Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 15

Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 15
9 V í S IR . Þriðjudagur 19. marz 1963. —ggSi.,.'<WWThWvWTBHW't'MIH?jaMEW«—■ 75 BEATRICE HERZ: 13 URNAR Framhaldssaga En á því andartaki var ég sem / lömuð — ég hafði séð Dóru í faðmi hans fyrir hugskotssjónum mínum og óttaðist samanburðinn, er hann færi að dansa við mig blinda, og sagði: — Ekki núna, seinna. — Eins og þú vilt, sagði hann kuldalega. — Ég er til, sagði Dóra, komdu. En Filippus sagði, að tími væri til að við færum öll að hátta. Áhyggjulitlir dagar. Og nú runnu upp áhyggjulitlir dagar á heimili okkar í Kaliforníu. Ég hugsaði í fyrstu um hvort hann saknaði Dóru, en ekki lengi, við höfðum nú um svo margt að spjalla um húsið en vinir hans höfðu þar allt tilbúið handa okkur, um flug- ferðina, næstu bókina hans, — sem hann nú vann að, allt milli himins og jarðar. Og hann las fyrir mig kafla úr henni. En við töluðum minnst um okkur sjálf — og Dóru. Loks gat ég þó ekki stillt mig um að nefna 1iana og spurði hann hvernig honum 'geðjaðist að henni, og hann sagði hikandi, að hún væri öðruvísi en allar aðrar konur, sem hann hafði kynnzt, og ég get ekki rætt þetta frekar, — að ég væri sannfærð um, að sú aðdáun, sem hún hafði borið í brjósti til< pabba og ást — beindist nú að honum. En næstu mánuðina hugsaði ég æ minna um þetta. Við höfðum á- gæta ráðskonu, blökkukonu að nafni Lizzie, Qg hún vaf mér. betri en nokkur móðir hefði getað verið — hún greiddi mér, hjálpaði mér að klæða mig og afklæðíi, og oft sátum við í eldhúsinu og röbbuð- um saman, meðan Filippus sat við ritvélina. Og nú kynntist ég hinni fögru Kaliforníu, — hann lýsti henni fyrir mér, — og ég sá hana með hans augum. Og einu sinni sagði Lizzie: — Já, það er margt fallegt að sjá í Kaliforníu, frú Jordan, en þér skuluð vera glöð yfir að hafa ekki séð mig! Hvílíkt flykki, — það var náungi, svartur eins og ég, sem lýsti mér þannig, að ég væri eins og stór, svartur selur, en samt sagðist bann elska mig. Já, þessir karlmenn! Og það fór líka vel.á með Fil- ippusi og Lizzie, þótt hún tautaði stundum um óreiðuna á skrifborði hans. Já, þetta voru hamingjudagar. Lizzie deyr. Ég óttaðist ekki lengur framtíð- ina, — ekki heldur þegar Lizzie veiktist. Hún ^ar flutt á sjúkra- hús, en ég hugði hana svo hrausta, að hún mundi brátt koma heim aft- ur, en það átti að skera hana upp við botnlangabólgu. En þetta fór verr en horfði, — botnlanginn sprakk á leið í sjúkrahúsið. Lizze fékk lífhimnubólgu og dó. Ég gekk við hlið Filippusar, þeg- ar hún var borin til grafar og ég syrgði hana innilega —- og það var í þessari sorgargöngu, sem ég fyrst uppgötvaði, að ég bar líf undir brjósti. Mér varð allt í einu óglatt og kaldur sviti spratt fram í enni mér. Ég greip þétt í hand- legg Filippusar og varð að nema staðar. Ég gat ékkert sagt þarna og til allrar hamingju leið þetta strax frá. Og ég ætlaði að ségja Filipppusi gleðitíðindin við fyrsta tækifæri. En fyrst fór ég til læknisins og fékk staðfestingu á, að ég væri með barni. Ég fékk ekki tækifæri til að ségja Filippusi þetta þegar, því að sama morguninn hafði hann ekið til bæjarins, „mikilvægra er- inda“, eins og hann orðaði það. Hann hafði verið kátur eins og ungur drengur, en dagana á undan hafði það orðið okkur áhyggju- efni ,að við höfðum ekki getað feng ið húshjálp, sem okkur líkaði. Mér flaug í hug, að einhver vina hans hefði getað útvegað okkur hjálp, og hann ætlaði að koma mér á óvænt Hin „snjalla hugmynd“ Filippusar. Ég hlakkaði til að segja honum tíðindin og þegar ég kom heim frá lækpinum var hann þegar kominn heim. Ég heyrði raddir inni í stof- unni og mér fannst sem gripið væri fyrir kverkar mér, er ég heyrði Filippus segja: — Þú veizt ekki hve það gíeður’ mig, að þú ert komin hingað, Dóra! — Og þú veizt ekki hve glöð ég er