Vísir - 23.08.1963, Page 8

Vísir - 23.08.1963, Page 8
VÍSIR . Föstudaginn 23. ágúst 1963 í? Útgetandr. BÍáðaútgáfan VISIR Ritstjöri: G.innar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Askriftargjald er 65 krónur á mánuði. í lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur) Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f Tíðindi úr Noregi Míkil tíðindi gerast nú í stjórnmálalífi frænda okkar Norðmanna. Norska stjórnin mun nú láta af völdum eftir 28 ára stjórnartímabil jafnaðarmanna. Orsök vantraustsins er námaslysið á Svalbarða, sem kunnugt 'er, en hitt dylst ekki að þar er að nokkru um yfirvarp að ræða- Stjórnarandstaðan hefur notað slys- ið sem hentugt árásarefni á stjómina, þótt annað og víðtækara búi undir. Undir stjórn jafnaðarmanna hafa orðið miklar framfarir í landinu og stjóm þeirra hefur notiö óvanalegs trausts. Það er tvímælalaust vegna þess að hún hefir ekki stjómað eftir forskrift sósíalismans, eins og í upphafi var þó til stofnað, heldur reynzt umbótasinnuð borgarastjóm. Þar í liggur lykillinn að hinum langa valdatíma jafnaðarmanna í Noregi. Hafa þeir farið svipaða slóð að þessu leyti og fokksbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum. Foringi hægrimanna, John Lyng, mun væntanlega mynda hina nýju stjórn. Fá þá hægri menn og bor- araflokkarnir tækifæri til þess að koma hugmyndum sínum í framkvæmd eftir þriggja áratuga dvöl í eyði- mörkinni. Utanríkisstefnan mun verða mjög svipuð, en margt ber á milli í innanlandsmálunum. En hin nýja stjóm hefir lík í lestinni- Það eru lærisveinar Ragnars Frisch, hálfkommúnistamir tveir sem réðu falli stjórnar Gerhardsen, fulltrúar Socialisk Folke- parti. Þeir hafa örlög hinnar nýju stjómar í hendi sér og því er hætt við að framtíð stjómarinnar verði örð- ug og stjórnartími hennar skammur. En stjómarskiptin eru engur að síður mikilvæg hausthreingerning í norskum stjómmálum. Það er óheilbrigt að einn flokkur fari áratugum saman með völdin og það skapar óhjákvæmilega spillingu og stöðnun. Því munu margir Norðmenn fagna nýrri stjóm, þótt fæstir telji hana líklega til langlífis. Hvalfjörður Hún varð skammlíf, Hvalfjarðarsprengingin stjóm- arandstöðunnar. Skynsemin sýndi kommúnistum og framsóknarmönnum fram á að ekki þýddi að telja þjóðinni trú um að stofna ætti kafbátahöfn á Miðsandi. En lærdómsrík voru viðbrögð Framsóknarflokksins í upphafi moldviðrisins. Hann telur sig styðja Atlants- hafsbandalagið, en þegar á ríður þýtur hann í fang kommúnista. Það sýnir hve heilindin eru mikil í þeim herbúðum og hver hugur fylgir máli hjá sumum for- ystumönnum flokksins í vestrænni samvinnu. BANDARfKIN ÓLÍK ÞVÍ SEM MAÐUR SÉR í BÍÓ Það eru nokkuð margir ís- lenzkir unglingar sem á ári hverju fara til annarra landa, aðallega Bandarikjanna og Bretiands, til þess að stunda nám og kynnast öðrum þjóðum en sinni eigin, eða bara til þcss aö Ieika sér. Nokkur hluti þess- ara unglinga er jafnan á veg- um þjóðkirkjunnar, eða Ameri- can Field Service. Fyrir skömmu kom hingað frá Bandaríkjunum hópur ung- linga, sem hafði dvalizt þar um eins árs skeið við nám í banda- rískum skólum. Einn hinna ungu manna, sem í förinni voru, vár Sfmon Kjærnested, sonur Guðmundar Kjærnested skip- herra á t»ór og Margrétar konu hans. Símon stundaði nám við Iýðháskólann í Bangor og bjó — á meðan á dvöl hans stóð — á heimili bandarískra hjóna. Fréttamaður Vísis hafði tal af Sfmoni skömmu eftir að hann kom heim og spurði með- al annars: — Hvemig samræmdist um- hverfið þeim hugmyndum sem þú hafðir gert þér um það, áður en þú fórst utan? — Það samræmdist ekkert sérstakiega vel. Ég komst fljótt að raun um að ég var tiltölulega fáfróður um lifnaðarhætti og annað slíkt. Þær hugmyndir sem ég hafði gert mér, voru að mestu mótaðar af kvikmyndum og bókum, sem ég hafði lesið. Og daglegt líf er harla ólíkt því, sem þar er dregið upp. — Hvernig gekk þér að kynn- ast amerísku krökkunum? — Það gekk mjög vel. Það er yfirleitt mikið fljótlegra að kynnast þeim en íslenzkum jafnöldrum þeirra, en hins vegar held ég að ekki sé eins mikið um varanlega vináttu. En aðeins tveimur dögum eftir að ég kom, var ég búinn að eignast nokkra ágæta vini, og búið að bjóða mér