Vísir - 23.08.1963, Qupperneq 7
V1SIR . Föstudaginn 23. ágúst 1963.
Greinar um byggingarmál, birtar í samvinnu
við Byggingaþjónustu Arkitektafélags íslands.
HÚS í TílKNINGU
Margar gryfjur verða á leið
þess, sem hefur í hyggju að
koma þaki yfir sig og sína. Skipt
ir þá ekki máli hvort hann bygg-
ir sjálfur eða kaupir það sem
aðrir hafa Iátið byggja. Það er
því ekki úr vegi að benda á
nokkrar af þessum gryfjum ef
vera mætti að færri féllu f þær
en hingað til. Og ber þá fyrst
að nefna þá gryfjuna, sem fæst-
ir sjá og falla í, en það er illa
skipulögð og illa nýtt íbúð og
þar með bruðl í húsrými og
fjármunum. Að skipuleggja íbúð
ina vel með tilliti til nýtingar,
er sama og að spara tugi þús-
unda i byggingarkostnaði auk
þess sem íbúðin verður hag-
kvæmari til þess viðburðaríka
lífs, sem fjölskyldan lifir þar,
ár eftir ár.
jþað er einkennandi fyrir íbúð-
ir hérlendis að þær eru að
meðaltali mun stærri en íbúðir
í nágrannalöndum okkar. Hugs-
anleg skýring er að hér sé um
lakari nýtingu, skipulagningu í-
búðarinnar að ræða en erlend-
is. Um þetta er þó ekki gott
að fullyrða, því hér hefur ekki
farið fram skipuleg, vísindaleg
rannsókn á híbýlum og híbýla-
háttum, en það er nauðsynlegt
að gera sér fulla grein fyrir
þessu atriði.
TTitt má vera hverjum manni
ljóst að það er hægt að
ganga svo frá einni fbúð að
nýting sé minni en eðlilegt er
og frá' herbergi, einu eða fleiri,
að nýting þeirra verði sáralítil,
miðað við það blutverk sem
herberginu var ætlað. Það kost-
ar nákvæma athugun, mikla
vinnu og þekkingu að vinna
verkið svo að vel sé. Það er
hlutverk arkitektsins, en í
nánu samráði við óskir þess
sem hann teiknar og byggir
fyrir. Arkitektinn á að vera
hlutlaus ráðgjafi.
jLTjá þeim sem ætlar að byggja
* vakna margar spurningar.
Á að byggja eina eða tvær
hæðir? Með eða án kjallara?
Hvernig á að staðsetja húsið á
lóðinni, þannig að hún nýtist
sem bezt? Eiga svefnherbergi að
snúa í norður? Eða einhverja
aðra átt? Hvar á að staðsetja
eldhús með tilliti til sólarinnar?
Hvernig væri að hafa afdrep
fyrir tómstundastarf? í hvaða
stíl á húsið að vera? Sumum
spurningunum svarar arkitek-
inn frá sérfræðilegri þekkingu
sinni einni saman. Öðrum spurn
ingum verður ekki svarað nema
hann hafi kynnt sér óskir og
þarfir húsbyggjandans til hins
ýtrasta. Húsbyggjandinn þarf í
rauninni ekkert að vita um
byggingar, en hann verður að
þekkja sjálfan sig og þarfir sín-
ar og óskir, þegar að því kemur
að rætt verður um húsið. Og
arkitektinn og viðskiptavinurinn
verða að skapa kunningsskap
sín í milli, sem gerir arkitektin-
um mögulegt að leggja raun-
sætt mat á þarfir og óskir við-
skiptavinarins.
Tjekktur bandarískur arkitekt
hefur látið svo ummælt að
hann vildi helzt geta búið um
tíma hjá viðskiptavininum til að
kynnast lífsvenjum og skoðun-
veg og gróðúrmöguleika og ó-
tal margt fleira.
Hlutverk íbúðar
Kröfur þær, sem fbúðin þarf
að uppfylla eru sumpart al-
menns eðlis, t. d. hvað snertir
hvíld, máltíðir og sumpart frem-
ur tæknilegs eðlis, t. d. það
sauma á daginn auk hvíldar á
nóttinni.
Ljóst er að þarfir þessar gera
kröfur til þess að herbergið sé
rétt mótað, að lengd og breidd
séu vel nýtt, einkum þegar her-
bergisstærð er mjög takmörkuð.
Nýting herbergis er aldrei háð
stærð þess heldur þeim mögu-
leikum sem það gefur til niður-
röðunar húsgagna. Þar- ræður
form herbergis, lengd, breidd
og hæð, staðsetning glugga,
hurða o. s. frv. Niðurröðun hús-
gagna verður að geta verið
þannig að herbergið verði vist-
legt og auðvelt að þrffa það.
