Vísir - 22.05.1963, Qupperneq 2
2
V í S IR . Miövikudagur 22. maí 1963.
,t’ ^ i__________________
"jTÖ ll--1 I-J T [-* T
£
Ársþing íþróttabanda-
lag Akraness
18.
ársþing íþróttabandalags
Akraness var haldið í íþróttahús-
inu 7. april s.I. Formaður l.A.
Guðmundur Sveinsbjörnsson setti
þingið og flutti skýrslu stjórnar-
innar. Forseti þingsins var kjörinn
Lárus Ámason og varaforseti Ól-
afur I. Jónssonö Ritarar voru
kjörnir Helgi Danielsson og Einar
J. Ólafsson.
Hér á eftir fer útdráttur úr
skýrslum stjórnar Í.A. og þeirra
sérráða er starfa á vegum banda-
lagsins:
I
KNATTSPYRNA.
Akurnesingar tóku þátt í Iands-
mótum allra flokka. Meistaraflokk-
ur varð nr. 3 í keppni I. deildar,
en alls lék flokkurinn 18 leiki á
árinu og unnust 6 þeirra, 6 end-
uðu með jafntefli og 6 töpuðust.
Markatalan 36—46 Í.A. í óhag.
Enginn yngri flokkanna komst I
úrslit í landsmóti. I landsliðinu
léku þrír Akurnesingar, þeir
Ríkharður Jónsson, Helgi Daníels-
son og Þórður Jónsson. 1 B-lands-
liðinu léku einnig þrír Akurnesing-
ar, þeir Bogi Sigurðsson, Ingvar
Elísson og Þórður Jónsson, 3.
flokkur fór í keppnisferðalag til
vinabæjar Akraness í Noregi og
Svíþjóð. Tókst sú ferð í alla staði
mjög vel. Bæjarkeppni við Reykja-
vík fór engin fram á árinu, en
leikin var bæjarkeppni við Kefla-
vík og Hafnarfjörð, hin svo kallaða
Litla bikarkeppni. Lauk þeirri
orustu þannig að öll liðin urðu
jöfn að stigum.
HANDKNATTLEIKUR.
Handknattleikur á frekar erfitt
uppdráttar á Akransei og er það
fyrst og fremst óhentugt húsnæði,
sem þar um veldur. Meistaraflokk-
ur tók þátt í landsmóti II. deildar
1962 og varð flokkurinn I 4. sæti
með 4 stig. Nokkrir handknatt-
leiksflokkar frá Reykjavík og ná-
grenni komu I heimsókn til Akra-
ness og léku við heimamenn. Þá
fór fram hin árlega hraðkeppni liða
utan Reykjavíkur og lauk þeirri
keppni með sigri Hafnfirðinga, í
öðru sæti urðu Keflvíkingar.
SUND.
Sundmenn tóku þátt í einni bæj-
arkeppni á árinu og var það við
Hafnfirðinga. Keppnin var mjög
jöfn, en henni lauk með sigri Hafn-
firðinga, 45 stigum gegn 43. Akur-
nesingar tóku þátt í nokkrum mót-
um I Reykjavík og nágrenni. Eitt
Akranesmet var sett á árinu, en
það var Sigrún Jóhannsdóttir, er
synti 50 m. skriðsund á 34.1 sek.
Síðastliðið ár var eitt erfiðasta
í sögu sundíþróttarinnar á Akra-
nesi. Margar helztu sundstjörnurn-
ar eins og Sigurður Sigurðsson,
Guðm. Samúelsson o. fl. hættu
æfingum og keppni og eftir voru
aðeins unglingar, margir að vísu
efnilegir, svo minna varð um
þátttöku 1 mótinu, en á undanförn-
um árum. Einnig hefur þjálfara-
skortur mjög háð eðlilegum fram-
gangi sundiþróttarinnar.
STJÓRNARKJÖR.
Guðmundur Sveinbjörnsson baðst
eindregið undan endurkjöri sem
formaður, og var formaður kjörinn
Lárus Árnason. Aðrir I stjórn Í.A.
eru Garðar Óskarsson varaformað-
ur, Ólafur I. Jónsson ritari. Eiríkur
Þorvaldsson gjaldkeri og með-
stjórnendur þeir Björgvin Hjalta-
son og Ársæll Jónsson.
í lok þingsins voru Guðm. Svein-
björnssyni sérstaklega þökkuð
störf hans í þágu l.A. og íþrótta-
mála á Akranesi, en Guðm. hefur
manna lengst og bezt starfað að
íþróttamálum í bænum, en hann
var m. a. einn af stofnendum
knattspyrnufélagsins Kára áríð
1922 og sat í stjórn l.A. frá
stofnun þess og mörg hin síðari
ár formaður.
Mark Stanley Matthews
innsiglaði sigur Stoke
STANLEY MATTHEWS — hinn 48
ára gamli snillingur ensku knatt-
spyrnunnar innsiglaði sigur Stoke
City I 2. deild með fyrsta mark-
inu, sem hann hefur skorað i deilda
keppninni á þessu keppnistímabili,
er hann skoraði fyrsta mark Stoke
Mikill var að vonum fönguður áhangenda Vals eftir sigurinn í Reykjavíkurmótinu, en hámarki náði fögn-
urinn, er þeir tóku kappann Árna Njálsson og tolleruðu hann, og eftir myndinni að dæma Iætur hann
sér það vel Iíka.
