Vísir - 06.07.1963, Side 5
V í SIR . Laugardagur 6. júlí 1963.
m
Framhald af bls. 16.
Sænskir málvísindamenn munu
efna til fundar við Mývatn nú um
helgina. Leiðsögumaður "þeirra er
dr. Jakob Benediktsson.
f vor hefur verið komið upp
hraðbáti á Mývatni, sem fer með
skemmtiferðafólk vítt og breitt um
vatnið. Hefur hann mikið verið
notaður.
Heyskapur í Mývatnssveit hófst
almennt upp úr mánaðamótunum.
Er spretta ágæt og líkur fyrir
nýtingu því dásamlegt veður,
hiti og sólskin hefur verið á hverj-
um degi undanfarið.
Silungsveiði í Mývatni hefur
verið sæmileg.
Horræn
Framhald af bls. 16.
Ritarar ráðstefnunnar eru:
Kjell Hávered, fulltrúi, Sveinn G.
Björnsson, deildarstjóri, Friðný
Sigfúsdóttir, fulltrúi.
Á dagskrá ráðstefnunnar eru
alls 18 mál, sem snerta ýmist
oóstsambandið milli Norðurlanda,
'amvinnu Norðurlandanna innan
alþjóðapóstsambandsins, aukýmissa
annarra mála, sem ofarlega eru á
baugi á alþjóðavettvangi póstmál-
anna .
Framhald -.1 bls. 1.
móta, en þá verður hann fluttur
héðan burt, sennilega annað
hvort til Krýsuvíkur eða suður
á Reykjanestá. Hvor staðurinn
verður fyrir valinu er ekki end-
anlega ákveðið. Hugmyndin er
að bora nokkrar rannsóknarhol-
ur suður við Reykjanesvita
við tækifæri, einkum með til-
liti til fyrirhugaðrar hitaveitu
fyrir Keflavík. og Keflavíkur-
kaupstað. í Krýsuvík verður
hins vegar unnið samkvæmt áð-
ur gerðri framtíðaráætlun, sem
vafalaust á enn langt í land.
Á Norðurlandi er verið að
bora með Norðurlandsbornum í
Bjarnarflagi við Mývatn svo
sem áður hefur verið skýrt frá.
Ein hola hefur þegar verið bor-
uð þar, en ekki er búið að
prófa hana ennþá. Nú er verið
að flytja borinn til og er ætlun-
in að bora þar aðra holu
skammt frá áður en borinn verð
ur fluttur til Húsavíkur.
Þegar til Húsavíkur kemur er
bornum ætlað að dýpka holu,
sem boruð var í vor, en ekki
hægt að ljúka við fyrr en við-
bótartæki hafa fengizt til lands-
ins. Eru þau væntanleg innan
skamms.
☆
Leiðrétting.
Af vangá féll niður í gær texti
með skopmynd úr brezku blaði,
sem birt var með greininni „Leynd-
armál þjóða ganga kaupum og
sölum“, en í textanum er Mac-
millan Iátinn segja um ágengni
hinna erlendu njósnara: „Þeir
halda víst, að við ráðum yfir ein-
hverju leynivopni".
HóteB Saga —
Framhald af bls. 16.
þeirra. Margs konar þjónusta
hefur verið tekin upp til þess
að laða ferðamenn hingað, og
einnig hafa verið gefnir út í
sama tilgangi landkynningarpés
ar, og fer þeim fjölgandi ár frá
ári.
Vestur-íslenzki 40 manna hóp
urinn, sem kom hingáð 7. júní
er nú á förum vestur, en
Vancouver-íslendingarnir fóru í
gærkvöldi. Vísir átti í gær viðtal
við Lindal dómara, fararstjóra
Winnipeg-íslendinga.
— Heimsóknin verður okkur
öllum ógleymanleg, eins og
fram kemur í kveðjuorðum frá
okkur, sem ég ætla að biðja
Vísi að birta. Margt er það,
sem Ijúft verður að minnast, —
að taka þátt í þjóðhátíðinni hér
17. júní, heimsókn daginn eftir
að Bessastöðum, og ferðir til
sögufrægra og fagurra staða.
Seinustu vikurnar höfum við
farið í smáhópum til að heim-
sækja ættingja og vini víða um
land og síðan sem einstaki1n/nr
Lindal dómari.
wmr
frá Nimipeg á förum
heimsótt skyldmenni, og vini
hér í bænum.
Ég bað Lindal dómara að
segja lesendum Vísis lítið eitt
frá ævi sinni og störfum.
— Ég fluttist vestur um haf
með foreldrum mínum tveggja
mánaða gamall og hef ekki til
íslands komið fyrr en nú og
Anægðir með dvi
Fulltrúar Stokkhólmsborgar,
sem nú eru í vikuheimsókn í
Reykjavík, ræddu stutta stund
við blaðamenn í gær. Hér er um
að ræða annan varaforseta borg
arstjórnar Stokkhólms, Bengt
Lind, stjórnmálaritstjóra við
Svenska Dagbladet, varafor-
mann borgarráðs, fyrrv. borg-
arstjóra, Gösta Wennström,
borgarráðsfulltrúa, frú Veru
Söderström, borgarstjóra
menntamála, Gunnar Dalgren og
borgarritara, Hans Calmfors.
