Vísir - 21.05.1963, Blaðsíða 8
8
V1SIR . Þriðjudagur 21. maí 1963
VÍSIR
Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og 'Vgreiðsla Ingóifsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði,
I lausasölu 4 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 línur).
Prentsmiðja VIsis. — Edda h.f.
Laun hinna öldruðu
Stefna núverandi ríkisstjórnar hefir verið sú, að
bæta hag þeirra, sem við bágust kjör eiga að búa í þjóð
laginu og þeirra, sem aldraðir eru. í langan tíma hefir
mjög nærri verið höggvið því aldraða fólki, sem sett
hafði fé sitt á vöxtu. Verðbólgan hefir blásið burtu
lífeyri þess, svo mikill hnekkir hefir verið af.
Því var mikið spor fram á veginn stigið með
breytingunni á lífeyri aldraðs fólks nú fyrir skömmu.
Frá því 1959 hefir ellilífeyrir hjóna verið hækkaður
um 106%. Hann var þá um 15 þús. krónur. Nú er hann
yfir 32 þús. kr. á ári.
Auðvitað er hér ekki um hreina kjarabót að ræða.
Því miður hefir reynzt nauðsynlegt að lækka gengið
frá 1959, sökum þeirrar óðaverðbólgu, sem Hermann
Jónasson lýsti og vinstri stjórnin hljópst síðan frá
og skirrðist við að leysa. En engu að síður er hér um
mikilsverða kjarabót að ræða. Og þá ekki minnst
það, að nú fær allt aldrað fólk ellilaun, jafnvel
þótt það vinni fullan vinnudag og sé í eigin lífeyris-
sjóðum og fái þaðan aldursrentu. Það var ekki áður,
þetta sjálfsagða réttlætismál hefir nú náð fram.
Verk ríkisstjórna verða ekki mæld í pundum. En
þau verða mæld eftir því hvern hug valdhafarnir bera
til þeirra, sem þurfa á ríflegri samhjálp að halda. Því
munu þeir fáir, sem lasta þennan merka áfanga.
Örlög læmingjanna
Eitt er það dýr náttúrunnar, sem frábrugðið er
öðrum spendýrum. Það er læminginn. Á ferðum sínum
heldur dýrið áfram í beina stefnu, þeysist fram af
klettasnösúm og bíður unnvörpum bana, heldur í kol-
blátt hafið og drukknar, gengur beint í eld ef hann
verður á vegi þess og brennur lifandi — fremur en að
taka aðra stefnu.
Framferði Framsóknarflokksins að undanfömu
minnir furðumikið á þetta litla dýr í ríki náttúmnn-
ar. Dæmi um það eru viðbrögð Tímans í landhelgis-
málinu. Framsókn einsetti sér að taka þá stefnu í upp-
hafi að landhelgissamningurinn væri ófær. Stefnunni
er síðan haldið, þrátt fyrir alla skynsemi og öll rök
og mátti lesa um síðasta dæmið í Tímanum nú um
helgina. Þar er sagt að með síðustu orðsendingu
Bretastjórnar neiti Bretar að viðurkenna 12 mílna
landhelgina íslenzku. Auðvitað er ekkert í orðsending-
unni sem gefur minnsta tilefni til slíkrar fullyrðingar,
enda gildur alþjóðasamningur þegar gerður við Breta
um viðurkenninguna. En Framsókn á sína stefnu og
frá henni verður ekki hvikað!
Ferð læmingjanna norður á vorin endar oft með
þvl að heilar hjarðir, farast vegna einstefnunnar. —
Framsókn má gæta þess vel að hennar bíði ekki sömu
örlög. í dag stefnir sá gamli flokkur beint í sjálfseyð-
ingaráttina.
2,2 millj. kr. úthlut-
að í vísinda styrki
í gær blrti Raunvísindadeild
Vísindasjóðs skýrslu um úthlut-
un vlsindalegra styrkja. Var
samtals úthlutað 2,2 milljónum
króna og fer skýrsla deildar-
innar hér á eftir.
I. Dvalarstyrkir
til vísindalegs sémáms
og rannsókna.
100 þús. kr.: Baldur Ellasson,
verkfræðingur, til sérnáms og
rannsókna á útbreiðslu rafseg-
ulaldna, einkum hátlðnisaldna,
og hagnýtri notkun þeirra (I
Sviss). Haukur Kristinsson, efna
verkfræðingur, til sérnáms og
rannsókna I eðlisfræðilegri efna
fræði (I Þýzkalandi).
