Vísir - 20.05.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 20.05.1963, Blaðsíða 3
VlSIR . Mánudagur 20. maí 1963. 75 rcía feHttí.iihwN*.i , :|ilf!Éi§yi;|l ’* ;„ir!ijL: ij ÍapiiMiiliÉll ! i' "“.|Í '' l|! |||!il 1 ||ij[ •« _ ■>1 •> r. ijL .f fctr-'fi. ‘ ^ -i >' . ‘ ........ •____-• . ! Thresher á siglingu. Hraði hajis var ótrúlegur, 85 km. á klst. Kafbáturinn Thresher IJm páskana síðustu varð mikið og hörmulegt sjóslys á At- lantshafinu um 300 míl- ur frá austurströnd Bandaríkjanna. Það var k j amorkukaf báturinn Thresher nýkominn úr skipasmíðastöð, sem fórst þarna skyndilega og sökk til botns með 129 manna áhöfn. Þetta sjóslys vakti þegar feikimikla athygli. Þetta var i fyrsta skipti, sem kjarnorku- kafbátur hefur farizt og kom eins og eðlilegt er upp ótti um það að hætta stafaði af geisla- virku eldsneyti hans. Auk þess var þetta mesta kafbátsslys sem orðið hefur. Aldrei hafa svo margir menn látið lífið með kafbát, ekki einu sinni á striðs- árunum. "170 mesta athygli vakti þetta slys þó fyrir þá sök að við það var að nokkru lyft biæj- unni frá mestu hernaðarleynd- armálum Bandaríkjanna. Kaf- báturinn ,,Thresher“ mátti segja að væri allur frá stefni og aftur í skut eitt hernaðarleyndarmál. Sannleikurinn er sá, að hann er fullkomnasta skip sem nokk- urntíma ‘hefur verið smíðað. Og hann var aðeins fyrsti kaf- báturinn af 25 sömu tegundar, sem Bandaríkjamenn eru að smíða. Fulltrúar Bandaríkjaflota reyndu að láta smíði þessarar nýju kafbátsgerðar liggja sem mest í þagnargildi, en þegar slysið mikla varð, fór öll hin volduga fréttastarfsemi banda- rískra blaða og sjónvarps af stað og smámsaman varð vitn- eskiaji almenn um nýju kjarn- orkukafbátana, furðulegustu verk nútímatækninnar. Jj,að upplýstist nú, að kafbátar þessir, sem eru um 4300 brúttótonn og knúnir kjarnorku- hreyflum eiga að geta siglt með 85 km. hraða neðansjávar, þ. e. a. s. hraðar en nokkuð annað skip sem til er í heiminum. Þó það sé algert hernaðar- leyndarmál, hvað djúpt þeir geta kafað, þykjast flotamála- sérfræðingar bandarískra blaða hafa sannreynt að þeir komizt að minnsta kosti niður á 330 var fullkomnasta skip sem smíðað hefur verið metra dýpi, en það er þrisvar sinnum dýpra en fullkomnustu kafbátar stríðsáranna gátu kom- izt. Auk þess geta þeir legið mán- uðum saman og jafnvel ár neð- ansjávar, án þess að þurfa að koma upp á yfirborðið. Því valda kjarnorkuhreyflarnir, sem geyma nægilegt eldsneyti til langs tíma og þurfa ekkert súr- efni til brennslu. Kjarnorku- eldsneytið nægir kafbátnum 200 þús. km. leið, það er fimm hringferðir kringum jörðina. Jgins og áður var sagt er sigl- ingahraði þessara nýju kaf- báta neðansjávar 85 km. á kist. Menn þekkja af eigin raun hve mikill hraði það er, af því að sitja í bifreiðum á þjóðvegum með álíka hraða og einnig þekkja menn af eigin raun gang fiskiskipanna, sem sjaldnast er meiri en um 15 km. á klst. En siglingaeiginleikum „Thres her“ kafbátanna er ekki þar með öllu iýst. Það er athyglis- vert, að í ölium klefum þeirra er komið fyrir handföngum úr leðri, í loftunum, á veggjunum og í göngum eru langar raðir af þessum hönkum. Veggir eru víða stoppaðir með ieðurpúðum. Tilgangur þessara varúðartækja er auðséður. Þeir eru til þess að áhöfnin geti haldið sér þegar kafbáturinn bregður á leik. það er áiit flotamálasérfræð- inga bandarísku blaðanna, að siglingaeiginleikar „Thres- her“ kafbátanna séu ótrúlegir." Þeir geta siglt um hafdýpin eins og hákarlar. Þeir geta ætt með ofsahraða fram á við, stungið sér eins og fiskur niður f haf- dýpið, velt sér og snúið á báða bóga. Það er þvf nauðsynlegt að verja áhöfnina áfalli með öllum þessum fjölda hanka til að halda