Vísir - 30.07.1963, Síða 5
V í SIR . Þriðjudagur 30. júli 1963.
5
75 ára i dag:
Dr. Jón Dúason
í dag er 75 ára Jón Norðmann
Dúason, víðkunnur maður fyrir rit
sín um Grænland.
Hann er fæddur að Langhúsum
I Fljótum. Hann varð stúdent 1913
og cand. polit í Kaupmannahöfn
1919. Hann varð dr. juris við há-
skólann í Osló 1928 fyrir doktors-
S&dpulig —
Framhald af bis. 16.
u~ • strandlengju Oddeyrar, sem er
gii ‘gusvæði.
Gatnakerfið, aðkoma að hinum
þremur hlutum hans og staðsetn-
ingu bllastæða, er mjög athyglis-
verð, en gönguleiðir milli þeirra
yfirleitt óþarflega langar.
Eigi eru gerðar fyllingar sunnan
Oddevrar eins og ætlazt er til I
skilmálunum, heldur grafið út
svæði til að gefa strandlengjunni
hið sérstaka lag.
Höfundur hefur lagt á þetta það
ríka áherzlu að hafnarsvæðj og
hafnarmannvirkium innan Oddevr
ar er alltof þröngur stakkur snið-
inn.
1 tillögunni er gerð ítarleg grein
fyrir miðbæiarþörfinni og þróun
bæiarins. Akandi umferð er vel
aðgreind frá göngusvæðum, sem
þó eru vlðáttumeiri en góðu hófi
gegnir.
Tillagan hefur fagurt svipmót og
samrœmist vel núverandi byggð
og strandlengju, að svo miklu Ieyti
sem ráðið verður af uppdrættum.en
jafnframt er dómnefndinni ljóst.
að tillagan er mjög óraunhæf hvað
snertir hafnarmannvirki, uppfyll-
ingar o.fl.
í almennum athugasemdum dóm
nefndar segir: Fram hafa komið
margar athyglisverðar hugmyndir
að endurbyggingu og stækkun mið
bæjarkiarnans, ásamt umferðaræð-
um og hafnarmannvirkium, en dóm
nefndin er þeirrar skoðunar að eng
in einstök tillaga í heild geti ó-
breytt myndað grundvöll að endan
legri skipulagningu samkeppnis-
svæðisins.
Leiðrétting
Það er Gunnlaugur Pálsson, en
ekki Halldórsson, sem sæti á í dóm
nefnd um skipulag miðbæjar Ak-
ureyrar, og greint var frá hér í
blaðinu í gær.
Dr. Jón Dúason.
ritgerð sína um „Grönlands retts-
stilling i middelalderen". Um Græn
land samdi hann mörg rit, og mergð
tímarita- og blaðagreina skrifaði
hann um Grænland og rétt ísiend-
inga til Grænlands, er birtust í er-
lendum og innlendum blöðum og
tímaritum.
Jón Dúason dvelst nú á Vífils-
stöðum og munu vinir hans og aðr-
ir, sem kynni hafa af áhuga hans
og starfi, senda honum góðar óskir
í tilefni afmælisins. — A. Th.
Svartaþoka á
síldarmiðum
Síldaraflinn nam aðeins 7.200
tunnum undangenginn sólarhring.
Svarta þoka var komin á síldar-
miðin í morgun, að þvi er Vísi var
tjáð, er hann hringdi upp Rauf-
arhöfn, og veiðihorfur litlar sem
engar, nema veður batni.
Til Raufarhafnar var aðeins von
á m.b. Jóni Jónssynj með 900 tn.
Islendingar gefn í jurí-
skjálftasöfnunina
Rauði Kross íslands hefir
beint þeirri ósk til dagblaðanna
að þau veiti viðtöku gjöfum er
berast munu til hjálpar fólki er
bágstatt er vegna jarðskjálftans
í Skoplje í Makedóníu. Rauði
kross íslands hefur eins og R.K.
félög allra landa fengið beiðni
frá höfuðstöðvum í Genf um
hjálp til hins bágstadda fólks
enda mun hjálpin berast víðsveg
ar að úr heiminum.
