Vísir - 07.06.1963, Síða 11
V í SIR . Föstudagur 7. júní 1963
n
| Slysavarðstofan 1 Heilsuverndar-
' stöðinni er opin allan sólarhring-
i inn. Næturlæknir kl. 18—8. Sími
í 15030.
Neyðarvaktin, sími 11510, hvern
virkan dag nema laugardaga kl.
13—17.
Næturvarzla vikunnar 1. júnl til
j 8. júní er í Ingólfs Apóteki.
Ótivist barna: Börn yngri en 12
i ára til kl. 20.00. 12—14 ára til
■ kl. 22.00. Börnum og unglingum
1 innan 16 ára aldurs er óheimill að-
j gangur að veitinga-, dans- og sölu-
stöðum eftir kl. 20.00.
ÚTVARPIÐ
Föstudagur 7. júni.
Fastir liðir eins og venjulega.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.25 „Við vinnuna": Tónleikar.
18.30 Harmonikulög.
20.00 Efst á baugi (Björgvin Guð-
mundsson og Tómas Karls-
son).
20.30 Tónleikar.
20.45 I ljóði: Kímni — þáttur í um
sjá Baldurs Pálmasonar. Les-
arar: Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir og Lárus Pálsson.
21.10 „Súlamít og Salómon", laga-
flokkúr eftir Lange-Muller,
við ljóð eftir Ingemann (Helle
Halding syngur. Friedrich
Gilrtler leikur undir á píanó).
21.30 Útvarpssagan: „Alberta og
Jakob“ eftir Coru Sandel, VI.
(Hannes Sigfússon).
22.10 Gjarðyrkjuþáttur.
22.30 Á síðkvöldi: Léttklassísk tón
list.
Þjóðleikhúsið mun á næstunni
leggja af stað í leikför út á
land og sýna leikritið Andorra.
Leikurinn hefur nú verið sýnd-
ur 20 sinnum í Þjóðleikhúsinu
við ágseta aðsókn. Lagt verður
af stað í leikförina þann 13. þ.
allra hugsandi manna. Þetta leik
rit hefur farið sigurför um allan
heim að undanförnu og hefur
verið sýnt í öllum helztu Ieik-
húsum á s, I. tveimur árum.
Leikstjóri er Walter Firner
frá Vínarborg, en aðalhlutverk-
m. og verður fyrst sýnt á Sel- ip eru ,sem kunnugt er leikin af
fossi. Þá verður sýnt I Aratúnga' ^unnaii' SÉýjólfssyni, Krist-
björgu Kjeld, Vali Gíslasyni,
í Keflavík og ef til vill víðar hér
i nágrenni Reykjavíkur. Þann
18. þessa mánaðar verður svo
haldið af stað í leikför til Norð
urlands og til Austfjarða. Þar
verður sýnt í öllum helztu sam-
komuhúsunum. 23 leikarar og
leiksviðsmenn taka þátt í ferð-
inni.
Andorra hlaut mjög góða
dóma og hafa fá Ieikrit hjá Þjóð
leikhúsinu fengið betri viðtök-
ur. Efni leiksins er mjög tíma-
bær boðskapur, sem á erindi til
ORÐSENDING
Orðsending til landnema í Heið-
mörk. Gróðursetning á vegum
landnema í Heiðmörk er hafin
fyrir nokkru og er unnið á hverju
kvöldi. Þau félög, sem ekki hafa
ennþá tilkynnt um gróðursetning-
ardag sinn, eru vinsamlegast beðin
að láta Skógræktarfélag Reykjavík
ur vita um hann hið fyrsta í síma
13013.
stjörnuspá
morgundagsins
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Övænt atburðarás verður
til ánægjuauka í dag. Eldri per-
sóna getur reynzt þér mjög holl
ráð og þú þarft að fylgja áætl-
uninni út I æsar, þótt hægt
gangi.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Óvæntar fréttir verða þér til
yndis I dag. Ferðalög yrðu þér
til heilla f dag, þótt löng væru.
Tvíburamir, 22. maí til 21.
júní: Skyndileg hagræðing
heima fyrir mun hafa mjög
heppileg áhrif á fjármál þín.
Krabbinn, 22. júnl til 23. júlí:
Stutt ferð hefði heillavænleg á-
hrif á samband þitt við vanda-
menn þína. Annars ætturðu að
láta þeim amstrið eftir í dag.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Vinnufélagar þfnir reynast þér
venju fremur vel í dag og vera
kann að óvæntur atburður muni
koma eitthvað við sögu í þessu
sambandi.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Dagurinn ætti að geta orðið
ánægjulegur og óvænt tækifæri
bjóðast til tómstundaiðkana.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Óvæntur atburður verður til
þess að gera heimilisbraginn
mikið ánægjulegri en að vanda
lætur. Verðu frístundum dags-
ins til að taka til á heimilinu.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Mjög hagkvæmt er fyrir þig f
dag að skiptast á skoðunum við
aðra, þar eð flestir munu geta
lagt nytsamar hugmyndir til
málanna.
Bogmaðurinn, 23. nóv, til 21.
des.: Skemmtileg framvinda
fjármálanna í dag hefur góð
áhrif á samskipti þín við aðra.