sér í. Eftir þessa lýsingu á siglinga- eiginleikum hinna nýju kafbáta ætti það að vera ljóst, að þau herskip, sem tíðkazt hafa fran| að þessu eru að sjálfsögðu orð-- in að mestu úrelt. Kafbáturinn sem getur ferðazt með ofsa- hraða um hafið upp og niður eins og flugvélin um loftin hef- ur svo mikla yfirburði yfir hina gömlu tundurspilla, að sýnilegt er að sjóhernaðurinn er nú ger- breyttur. Tjegar svo miklum hraða er náð verður lögun kafbáts- ins að vera algerlega straum- línulaga. Thresherbátarnir eru eins í laginu og Zeppelin- loftskipin sem þekkt voru fyrir stríðs. Þessu lagi verður að fylgja svo fast eftir, að á þilfari má ekki einu sinni koma -fyrir sléttum gagnpöllum. Sjóliðarnir verða að ganga um sívalan búkinn og eru f skóm sem eru útbúnir sérstökum gúmmísólum. Það eina sem rýfur straum- línulögunina er stjórnturninn, sem stendur upp úr kafbátnum framanverðum. Og hann líkist einna mest stéli á orustuþotu. T nefi „Thresher“kafbátanna er komið fyrir stórkostleg- um rafeindatækjum, það er radartækjum og því fullkomn- asta f öllum öðrum leitartækj- um, sem tæknin nú ræður yfir. Undir þessi nákvæmu tæki fer allur fremsti hluti kafbátsins, um 83 metrar á lengd. En kafbáturinn hefur einnig varnartæki sem eiga að gera honum auðveldara að felast fyrir leitartækjum óvinanna. Á allar vélar f honum eru settir sérstakir hljóðdeyfar, sem valda því m. a. að mannlegt eyra heyrir ekki til þeirra. Hafa sjónarvottar skýrt frá þvf að undarlegt sé að sjá kafbát af þessari tegund sigla áfram. Hann er hljóðlaus og ekkert heyrist nema gutlið í öldunum en ef hann eykur ferðina, aðeins straumniður sjávarins sem bylgjast á báða bóga. Hann er ennfremur útbúinn sérstökum tækjum, sem eiga að draga úr andsvari viö kafbátaleitartækj- um, hinum svokölluðu sonar- tækjum. En þrátt fyrir fullkomieika Tresher kom þetta mikla óhapp fyrir, kafbáturinn fórst skvndi- lega á miklu dýpi og ekkert varð að gert til bjargar áhöfn- inni. 'C'ins og siglingaeiginleikum kafbátsins hefur verið lýst, er það jafnframt sýnilegt, að mjög mikið reynir á kafbátinn, einkum þegar hann er á fullri ferð eða kafar niður í mesta dýpi sem honum er ætlað. Við það koma fram sömu vandamál og flugvélasmiðir eiga við að glíma, sérstaklega það vanda- mál, sem kallað hefur verið málmþreyta. Hún er einfaldlega í þvf fólgin að málmurinn í skrokk bátsins þoiir ekki nún- inginn eða þrýstinginn og tærist upp. Hugsið yður t. d. að þegar kafbáturinn er kominn á 300 metra dýpi, þá hvílir þungi hafsins með 300 tonna þrýst- ingþá hverjum einum fermetra yfirborðs hans. Og ef stálið lætur einhvers staðar undan, ef einhver smá- rifa myndast, lítið meira en títuprjónsstórt gat, þá hefur það í för með sér ægilega spreng- ingu. 'IC'n það er einmitt þetta sem talið er að hafi gerzt þegar Tresher fórst um páskaleytið. Á einu augnabliki hefur kafbátur- inn sprungið gersamlega og engum manni af áhöfn hans gafst minnst tóm tli að senda út neyðarskeyti. Þannig hefur aukin hætta jafnan fylgt hinum tæknilegu framförum. Sími 3 29 60 HJÓLBARÐA SALA VIÐGERÐIR M Ú L A við Suðurlandsbraut Kaupmenn — Kaupfélög Damask Vasafóður Lakaléreft Nylon-slæður Hvítt léreft, Teygja, 6 og 8 cords 90 og 140 cm. Hálfdúnn, danskur Mislitt iéreft, 90 cm. Úlpu-spennur Handklæðadregill Innkaupa-net Diskaþurrku-efni Herra-danzkar Khaki-tau, 3 litir Herra-sokkar Borðdúkaefni Kven-krepsokkar Fóður-lastingur, 3 litir „ESDA“ Eldhúsgardínuefni Nylonsokkar „3 Tannen“ Skyrtuflónnel Vasaklútar, mislitir Loðkragaefni Rennilásar Sirs-efni OG MARGT FLEIRA. HesldverzSun JOHL KARISSON & C0 1 Aðalstræti 9c — Sími 15977. Pósthólf 434. m

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.