Vísir - 21.05.1963, Page 3

Vísir - 21.05.1963, Page 3
V1SIR . Þriðjudagur 21. maí 1963, 3 m ........................: . ' É 1 - i I í j d _ SILFURIAMPINN AFHCNTUR Það var mjög fjölmennt í hófl því, sem Félag fslenzkra leik- dómenda hélt í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. Var Gunnarl Eyjólfssyni veittur SILFURLAMPINN, hin íslenzku Oscar-verðlaun, fyrir beztan leik á þessu leikári. Fékk hann 875 stig af 900 fyrir leik sinn í „Pétri Gaut“ og „Andorra“. Næst kom Regína Þórðar- dóttir (,,Eðlisfræðingarnir“) og þá Brynjólfur Jóhannesson („Hart í bak“). Ræðu flutti Haraldur Bjömsson, leikari, Oddur Björasson, leikritaskáld, talaði fyrir minni Gunnars Eyjólfssonar, og Karl Guðmundsson, Ieikari, skemmti með eftirhermum. Á myndinnl sést leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins, Sigurður A. Magnússon, rétta Gunnari Silfurlampann. Félag ísl. stórkaupmanna 35 ára 1 dag eru liðin 35 ár frá stofnun Félags íslenzkra stórkaupmanna. Félagið var stofnað að frumkvæði nokkurra stórkaupmanna, sem þ. 7. febrúar 1927 ákváðu að stofna fé- lagið. Var þeim Arent Claessen, aðalræðismanni, Birni Ólafssyni, stórkaupmanni, og John heitnum Fenger, stórkaupmanni, falið að undirbúa stofnun félagsins. Þann 21. maí 1928 var svo formlega gengið frá stofnun félagsins. í fyrstu stjórn þess áttu sæti eftir- taldir menn: Formaður var Arent Claessen, aðalræðismaður, en með- stjórnendur stórkaupmennirnir Björn Ólafsson, Hallgrímur Bene- diktsson, Ingimar Brynjólfsson, Magnús Th. S. Blöndalhl, John Fenger og Kristján Ó. Skagfjörð. Tilgangur félagsins þá og síðar hefur ætíð verið sá að efla frjálsa verzlun á íslandi og koma í veg fyrir hvers konar höft í verzlun, bæði á innflutningi og útflutningi. Þá hefur félagið barizt fyrir því, að einkasölur ríkisins yrðu lagðar niður og því haldið fram, að inn- flutningi á einkasöluvörum væri betur komið í höndum innflytj- enda sem gætu dreift þeim fyrir mun minni kostnað heldur en oinkasölurnar hafa gert og gera. Hin síðari ár hefur eitt af bar- attumálum félagsins verið krafa um algert afnám verðlagsákvæða. Telur félagið, að leitt hafi verið í ljós, að hag neytenda er sízt betur borgið með tilkomu þeirra. Er það skoðun félagsins, að frjáls sam- keppni skapi neytendum hagstæð- ast vöruverð og gæði. Félagið hefur einnig látið tolla- mál mikið til sín taka frá byrjun og hefur það verið baráttumál félagsins að hafa tolla sem lægsta. f samvinnu við önnur félaga- samtök kaupsýslumanna stuðlaði félagið að stofnun Verzlunarspari- sjóðsins 1956 og síðan að stofnun Verzlunarbankans, en stofnanir þessar hafa orðið verzlunarstétt- inni í landinu mikil lyftistöng. Fé- lagið hefur beitt sér mikið fyrir þvl, að Verzlunarbanki fslands h.f. fái réttindi til að verzla með er- lendan gjaldeyri til þess að sú stofnun geti fullnægt öllum við- skiptum kaupsýslumanna. Á árinu 1961 festi félagið kaup á húseigninni nr. 14 við Tjarnar- götu, þar sem félagið hefur nú að- setur sitt og skrifstofur. Fyrsti framkvæmdastjóri félags- ins var Hinrik Sv. Björnsson, nú- verandi sendiherra íslands í Lon- don. Síðar tók við því starfi Einar heitinn Ásmundsson, hæstaréttar- lögmaður og ritstjóri, og frá 1956 hefur Hafsteinn Sigurðsson, lög- maður, gegnt því starfi. Núverandi formaður félagsins er Hilmar Fenger, stórkaupmaður, en aðrir £ stjórn eru Hannes Þorsteins- son, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Einar Farestveit, Ólafur Guðnason, Gunnar Ingimarsson og Jón Hjör- leifsson. í tilefni þessa merkisáfanga í sögu félagsins gengst stjórn fé- lagsins fyrir hátíðarfundi í Hótel Sögu á hádegi f -dag. Núverandi stjóm Félags íslenzkra stórkaupmanna, talið frá vinstri: Einar Farestveit, Ólafur Guðnason, Hafsteinn Slgurðsson framkvæmda- stjóri félagsins, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Hannes Þorsteinsson, Jón Ó. Hjörleifsson, Gunnar Ingimarsson og Hilmar Fenger form. félagsins a

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.