að gerast meðlimur í nokkurs konar skólafélagi sem þeir höfðu, og nefndist Young Men’s Christian Association. Mér finnst nú trúlegt að forvitni hafi ráðið þar nokkru um. Pabbi og mamma — Hvernig féll þér við fólk- ið sem þú bjóst hjá? — Mjög vel. Þau voru í sann- leika dásamlegar manneskjur. Ég kallaði þau pabba og mömmu, og varð fijótlega eins og einn af fjölskyldunni. — Hvernig fannst þér af- staða Bandaríkjamanna til Is- lands, og þá vitneskja þeirra um land og þjóð? — Um afstöðuna get ég ekki mikið sagt, en það sem þeir vissu, var furðanlega mikið, þótt það væri líka nokkuð „gloppótt". Satt að segja iærði ég sjálfur töluvert um fóstur- jörðina meðan ég var þarna. Það eru mörg atriði, sem maður tekur ekki eftir í daglegu iífi hérna heima. En þegar út er komið, og maður hefur tóm tii þess að hugsa um þetta — sér- staklega fyrst í stað — þá er það furðu margt sem maður vill kynna sér betur. Einnig varð ég að svara mörgum spurn- ingum, og lærði þvi hvað er sérstakt við landið í augum út- lendingsins. Námstilhögun betri — Þú varst við nám I Banda- ríkjunum, Símon, hvernig fannst þér námstilhögunin þar? — Mjög góð. Satt að segja mikið betri en hér heima. Hún ♦ffiuiu-jT-uui'i'rcuv Sfmon Kjærnested. kennarar við skólana — sem leiðbeina, og gefa góð ráð í sambandi við val og tilhögun. Þeir hafa þannig nokkur völd á ákaflega „diplomatiskan" hátt. — Hver fannst þér vera helzti munurinn á íslenzkum og bandarískum unglingum? — Það er ekki gott að segja. Þetta er í raun og veru okkur fjarlægt fólk, sem er alið upp við ólíka siði, og ólíkar aðstæð- ur. Unglingar eru að vfsu alltaf unglingar hvaðan sem þeir eru, en aðstæður hljóta að móta þá á annan hátt. Ég veit það eitt með vissu, að mér féll mjög vel við alla þá, sem ég kynntist og fannst gaman að eiga þá fyrir vini. Kunningjamir í stríð — Þú varst úti Símon, þegar Kúbudeilan stóð sem hæst, hver þóttu þér vera viðbrögð hinna amerísku vina þinna? — Þeir voru flestir mjög al- varlegir, þegar minnzt var á þetta og eiginlega allir töluðu um stríð, og ég held að margir hafi verið sannfærðir um, að það mundi verða. Og allir voru einhuga með Kennedy. Ef til stríðs hefði komið, hefðu strák- arnir vinir mlnir að öllum lik- indum verið kallaðir í herþjón- ustu. Mér þótti þetta allt ákaf- lega leiðinlegt, en þeir virtust hafa mestar áhyggjur yfir að þurfa að skilja mig eftir einan hjá stelpunum. Rabbað við 18 ára gamlan piðt, sem lífði eins og Ameríkani í eitt ár er t. d. öll mikið frjálsari. Við skulum segja að Jón Jónsson ætlaði sér að taka fyrir ein- hverja grein, þar sem hann verður að taka próf í 16 fögum, og námstíminn er 4 ár. Hann getur valið sjálfur hvaða fög hann vill taka fyrst fyrir, valið t. d. einhver fjögur fög, sem hann lýkur svo alveg við á því ári, svo önnur fjögur næsta ár, og koil af kolli. Hér heimá má hins vegar segja að nemendur séu að læra sum fög allan sinn skólatíma. Má þar nefna t. d. íslandssögu o. fl. Val er engan veginn frjálst. Hin aðferðin leiðir óhjákvæmilega til þess, að fólk vinnur betur og fær rík- ari ábyrgðartilfinningu. Fyrir þá sem eru I einhverjum vafa, og svo erlenda nemendur, eru sérstakir menn — yfirleitt — Hvernig finnst þér svo að vera kominn heim? — Það er dásamlegt, þó að ennþá. Það er að sjálfsögðu gaman að hitta fjölskylduna aftur, og svo vini og kunningja. — Áttu í nokkrum erfiðleik- um með móðurmálið? — Nei, ekki get ég sagt það. Mér verða að vlsu helzt til oft mismæli. 1 Ameríku er oft sagt „I see“ í merkingunni ég skil. En mér verður stundum á að þýða það beint, og segja: Ég sé. En þetta hverfur eftir 2—3 daga. — Heldur þú, að þú farir út aftur f nánustu framtíð? — Nei, ætli það. Mig langar nú til þess að vera dálítið leng- ur heima. Og ég er lfka alveg óráðinn um framtíðina ennþá, segir Símon að lokum. SPRENGING Litlar skemmdir urðu, og eng- inn slasaðist, þegar miðstöðvar- ketill sprakk í húsinu Ljósheim- ar 8—12 kl, rúml. 11 í gær- d-g. Slökkviliðið var kallað á vettvang vegna reyks, en eldur reyndist enginn vera. Talið er að sprengingin hafi orðið vegna gasmyndunar sem átti sér stað, þegar ketillinn — sem er sjálfvirkur — stanzaði. I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.