Vísir - 18.07.1963, Qupperneq 1
45 skip með afla
45 skip fengu samtals 16
þúsund tunnur af síld síðastlið-
inn sólarhring. Mest af því veidd
ist út af Gletting í Seyðisfjarð-
ardjúpi og fer síldin til söltunar
á Austfjarðahafnirnar. Ekki er
hún eins góð til söltunar og sú
sild sem veiðzt hefur undan-
farið, en saltað verður eins og
hægt er, til að nýta aflann sem
bezt.
Mikil síld hefur fundizt út af
Sléttu og þar eru átuskilyrði
hin ákjósanlegustu, en síldin
þar er stygg og aðeins örfá
skip fengu þar afla. Þau voru:
Hugrún 550, Hrafn Svein-
björnsson 100, Þórkatla 1200,
Ársæll Sigurðsson 200, Sæúlfur
200, Björgúlfur 600, Héðinn
1500, Guðbjörg 150, Keilir 500,
Framh. á bls. 5
FROST MÆLDIST HER
ÞRJÁR HÆTUR í RÖÐ
Fréttamenn Vísis heimsóttu
Skálholtsstað i vikunni og var
þá þessi mynd tekin ofan úr
kirkjuloftinu. Klukka sú er sést
á myndinni var gefin af Norð-
manninum Johann Faye fyrir
nokkrum árum. Faye keypti
hana f Noregi á sfnum tima,
og var honum þá sagt að klukk-
an væri frá íslandi. Það mun
vera rétt, en ekki er vitað úr
hvaða kirkju hún er. Er þetta
mjög merkileg miðaldaklukka,
talin vera frá 13. öld. Kirkju-
klukkur Skálholtsstaðar aðrar
eru gefnar af hinum ýmsu
Norðuriöndum eins og kunnugt
er.
Um seinustu helgi mældist frost
hér í bænum þrjár nætur í röð
og sá eftir þær nætur á kartöflu-
grasi hér inni við Elliðaár.
Þetta bar á góma, er tíðinda-
maður Vísis rabbaði við Jónas
Jakobsson veð.irfræðing í morgun,
í þeirri von að fá hjá honum fréttir
um hlýrra veður og skúri endrum
og eins fyrir þurra jörð, en Jónas
gat engu slíku lofað — kvað ekki
annað sjáanlegt eins og væri, en
að norðanáttin héldist og að
næstu dægur að minnsta kosti
yrði svalt og þurrt.
Þær þrjár nætur, sem um getur f
upphafi fréttarinnar, var frost milli
2-3 stig hér í bænum.
— Við höfðum vestanátt fram
til 6.-7. júlí .sagði J.J. og þá voru
hlýindi norðan lands og austan og
hiti komst þar suma dagana upp í
23 stig, á nokkrum stöðum, en mun
þó hafa komizt upp í næstum 25
stig einn daginn. Heitast var á Ak-
ureyri, Nautabúi og Egilsstöðum.
Upp úr 7. júlí bregður til norðan-
áttar og hefir verið látlaus norðan-
átt síðan ,ekki hvasst, en kalt,
þurrkur á Suðurlandi, en þó stund-
um skúrir síðdegis til fjalla. Brælu
samt var suma daga á Ströndum.
Á Norðurlandi hefir verið sérstak-
lega kalt síðan breytti til, einkan-
lega á annesjum. Hiti var ekki
nema 6-9 stig síðdegis, en ekki alla
dagana, og sumstaðar var hann
ekki nema 2-3 stig. Sumstaðar snjó-
aði í fjöll.
Ekki eru fregnir af neinum lægð-
um, sem munu hafa áhrif til neinn
ar verulegrar breytingar á veður-
farið á næstunni, og eins og stend
ur eru horfurnar þær, að norðanátt
verði áfram og veður svalt og
þurrt.