Ósmekkíesar móttökur
áhangenda Tottei
i
Voru í líki Jesú Krists og sun^u
„súlmu#/ um Geikmenn
Áhangendur TOTTENHAM, fór við ráðhúsið i Tottenham er
hinna nýbökuðu bikarmelstara \ liðið kom heim frá sigurleiknum i
bikarliða í Evrópu, hafa verið á- Rotterdam.
sakaðir harðlega fyrir guðlast. Er | Kirkjuhöfðinga staðarins varð
ástæðan móttökuathöfn, sem fram ekki um sel er hann sá hvað fór
fram. Einn áhangcnda liðsins v
Ulæddur eins og Jesú Kristur, c
aðrir sem englar. Menn te
báru skilti með textum úr b i.
unni ,sungu sálrna sem snúið vr
upp á leikmennina.
Fulltrúi ldrkjunnar segist sjálfr'
vera mikill aðdáandi Tottenham, en
sýningar sem þessa yrði að for-
dæma.
í 2:0 sigri yfir Luton, en sigur
Stoke dæmir Luton í 3. deild ásamt
Walsalleda Charlton. Makið skor-
aði Matthews eftir tveggja mín-
útna leik af síðari hálfleik og var
fagnað ákaflega af áhorfendum.
Aðalleikur laugardagsins var þó
leikinn f Sunderland, þar sem
heimaliðið lék við Chelsea. Liðin
hafa undanfarnar vikur háð æðis-
gengna baráttu um að komast í 1.
deild en sigur Sunderland nú
gæfi þeim „aðgöngumiðann", en
Chelsea sigraði óvænt með 1—0.
Það var enski landsliðsmaðurinn
Bobby Tambling, vinstri útherji,
sem skoraði fyrir Chelsea og gefur
liði sínu þar með tækifæri á að
verða Stoke City samferða upp í
1. deild, en Sunderland hefur nú
52 stig og hefur lokið öllum leikj-
um sínum, en Chelsea héfur 50
stig og á einn leik eftir, á heima-
velli gegn Portsmouth á morgun. í
Sunderland voru áhorfendur 55.000
og voru að vonum sáróánægðir
yfir úrslitum leiksins.
MANCHESTER CITY varð að taka
við dauðadómnum eftir 1—6 tap
gegn West Ham í London og fer
í 2. deild ásamt „júmbó“-liðinu
'rtondttit'
frrÉÉir
► Rússneska konan Tamara
Press setti nýtt heimsmet i
kringlukasti er hún kastaði
59.29 metra, sem er 31 em.
betra en fyrra met hennar. —
Landi hennar Lazare náði bezta
tíma í Evrópu í ár í 3000 metra
hindrunarhiaupi á 8.43.8 mín.
b Jim Beatty fékk um helgina
"'ög nöðan tíma í 5000 rnetra
laupi, 13.57.4 og sigraði
Halberg frá Ástralíu, en
■'i or OL nÍe'rtari í grein-
" ' en liann fékk 13. 59.2.
"i'li Halbcrgs. Peter Snell,
-in m'luna á 4.00.4. Snell er
br'''ðka’!"'feÆnlagi og kcnpn-
jalagi um USA. Dyrol Bur-
spn, USA, var annar á 4.00.8
i var óheppinn og fékk gadda-
kó ofan á ristina 300 metra frá
íarki og eyðilagði það vitan-
ega endasprett hans og sigur-
von í hlaupinu. Var hann flutt-
ur á sjúkrahús að loknu hlaupi.
Leyton Orient, sem lengi hefur
haldið sig á botni 1. deildar, en
Leyton tapaði um helgina 1—3 fyr-
ir Manch. United, liðinu sem er
í úrslitum bikarkeppninnar en var
annars á hættusvæðinu í 1. deild.
Or 3. deild upp í 2. deild koma
Northampton og Swindon.
Áhorfendur voru alls 380.000 á
deildarleikjum í Englandi á laugar-
daginn.
Orslit í Englandi: 1. deild. Aston
Villa — Liverpool 2—0, Birming-
ham — Leicester 3—2, Fullham-
West Bromwich 1—2, Manchester
O — Leyton Orient 3—1, Notting-
ham Forest — Tottenham 1—1,
Sheffield W — Arsenal 2—3, West
Ham — Manchester City 6—1.
2. deild. Cardiff — Huddersfield
3— 0, Charlton — Southampton 2
—1, Grimsby — Bury 5—1, Leeds
— Swansea 5—0, Portsmouth —
Middlesbrough 1—1, Preston Oerin
4— 0, Stoke — Luton 2—0, Sunder
Iand — Chelsea 0—1.
Petrosjan
heims-
meistari
Einvíginu um heimsmeistara-
tignina í skák er lokið og bar
Tigran Petrosjan sigurorð af
Mikael Botvinnik. Siðustu skákinni.
þeirri 22., lauk með jafntefli og
hafði Petrosjan þar með hlotið
12j/2 vinning gegn 9y2. Þeir áttu
að tefla 24 skákir, en þar sem
12j4 nægir til sigurs, var viður-
eigninni þar með lokið.
Botvinnik varð heimsmeistari
árið 1948 og hefur verið það síð-
an, utan þau tvö skipti, er hann
tapaði tigninni gegn Smyslov og
Tal, en endurheimti hana aftur
jafnoft. í þetta sinn á Botvinnik
ekki rétt á rtýju einvígi við Petro-
sjan, nema því aðeins að hann sigri
á næsta kandidatamóti.
Tigran Petrosjan fæddist árið
1929 í Tiblis í Georgíu. Hann ólst
upp í Armeníu og er oftast talinn
Armeníumaður. Petrosjan varð
snernma góður skákmaður og um
1950 var hann kominn í fremstu
röð rússneskra skákmeistara.
Hann hefur tvisvar orðið skák-
meistari Sovétríkjanna, tefit á
fjórum kandidatamótum og fjölda
ólympíuskákmóta.
antrrc-r.g