Vísir - 06.07.1963, Page 9

Vísir - 06.07.1963, Page 9
V í S IR . Laugardagur 6. júlí 1963. ,V inátta og gagnkvæm virðing ein kennir andrúmsloftið hjá SÞ‘ „Bomm! Bomm! Upp með hendur!“ Indíáni og kúreki, báðir miða byss- um sínum og eru hinir vígalegustu. Þetta eru Brjánn og Brúsi eða Bri- an og Bruce, synir ívars Guðmundssonar, forstj. upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Pakistan og fyrrverandi fréttastjóra Morgunbl., er sá um hina vinsælu dálka „Víkverja“ um margra ára skeið. Þeir standa fyrir utan hús Þorvaldar Thoroddsen og varna öllum óviðkomandi inngöngu. Það þýðir ekkert að segja, að maður ætli að hafa fréttaviðtal við pabba þeirra — þeir skilja ekki svo undarlegt orð. Ne-hei, hér fer engiiwi inn nema með þeirra leyfi, og þeir eru vel vopnum búnir. En von bráðar staðnæmist bíll á götunni, og ívar hoppar út. „Strákar mfnir, ekki láta svona, verið þið nú þægir og góðir — ja, hvað haldið þið eiginlega, að hún mamma ykkar segði, ef hún sæi útganginn á ykkur?“ En það er stundum gaman, þegar mamma sér ekki til, og miklu hægara að óþekktast svo Iítið við pabba. ívar hastar á þá og heldur víst, að hann sé byrstur á svipinn, en þeir láta ekki blekkjast. „Ég skil ekkert í drengjunum", andvarpar hann og hristir höfuðið. „í Pakistan voru þeir mestu reglupiltar og fóru að hátta kl. 7 á hverju kvöldi. Hér ólátast þeir allan daginn og ekki nokkur leið að koma þeim í bælið á kvöldin". í sömu svifum kemur frú Ing- unn Thoroddsen eins og frelsandi engill, og stríðskapp amir spekjast. Hún kann á stráka, enda á hún hvorki meira né minna en fimm dóttursyni á ærslafyllsta aldrinum. „Þeir eru blessuð ljós, þegar pabbi þeirra er hvergi nærri“, segir hún og töfrar þá með sér inn f húsið. „En þegar hann kemur, þurfa þeir að sýna, hver ræður f fjöl- skyldunni!" Brjánn er 5 ára og Brúsi 4, og báðir eru þeir fæddir í Dan- mörku. En þeir eru þaulvanir ferðagarpar og kunna alls stað- ar vel við sig. „Hvernig er loftslagið f Pak- istan, ívar? Eruð þið ekki að soðna lifandi f hitanum þar?“ „Nei, nei, blessuð vertu. A. m. k. virðast Pakistanimir kvarta miklu meira yfir hitan- um en við. Ég kann ágætlega við loftslagið og líður prýðilega, þó að stundum verði nokkuð heitt". ' ,Og hvað er ,nokkuð heitt‘?“ „Ja, um og yfir 40 stig á Celsfus f skugganum. Maf, júnf og október era heitustu mánuð- irnir". „Það þætti nú sumum nóg. Hvernig gangið þið eiginlega til fara? í sundfötum?“ „1 hvftum léreftsflíkum og stuttbuxum. En það er alls stað ar loftkæling í íbúðarhúsunum og á skrifstofunum, svo að mað ur verður ekki svo mjög var við hitann". „Hvernig er með eiturslöng- ur, skordýr, flugur og það allt saman? Sofið þið ekki undir moskítóunetum?" „Nei, þess þarf ekki, af þvf að svefnherbergin eru loftkæld, svo að ekki þarf neitt að opna gluggana. En við höfum net fyr ir svölunúm og hurðum og gluggum. Satt að segja eru einu eiturkvikindin, sem ég hef séð í Pakistan, slöngurnar hjá temj urunum. Aðalbölvaldurinn þar um slóðir er malarían, en henni er verið að útrýma. Við tökum pillur, sem eiga að varna henni ög halda henni niðri, ef maður fær einhvern snert. Svo fær maður sprautur við öllum skrambanum nú til dags, eins og þú veizt. Það ar aðallega kúabólan, sem er landlæg í Pak- istan. Hollustuhættirnir gætu verið betri þarna, skal ég raunar viðurkenna". Tjú kannt vel við þig f land- ” inu?“ „Já, alveg ágætlega. Við er- um búin að vera þar tvö ár og vonumst til að verða 2 ár í við- bót. Ég hef ekki kunnað öllu betur við mig í nokkru öðru Ræít víð ívðr Guð- mundsson forstjóra upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Pakistan Bamfóstrustarfið hefur aldrei verið neitt grín! ívar með synina tvo, Brján og Brúsa. landi. Fólkið er indælt og elsku legt, og við eigum marga góð vini meðal Pakistana". „Tala ekki flestir ensku?“ „Jú, þ. e. a. s. menntað fólk. Annars er töluð úrdú í Vestur- Pakistan og bengalska f Austur Pakistan, en enska er nokkurs konar .lingua franca'. Auk þess erti aðalmállýzkurnar 46 talsins. Austur- og Vestur-Pakistan eru gerólíkar þjóðir, það eina sam eiginlega er trúin“. „Og hún er Islam, er það ekki?