Cérhver bygging eða fbúð, jafn-
° vel herbergi er listaverk, en
mismunandi góð listaverk, eins
og gengur og gerist. Hinn list-
ræni þáttur eq ekki síður mik-
ilvægur en góð nýting. Vel
skipulagt hús er listaverk en
það verður ekki sagt um illa
skipulagt hús. Hið listræna fer
ekki eftir kostnaði byggingar-
innar. Þvf einfaldari sem bygg-
ingin er þeim mun betri og
Fyrirmyndarhús eftir arkitektana Jörgen Bo og Vilhelm Wohlert. Þetta 'er mjög vandað einbýlishús,
efnisval og handverk er frábært.
um hans og fjölskyldunnar.
Arkitektinn þarf að afla sér
upplýsinga um stærð fjölskyld-
unnar, ef um slíkt er að ræða,
aldur einstakra meðlima, sér-
þarfir hvers og eins og sameigin
legar þarfir, heilsufar getur
skipt máli, fjárhagslega getu
hsbyggjandans auk þess seni
hann kannar hvað lóðin eða
byggingarstaðurinn hefur upp á
að bjóða, t. d. útsýni, næstu
hús og götur, sól, lándslag, jarð
sem snertir matreiðslu og
þvotta. íbúðin kann iafnvel að
þurfa að vera vinnustaður fyr-
irvinnunnar.
"í stærri íbúðum er yfireitt hægt
að ætla einstökum þáttum
þessa hlutverks sín sérstöku
svæði af gólfhetinum, sérstök
herbergi. I öðrum tilfellum
verða herbergin að þjóna meir
en einu hlutverki. Stundum e
t. d. svefnherbergið notað ' ti'
fegurri. Þess vegna er listræn
bygging ekki endilega dýrari
en sú sem er lakari að list-
listrænu gildi.
i
IVÍ"argir telja að okkur hafi
farið aftur í listrænu mati
okkar á byggingum. Torfbæ-
irnir, afsprengi langrar reynslu
voru mikil list í einfaldleik sín-
un. Þrátt fyrir það fólust í gerð
þeirra lausnir á margvísleguni
aunhæfum vandamálum að þvi
er snertir kröfur þeirra sem í
þeim urðu að búa. Og það er
einmitt vandinn að geta byggt
byggingu sem hvort tveggja 1
senn fullnægir óskum og þörf-
um byggjenda og er gerð á Iist-
rænan hátt.
jyjenn hafa það sér til afsök-
unar að nú eru efnin fleiri,
og alltaf bætast ný og ný efni
við. Áður genþekktu menn efn-
ið sem bfbýlin voru gerð úr.
Nú er þessu öðru vísi varið.
.En eftir því sem þekking og
skilningur á þessu atriði er
meiri því fegurri hfbýli.
Nú er rétt að drepa lauslega
á þær kröfur, sem gera verður
til íbúðar. Einstökum þáttum
verða síðar gerð nánari skil.
Svefn
^p^skilegast er að hver fjöl-
skyldumeðlimur hafi eigið
svefnherbergi. Aldrei ættu þó
að vera fleiri en tveir um sama
svefnherbergið, utan foreldra
með hvftvoðung. Börn eldri en
12 ára og af ólíku kyni verða
að fá sitt hvort herbergið.
Borðhald
Á að snæða í eldhúsi, sér-
stakri borðstofu eða dagstofu?
Hvað húsmóðurina snertir er til
þægindaauka að ætla matborði
rými í eldhúsi. Æskilegt er að
matborðshlutinn sé svo stór að
hann geti verið fyrir börn að
leik á daginn. Þröngur
borðkrókur er alltaf hvimleið
lausn. En rétt þykir þrátt fyrir
þetta að geta staðsett matborð
í stofu, til hátíðarbrigða, ef
borðstofa er engin, eða mjög
lítil.
Tómstundir
T íbúðinni verður að vera rúm-
góð og vistleg stofa þar
sem fjölskyldan getur safnazt
saman, blandað geði og
tekið á móti vinum og kunningj-
um. Æskilegast er að sérstakri
tómstundaiðju einstakra með-
lima fjölskyldunnar sé ætlaður
ákveðinn staður t. d. þegar um
smíðar, ijósmyndagerð og annað
þess háttar er að ræða, sem á
ekki heima innan um annað.
Leikir
Mikilvægt er að íbúðin sé
skipulögð með tilliti til þess að
börnin hafi eitthvað leiksvæði
fyrir sig og kunningja sína. Stór
borðstofa gæti verið lausn, eða
eigið herbergi barnanna, ef stórt
er, jafnvel dagstofa íbúðarinnar.
Lestur og skriftir
Ckólabörn og námsfólk þurfa
^ næði, það verður bezt skap
að með því að þau hafi eigið
herbergi. En sameigirilegt borð,
skrifborð er æskilegt t. d. í
stofu, vel lýst, helzt hliðarljós
frá vinstri.
Framhald á bls. 10.
Kvik-
mynda-
sýning
Kvikmyndasýning fyrir ai-
menning verður n. k. miðviku-
dagskvöld 28. ágúst í húsakynn
um Byggingarþjónustunnar
Laugaveg 18A og hefst hún kl.
20.30. Sýndar verða kvikmyndir
um ýmsar byggingaraðferðir í
nágrannalöndum okkar. Aðgang
ur er ókeypis.