Vísir - 06.07.1963, Page 16
ISIR
Laugardagur 6. júlí 1963.
Dorade farinn
Seyðisfirði í gærkveldi.
Brezki togarinn Dorade, sem
tekinn var fyrir rúmri viku í
Lónsbug fór i kvöld frá Seyðis-
firði eftir rúmlega 9 sólarhringa
dvöl þar.
Ástæðan fyrir þessari löngu dvöl
togarans er sú að tryggingarfé
fyrir sekt og afla og veiðarfærum
fékkst ekki greitt af hálfu eigenda
skipsins fyrr en kl. 8 í kvöld að
það barst. Á s ömu stundu bjóst
togarinn til að halda burt og var
í þann veginn að leggja frá landi
kl. 9 kvöld.
tekin / notkun
Feröamannastraumurinn til
lslands virðist fara stöðugt vax
andi, og eru það sífellt fleiri,
sem hingað flykkjast til þess að
skpða landið.
Vísir hafði f gær samband við
nokkur hótelanna, til þess að
fregna þar, hvernig aðsóknin
væri. Hótel Saga hefur tekið í
notkun eina hæð í viðbót, 7.
hæðina. Var hún opnuð 1. júlí,
og eru þar með öll hótelher-
bergin, 90 að tölu. komin f
notkun. 7. hæðin var tekin í
notkun á hádegi, og um kvöldið
var hvert einasta herbergi upp
tekið. Sömu sögu er að segja
um Hótel Borg og Hótel Garð.
Á Hótel Borg eru 46 herbergi,
og rúma þau 73. Herbergin eru
öll upptekin og mikið pantað.
Á Hótel Garði eru 88 her-
bergi, sem rúma um 160 manns.
Einnig þar er mikið pantað og
svo til fullt nú, meira en 80
prósent nýting. Það virðist hafa
verið um miðjan júnf, að fyrstu
hóparnir fóru að koma, og voru
Vestur-lslendingarnir meðal
Framh. á bls. 5
Lfkan af nýju sundlauginni f Laugardalnum.
Sunéhugin í Lnugardni
veriur tilbúin eftir tvö ár
Á næstunni verður Ieitað eftir
tilboðum í fullnaðarfrágang nýju
sundlaugarinnar á íþróttasvæðin;' 1
Laugardal. Er um að ræða s* /ti 4*
og fullkomnustu sundlaug lftnísirjs
með tilheyrandi áhorfendapöllum,
búningsherbergjum, böðum o. s. frv.
Eftir er að steypa botninn f laug
ina, sem er í tvennu lagi, ferhyrnd
laug, 50 metra löng 21 meter á
breidd og vaðlaug með bogadregn-
um línum, sem er fyrir börn. Alis
er laugin um 2000 fermetrar. Þá
verða einnig reistir yfirbyggðir á-
horfendapallar fyrir 2000 'manns f
sætum og munu þeir standa á húsi,
tveggja hæða. í kjallara hússins
Norræn
Dagana 4.—7. júlf stendur yfir
norræn póstmálaráðstefna f Reykja
vík. Mæta þar alls 19 fulltrúar frá
öllum Norðurlöndunum, þar af 5
frá Islandi.
Þátttakendur í póstmálaráðstefn-
unni eru:
Frá Danmörku: Gunnar Peder-
sen, póst- og símamálastjóri Arne
Krog, forstjóri, J. M. S. Andersen,
skrifstofustjóri.
Frá Finnlandi: Oiva Saloila,
póst. og símamálastjóri, Harras
Kolinen, forstjóri, Tauno Puol-
anne, forstjóri.
Frá Noregi: Karl Johannessen,
póstmálastjóri, William M. Sjö-
gren, forstjóri, Einar Döving,
skrifstofustjóri.
Frá Svfþjóð: Erik Swartling,
póstmálastjóri, Helge Jader, aðal-
forstjóri, Karl Axel Löfgren, for-
stjóri, Torbjörn Seiden, skrifstofu-
stjóri, Ture Nylund, fv. skrifstofu-
stjóri.