Fulltrúarnir ræddu m. a. um
helztu vandamál Stokkhólms-
borgar, sem er í síaukinni hús-
næðisþörf og kröfur um stærra
og betra húsnæði. Þá eru skipu-
lagsmálin erfiðustu framtíðar-
viðfangsefni þeirra. Gerður var
skipulagsuppdráttur af Stokk-
hólmsborg kringum miðborgina
áríð 1945 og er hann nú til end-
urskoðunar, sem væntanlega lýk
ur f haust. Hefur mikið verið
rætt og ritað um það flókna og
þýðingarmikla verkefni.
Hér hafa fulltrúarnir dvalizt
síðan á mánudag, en halda utan
í dag. Hafa þeir þá fengið tæki-
færi til að kynnast starfsemi
borgarinnar, heimsækja forseta
íslands og ýmsar stofnanir
Reykjavíkurborgar, m. a. Heilsu
verndarstöðina, Árbæ, Bæjarút-
gerðina, farið til Þingvalla o. fl.
Á blaðamannafundinum kváð-
ust sænsku fulltrúarnir sérstak-
lega vilja lýsa ánægju sinni með
þá miklu gestrisni, er þeir
hefðu orðið aðnjótandi. Einnig
lögðu þeir áherzlu á að ferðin
hingað hefði verið bæði fróðleg
og Iærdómsrík.
Á blaðamannafundinum voru
ásamt sænsku fulltrúunum, Geir
Hallgrímsson borgarstjóri, Páll
Líndal skrifstofustjóri borgar-
stjóra og Knútur Bruun, full-
trúi borgarstjóra.
rættist þá óskadraumur. Guðný,
kona mín, sem kom með mér,
er fædd vestra. Foreldrar mínir
settust fyrst að í Winnipeg en
tóku svo land vestan Manitoba,
en það landsvæði var þá kallað
Northwest Territories, þar sem
síðar varð Saskatchewanfylki,
og lifði ég mína æsku þar.
Ég gekk menntaveginn eins og
það er kallað og er lögfræðingur
frá háskólunum í Saskatoon,
Sask og Manitoba, hafði lokið
þvf fyrir fyrri heimsstyrjöld, en
ég gerðist sjálfboðal. og bræður
mínir tveir. Ég minntist á það í
ræðu hvers vegna ég og aðrir
gerðust sjálfboðaliðar, til þess
að verja lýðræðið, lýðræðishúg
sjónina, að við hugðum, og stríð
ið vannst, en friðurinn ekki, sem
kunnugt er. Ég tók þátt í orrust
unni við Passchandeale, og fékk
gaseitrun. Bræður mfnir féllu.
Svo tók ég til við lögfræði-
störfin, þar til ég var skipaður
dómari 1942 og gegndi dómara-
starfi í 20 ár.
— Þér hafið allla tíð starfað
mikið fyrir ritið The Ieelandic-
Canadian.
— Já, við stofnuðum það rit
til þess að ná til æskunnar en
það gengur ekki nægilega nema
með því að nota enskuna, en þar
fyrir getur slíkt rit verið íslenzkt
í anda, og náð sínum góða til-
gangi, að treysta ætternis- og
menningarbönd og kynni íslend
inga beggja vegna hafsins, Ég
vil þakka Vísi, sem oft hefur
minnzt á þetta rit okkar og vak
ið á því athygli.
Ég vildi svo biðja Vísi, að
birta nokkur kveðjuorð frá okk-
ur, sem lýsa því hvernig okkur
er innanbrjósts, er við nú búum
st til heimferðar og blað yðar
biðjum við að skila hjartkærum
kveðjum til allra.
Lindal dómari bað þessa getið
sérstaklega: Vestur-íslendingam
ir, sem fara annaðkvöld á veg-
um Pan-American eru beðnir að
koma að Hótel Borg kl. 9,15 e.h.
en þeir, sem fara beint til Kefla
vfkur verða að vera komnir
þangað kl. 10,30. i
KVEÐJUORÐ
í Ijóðabréfi til vestur-íslenzka
skáldsins, Guttarms J. Guttorms-
sonar, kvað Örn skáld Arnar-
son á þessa leið:
„Þú siglir úr Vesturvegi
og vitjar þíns ættarlands
með forvitni ferðalangsins
og feginleik útlagans,
því ísland var ætfð þitt drauma
land
frá æsku í huga þér brennt.
Nú rís það úr draumahafs djúpi.
Og draumar og vaka er tvennt.
Þótt draumar okkar hafi ver
ið skýrir og ætíð vakið undrun,
er það okkur Vestur-íslending
um mjög ljóst, eftir nokkurra
vikna dvöl hér á íslandi, að
draumar og vaka eru ekki hið
sama. Nú höfum við litið nátt-
úrufcgurð íslands og séð í starf!
allra, þær óskiljanlegu fram-
farir sem eiga sér stað hér 1
Reykjavík og víðar, og hefui
hvort tveggja vakið undrun
mikla, en það, sem meir en nokk
uð annað hefur gripið okkur er
fólkið — hin íslenzka þjóð.
Nú vitum við að hinir ágætu
íslendingar, sem hafa komið til
okkar í Vesturheim, eru ekki
undantekningar, heldur erindrek
ar, sem spegla þjóðina eins og
hún er.
Nú hafa riraumar og vaka
sameinazt og það er myndin,
sem við tökum til baka í hjört-
um okkar og hún er ógleyman-
leg.
Valdimar Líndal.
Sænsku borgarfulltrúarnir.