Vísir - 30.07.1963, Page 3
V í S I R . Þriðjudagur 30. júlí 1963,
Systumar Helga og Hulda Valtýsdætur og eiginmenn þeirra, Bjöm
Thors og Gunnar Hansson, bjóða gesti velkomna á sýninguna, —
(Ljósm. Edvard Sigurgeirsson).
Á StNINGU KRISTÍNAR
Á sunnudaginn var opnuð sýn
ing á síðustu málverkum Kristín
ar Jónsdóttur á Akureyri. Eru
það dætur hennar, frúrnar Helga
og Hulda Valtýsdætur, sem til
sýningarinnar hafa stofnað, en
svipuð sýning var haldin hér í
borg í október í fyrra.
Sýningin norðanfjaila var opn
uð í viðurvist allmargra gesta.
Opnaði frú Helga Valtýsdóttir
sýninguna með stuttri ræðu og
minntist listakonunnar, móður
sinnar. Gat frú Helga þess að
þannig vildi til að fimmtudag-
inn 1. ágúst ætti afi þeirra
systra, Stefán Stefánsson skóla
meistari aldarafmæli. 1 því til-
efni vildu þær systur færa
Menntaskólanum á Akureyri eitt
málverkanna að gjöf, olíumynd-
ina Fjárrekstur.
Þórarinn Björnsson skóla-
meistari þakkaði með nokkrum
orðum fyrir hönd Menntaskól-
ans.
Þetta er góð gjöf í sjálfu sér,
sagði hann og hún verður feg-
urðar og minningarauki f skól-
anuni, eins og alSt sem frá
Stefáni skólameistara kom. Mér
er ánægja að taka við lista-
verkinu og þá ekki sizt vegna
þess að gjöfin er tengd nafni
Stefáns Stefánssonar. Hann á
einn ríkastan þátt í þvf sem skól
inn hefur orðið. Tré sem Stefán
skólameistari gróðursetti við
skólann eru enn að gróa. Og
fræin, sem hann sáði í hinn ís-
lenzka menningarakur eru enn
að dafna. Vottaði skólameistari
fyrirrennara sínum í starfj síðan
virðingu og þökk.
Á sýningu Kristínar í Gilda-
skálanum eru 19 málverk, lands
lags og blómamyndir. Sýningin
verður opin fram yfir næstu
helgi.
Þórarinn Bjömsson skólameistari þakkar frú Helgu Valtýsdóttur gjöf systranna til Menntaskólans.
Akureyringar skoða sýninguna.
Systir hstakonunnar, frú Jónína Schram, og Helga og Hulda Val-
týsdætur.