Endanlegar upplýsingar um
tjón á mannslífum og eignum
eru enn ekki fyrir hendi, en auð
sætt er að geysimikið fé þarf
til uppbyggingar hinnar hrundu
borgar fyrir hið allslausa fólk.
Rauði kross allra landa beitir
sér fyrir aðstoð við aðþrengda
fólkið í Skoplje. íslendingar
hafa jafnvel haft sóma að þátt-
töku í slíkum söfnunum á veg-
um Rauða krossins.
Vísj er ljúft að verða við
þessari ósk Rauða krossins. —
Verður tekið á móti framlögum
á afgreiðslu Vísis, Ingólfsstræti
200 norsk síldvei
SeyðisfirSi um helgiisa
Um 200 norsk síldveiðiskip voru
inni á Seyðisfirði um helgina og
voru þau að tínast út í morgun,
þegar blaðið átti tal við fréttaritara
sinn þar.
Hann kvað stöðugt vera saltað
af miklu kappi.
Kjörbúð.
Fréttaritarinn sagði, að kjörbúð
hefði verið opnuð á Siglufirði í
nýju húsi, og væri búðin stór og
öllu vel og smekklega fyrir komið.
Eigandi hennar er Filippus Sigurðs-
son.
Neitað um
mjólkurkaup.
i ÞæSrrfurðuIega hefir skeð, að
hontím hefir nú verið synjað um
mjólkurkaup frá mjólkurbúinu á
Egilsstöðum, en hann hefir áður
fengið mjólk hjá því. Hann hefir
að vísu mjólk frá eigin búi og
nokkrum bændum í nágrenninu, en
það dugir hvergi nærri til að full-
nægja eftirspurn, þar sem margir
bátar er skipti eiga við verzlun
hans, vilja fá mjólk líka. — Ekk-
ert liggur neitt fyrir um það hvers
vegna verzluninni hefir verið neit-
að um mjó'lkurkaup I mjólkurbú-
inu, og er mjólk þaðan nú aðeins
seld í Ilaupfélaginu.
Ágætt héraðsmót Sjálf-
stæðismanna að Hellu
Hið árlega héraðsmót Sjálf-
stæðismanna í Rangárvallasýsiu
var haldið að Heliu s.l. laugardag.
Var mótið vel sótt og hið ánægju-
íslendingar 183
þúsund talsins
Hagstofan hefir gefið út
skýrslu um mannfjöldann á ís-
landi samkvæmt síðustu tölum.
Eru þær miðaðar við 1. des.
1962. Þá var heiidarfjöidinn
183.478.
í Reykjavík voru 74.978 manns
búsettir, í kaupstöðum lands-
ins, að höfuðborginni frádreg-
inni, bjuggu 48.972. 1 sveitum
landsins og kauptúnum bjuggu
59.528.
Stærsti bærinn utan Reykja-
víkur er Akureyri. Þar bjuggu
9.152. í Kópavogi bjuggu 7.163
ogfHafnarfirði 7.490.
legasta eins og ávailt áður, enda
vel til þess vandað. Sótti það fÓIk
viðsvegar að úr sýslunni.
Mótið setti Lárus Ág. Gíslason,
hreppstjóri, Miðhúsum, og stjóm-
aði því síðan.
Dagskráin hófst með einsöng
Guðmundar Guðjónssonar, óperu-
söngvara, en undirleik annaðist
Skúli Halldórsson pfanóleikari.
Þá flutti Ragnar Jónsson, skrif-
stofustjóri, ræðu. Síðan söng Guð-
mundur Guðjónsson öðru sinni.
Þessu næst flutti Steinþór Gests-
son, bóndi að Hæli ræðu.
Að lokinni ræðu Steinþórs var
gamanþáttur, er þeir fluttu leik-
ararnir Árni Tryggvason og Klem-
enz Jónsson.
Var ræðumönnum og listamönn-
unum mjög vel fagnað.
Lauk síðan þessari samkomu
með því að stiginn var dans fram
eftir nóttu.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
FERÐIZTJ VOLKSWAGEN