60 þús. kr.: Einar Vigfússon,
fil. lic., til framhalds rannsókna
sinna á frjóvgun æðri plantna
og dýra (I Svlþjóð). Guðmundur
Guðmundsson, verkfræðingur,
til náms I stókastískum prócess
um (I Englandi). Gunnar Ólafs-
son, búfræðingur, til rannsókna
á meltanleika fóðurs (I Eng-
landi). Ragnar Stefánsson, fil.
kand., til náms I jarðskjálfta-
fræði (I Svfþjóð). Valdimar K.
Jónsson, verkfræðingur, til þess
að ljúka námi slnu I eðlisfr. og
hagnýtri stærðfræði„.CL.Æanda-1
ríkjunum).
45 þús. kr. Hrafn Tulíriiús, ’
læknir, til rannsókna I meina-
fræði (í Bandaríkjunum). Jónas
Haligrímsson, læknir, til rann-
sókna á kalkmyndun í hjartalok
um (í Bandaríkiunum). Júlíus
Sólnes, verkfræðingur, vegna
dvalar í Japan við nám I bygg-
ingatækni á jarðskjálftasvæð-
um. Ólafur Haligrimsson, Iækn-
ir, til rannsókna á Meniéres
sjúkdómi (í Þýzkalandi). Sigrún
Guðjónsdóttir, fil. kand., til
náms og rannsókna I lífeðlis-
fræði plantna (I Svfþjóð). Sig-
urður Þ. Guðmundsson, læknir,
til rannsókna á kalkefnaskipt-
um lfkamans (I Bandaríkjunum).
Sæmundur Kjartansson, Iæknir,
til rannsókna á eggjahvítuefn-
um I blóði I sambandi við húð-
6júkdóma (f Bandarfkjunum).
30 þús. kr. Guðmundur Ge-
orgsson, læknir, til náms og
rannsókna I meinafræði (I
Þýzkalandi). Guðmundur Pét-
ursson, læknir, til meinfrumu-
rannsókna (I Bandaríkjunum).
Þorgeir Þorgeirsson, læknir, til
náms og rannsókna I meina-
fræði (I ísrael). Þorkell Jóhann
esson, læknir, til framhaldsrann
sókna I farmakologi (I Dan-
mörku).
II. Styrkir til stofnana
og félaga.
Til tækjakaupa og
rannsóknaverkefna.
Atvinnudeild Háskólans, bún-
aðardeild. Hálft andvirði tækis
til frærannsókna (Laboratory
Cleaning Plant). 64 þús. kr.
Sama stofnun til framhalds
grundvallarathugana á nytja-
gróðri og ræktunarskilyrðum á
hálendi fslands. 50 þús. kr.
Atvinnudeild Háskólans, iðn-
aðardeild (I samvinnu við Nátt-
úrugripasafn), til jarðfræðirann
sókna í Dyngjufjöllum vegna
síðasta Öskjugoss. 50 þús. kr.
Bændaskólinn á Hvanneyri til
fóðurrannsókna. 50 þús. kr.
Eðlisfræðistofnun Háskólans
til undirbúnings nýrrar mælinga
Sðfe'rðár tiH aldtifsákvarðana á
fsfenzku bergi. 100 þús. kr.
Sama stofnun til norðurljósa
rannsókna undir stjórn dr. Þor-
steins Sæmundssonar. 250 þús.
kr.
ísienzka stærðfræðafélagið
vegna kostnaðar við að senda
sérfræðing utan til að kynna
sér viðhald og smíði rafreikna.
40 þús. kr.
Jöklarannsóknafélag íslands
til þess að fylgjast með magni
af brennisteinssamböndum I
jökulvatni undan Mýrdals og
Skeiðarárjöklum. 18 þús. kr.
Sama félag vegna veðurathug
ana og leysingamælinga á
Tungnaárjökli 30 þús. kr.
Landsspítalinn, lyfja og barna
deild vegna kostnaðar við -ann
sókn á meðfæddum hjartasjúk-
dómum, 50 þús. kr.
Landsspitalinn, rannsókna-
deild I meinafræði. Til þriggja
rannsóknarverkefna: 1) nýrna-
rannsóknir. 2) rannsóknir á
magni og dreifingu vefjavatns.
3) rannsóknir á áhrifum ýmissa
þarategunda á kopamýtingu I
þörmum. 75 þús. kr.
Náttúrugripasafn, dýrafræði-
deild, vegna þátttöku 1 brezk-
fsienzkum rannsóknum á grá-
gæsum. 30 þús. kr.