Ýmislegt óvænt f vændum.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Góð not verða fyrir skipu-
lagshæfileika þína í dag. Marg-
ir Steingeitarmerkingar munu
starfa á einn eða annan hátt að
skipulagmngu kosninganna.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Þrátt fyrir að þér finnist
ærið nóg að gera og erfitt að
skerast úr leik, þá væri ráðleg-
ast fyrir þig að taka lífinu með
ró og hvílast f kvöld.
Fiskamir, 20. febr. til 20.
marz: Þátttaka í félagslífi mjög
hagstæð. Hvort sem heldur eru
skemmtanir eða undirbúningur
kosninga á sunnudag. Horfur á
að vonir þínar rætist.
Ég veit að það er miklu meira
spennandi i njósnaraleik, en ykkur
er nú alveg óhætt að koma hingað
sjálfir ... hvað meinarðu með
njet???
Lárusi Pálssyni, Herdísi Þor-
valdsdóttur, Ævari Kvaran, Ró-
bert Arnfinnssyni og fl. Farar-
stjóri er Klemenz Jónsson. Fyr-
ir nokkru úthlutuðu gagnrýn-
endur blaðanna silfurlampann
fyrir þetta leikár og hlaut Gunn
ar Eyjólfsson hann fyrir Ieik
sinn í Andorra og í Pétri Gaut.
Myndin er af Gunnari og
Kristbjörgu í aðalhlutverkun-
um.
MINNINGARSPJÖLD
Munið minningarsjóð Guðrúnar
Gfsladóttur Björns. Minningar-
spjöld fást hjá frú Sigrfði Eiríks-
dóttur Aragötu 2, Sigurlaugu Helga
dóttur yfirhjúkrunarkonu Bæjar-
spítalanum, Siðrfði Bachman yfir-
hjúkrunarkonu Landspítalanum,
Jónu Guðmundsdóttur Kópavogs-
braut 11, Guðrúnu Lilju Þorkels-
dóttur Skeiðarv. 9, Halldóru Andr
ésdóttur Kleppsvegi 48, og í verzl-
un Guðlaugs Magnússonar Lauga-
vegi 22 a.
YMISLEGT
Listaháskólinn í Kaupmannahöfn
hefur fallizt á að taka; við einum
ÍSlendingi árlega til náms í húsa-
gerðarlist, enda fullnægi hann kröf
um um undirbúningsnám og stand
ist með fullnægjandi árangri inn-
tökupróf í skólann, en þau hefjast
venjulega í byrjun ágústmánaðar.
Umsóknir um námsvist f skólann
sendist menntamálaráðuneytinu,
Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg,
fyrir 20. júní n. k. Sérstök umsókn
areyðublöð fást í ráðuneytinu.
Verkfræðiháskólinn í Niðarósi
(Norges Tekniske Höjskole, Trond-
heim) mun væntanlega veita fáein-
um fslenzkum stúdentum skólavist
á vetri komanda. Þeir, sem kynnu
að vilja koma til greina, sendi
menntamálaráðuneytinu umsókn
um það fyrir 25. júnf n. k. Umsókn
fylgi fæðingarvottorð, staðfest af-
rit stúdentsprófsskírteinis og með-
mæli, og skulu öll gögnin vera
þýdd á norsku, dönsku eða sænsku.
Umsóknareyðublöð fást f mennta-
málaráðuneytinu, Stjórnarráðshús-
inu við Lækjartorg. Athygli skal
vakin á því, að einungis er um
skólavist að ræða, en ekki styrk-
veitingu.
SJONVARPIÐ
Föstudagur 7. júní.
17.00 Password
17.30 The Big Síory
18.00 Afrts News
18.15 Greatest Dramas
18.30 Lucky Lager Sports Time
19.00 Current Events
19.30 Dobie Gillis
19.55 Afrts Néws
20.00 The Garry Moore Show
21.00 The Perry Como Show
22.00 Armed Forces Screen
Magazine
22.30 Tennessee Ernie Ford
23.00 Northern Lights Playhouse
„Bandit Queen“.
Söfnin
Borgarbókasafn Reykjavfkur, sími
12308 Þingholtsstræti 29A.
Útlánsdeild: 2-10 alla virka daga
nema laugardaga 1-4. Lokað sunnu
daga.
Lesstofa: 10-10 alla virka daga
nema laugardaga 10-4. — Lokað
sunnudaga.
Útibú Kofsvallagötu 16: 5,30-7,30
alla virka daga nema laugardaga.
Útibu Hólmgarði 34: 5-7 alla virka
daga nema laugardaga.
Lista afn Einars Jónssonar er
opið á sunnudögum og mið-
vikudögum frá kl. 1.30 — 3.30.
R
8
p
K
i
R
e
Kirby er á nokkuð dularfullu
ferðalagi. Hann læðist hljóðlega
um ríkmannlegt hús, sem ein-
hver annar á, og tekur til við að
opna peningaskápinn. 1 sama
bili yfirgefa eigendur íbúðarinn
ar óperuhöllina og halda heim
á leið.