Vísir


Vísir - 06.07.1963, Qupperneq 3

Vísir - 06.07.1963, Qupperneq 3
Um eitt hundrað unglingar vinna vlð humarinn. Á myndinni sést yfir hluta af vinnusalnum. (Ljósm. Vísis: B.G.) I HUMAR I HAFNARFIRÐI Sjaldan eða aldrei hefur eins mikill humar borizt á land i Hafnarfirði eins og nú í vor og sumar. Humarveiðar frá Hafnarfirði hófust um miðjan maimánuð f vor og stimda hana nú átta bát- ar. Afii hefur verið mjög góður og þvi mikil atvinna við hum- arinn i Iandi. Um eitt hundrað unglingar vinna við humarinn hjá Fiskiðjuveri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. — Þegar ljós- myndari og blaðamaður Visis skruppu suður í Hafnarfjörð í gærdag Iitu þeir við í Fiskiðju- verinu og hittu þar að máli verk stjórann Karl Magnússon. Sagði Karl að ef unglinganna nyti ekki við væri alls ekki mögulegt að taka á móti öllum þessum humar, sem á land berst. Ungl- ingarnir sem við humarinn vinna eru flestir á aldrinum 13 til 15 ára, þó eru sumir allt niður í 10 ára. Það virtist vera mikið kapp í krökkunum við vinnuna og leit ekki út fyrir að neinn væri búinn að læra að slæpast. Öll voru bömin hin á- nægðustu með vinnuna og vinnu gleðin skein úr hverju andliti. Ljósmyndarinn hafði fram úr miklu vandamáli að ráða, þvi allir vildu komast á mynd og til þess að gera sem flesta ánægða þurfti hann að taka margar myndir fram yfir það sem nauð synlegt var. Krökkunum er greitt kaup eftir taxta Hlífar og hafa þau yngstu rúmar tíu krón ur á tímann í dagvinnu, en þau elztu rúmar 20 krónur. Það var sama hvem við spurðum, öll sögðust þau Ieggja vinnulaunin í banka eða Iáta pabba og mömmu geyma þau og siðan á að kaupa einhvern góð- an hlut. Þegar kaffltíminn kemur, setjast strákamir út fyrir, drekka mjólk og borða rúgbrauð.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.