Safnritið Zoology of Iceland
vegna undirbúnings að veður-
farshefti ritsins, úrvinnslu töl-
fræðilegra gagn og gerð llnurita
og korta. 15 þús. kr.
III. Verkefnastyrkir
Til einstaklinga.
Eggert Jóhannsson, yfirlækn-
ir, til rannsókna á haptoglobin
og transferrinvariöntum og öðr-
um proteinavariöntum I bióði
íslendinga. 25 þús. kr.
Elsa G. Vilmundardóttir, fil.
kand., til jarðfræðirannsókna á
Tungnáröræfum. 30 þús. kr.
Gunnlaugur Snædal, læknir,
til þess að ljúka rannsóknum
slnum á krabbameini I brjósti.
80 þús. kr.
Helgi Hallgrímsson og Hörð-
ur Kristinsson til rannsókna á
fléttuflóru hálendisins umhverf
is Eyjafjörð. 30 þús. kr.
Jens Pálsson, mannfræðingur,
vegna mannfræðirannsókna á
íslandi. 40 þús. kr.
Dr. Jóhannes Bjömsson, lækn
ir, til rannsókna á Colitis ul-
cerosa á íslandi árin 1950—’59.
25 þús. kr.
Dr. Ivka Munda til rannsókna
á þörungum á svæðinu milli
ölfusár og Þjórsár. 31 þús. kr.
Páll V. G. Kolka, læknir,
vegna rannsókna á útbreiðslu
og útbreiðsluháttum berklaveik-
innar 1800—1814. 15 þús. kr.
Ófeigur J. Ófeigsson, læknir,
til framhalds rannsókna sinna á
bruna. 80 þús. kr.
Ólafur Bjamason, læknir, til
ónæmisrannsókna 1 sambandi
við skjaldkirtilsjúkdóma. 45 þús
kr.
Sveinn Haligrímsson, búfræð
ingur, til rannsókna á arfgengi
frjósemi hjá sauðfé og öðrum
Framh á bls. 5.
Hinir horfnu kontrabassar
Sýningu seinknr
Blessaður trúbadorinn lét á
sér standa á sunnudag. Þetta
var vlst spænsk-itölsk stund-
vfsi — I Suðurlöndum er enginn
að ætlast til, að byrjað sé á
heyrendurnir ekki fyrr en þeim
sjálfum sýnist. En þrjú kortér
eru nokkuð langur tími, jafnvel
fyrir sunnan Napoli. Það gæti
kostað fúleggjahríð, skemmda
tómata og þess háttar — ítalir
eru svo dæmalaust forsjálir að
hafa með sér birgðir af slíkum
vörum, þegar þeir fara út að
skemmta sér, er ske kynni, að
þeim mislíkaði eitthvað og
þyrftu að grípa til róttækra að-
gerða.
Jæja, ísiendingar eru sem
í Þjóðleikhúsinu
betur fer rólynd þjóð og þolin-
móð. Þeir kipptu sér ekkert
upp við að þurfa að bíða þrjú
kortér eftir að sýning hæfist.
Fjörutíu mínútur voru það
reyndar, ef nákvæmni skal gætt
en þrjú kortér hljóma betur.
Það eykur bara spenninginn, ef
óvíst er, að sýningin geti yfir
Ieitt hafizt.
Og hver var ástæðan fyrir
þessari óvenjulegu töf I íslenzku
Ieikhúsi? Voru keppinautarnir
um ástir Leonoru farnir að berj
ast upp á líf og dauða bak við
tjöidin? Eða var einhver söngv-
arinn orðinn kvefaður? Nei, nei,
állir voru við beztu heilsu að
tjaidabaki og niðri I hljómsveit
argryfjunni. En tvo kontrabassa
vantaði. Þeir voru læstir inni
I herbergi í Háskólablói. Og lyk-
illinn fannst víst ekki. Það er
ómögulegt að sýna II trovatore
án kontrabassa — þeir eru ó-
missandi, þegar stemmningin á
að vera dimm og draugaleg.
Á endanum komu svo bass-
arnir, hvernig sem farið var að
því að finna þá. Og sýningin
gat hafizt.Leikhúsgestir voru
beðnir afsökunar með mikilli
hæversku, tvisvar meira að
segja. 1 seinna skiptið klöppuðu
þeir. Þeim datt ekki I hug að
erfa þetta við Þjóðleikhúsið. Og
hin langþráða sýning hófst kl.
8.40. Allt gekk prýðilega,
stemmningin var tilhiýðilega
dulmögnuð, og kontrabassamir
tveir voru hetjur kvöldsins.