Vísir - 18.07.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 18.07.1963, Blaðsíða 10
1C V í S IR . Fimmtudagur 18. júlí 1963. ' '—l"' ■rmmnvn* JBBHmilfl BIFREIÐASALAN Slmar 1025 og 12640 Dýrir, ódýrir, nýir, gamlir. RÖST hefur þá alla til sölu. í dag og næstu daga seljum við: Wolsby ’63, Wolvo ’58. glæsilegur bíll, Ford Zoliac '58, Ford Prefeckt '55, Commer sendibifreið, Chevrolet ’54, Pick-up gerð, og Moskwitsch ’59. Vi8 bendum viðskiptavinum okkar á að með því að láta bifreiðina vera til sýnis hjá okkur, er salan sem tryggð. HÖ$T S.F. Laugavegi 146 — Símar 1102-5 op 12640 Vauxhall Victor ’57, ^ord '51, góður 8 cyl., beinskiptur. Skipti á eldri bfl. NSL) Prinz ’62. Austin 7 ’62 ekinn 15 pús. Ford Prefect 56. skipti á 6 manna. Commer Cob ’63. 130 þús. staðgreitt. HHfi' Sodiak ’55, 75 þús. Fiat bOC '62, 75 þús Staðgreitt. Scoda St. ’61. Skipti á eldri. Viðskiptin beinast ávallt þangað sem þjónustan er bezt. Gjörið svo vel að hafa samband við okkur strax. 23900 - SÍMI - 23900 Bílasala Matthíasar VW ’62, gott verð. — Opel Record, ’58—’63 — Opel Caravan ’59—62 — Chevrolet ’59 á góðu verði — Chevrolet ‘55 og ’56, góðir bílar — Commer Cob ’63 Taunus ’58 og ’59 — Moskwitch ’59 — Ckoda St. ’61. Einnig tnikið úrval af vörubílum, sendiferða- og jeppabflum. BÍLLINN ER HJÁ OKKUR. BIFREIÐASALA MATTHÍASAR, Höfðatúni 2 Simi 24540. „Tengdamamma Frh at bls 9: að skoða. Hingað eru allir vel- komnir, hvort sem þeir koma eingöngu til þess að verzla eða skoða. — Hverjir eru beztu viðskipta vinirnir? — Það er lítill vafi á því, að það eru veiðimennimir, sem eru á leið f bæinn. Við getum f mörg um tilfellum séð, hvort þeir hafi veitt vel eða illa, því eftir því sem þeir hafa veitt ver, því meira kaupa þeir af blómum. Mér er það t. d. minnisstætt, að fyrir nokkuð löngu síðan, þegar að kaktusar voru ekki komnir í tízku, kom hingað veiðimaður, sem gengið hafði illa og keypti hjá okkur fimm kaktusa. Ég öf- unda manninn ekkert af þeim viðtökum, sem hann hefur fe>ig- ið þegar hann kom heim. BETRA vrr A BLÓMUM. — Höfum við fslendingar al- mennt ekki ósköp lítið vit á blómum? — Þekking almennings á blóm um er alltaf að aukast og það er alltaf að færast í vöxt, að fólk gefi blóm og prýði hfbýli sfn með þeim. — Nú eru blóm rándýr? — Nei, alls ekki f dag. Hugs- um okkur t. d. að þið ætlið að gefa afmælisgjöf fyrir 100 kr. Þið fengiuð engan hlut fyrir þetta verð, sem þið gætuð gefið án þess að skammast ykkar fyr- ir. En aftur á móti gætuð þið fengið snotran blómvönd fyrir 100 krónur, sem er góð og gild afmælisgjöf. — Er mikið um það, að hús- mæður drepi blóm af dekri, ef svo mætti orða það? — Já, það eru alltaf nokkur brögð að því. Margar húsmæður vökva blómin allt of mikið, enn aðrar eru til, sem alltaf eru með blómin á ferðinni úr einum glugganum í annan, síðan toga þær þau og teygja og þannig mætti lengi telja. — Hvað vekur mesta furðu útlendinga, sem sækja þig heim? — Á sumrin er hingað stöð- ugur straumur útlendinga, senni lega koma hingað 70—80% af öllum útlendingum, sem dvelja eitthvað á Islandi. Margir þeirra eru undrandi yfir því, að við ræktum inni í húsi blóm, sem vaxa f garðinum hjá þeim eða jafnvel villt. ★ * Rauðu bókinni, leyniskýrslum SlA, segja komm- únistar frá hinni hörðu valdabaráttu, sem stöðugt geis- ar innan flokks þeirra. ★ I Rauðu bókinni, leyniskýrslum SlA, lýsa komm- únistar ástandinu i kommúnistarikjunum — þeim þjóð- félagsháttum, sem þeir vilja koma á hér á landi. ★ Aðeins hluti skýrslnanna hefur áður birzt. ★ Nákvæm nafnaskrá fylglr bókinni. ★ Lesið Rtuðu bókina, og þér munuð skilja, hvers vegna Einar Olgeirsson krafðist þess að leyniskýrsl- urnar yrðu brenndar. ★ Rauða bókin er 275 bls., en kostar aðeins 92.70 kr. Bókin fæst hjá bóksölum um land allt. VEL BLÓMSTRANDI BLÓM VINSÆLUST. — Hvaða blóm eru vinsælust? — Það er eins með blóma- ræktina og margt annað, sumar blómategundirnar