Vísir - 19.03.1963, Síða 9

Vísir - 19.03.1963, Síða 9
VlSIR . ÞriBjudagur 10. marz 1963. Ég hef þurft að gegna því óskemmtilega hlut- verki að vera foringi og talsmaður 20 stúdenta frá Ghana sem stund- uðu nám við háskóla í Sofía, höfuðborg Búlga- ríu. En þeir atburðir gerðust þar, að við sá- um okkur neydda til að hætta námi og yfirgefa landið sem við höfðum dvalizt í. Hér sést hépur blakkra stúdenta sem urðu að flýja Búlgariu vegna kynþáttaofsókna kommúnista. Mynd þessi var tekin af þeim í Goesberg f Vestur Þýzkalandi, en þar hafa þeir nú flestir fengið skólavist að nýju. Raunasaga svertingjastúdentanna Þetta var óskemmtlleg á- kvörðun fyrir okkur, en um annað var ekki að gera, þar sem okkur hafði verið synjað um lögregluvemd gegn kyn- þáttaofsóknum sem við urðum fyrir. Þegar okkur var svo þar að auki bannað að mynda sam- tök Afríkustúdenta til að vemda hagsmuni okkar, var augljóst, að okkur stóð ekki nema ein leið opin að hverfa á brott. Reynsla min af þessu hófst þegar ég sótti um háskólavist, til að leggja stund á hagfræði. Rikisstjóm Ghana hafði gert samninga um háskólastyrki við ýmis lönd bæði í Austur- og Vestur-Evrópu og varð það úr, að ég fékk háskólavist f Búlg- aríu. Svo flugum við hópur stúdenta frá Ghana til Búlgaríu í desember 1961. 'IT’ið komum fordómalausir til ' Sofia, vorum jafnvel fullir gleði og vonar. Búlgarska þjóð- in tók vinsamlega á móti okk- ur og við fengum að búa á sömu stúdentagörðunum, jafn- vel í sömu hérbergjum og búlgarískir stúdentar. Við lögð- um fyrst i það erfiða verkefni að Iæra búlgörskuna, sem yrði undirstaðan undir námi okkar. En það leið ekki á löngu áð- ur en við fórum að verða varir við erfiðleika. Við höfðum auð- vitað komið til Búlgarfu til að stunda nám en ekki til að lifa í neinu óhófi. Þrátt fyrir það reyndist aðbúðin ekki eins góð og við höfðum búizt við, — þau voru jafnvel lakari en há- skólastúdentar heima í Ghana búa við. Við vomm ekki á- nægðir með þá aðbúð að vera troðið fjórum inn f eitt her- bergi 5 sinnum 3 metrar með fjórum rúmum og einu borði á miðju gólfi auk tveggja stóla við sinn hvom enda borðsins. Þetta gerði námið erfitt, sumir urðu að sitja eða liggja á rúm- um sfnum við lesturinn. Mán- aðarleg greiðsla til okkar var 24 steriingspund eða um 2900 krónur. Þar af fóru 2100 krón- ur f mat, svo að lftið var eftir fyrir bðkum, skemmtunum. strætisvögnum og öðru sem til þarf. ■yið komum léttklæddir til Búlgarfu og fengum engin fjárframlög til kaupa á vetrar- fötum, svo að það var erfitt að halda á sér hita vfir veturinn. 'Fyrst báðum við stjórn há- skólans ásjár vegna klæðleysis okkar, en hún svaraði að engin leið væri til að bæta úr þess- um vanda. Síðar snerum við okkur til menntamálaráðuneyt- isins og fengum það svar að eitthvað yrði gert til að hjálpa okkur. En það var aldrei gert og neyddumst við að lokum að leita til sendiráðs Ghana, serri veitti okkur 10 punda auka- framlag á mánuði til fatakaupa. Þegar tíminn leið fór sambúð okkar við búlgörsku stúdentana og almenning að versna. Við urðum f fyrstu undrandi yfir því hve fólkið gerði sér rangar hugmyndir um Afrfku. Svo virtist sem öllum frá stúdent- um og upp f prófessora væri með öllu ókunnugt um lifnað- arhætti í Afrfku og þær breyt- ingar sem orðið hafa þar á síð- ari áratugum. Einu hugmyndir þessa fólks um Afrfku voru, að þar væri of heitt, að, eiturslöng- ur væru á götunum og að fólk- ið gengi nakið. Þeir urðu for- viða, þegar