekki til greina. Hún komi
ekki til greina, því full aðild
kveður á um fullan rétt erlendra
aðila til atvinnu og fjárfestingar
í öðrum aðildarríkjum.
Allt þetta benti Gylfi á og
margt fleira,
þðtt kjarni
máls hans sé
hér aðeins rak
inn. En Þórar-
inn lét ekki
standa á svar-
inu: ,.Sko“,
sagði hann,
„hér kemur
að ríkisstjórnin
atvinnurekstur".
og las síðan upp fyrstu setn-
ingu ofannefnds ræðustúfs „...
annars vegar getur atvinnurekst
ur útlendinga og störf sérmennt
aðra manna hér á landi orðið
til mikilla hagsbóta“. „Er ekki
ríkisstjórnin að segja hér, að
hún vilji erlenda íhlutun í at-
vinnurekstri og fjárfestingu",
sagði sá rökfasti Tímaritstjóri!
TTmræður þessar eru raktar
hér á þennan hátt, nákvæm
ara en venjulega, til að gera
fólki grein fyrir þeim furðulega
málflutningi, sem haldið er á
lofti af hálfu Framsóknar-
manna. Undanfarna mánuði hef
ur Tíminn hamrað á því, að
stjórnarflokkarnir séu fylgjandi
erlendri íhlutun hér, beinlínis
lagt höfuðáherzlu á að koma
þessum skoðunum inn hjá fólki.
Nú, þegar kostur gefst á, að
andmæla þessum fullyrðingum
og það með einföldum rökum
og skjalfestum orðum, sbr, ræð
an hér á undan, láta Framsókn-
armennirnir, þ. e. a. s. Þórar-
inn sér hvergi bregða, en slítur
einmitt fram
vilji erlendan
setningu út úr samhengi, sbr.
einnig hér að framan, og segir
„sjáið bara“. Tekur síðan þar
upp þráðinn, leggur út af setn-
ingarbútunum og rekur í löngu
máli, áhrif bandarfsks einka-
auðmagns í S-Ameríku og Kan-
ada, áhrif dönsku kaupmann-
anna hér á Iandi o. fl. o. fl.
Öllum þeim, sem þetta lesa
og öllum þeim, sem með mál-
um hafa fylgzt, er ofur ljós
stefna ríkisstjórnarinnar. Hún er
sú, I stuttu máli, að fsl. aðilar
geti hagnýtt sér erlent fjármagn
og erlenda tæknikunnáttu, án
þess að erlendir aðilar geti náð
hér áhrifum eða stuðlað að eyð-
ingu náttúruauðlinda. Hún er
einnig sú, að viðurkenna þá
staðreynd, að örðugleikar eru á
að koma hér upp stóriðju án
hagnýtingar erlends fjármagns.
Þessar skoðanir eiga ekki ein-
göngu heima í liði stjórnar-
flokkanna. Fjölmargir Framsókn
armenn s. s. Steingrímur Her-
mannsson formaður FUF, hafa
einnig lýst yfir sömu skoð-
unum og það í sjálfum Tím-
anum.
^uk þessa, sem telja verður
kjarna deilu þeirra Þórar-
ins, snerust umræðurnar nokk-
uð um hvort rfkisstjórnin hafi
haft I hyggju að sækja um fulla
aðild að EBE. Þórarinn hélt
þeirri skoðun fram, og reynd-
ist ráðherranum til lítils að
telja Þórarni trú um annað. Á-
stæðulaust er að telja upp það
rétta í því máli, svo oft sem
það hefur verið gert, en eftir-
farandi orð Gylfa Þ. Gíslason-
ar er hægt að taka undir:
„Það hljóta að vera mikil
meðmæli með ríkisstjórninni,
hvernig gagnrýni stjórnarand-
stöðunnar er nú hagað. Hún
gengur ekki út á, hvað stjórn-
in hafi gert, ekki hvað verið
sé að gera, heldur hvað ríkis-
stjórnin hafi ætlað að gera.
Megum við í stjórnarflokkun-
um sannarlega vel við una“.
I þínginu voru einnig til um-
ræðu, frumvarp til laga um Iðn
lánasjóð, frumvarp um kirkju-
garð# og frumvarp til laga um
loftferðir. Verður þess nánar
geti?> síðar.