eru í tízku og þá mikið keyptar á tímabili, en svo fjarar það út. En öll vel blómstrandi blóm eru alltaf mikið keypt og svo græn- ar plöntur. Sennilega eru rós- imar númer eitt í dag. Sum bióm renna út fyrir það, hvað nöfnin eru sniðug, t. d. selst Tannhvöss tengdamamma alltaf vel. — Eru þess mörg dæmi að fólk geri sér ferð austur ein- göngu til þess að kaupa blóm? — Já, það held ég nú. Þó nokkuð margir koma hingað austur aðeins til bess að skoða eða kaupa blóm. Stundum kem- ur bað fyrir, að frúin sendir eiginmanninn einan hingað til okkar og segir honum að kaupa eitthvert fallegt blóm og þá þurfum við oft að aðstoða þá við að velja. Sumir gera það af skömm sinni að kaupa gúrkur, til þess að verða ekki sendir til blómakaupa aftur. — Er ekki óhemju mikil sam- keppni milli ykkar garðyrkju- bændanna hérna í Hveragerði? — Að mínu áliti er samkeppni alltaf góð, ef hún er innan vissra takmarka. Og það er ekki hægt að segja annað en það sé töluverð samkeppni hérna á staðnum. — Ekki svo mikil að þið grýt- ið tómötum eða sláizt með gúrk um? — Nei, svo hörð er hún ekki. Þetta er mestallt rólegt og frið- samt fólk, sem býr hér í Hvera- gerði. — Og þú ert bjartsýnn á fram tíð garðyrkjunnar? — Já, hvað blómin snertir, þá erum við íslendingar alltaf að iæra að meta betur blóm og öll- um hlutum fleygir áfram, jafnt garðyrkju sem öðru. Samtalið verður ekki lengra, því nokkrir veiðimenn, sem veitt hafa illa, eru komnir inn í Eden, og það er mikið að gera við af- greiðslu. — p. sv. HeimdulSur — Framtiaid al Bls 6 líta á sem það verkefni, sem sitja skuli í fyrirrúmi fyrir öllu öðru. Þegar kemur hins vegar að fjöldaframleiðslu hinna almenn- ari og nauðsynlegri hluta, fellur hið gífurlega sovézka skipulag í parta. LAUGAVEGI 90-02 Salan er örugg hjó okkur Charles Gregory, New York sem til ailrar óhamingju var tekinn fastur sem vínsmyglari, var dæmdur í 50.000 króna sekt. Það gat: hann auðvitað ekki borgað. Hann þurfti þó ekki að sitja sektina af sér — því hann var settur í að safna 1070 ölflösk- um, sem ti! trafala fyrir um- ferðina bafði verið bent víðs- vegar á vegina. — Þokkalegt starf það. * í hvað ljósi skyldi Leslie Caron, leikkonan fræga sjá á- horfendur sína — áhorfendur sem eru fúsir til að greiða allt að 30 pund fyrir frumsýningar- miðana? Eins og ketti sennilega. Þann ig lýsir hún þeim a. m. k. í málverki sem hún hefur málað fyrir sýningu, „hinna eitt hundruð stjama“, þ. e. mál- verkasýning sem éitt hundrað frægir kai-lar og konur sýna málverk sem þau hafa gert, og er sýningin til eflingar Ieiklist I Englandi. Málverk Caron verður á for- sfðu „prógrams“ sýningarinn- ar. Manngerðirnar í málverki hennar má vel merkja, allt frá senumanninum, til slúðurdálka fréttaritaranna. Engin á að móðgast, segir Carol, „kettir eru yndisleg lítil kríli“. Hún er talin efnilegur málari, sérstaklega í olfulitum. Myndina mun hún hafa gert, á ferð sinni til Ameríku, þar sem hún var við upptöku myndarinnar „The L-Shaped Room“. Oft er talað um hættuna á því að hin villtu dýr í Afríku útrýmist, deyi út — en stund- um getur það verið öfugt. Nú hefur t. d. stjómin í Uganda þurft að talra þá á- kvöröun, að drepa þurfi þús- undir flóðhesta á þessu ári. Þar í Iandi vakti það almenna ánægju, þegar „Garður Eliza- betar drottningar“ var afmark- aður við hátíðlega athöfn, því í þeim garði fengu flóðhcst- amir griðastað. En á skömmum tíma fór svo, að hestunum fjölgaði svo mjög að þeir hafa nú gjörsamlega nýtt alla beitu og offjölgunin er slík, að aðrir dýrastofnar em í hættu. En jafnframt þvi, sem stjórn in f Uganda gefur úr fyrirskip- anir um fækkun flóðhesta, hyggst hún hafa gott af því f áðra röndina. Kjöt þeirra cr nefnilega mjög gómsætt og fellur vel f smekk Evrópubúa. Líður vart á löngu þar til hvert sæmilegt veitingahús telur sóma að því að hafa flóðhesta- kjöt á boðstólum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.