“ „Jú. Hún er þeirra sameining artákn". „Hefur fólk þarna austur fráV nokkra hugmynd um Island? Eða veit það kannske ekki, að til sé land með því nafni?" „Ja, það er tvennt, sem flestir vita eitthvað um, og það er Iandhelgisdeilan við Breta og svo Loftleiðir. Og fólkinu finnst merkilegt, að jafnfámenn þjóð og íslendingar haldi uppi sam- keppni á alþjóðamælikvarða og standi sig svona vel“. „JJvernig fellur þér starfið?" „Alveg prýðilega. Þetta er lifandi og Iærdómsríkt, nóg að gera, og maður kynnist mörg um hliðum á mönnum og mál- efnum“. „Hvað hefurðu unnið í mörg- um löndum?“ „Bíddu nú við — 4 ár í New York, 4 f Kaupmannahöfn, 2 í Pakistan, svo sem blaðafulltrúi hingað og þangað, t. d. í Sviss, Ítalíu og Egyptalandi. Ég er búinn að vera 12 ár í þessu". „Og í hverju er starfið aðal- lega fólgið?" „Að kynna tilgang og starf- semi Sameinuðu þjóðanna og gera almenningi skiljanlega þörf ina á þeirri starfsemi. Sumir halda, að hún felist mestmegnis f endalausu rifrildi og stjórn- máladeilum á allsherjarþinginu. en þó að sá þátturinn sé einna mest auglýstur og útbásúnaður í blöðum og útvarpi, er hann ekki nema lítill hluti af öllu sam an. Innan SÞ starfa margar sér- stofnanir að alls kyns mannúð- ar- og menningarmálum, t. d. Unesco, FAO, WHO, UPU og ýmsar aðrar, og það er hlutverk okkar f upplýsingaþjónustunni að veita fræðslu um starfsemi allra þessara greina, útbúa rit og bæklinga um hana, svara fyr irspumum o. s. frv.“. „Hvað myndirðu segja, að væri einkennandi fyrir andrúms loftið hjá SÞ?“ „Ja .. þetta er góð spurning, en henni er ekki auðsvarað. Ég held, að ég myndi segja, að það væri vinátta og gagnkvæm virðing. Mér finnst andrúmsloft ið mjög gott og þægilegt, og það er einmitt virðingin, sem menn sýna hver öðram, og vin- áttan milli þeirra, sem mér fell- ur svo vel. Eftir dálítinn tíma hjá SÞ gleymir maður alveg að hugsa um þjóðemi fólks, það skiptir engu máli lengur. Aldrei heyrist hnjátað í neinn fyrir þjóðemi hans eða litarhátt, allir eru jafnréttháir, og enginn grein armunur er gerður á einni þjóð og annarri. Enda er fólk alls staðar eins, þó að eitthvað kunni að vera ólíkt á yfirborð- inu: siðir, venjur og þess hátt- ar“. fjú tekur enga þjóð fram ”^ yfir aðra?“ „Nei, ég er svo heppinn að hitta gott fóik, hvar sem ég kem, og ég kann alls staðar vel við mig. Ja, annars .... jú, ég verð að viðurkenna, að mér þykir vænna um íslendinga en nokkra aðra þjóð. Hvað fólk ið getur verið gott við mann hérna heima! Hvað það man eft ir manni og er hlýlegt og vin- gjarnlegt. Betra fólk getur ekki verið til á jörðunni". „Þú ert þá ekki orðinn svo alþjóðlegur f hugsunarhætti, að þér finnist þú ekki lengur vera íslendingur?" „Nei, hamingjan góða, ekki aldeilis. íslendingur verð ég allt af, hvað sem öðru líður. Og þeg ar ég kem aftur heim og labba hér um borgina, finnst mér eins og ég hafi aldrei farið neitt burt. Um leið og ég er kominn til Reykjavíkur, er ég aftur orðinn sami götustrákurinn og í gamla daga!“ —SSB Gengur skár að f á menn á togara Þetta var svar Þorsteins Am- alds hjá Bæjarútgerð Reykja- víkur við fyrirspurn fréttamanns Vísis. Allir íslenzku togararnir eru nú á veiðum fyrir heimamark- að, að einum undanteknum. — Þeir eru á ýmsum miðum og uppistaðan í aflanum karfi. Flestir togaranna eru á heima miðum, nokkrir á miðum úti fyrir Austur-Grænlandi og fá- einir á miðum við Vestur-Græn- land. Aflinn er nokkuð misjafn, en sum skip fengið góðan afla. Þessir togarar hafa landað hér: Egill Skallagrímsson 189 1/7, Hvalfell 219 2/7, og í gær kom Ingólfur Amarson með full- fermí 260—270 tonn og Jón Þorláksson beið löndunar. Hann var með 210—220 tonn. Geir og Fylkir eru væntanlegir bráð- lega. Einn togari er á saltfiskveið- um. Er það Þormóður goði og er hann á veiðum við Vestur- Grænland og var búinn að fá 325 tonn fyrir nokkrum dögum Framh. á bls. 13 . . t

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.