Vísir - 23.08.1963, Síða 5
VlSIR . Föstudaginn 23. ágúst 1963.
5
\
Menntaskéli —
Framh aí 1. síðu
en það eru slíkar stofur sem
verða í byggingunni, sem menn
hafa verið að sprengja og grafa
fyrir í vor og sumar.
Það, sem að ofan greinir,
kom fram í viðtalinu við rektor,
sagði hann ennfremur:
— Það eru ýmsar orsakir fyr-
ir því, að framkvæmdir við hina
nýju byggingu, sem reisa á, hafa
tafizt. í fyrsta lagi tók lengri
tíma en búizt var við að ná
samningum um nauðsynlegar
lóðir og ganga frá þeim, f öðru
lagi hefir vinna við grunninn
tafizt sökum þess hve mikið hef
ir þurft að sprengja, og í þriðja
lagi veldur mannekla við þessar
framkvæmdir sem margar aðrar
nokkrum töfum.
— í þessari byggingu verða
sér kennslustofur?
— Já, í sér-kennslustofunum
þar verður kennd náttúrufræði,
efna- og eðlisfræði, og tungu-
málakennsla á einnig að fara þar
fram. Allt sem varðar tilhögun
og útbúnað á slíkum stofum
kynntum við okkur í Norður-
landaferðinni ,eins og ég vék að
áður.
— Hve margir nemendur
bætast við í haust og hvernig
hugsið þið ykkur að ráða fram
úr kennsluerfiðleikunum á vetri
komanda?
— Nemendum í Menntaskól-
anum fjölgar um 50-100 á ári
og nemendur á vetri komanda
munu verða nálega 900. Við
mikla erfiðleika varðandi kennsl
na verður að etja eins og verið
hefir og öllu meiri eins og skilj-
ánlegt er eftir þvf sem nemend
um fjölgar. Við verðum að
þrengja enn meira að okkur og
við höfum Þrúðvang, gamla Tón
listarskólann eins og í fyrravet-
Ur, og fleira er til athugunar og
hefir verið síðan í vetur.
— Hvað líður undirbúningi að
því að reisa nýjan menntaskóla.
— Næsta skrefið er að reisa
nýjan menntaskóia, sem á að
rísa upp í Hlíðunum. Unnið er
að athugunum og undirbúningi
málsins. Ég vil geta þess, að í
borgum í menningarlöndum,
borgum á stærð við Reykjavík,
er talin þörf fyrir 2-3 mennta-
skóla, og fyrir þeim þörfum
séð. Og að þessu marki er
stefnt hér.
OSiuhreinsun —
Framhald >jf bls. 1.
að verður hvar unnt sé að kaupa
óunna olíu, jarðolíu, á hag-
stæðu verði, en fullvfst er talið
að það sé mögulegt, Olfufélagið
bandaríska hefur lýst sig reiðu-
búið til að gerast hluthafi í fé-
lagi sem stofnað yrði um olíu-
hreinsunarstöðina, og selja Is-
Iendingum hlutabréf sín að
nokkrum árum Iiðnum, þannig
að hún verði alíslenzkt fyrir-
tæki.
Það mun taka um tvö ár að
reisa oliuhreinsunarstöðina,
verði af framkvæmdum. Hún á
að geta fullnægt þörfum okkar
í allmörg ár og sparað stórar
upphæðir í erlendum gjaldeyri.
Hagnaður er talinn geta orðið
nægilega mikill til að hægt
verði að greiða 10—15% arð.
Með því skapast möguleikar til
að hún verði vinsælt almenn-
ingshlutafélag. Og það er ein-
mitt ætlunin að safna fé til
byggingar stöðvarinnar með
hlutabréfasölu til almennings
auk þess sem fyrirtækjum lands
ins standa hlutabréfin einnig til
boða. Olíufélögin fslenzku
munu örugglega gerast hluthaf-
ar, en þau munu sjá um dreif-
ingu olfunnar, eins og verið
hefur.
Iþréttir —
Framhald af bls. 16.
ingar munu fara á laugardag og
hvíla sig fyrir norðan yfir nótt-
ina og hafa mikinn viðbúnað.
