Vísir - 13.07.1963, Page 1
VISIR
53. árg. — Laugardagur 13. júlí 1963. 158 tbl.
Ný, ungfrú klukka1
Kl. 24 sl. nótt átti að tengja
nýja simaklukku. Ef ekkert reynist
athugavert mun framvegis heyrast
ný rödd „Ungfrú Klukku“, scm er
rödd frú Sigríðar Hagalfn leikkonu.
Vísir frétti af þessu og hringdi í
Bjarna Forberg, borgarsímstjóra.
Gamla símaklukkan er búin að
’j.þjóna Reykjavík og nágrenni síðan
il937 sagði Bjarni. Það, var frú
Halidóra Briem, sem talaði inn á
hana. Hún hefur fram til þessa
dags sent stanzlaust út tímamerki,
80 milljón talsins og svarað 38
milljón hringingum. Klukkan sem
stjórnaði útsendingunum var sænsk
að gerð. Tal Halldóru var tekið upp
á filmu.
Hin nýja klukka er þýzk en fylgi
tæki frá L. M. Ericsson. Upp-
lýsingar „Ungfrú Klukku“ eru tekn
ar upp á segulband hjá Ríkisútvarp
inu en greyptar í hljómplötu hjá
þýzkum aðila, Assman, Bad Hom
burg. Platan þarfnast endurnýjunar
annað hvert ár.
„Ungfrú Klukka" er ein vinsæl-
asta ungfrú borgarinnar, og er ekki
að efa að hún verður það áfram.
FLUGBÍ LLINN:
UppfínningamaSurinn starf'■
ar hjá HITA
V í S I R birti fyrir
skemmstu frétt þess efn
ir, að íslendingur hefði
fengið einkaleyfi í Banda
ríkjunum á „bifreið sem
flýgur“. Vakti frétt þessi
sem tekin var úr banda-
ríska tímaritinu Science
News Letter að vonum
mikla athygli.
í fyrirsögn tímaritsins um
flugbílinn var sagt, að hér væri
um bifreið að ræða, sem á
skjótri stund megi breyta i flug-
vél, og sé sama orka notuð til
þess að knýja bæði skrúfurnar
og hjól bifreiðarinnar. Uppfinn-
ingamaðurinn var í fréttinni
sagður Einar Einarsson og ætti
hann heima í Farmingdale, New
York ríki.
Framh. á bls. 5
.
Sigríður Hagalín.
biskupar í Skálho/ts-
kirkju við vígsluna 21. þ.m.
Sögulegur atburður er fram-
undan, vígsla hinnar nýju Skál
holtskirkju um aðra helgi, eða
sunnudaginn 21. þessa mánaðar.
Má búast við miklu fjölmenni í
Skálholti þann dag, ef ekki verð
ur því óhagstæðara veður, suni
ir gizka á 10—20 þúsund, aðrir
minna og enn aðrir meira. Bisk
Mikið brunatjón
aðHeiðargerðifíó
1 gær urðu mikiar bruna-
skemwdir á Iitlu ibúðarhúsi og
innanstokksmunum þess að Heið-
argerði 80.
Þetta er einnar hæðar hús með
lágu risi. t því býr ein kona og
var hún heima þegar eldurinn kom
upp.
Slökkviliðið var kvatt á vettvang
laust fyrir kl. hálffimm í gærdag,
og þegar það kom á staðinn var
mikill eldur í tveimur stofum í
norðurenda hússins. Þær voru
klæddar með trétexi og urðu
þarna verulegar skemmdir. Innrétt-
ingin brann að mestu og eyðilagð-
ist og allir innanstokkmunir sem
í sfofunni voru gjöreyðilögðust.
Aftur á móti tókst slökkviliðinu
að verja risið og suðurenda húss-
ins fyrir eldinum, en í þeim enda
var forstofa, eldhús og snyrtiher-
bergi og urðu þar engar eld-
skemmdir.
Óvíst var í gær um eldsupp-
tök, því i stofunum þar sem eldur-
inn kviknaði voru engin eldfæri
né hitunartæki af neinu tagi. Þar
var og enginn inni, og konan sem f
húsinu býr varð eldsins þá fyrst
vör er hún heyrði rúðurnar
springa i stofunum. Leikur helzt
grunur á að kviknað hafi f út frá
útvarpstæki.