Frá íslandi: G. Briem, póst- og
símamálastjóri, Bragi Kristjánsson,
forstjóri rekstursdeildar, Páll Dan-
íelsson, forstjóri hagdéildar, Matt-
hías Guðmundsson, póstmeistari I
Reykjavík, Rafn Júlíusson, póst-
málafulltrúi.
Framh. á bls. 5.
Frá vinstri: Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri Karl Johannessen, póstmálastjóri Noregs, Gunnar
Pedersen, póst- og sfmamálastjóri Danmerkur Erik Swartling, póstmálastjóri Svíþjóðar Oiva Saloila, póst-
og sfmamálastjóri Finnlands.
verða vélar og hreinsitæki, á neðri
hæð böð og búningsklefar á efri
h»ð aðgöngumiðasala, sölubúð, og
? ay<riiherbergi.
Gert er ráð fyrir að gengið verði
endanlega frá sundlauginni og
byggingum innan tveggja ára. Rr
hér um hið glæsilegasta mannvirki
að ræða, teiknað á teiknistofu húsa
meistara Reykjavíkurborgar, Einars
Sveinssonar.
Veiddi kóp á færi
Seyðisfirði í gærkveldi.
Ellefu ára gömul telpa fékk kóp
á handfæri, þar sem hún var að
veiða við bryggju á Seyðisfirði í
gær.
Telpan var á bryggju söltunar-
stöðvar Haföldunnar á Seyðisfirði
og var að renna færi í sjóinn. Allt
í einu var bitið á, en „fiskurinn"
virtist óeðlilega þungur. Nærstadd-
ir fullorðnir menn komu telpunni
til hjálpar og brátt kom veiðin f
ijós, en það var lítill selskópur.
Mennimir náðu kópnum á land,
þar sem hann var ljósmyndaður
ásamt telpunni, en að þvf búnu
var hann látinn f sjóinn aftur og
gefið frelsi.
Gestir frá 3 heims-
álfum viiMývutn
Akureyri í gær.
Aðsókn að gistihúsunum við
Mývatn, Reykjahlíð og Reynihlíð,
hefur verið svo mikil undanfarið
að oft hefur orðið að koma gestum
fyrir á einkaheimilum f sveitinni.
Eru þó um eða yfir 80 rúm á
þessum tveim hótelum.
Auk þeirra sem gista f gisti-
húsunum eða á bæjum er fjöldi
fólks sem jafnan hefst við í tjöld-
um.
1 sumar hefur borizt fjöldi pant-
ana um gistingar, ekki aðeins frá
Evrópulöndum heldur og frá Ame-
ríku og meira að segja einnig frá
Ástralfu. Allt bendir til þess að að-
sókn að Mývatni hafi aldrei orðið
svipað þvf eins mikil og f sumar,
a. m. k. ekki hvað útlendinga
snertir.
Margir hinna útlendu gesta fara
í lengri eða skemmri ferðalög frá
Mývatni, enda hafa hótelin orðið
að útvega leiðsögumenn að stað-
aldri í ýmsar áttir, einkum þó að
öskju og eins niður með vestan-
verðri Jökulsá, um Dettifoss,
Hólmatungur og Hljóðakletta.
Framh. á bls 5
Klerkar
handteknir
■fr Yfir 20 hvftir og blakkir
klerkar voru handteknir í Balti-
more í gær, þeirra meðal bisk-
up frá New York. Þeir tóku
þátt í kröfugöngu og kröfðust
,jafnréttis blakkra. Alls voru 400
handteknir.
Týndi 43 þás. kr.
1 gærdag kom maður til lög-
reglunnar í Reykjavfk og var þá
nýbúinn að tapa bankaávísun, út-
fylltri, að upphæð rúmlega 43
þúsund krónur.
Manninum var að vonum ekki
rótt yfir þessu tapi sinu, en meiri
líkur þó til að frekar hafist upp á
ávísuninni eða minnsta kosti að
unnt verði að koma í veg fyrir
greiðslu hennar, heldur en ef mað-
urinn iiefði týnt bankaseðlum.
Ekki var vitað f gærkveldi til að
maðurinn hafi fundið hin týndu
verðmæti sín.
I