Vísir - 06.09.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 06.09.1963, Blaðsíða 2
2 V1S IR . Föstudagur 6. sept. 1963. r^1 TT T~p Ungur námsmaður hnekkti 22 ára gömlu hástökksmeti | Kringlukast. AmwIih /m -1_i___:a«_' Erlendur Valdimarsson ÍR 43.59. Agætur arungur a drengiamotmu i gær Guðm cuðmundsson kr «.ie. Ungur stúdent, Sigurð- ur Ingólfsson úr Ármanni hratt 22 ára gömlu drengja meti Skúla Guðmundsson- ar á Drengjameistaramóti Reykjavíkur í gærkvöldi. Hann stökk 1.83 metra, sem er einum sentimetra hærra en gamla metið. - Mótið var annars vel heppnað og mörg og góð afrek unnin. Úrslit í mótinu: 100 metra grindahlaup. Halldór Guðbjöj-nsson KR 16.6 Stefán Guðmundsson ÍR 17.6 Gestur: Þorv. Benediktss. HSS 15.4 1500 metra hlaup. Halldór Guðbjörnsson 4.22.9 Gestur: Hilmar Ragnarsson Breiðablik 4.40.1. Kúluvarp. Erlendur Valdimarsson ÍR 13.86. Guðm. Guðmundsson KR 13.79. Skafti Þorgrímsson ÍR 13.02. Langstökk. Ólafur Guðmundsson KR 6.39. Ragnaj- Guðmundsson Á 6.14. Einar Guðmundsson 6.04. 100 metra hlaup. Skafti Þorgrímsson ÍR 11.1. Einar Gíslason KR 11.2. Ragnar Guðmundsson Á 11.2. | Sigurður Harðarson Á 38.63. 400 metra hlaup. Ólafur Guðmundsson KR 53.3. Halldór Guðbjaj-tsson KR 55.6. Bjarni Reinartsson KR 59.9. Hástökk. Sigurður Ingólfsson Á 1.83 (drengjamet). Erlendur Valdimarsson ÍR 1.65. Jón Kjartansson Á 1.60. ídag Drengjameistaramót Reykja víkur heldur áfram í kvöld á Melavellinum og hefst kl. 19. Gseta laga og réttar í laadsleiknum „ÞRlSTIRNIГ — sem gæta laga og réttar í landsleiknum á Laugardalsvellinum á morgun, mætti seint í gærkvöldi á af- greiðslu Loftleiða á Reykjavík- urflugvelli, en þá kom norski dómarinn, Rolf Olsen, með lang- ferðabifreið frá Keflavíkurflug- velli, þar sem flugvél Loftleiða lenti. Olsen lét vel af ferðalagi sínu sem er fyrsta ferð hans til ís- lands, en hann er gamall leik- maður úr Oslóarfélaginu SKEID. Olsen hefur dæmt einn A-lands- leik í knattspyrnu áður, það var í fyrrasumar í Helsinki, leikur Finna og Svía. Hann hefur að auki dæmt B-landsleiki og Ung- lingalandsleiki, og þykir mjög góður dómari. Á flugvcllinum tók á móti honum Karl Guðmundsson fyr- ir hönd KSÍ, en Karl þekkir Olsen frá því hann dvaldist sem þjálfari i Noregi. Auk þess voru svo línuverðirnir tveir, þeir Ein- ar Hjartarson og Magnús Pét- ursson, en Magnús er nýorð- inn alþjóðadómari eins og kunn ugt er. Mydin er af þessu þrí- stirni laga og réttar í Iands- leiknum. Islenzk Cmemastopemynd Nýlega lagði 10 manna leiðang- ur af stað inn í óbyggðir til þess að taka þar fyrstu Cinemascope litkvikmyndina, sem tekin hefur verið á fslandi. Það er kvikmynda- félagið Geysir sem gengst fyrir töku myndarinnar. Myndatakan hófst s. 1. sunnudag á síldarmið- unum fyrir Austurlandi á síldar- skipinu Hannesi Hafstein. Framlög og lán til myndatökunnar koma frá ýmsum aðilum, sem áhuga hafa fyrir landkynningu, svo sem flug- félögunum, utanríkisráðuneytinu, ýmsum sölusamtökum útgerðar- manna, fiskframleiðendum skipa félðgum o. fl. Sérstaklega veitti Sveinn Bene- diktsson