Húseigandinn hefur orðið fyrir
tilfinnanlegu tjóni, ekki aðeins
vegna skemmda á húsinu heldur og
líka vegna þeirra verðmæta sem
i stofunum voru geymd.
upinn yfir Islandi, herra Sigur-
björn Einarsson, framkvæmir
vígsluna, en auk hans verða 8
biskupsvígðir menn við þessa
sögulegu athöfn og aðstoða við
vfgsluna. Það er fyrrverandi
biskup Islands, herra Ásmund-
ur Guðmundsson, vígsiubiskup-
arnir Bjarni Jónsson og Sigur'3-
ur Stefánsson, einn biskup frá
hverju hinna Norðurlandanna,
auk hins nývígða Færeyjabisk-
ups, og loks verður dr. Valdi-
mar J. Eylands, fulltrúi Vestur-
fslendinga, meðal vígsluvott-
anna. Dr. Páll ísólfsson leikur á
hið nýja pípuorgel Skálholts-
kirkju, dr. Róbert A. Ottósson
söngmálastjóri stýrir söng og
hefur æft sérstakan kór, er nefn
ist Skálholtskórinn. Að sjálfri
vígsluathöfninni lokinni, flytur
forsetj fslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, ávarp f kirkjunni, svo
og einn hinna erlendu biskupa
og Bjarni Benediktsson dóms-
málaráðherra, sem afhendir Þjóð ,
kirkju íslands Skálholtsstað til
eignar og umráða. Biskup ís-
lands flytur þakkarorð. Meðal |
gesta við vígsluna verða forseta-
hjónin, rikisstjórn, fulltrúar er-
lendra kirkna og sendiherrar,
prestar landsins og konur þeirra
og ýmsir aðrir. Kirkjan getur
Framh. á bls. 5
SkiSdu vélina eftir
vegna krapahríðar
Frá fréttaritara Vísis
á Húsavík.
Flugvél Sandgræðslu ríkisins,
sem notuð er til dreifingar á áburði
í Þingeyjarsýslu þessa dagana var
skilin eftir bundin við jörðu 1 landi
Þeistarreykja I fyrradag. Var ný-
lokið við að dreifa áburði á sand
græðslusvæði f landinu, þegar skall
á krapabylur og dimmviðri.
Fljúga átti flugvélinni á lítinn
flugvöll í Aðaldal, þegar veðrið/
skall á. Var þá ekki um annað að
ræða en skilja hana eftir og binda
niður. Flugmaðurinn hélt ásamt að-
stoðarmönnum sinum til Húsavík-
ur. Var þá komin öskrandi krapa-
hríð.
í gær fór hann svo og sótti vél-
ina og lenti henni á Aðaldals-flug-
vellinum. Þá hafði fennt yfir allar
slóðir. Síðan kom mikið dimm-
viðri svo að ekki sást nema upp að
fjallsrótum.
Talsverður rekís út af Horni
Allmikill ís sást í gær á reki upp
að Horni og Síðumúlabjargi, sem
er Húnaflóamegin við Hornbjarg.
Skipstjórninni á DfsarfeHi virtist
ísinn Iandfastur við Síðumúlabjarg.
Hins vegar kvað vitavörðurinn á
Horni ísinn vera á reki upp að
Iandi.
Skeyti skipstjórans á Dísarfelli
til Veðurstofunnar var á þá leið að
fjórar og hálfa sjómflu austur af
Horni vær; allþétt rekfsbelti, sem
lægi frá norðri til suðurs, og virt-
ist ná að Iandi við Smiðjuvfkur
bjarg, og eins langt norður og séð
varð. Beltið var talið um eina og
hálfa sjómílu á breidö en út frá
beltinu voru strjálir jakar á reki á
siglingaleið allt austur á móts við
Óðinsboða. Þetta skeyti var sent
klukkan 16,45.
En klukkan 13 barst Veðurstof-
unni skeyti frá vitaverðinum á
Horni er tilkynnti að ísinn væri
á reki aö ianriL