SKÁLHOLTSDAGSKRÁIN BBRT:
J(teniam helga Hemms sal" verður
sungiS uS lokinni vígslu kirkiunnur
Hún
hringir
íil
vígslu
sunnudags
□
VISIR
" . ..."
Frumsýnd á
laugardag
Kvikmynd sú um Hitaveitu
Reykjavíkur sem borgarstjórnin
hefur látið gera, verður frumsýnd
f Reykjavík á laugardag. Hefst
sýning klukkan 15.
Sama dag verður myndin einnig
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Moskvu.
]yú er loks hægt að birta end-
anlega dagskrá vígslu
Skálhoitskirkju en Skálaholts-
nefnd gerði hana heyrumkunna
í gær. Þungamiða hennar er
vfgslumessan sem hefst kl.
10.30 á sunnudagsmorguninn
að lokinni prósessfu biskups og
presta f kirkju. Þar flytur bisk-
up islands vfgsluræðuna og
vígir kirkjuna.
Þá flytur forseti íslands, Ás-
geir Ásgeirsson, ávarp og Bjarni
Benediktsson dómsmálaráð-
herra afhendir þjóðkirkjunni
Skálholtsstað.
Á nóni hefst almenn messa..
Hin ítarlega dagskrá var f
gær send öllum boðsgestum
sem verða í kirkjunni við
vígsluna. Mun mörgum leika
hugur á að heyra hvemig hún
er og birtir Vísir hana því hér
f heild f dag:
Kl. 9 og 9.30 Klukknahring-
ing
u
Kl. 9:50—10.10 Lúðraþytur úr
turni kirkjunnar
Kl. 10.00—10.10 Klukkna-
hringing.
KI. 10.10—1020 Lúðraþytur úr
turni kirkjunnar
Kl. 10.20—10.30 Klukkna-
hringing / Prósessía
Kl. 10.30 Kirkjuvfgsla hefst.
Sunginn Davíðssálmur og antí-
fóna úr Þorlákstíðum
Organforleikur: Bach, Prelú-
díum í Es-dúr
Bæn f kórdyrum
Kór: Sálmur nr. 612, „Ó,
maður, hvar er hlífðarskjól"
(íslenzk tóngerð)
Vígsluræða biskups
Kór: Sálmur nr. 414, „Kirkja
vors Guðs“
Vígsluvottar lesa ritningarorð
Biskup vfgir kirkjuna —
Faðir vor — Blessun
Kór: „Sálmur nr. 613, „1
þennan helga Herrans sal“
Framh. á bls. 5
VERKFRÆÐINGAR RAÐNIR A
GRUND VELLI KJARADÚMS
Blaðið í dag
Sfða 3. Fossvogssjúkra
húsið nýja.
— 4. Með tæknina heim f
hlaðvarpann.
— 7. Nýr atvinnuvegur:
flskeldi í sjó á Snæ-
fellsnesi.
— 9. Kvatt dyra f „aldin-
garðlnum Eden“.
Ýmsar rfkisstofnanir, svo sem
Vegamálaskrifstofan, Raforku-
málaskrifstofan og Landssfminn,
hafa auglýst f Lögbirtingablað-
inu og dagblöðum, að þær óski
eftir að fastráða allmarga verk-
fræðinga ,en verkfræðingar eiga
nú f verkfalli sem kunnugt er.
Það er vitað mál að þeir verk-
fræðingar, sem sækja um þessar
stöður, eiga ekki kost á hærri
launum en kjaradómur gerir ráð
fyrir þeim til handa. Jafnframt
er þegar vitað að ýmsir verk-
fræðingar ætla að sækja um þær
stöður sem auglýstar hafa ver-
ið og lúta þannig dómi Kjara-
dóms eins og aðrir rfkisstarfs-
menn, sem er auðvitað sjálfsagt
mál. Umsóknarfrestur um em-
bætti verkfræðinga hjá sumum
ríkisstofnunum, sem auglýst
hafa, er útrimninn 23. þ. m., en
hjá öðrúm 5. ágúst.