Vísir - 30.07.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 30.07.1963, Blaðsíða 10
V í S IR . Þriðjudagur 30. júlí 1963. ur vi< Ríkharður Jónsson myndskeri er maður hagur á marga hluti og ekki einungis tré og járn. Hann er einnig vel hagmæltur, þótt færri viti. Hér birtast nokk- ur kvæði eftir Ríkharð, sem hann hefir ort til vinar sins kempunnar Þorsteins Kjarvals. Hefur klifið hamrafjöll að Hamarsfjarðar stæltu tindum. Vaðið fljót og mjúka mjöll meyjar kysst hjá fjallalindum. Hamrabelti Hamarsfjarðar helgan æskureit. Aldrei leit ég ofan jarðar yndislegri sveit. Þar úr hömrum hárra fjalla hendist lausagrjót. Það er ei fyrir alla karla að egna lausagrjót. Þér ég færi þakkarkveðju þakka tryggð og andans gim. Hlaut ég þá í happakeðju hákarlslimi og fróðleiksbrim. Máttur þinn og meginjarðar mögnuðust við brim og grjót. Hamarsbelti Hamrafjarðar hertu þína lund og fót. Enn er frjáls og fagur söngur framsögn þín og rómurinn. Farðu enn í fjallagöngur frái, knái vinur minn. Heiðursmaður hátræður hefur löngum stefnt til fjalla. Enn að klífa áttræður upp á landsins hæstu skalla. Það er meir en þoran raun það er eins og tröllið sagði, að það mundi ekki baun óttast Guð að fyrra bragði. Þorsteinn S. Kjarval, fjalla- kóngur, fimm árum betur átt- ræður 4. marz 1963. — Ort yfir myndljóðabók Þorsteins. Út úr hömrum Hamarsfjarðar heilladísin ljúfa sté. Manndóms fylltar megingjarðar manni ungum lét í té. Færði ún honum hákarlslimi hangikjöt og andans sprútt leiddi hann í logni og brimi lagði eld í sálarkrútt. Síðan engum öðrum manni yrkja lét hún þvílík ljóð. Né heldur af neinum manni njörfa slíkan myndasjóð. Upp á landsins efstu tinda öruggustu leið fann hún, leiddi gegnum vos og vinda vininn upp á hæstu brún. Vinarkveðja frá Ríkharði úr Hálsþinghá. LAUGAVE6I 90-02 Salan er örugg hjú okkur FRAMKÖLIUM * # KOPIIRUM Stórar myndir á Afga pappír. Póstscndum. Fljót og góð afgreiðsla. Ein mynd lýsir meiru en hundrað orð. TÝLI HF. Austurstræti 20. Simi 14566. ISíu caf hverjum fíu ■ Framh. af 8. síðu gönguleiða og fjarskiptamögu- leika yrði næsta lítið um at- hafnir á þeim vettvangi. — í rauninni mætti endalaust benda á ný verkefni, sem verð- skulda fjárhagsaðstoð, segir Heppling. Landið skortir nálega alia hluti, næstum allt nema sterkan vilja til framfara. Það hefur verið mín jákvæða og eftirminnilegasta reynsla á þessu ári að kynnast stálvilja fólksins til að bæta lífskjör sín. Þessi vilji er ekki einungis fyrir hendi hjá takmörkuðum hópi manna í æðstu embættum, held- ur líka hjá almúganum. GERTÆK BYLTING. — í Afganistan á sér nú stað- gertæk bylting, segir Heppling ennfremur. Hún nær inn á öll svið mannlífsins. Afganistan hefur jafnan verið landbúnaðar- land — sauðfjárræktin þar er fræg fyrir hinar ágætu karakúl- gærur — en nú er líka að rísa þar iðnaður. Til sementsfram- leiðslu hefur Afganistan hrá- efni, sem gerir hina fullkomnu vöru samkeppnishæfa í heims- markaðnum, en framleiðslan fullnægir aðeins innanlandsþörf- um enn sem komið er. Þá er þar einnig klæðaiðnaður, og ein af klæðaverksmiðjunum í Afgan- istan er líklega sú nýtízkuleg- asta sinnar tegundar I gervallri Asfu. Ennfremur er farið að nýta hina miklu og óvenjulega góðu ávaxta-uppskeru til iðnað- ar. liORRIS 1100 Enn er ekki vitað með vissu, hvað leynist í jarðvegi Afgan- istans. Með rússneskri aðstoð hefur '-fundizt mikið magn af náttúrugasi í jörðinni. Nú er verið að leita að olíu. Margir eru sannfærðir um, að þessar auðlindir séu fyrir hendi og menn vonast líka til að finm dýra málma í fjöllunum,-' ‘Segi: Sixten Heppling að lokum. «®r' ... cl IR Siniinr^ SIGU*GSs . . CFLUR Ri, . ' ^P^seiuR e/M °A Volvo 444 ’55 kr. 75 þús útb. Volvo 544 ’6I 150 þús. útb. IVIercc ’es Benz ’54 samkomul. VW ’63 nýr bíll, vill skipta á Opel Caravan ’62. Opel Record ’58. selst gegn góðu fasteigna- tryggðu bréfi til tveggja ára. Scoda Comoi ’63, keyrður 2000 km. kr. 125 þús. VW ’62, fallegur bíll. Plymouth ’58. selst gegn vel tryggðu fast- eignabréfi Bifreiðasýn- ing í dag. Tilboð óskast í Rambler Station, 4 dyra, keyrður rösk 31 þús. km. Billinn er fil sýnis á staðnum. BIFREIÐASALAN BORGARTÚNI 1 Símar 18085 og 19615. íerr&nia Næturvarzla vikunnar 27. júlí til 3. ágúst er í Vesturbæjar Apóteki. Næturlæknir í Hafnarfirði vik- una 20.—27. júlí er Jón Jóhann- esson. Neyðarlæknir — sími 11510 — frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga nema Iaugardaga. Kópavogsapótek er opið alla virka daga kl. 9,15-8, laugardaga frá kl. 9,15-4.. helgidaga frá kl. 1-4 e.h. Sími 23100. Holtsapótek, Garðsapótek og Apótek Keflavíkur eru opin alla virka daga kl. 9-7 laugardaga frá kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni er opin allan sólar- hringinn, næturlæknir á sama stað klukkan 18—8. Sími 15030. Slökkviliðið og sjúkrabifreiðin, sími 11100. Lögreglan, sími 11166. Sjúkrabifreiðin Hafnarfirði, — sími 51336. 19.55 Afrts News Extra 20.00 The ,Real Mc Coys 20.30 The U.S. Stell Hour 21.30 Stump The Stars 22.00 Steve Canyon 22.30 To Thell The Truth 22.55 Afrts Final Edition News 23.00 Lawrence Welk Dance Party Söfnin # Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er opið alla daga í júlí og ágúst nema laugardaga frá kl. 1,30 til 4. Listasafn Einars Jónssonar er opið daglega frá kl. 1,30 til kl. 3,30. Tæknibókasafn IMSl er opið alla virka daga nema Iaugardaga kl. 13—19. Ctvarpið 762? (L Þriðjudagur 30. júlí. Fastir liðir eins og venjulega. 20.00 Tónleikar í útvarpssal. 20.20 Frá Japan, III. erindi: í Kyoto, borg hofa og hátíða halda(Kjartan Jóhannsson verkfræðingur). 20.50 Kórsöngur: Lögreglukór Reykjavíkur syngur. 21.10 Þýtt og endursagt: Henry Ford, forvígismaður vélaald ar (Baldur Pálmason). 21.30 Samleikur á píanó. 21.45 íþróttir (Sigurður Sigurðs- son). 22.10 Lög unga fölksins (Guðný Aðalsteinsdóttir). 23.00 Dagskrárlok. o • * • Sjonvarpio Þriðjudagur 30. júlí. 17.00 Forntiers Of Knowledge 17.30 Championship Bridge 18.00 Afrts News 18.15 The Merv Griffin Show 19.00 Exploring ftPIB CQKNH»5t»’ Láttu ekki svona Bergur. Til hvers heldur þú að við höfum farið hingað, ef ekki til þess að hlusta á þriðjudagsþáttinn í næði. Kaffitár ... og nú eru þeir meira að segja búnir að koma sér upp þessum fínu frystitækjum, þarna í veiðimannabústaðnum. Hann Jói minn kom bara með tvo gadd frosna laxa heim úr síðustu feið- inni þangað upp eftir... sá rússneski, þegar hann taldi Friðrik einn af fimm beztu skák- snillingunum — en vel að merkja, utan Rússlands ... Tóbaks- korn ... nú kjósa þeir ungfrú Alheim og næst verður það ungfrú Himna ríki og ungfrú Hinnstaðurinn ... því ekki það! ER FYRIRLIGGJANDI Þ. ÞORGRÍMSSON & CO. Suðurlandsbraut 6 f ilmur Eina sneib. .. það mætti segja mér, að það ætti eftir að koma á daginn, að þetta ósamkomulag á milli Rússa og Kínverja væri bara brella ... samantekin ráð hjá þeim til að fá þá, Kennedy og brezku steits- mennina til að hlaupa á sig og ganga að öllum samningum í þeirri von að Krúsjeff væri að snúast og gerast hátt upp í það heimsvaldasinni.. hann hefur á- reiðanlega vitað hvað hann söng Bl'óðum flett „Hvorki má hreppstjóri líða nokkurri manneskju, sem ekki hef ur síns rétta sýslumanns passa upp á umferð innan sýslu að flakka um hreppinn og betla, né heldur má hann dirfast að gefa nokkrum leyfi þar til...“ Hreppstjórnarinstrúx, 47. gr. 4. maí, 1872. D

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.