Klappliðin eru einnig vel und
irbúin og er ekki að vita nema
Akureyringar dreifi fjölrituðum
hvatningarorðum meðal áhorf-
enda, eins og þeir hafa áður
gert, þegar þeir hafa undirbúið
orusturnar við KR-inga:
Norðanstrákar — stærri spörk,
styttri sanileik — fleiri mörk.
Héðan úr Reykjavík munu
KR-ingar og aðrir knattspyrnu-
unnendur fjölmenna. Tugir
einkabifreiða halda norður á
föstudag og laugardag, áætlun-
arferðum verður fjölgað og Flug
félagið efnir til aukaferða með
sérstökum kjörum. Heyrzt hef-
ur qg um menn, sem hyggjast
leigja sér minni flugvélar og
fljúga norður á sunnudaginn, í
þeim tilgangi einum að sjá leik-
inn. Þegar reiknað er með á-
horfendum úr nærsveitum Akur
eyrar eins og áður, þá er ekki
ólíklegt að á vellinum á Akur-
eyri verði á fimmta þúsund
manns. Er það mikil aðsókn í
ekki stærri bæ.
Hver sem endalokin verða,
hvort leikurinn verður jafn og
spennandi, eða yfirburðir af
annars hálfu, þá er eitt víst:
Það verður barizt á vellinum á
Akureyri á sunnudag.
Réðherrafundur —
Framhald af bls. 1
sen, sem kemur í stað félags-
málaráðherrans kom ekki fyrr
en í gær og hafði flugvél hans
einnig seinkað.
Kl. 9.30 á miðvikudagsmorg-
un hófst dagskráin og var þá
ekið til Þingvalla og síðar um
daginn var lagt upp á Kaldadal
og ekið að Bifröst um kvöldið.
I gærmorgun kl. 9.30 hófst
fundurinn og stóð hann til kl.
6.30 í gærkvöld.
Á fundinum í gær var rætt
um tryggingu tekna á meðan á
veikindum stendur og hafði
Guðjón Hansen fram framsögu,
hvenær borgarar skuli fá rétt til
ellilifeyris og hafði þar fram-
sögu Ottar Lund frá Noregi,
verkþjálfun fullorðins fólks og
hafði þar framsögu G. R. Coln
frá Danmörku og að lokum
ýmis vandamál varðandi heim-
ili og íbúðir aldraðs fólks.
í morgun kl. 9.30 hófst fund-
ur aftur og átti að slfta honum
á hádegi í dag. Mættu -til fund-
ar fulltrúar félagsmálanefndar
Norðurlandaráðs og ræddu þar
við fundarmenn ýmis sameigin-
Ieg mál.
Fréttamenn Vísis brugðu sér
upp að Bifröst í gær og er þá
bar að garði var fundarhlé og
fundarmenn voru ýmist á gangi
eða sátu fyrir sunnan húsið
* enda var veðrið dásamlegt, sól-
skin og blíða. Dáðust hinir er-
Iendu fulltrúar mjög að staðn-
um og umhverfinu og einnig
hafði þeim þótt mjög tilkomu-
mikið að aka Kaldadal daginn
áður. í gærkvöld óku fundar-
menn um nágrenni Bifrastar og
skoðuðu þá m. a. Laxfoss.
Sænsku fulltrúarnir sem til ís-
lands komu á undan hinum
höfðu þegar skoðað Gullfoss og
Geysi og ætla þeir að dveljast
hér á landi fram yfir helgi og
fara til Akureyrar og Mývatns.
Hefur svikið —
Framhald af bls. 16.
til baka og afla sér þannig
skotsilfurs, auk varningsins sem
hann tók út.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Vísir fékk hjá Ingólfi Þor-
steinssyni, er enn ekki vitað hve
heildarupphæðin er mikil sem
maðurinn hefur á þennan hátt
svikið út. Alls mun hann hafa
gefið út 16 ávísanir af þeim 25
sem tékkheftinu eru. En þær
hafa ekki allar borizt í hendur
lögreglunnar ennþá. Hún hefur
samt náð í margar þeirra og af
þeim er engin undir 2 þús. kr.
en sumar allmiklu hærri. Það
er því Ijóst að maðurinn hefir
svikið út vörur og peninga sem
nema nokkrum tugum þúsunda
króna að verðmæti. Að öðru
leyti kvaðst Ingólfur ekki geta
sagt frekar um mál þetta þar
sem rannsókn í málinu er enn
á frumstigi.