við sögðum þeim að fötin sem við gengjum f væru ofin f vefnaðarverksmiðju f Ghana. l eir fmynduðu sér að við klæddumst fíkjulaufum. Jþegar við höfðum dvalizt um sinn f Búlgaríu fór að bera á því að fólk spyrði okkur með nokkurri öfund, hvað við fengj- um mikinn háskólastyrk. Þeir öfunduðu okkur af þvf að við fengum meiri styrk en búlg- arskir stúdentar og það þótt þeir fengju einnig styrk frá fjölskyldum sínum og þyrftu ekki að kaupa sér vetrarföt frá grunni. Sumir sögðu að við lifðum f ðhófi samanborið við búlgarska jstúdenta, og þegar við gengum með flibba og háls- bindi, eins og siður er í Ghana, kðlluðu þeir okkur „borgara- lega“. Það fór nú í vðxt að við ýrðum fyrir barðinu á strfðni og árásum búlgarskra stúdenta og almennings. Við vorum kallaðir ýmsum smánaryrðum þegar við vorum á gangi á götunum eins og „svartir apar“ og „frum- skógafólk", en petta var móðg- andi ekki aðeins fyrir okkur, heldur við alla Afríku. Það var spýtt á okkur í strætisvögnum og járnbrautum, eða vatni hellt á okkur, þegar við gengum undir glugga. Svívirðilegum sögusögnum var komið á kreik um það að við værum allir með kynsjúkdóma og það var farið að kalla á eftir okkur 6 götun- um „syfilis". Loks kröfðumst við þess, til að leysa okkur und- an þessum áburði, að læknis- skoðun færi fram á okkur, Sú skoðun sýndi, að ekki einn ein- asti okkar var með kynsjúk dóm, samt neituðu búlgörsku yfirvöldin að skýra opinberlega frá þessari niðurstöðu. J^ynþáttaandúðin tók stundum á sig alvarlegri myndir. T. d. var stúdent frá Nigeriu einu sinni að bfða á strætisvagnabið- stöð, þegar flokkur Búlgara sem var að koma af veitingahúsi bættist í hópinn á biðstöðinni og fór að hæða og hlæja að svertingjanum. Svertinginn hélt að þeir væru mátulega kenndir og hló bara á móti. En allt í einu réðist einn Búlgarinn að honum greip f hálsmál hans og sló hann. Lögreglumaður stóð rétt hjá og horfði á þetj^i, en gerði enga tilraun til að hjálpa. Nigeriumaðurinn kærði þetta atvik og afskiptaleysi lögreglu- m'anns, en ekkert var gert f málinu. Afrískir; stúdentar urðu oft fyrir barsmíðum og oft voru lögreglumenn ásjáendur að þessu, en væri beiðst ásjár hjá þeim neituðu þeir á ýmsum for- sendum, svo sem að þeir störf- uðu í öðru hverfi, eða að þeir reyndu að dreifa mannfjölda sem safnaðist f kring svo að barsmíðarnar gætu haldið á- fram. J ágúst 1962 gerðist óvanalega ljótt atvik. Sex stúdentar frá Ghana urðu of seinir í kvöld mat f mötuneyti stúdenta og fengu því engan mat. Þeir á- kváðu þá að fara í veitinga- stofuna Chuchuliga, sem stend- ur skammt frá og fá sér mat þar. 1 veitingastofunni var hljóðfæraleikur og einn Ghana- stúdentinn bauð búlgarskri stúlku upp að dansa. En meðan þau voru að dansa gekk búlgar- skur hermaður að stúlkuni og sagði: „Skammastu þín ekki fyr- ir að dansa við svartan apa?” Ghanamaðurinn vildi nú ekki koma af stað illindum, svo hann hætti að dansa og sneri aftur til borð síns, en í því hann ætlaði að setjast kippti búlgarskur pilt- ur stólnum undan honum svo hann féll á gólfið. Og áður en hann gæti risið á fætur sló ann- ar Búlgari hann í höfuðið með stól, svo hann missti meðvitund Nú voru Ghanastúdentarnir orðnir sárreiðir og hófust slags- mál í salnum. Búlgarskir lögreglumenn sem voru i veitingastofunni skiptu sér ekkert af þessu fyrr en svo Framhald af bls. 10. Robert Koteys stúdents frú Ghona * sem urðu að \ i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.