Vísir - 18.07.1963, Blaðsíða 9
V í S IR . Fimmtudagur 18. júlí 1963.
„Ég er alveg að gefast
upp á því að fara með
konuna í ökuferð austur
fyrir fjall því um leið og
við komum í Hveragerði
byrjar hún að kaupa
blóm. Og hún hættir
ekki fyrr en búið er að
fylla aftursætið af blóm-
um og tæma budduna
mína. Síðan verður að
halda beint í bæinn, til
þess að blessuð blómin
skemmist ekki“. — Þann
ig fórust einum eigin-
manninum orð, þegar
við hittum hann fyrir
utan gróðrarstöðina Ed-
en í Hveragerði, þar sem
hann beið þess að frúin
lyki blómakaupunum.
Þetta er ekkert einsdæmi, þvf
þeir eru orðnir án efa nokkuð
margir eiginmennimir, sem eiga
við svipaða erfiðleika að strfða,
og enn verra eiga þeir, sem eru
sendir einhvern laugardaginn
eða sunnudaginn austur f Hvera
gerði, gagngert til þess að
kaupa fallegt stofublóm handa
frúnni.
ADAM OG EVA.
Gárungarnir kalla þau Adam
og Evu, því þau eiga og reka
gróðrarstöðina Eden, sem stað-
sett er við þjóðbrautina við
Hveragerði. Réttnefni þeirra eru
Bragi Einarsson, garðyrkjumað-
„Adam og Eva í Eden“ eru þau oftast kölluð, en réttnefni þeirra eru Dúa Bjömsdóttir og Bragi Einarsson. (Ljósm. Vísis: B. G.)
Tannhvöss tengdamamma
55
ur að mennt, og Dúa Bjöms-
dóttir. Um hverja helgi má sjá
stóra röð bifreiða fyrir utan
Eden, og inni í skálanum e^ t,
ávallt stór hópur ferðafólks að
skoða blómin þeirra, og fæstir
geta yfirgefið staðinn án þess
að kaupa falleg blóm.
Dag einn fyrir skömmu skrupp
um við austur og ræddum við
þau Braga og Dúu um gróðrar-
stöðina þeirra og þann fjölda
fólks, sem heimsækir þau.
ðiv isnssni
1300 FERM.
GRÓÐRARSTÖÐ.
— Hvað er Jangt síðan þú
byrjaðir með þessa gróðrarstöð,
Bragi?
■— Það var fyrir fimm ámm,
að við byrjuðum hérna með
gróðrarstöð. Við völdum henni
nafnið Eden, því það er stutt og
gott að muna það, og eru mjög
margir útlendingar hrifnir af
'nafninu. »• ;>i - 1
,!Stöðih var ekki stór í fyrstu,
en við höfum smátt og smátt
stsikVað ‘ stöðina, og í dag eru
1300 fbiín. undir gleri. 700 ferm.
eigum við sjálf, en hitt leigjum
við.
— Og viðskiptin hafa auldzt
mikið?
— Okkur er óhætt að segja,
að viðskiptin hafi tvöfaldazt á
hverju ári. En þetta er fremur
stuttur tími á ári, sem veruleg
umferð er hérna. Hingað kemur
fólk sumar helgarnar svo þús-
undum skiptir. Þó nokkur fjöldi
kemur hingáð aðeins til þess
Framh. á bla. 10.
Veiðimennimir eru meöal beztu viðskiptavina okkar“, segja þau hjónin. A myndrnni em nokkrlr
veiðimenn að kaupa blóm í Eden áður en þeir fara í bæinn.
Ein starfsstúikan í Eden, Guðný Gunnarsdóttir, við bananaplöntu.
selst alltaf vel“
Á