útgerðarmaður leiðangrin um höfðinglega fyrirgreiðslu. Bíla- leigan Bíllinn leggur til bíla, með- an á myndatökunni stendur, og framkvæmdastjórinn, Guðbjartur Pálsson, hefur tekið að sér að skipuleggja og undirbúa leiðangur- inn og verður sjálfur leiðangurs- stjóri. Mun vart hægt að fá betri mann til slíkra hluta. Fylgdarmað- ur verður Halldór Eyjólfsson frá Rauðalæk. Farið verður á tveimur fjallabíl um á ýmsa fegurstu staði landsins, svo sem Landmannalaugar, Veiði- vötn, Eldgjá, Jökulheima, Eyvind- arkofaver, Öskju, Herðubreiðarlind ir o. fl. Áætlað er að ferðin taki um 10 daga. Stjórnandi myndatökunnar er Reynir Oddsson, myndatökumaður William Lubchansky og aðstoðar- myndatökumaður Gísli Gestsson. Syndið 200 mefrana t Verða að skila bikarnum? Furðuleg kærumól í yngri flokkunum vegna skorts d línuvörðum i Fyrir skömmu fór fram úrslitaleikur í 5. flokki milli KR og Víkings og vann KR sigur og fékk eftir leikinn afhentan fal legan bikar, sem formað ur KSÍ afhenti. Nú er að koma í ljós að þessi leik ur og jafnframt úrslit mótsins eru ógild. — Ástæðan: Línuverði vantaði. Fyrir lá kæra frá Fram vegna leiks við Víking í A-riðli Lands mótsins, en Víkingur vann þann leik 3:2 og fór í úrslit gegn KR. Nú var farið að glugga í laga- skræður og þar stóð vissulega, að línuverðiy skyldu vera við alla leiki yngri flokka, en þyrftu ekki að hafa dómarapróf, né jafnvel bera nokkurt skynbragð á knattspyrnu yfirleitt. Þannig geta dómarar látið flaggið í hendur óvitabarna og samt far- ið að lögum. Eftir að úrslit 1 5. flokki höfðu faj-ið fram og verðlauna- bikarinn afhentur, féll úrskurð- ur í málinu: Leikur Fram og Víkings ólöglegur og skyldi fara aftur fram og úrslitaleikur milli KR og sigurvegara f þeim leik. Verður KR þannig að skila aftup þeim grip, sem þeir hafa þó réttilega til unnið. Annað við þetta er það, að nú er hægt fyrir félög, sem hafa tapað í yngri flokkunum f sum- ar, að kæra, enda hefur sjaldan eða aldrei verið hafður línuvörð ur í þeim leikjum. Gæti svo far ið að bikararnij- yrðu teknir aft ur af sigurvegurum allra yngri flokkanna f sumar. Dómur þessi er auðvitað i fyllsta samræmi við gildandi reglur, en samt er þama galli á reglunum og hann ber að lag- fæj-a hið bráðasta. Garðar ekki með Garðar Ámason, h. fram- vörður íslenzka landsliðsins hefur boðað forföll á Iaugar- daginn þegar liðið leikur fyrri leikinn við Breta. Hann hefur að undanfömu verið lasinn og hefur ekki jafnað sig enn að fullu. í stað hans kemur félagi hans, Sveinn Jónsson. Er mjög slæmt að missa Garð- ar, en vonandi tekst Sveini að fylla það stóra skarð, sem Garðar skilur eftir. +Wntur» p prentsmiöja L gúmmístimplagerö Elnholtl 2 - Slmi 20960 Garnúrval í H0FI Skútugarn Kisugarn Vesdregarn Bussegarn Nylongarn H0F Laugavegi 4 Útsalan stendur aðeins þessa viku. HATTABÚÐIN HULD Kirkjuhvoli. LEIKSÝNING Hlauptu af þér hornnt Fyrsta sýning í Reykjavík í kvöld kl. 8,30 í Iðnó. Aðgöngumiðasala frá kl. 2. Leikflokkur Helga Skúlasonar. —WTiiWl—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.