að vera komin. Þau munu allt í einu hafa orðið þess vör, að ég stóð í gættinni. Þögn ríkti and- artak. — Sjáðu hver er komin, elskan mln, sagði Filippus svo. Dóra! Mér fannst snjöll hugmynd að biðja hana að koma, þú mundir þurfa svo mjög á henni að halda. Og hún kom þegar. — Gaman að sjá þig, sagði Dóra áhyggjulaust, en þú ert mjög þreytuleg. — Af hverju þarftu að vera svona grimm, hugsaði ég, en Fil- ippus sagði eins og hann væri hinn ánægðasti yfir hugmynd sinni: — Var þetta ekki góð gjöf, ást- in mín? Hann hafði sjálfsagt gert þetta í beztu meiningu, og ég svaraði hrygg í huga: — Jú, ég veit varla hvernig ég fæ þakkað þér. Hann mun ekki hafa orðið vör beizkjunnar undir niðri ,en ekkert fór framhjá Dóru: — Góð kona hagar sér eftir ósk- um mannsins síns. Þú gætir í öllu falli látizt vera glöð. Það var hans úppástunga, gleymdu því ekki, Helena. Dóra hafði komið fyrir vösum með rósum og kirksuberjatrjá- greinum á miðdegisverðarborðinu og það var ljúf angan I stofunni. Og áður en við settumst að borð- um sýndi hún Filippusi landslags- teikningar' sínar — kvaðst hafa <S26 "-'-t.- ©PIB — - • •’COPENHMÍEN Já. en ég Iofa yður að við látum gifta okkur um leið og það skolar presti á land hér. teiknað þær sér til dægrastytting- ar aðeins, og Filippus var mjög hrifinn. Og hann hafði orð á því að hún væri einkennileg kona, sér- kennilega kvenleg., en teikningar hennar bæru því líka vitni, að hún ætti djarfa karlmennslund. Hann kvaðst oft hafa skoðað teikningar og málverk kvenna, — margt af þvl fínlegt og fagurt, en dirfskuna hefðf skort. — Ég veit hvað ég vil, það er það, sem gerir muninn, sagði hún, og Filippus svaraði: — Um það hef ég aldrei efazt. Brátt fannst mér blómaanganin fullsterk. Það lá við að mér yrði óglatt — og gleðin og eftirvænt- ingin, sem hafði búið innra fyrir með mér, var þverrandi. Beygur minn var vakinn á ný, beygur um að lífshamingja mín væri I hættu. Og nú fór Dóra að tala um hve heimilið væri yndisjegt, — það væri vart neitt, þar sem hún ekki vildi að væri eins og það var. Hvað mig snerti þá var það líkast sem ég væri ekki til. Og ég hugsaði um, að heimilið mitt fengi ég aldrei að sjá. — Kínversk speki er athyglis- verð, sagði Dóra, og minntist ég þess að hafa lesið I bók um hana, T A R Z A N Tarzan: „Allar líkur benda til að farið hafi verið með leikkon- una til Tombu-þorpsins“. Zukoff, *AREyOUSURE?'<?UEKlE7 ZUKOFP. *l’JA POSITIVE/ SA!7 TAKZAN FLATLV. *let's eo...<,iO.|Q.>59g7 efablandinn: „Ertu viss um það?“ Tarzan: „Alveg hárviss um það. Höldum áfram“. Tombu-mennirnir tóku óvin- um. Tarzan: ;,Við komum I friði gjarnlega á móti leitarmönnun- — til að spyrja um hvlta konu". að mannlegt eðli sé eins og straum röst, — fái hún farveg í austur- átt, beinist húrt þangað — sé far- veginum breytt til vesturs, renni hún þangað. Mannlegt eðli þekk- ir ekki muninn á illu og góðu frek- ar en vatnið á austri og vestri. Ég hafði einhvern tlma heyrt pabba hafa yfir þessi orð — og mér fannst nú eins og það væri hann, sem mælt hefði — og nú þegar Dóra endurtók • þessa kald- ranalegu speki, leit ég á það sem hún væri að ögra mér. — Þú gleymir svarinu, sagði ég lágt, sem líka er að finna í kfn- verskri speki: Að dyggðin sé það æðsta, sem mönnum hafi borizt af himnum ofan. Dóra hló. -— Þarna ertu lifandi komin, Hel ena. Það var þér líkt, að hampa hinum eilífu dyggðum, en það gera vfst oft þeir, sem ekki þurfa að óttast að verða fyrir freisting- um. Grunaðl Dóru nokkuð? Ég hafði mælt lágt og vissi þvl ekki hvort Filippus hafði heyrt til mín. Hann hafði gengið að grammó fóninum til þess að setja á plötu. — Hvort viltu heldur, Dódó, — Bach eða EIvis Presley? SÆNGUR Endumýjum gömlu sængum- ar. Eigum dún og fiðurheld ver. Dún og fiburhreinsun Kirkjuteig, 29. Sími 33301 Vinnuskyrtur Vinnujukkur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.