Vísir innti Ingólf Þorsteinsson
ennfremur eftir því hvort Sig-
urður nokkur Arnbjörnsson, er
lögreglunni er kunnur fyrir ým-
iskonar pretti og svik, væri að
nýju undir smásjá lögreglunnar
fyrir samskonar athæfi og Sig-
urður hefur áður verið sakfelld-
ur fyrir.
Ingólfur staðfesti að Sigurður
hafi verið kærður fyrir að
svíkja út nokkur armbandsúr á
Sauðárkróki, en að öðru leyti
kvaðst hann verjast allra frétta
um hann, þvf Sigurður hefur
ekki verið handtekinn né yfir-
heyrður hér f Reykjavík og þar
af leiðandi ekkert geta um mál
hans sagt.
UndraBand —
Framhald af bls. 16.
til að gera úr því einskonar
undraland.
1 garðinum er m.a. lítil tjörn,
sem silungar eru í og hefur fjöl
skyldan gaman af þvf að sjá
fiskana sprikla í vatninu. Þá er
þar gosbrunnur og skemmtileg-
ar gangstéttir úr hraunhellum
og göngubrú.
Myndin, sem hér birtist, var
tekin í morgun f þessum verð-
launagarði. Á henni sést hús-
freyjan Guðmunda Guðbjarts-
dóttir og dóttir þeirra hjóna,'
Sigurlaug Ásgeirsdóttir.
Þau hjónin fóru að vinna að
garðinum fyrir fimm árum. Þau
hafa sjálf skipulagt hann og
unnið allt í honum. Trén í hon-
um eru enn lág, en mikið blóma
skrúð f hrauribollunum.
Gerhardsen
Framnald at bls. 1.
sem eftir væru á mælendaskrá,
um 40 þingmenn, fengju aðeins
10 mínútur til umráða hver, en
að auki hafa 20 þingmemn beð-
ið um tvær mínútur hver og má
jafnvel vænta þess, að úrslit í
atkvæðagreiðslunni verði kunn
fyrir miðnætti, eftir norskum
tíma eða fyrir kl. 10 eftir ísl.
tíma.
Yfirleitt er búizt við, að ný
stjóm, sem borgaraflokkarnir að
líkindum mynda, muni verða
skammlíf, og Finn Gustavsen,
formaður Socialska þjóðarflokks
ins, en stjórn Gerhardsens mun
falla á þeim tveimur atkvæðum
sem flokkurinn ræður yfir, að
því er horfir, — Iýstj yfir því
í gpsr, að hann myndi nota
fyrsta tækifæri sem gefst til
þess að fella borgaralega stjórn,
jafnvel á morgun.
S'ildarbingur œn
Framhald af bls. 16.
einnig veidd ineð öðrum þjóð-
um. Þeir benda og á það, að
dýptarmælar sýni gífurlegt síld-
armagn í sjónum.
Bátarnir streyma til Faxaf.hafna
með síldina, þar sem móttöku-
skilyrði eru lítil sem engin í
Vesi,mannaeyjum. í Hafnarfirði
hefur meira að segja orðið að
grípa til þess ráðs að aka síld-
inni í mikinn bing á tún
skammt fyrir sunnan Hafnar-
fjörð. Sést þessi mikli bingur
hér á myndinni, þar sem hann
breiðir úr sér i sólinni.
Þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför föður okkar og tengdaföður,
AUÐUNS AUÐUNSSONAR.
Vigfús Auðunsson.
Karl Auðunsson og fjölskyldur.
Alltaf fj ölgar
Áður en þér kaupið bíl, þá
Hið lága varahlutaverð
VOLKSWAGEN
er þegar landsþekkt
kynnið yður hvort varahlut-
ir fást og hvað þeir kosta
Tökum á móti pöntunum
til afgreiðslu í september
Komið og skoðið árg. 1964
H E K L A , Laugavegi
Nýju bflarnir, árgerð 1964, til sýnis að Laugaveg 170-172