Vísir - 06.09.1963, Side 5

Vísir - 06.09.1963, Side 5
V í SIR . Föstudagur 6. sept. 1963. 5 Með þyrlym — Framhald at bls. 1 forsetinn leggja af stað með þyrilvængju frá Hótelinu og fljúga til Þingvalla. Á Þingvöll- um mun hann dveljast um stund arfjórðung og fljúga síðan aftur til Reykjavíkur og lenda við Hótel Sögu. Lendingarstaður hennar verður gamli íþróttavöll urinn. Ferðin með þyrilvængj- unni til og frá Þingvöllum tek- ur aðeins 15 mínútur hvora leið, svo að sýnt er, að hægt verður að framkvæma ferðina með am- erískum hraða. Varaforsetinn mun búa að Hótel Sögu um nóttina en snemma morguns á þriðjudag fer hann á brott héðan og stígur upp í þyrilvængju við Hótel Sögu og verða þar viðstaddir til að kveðja hann forsætisráð- herra og utanríkisráðherra. iandsliðii — Framhald at bls. 16 London í september 1961 með 1:0. Hvorug talan er stór og í hvorugt skiptið var um yfirburði Englend inga að ræða. Það er því ekki fjarri lagi að reikna með jöfnum og spennandi leik í Laugardal, þegar eftir að norski dómarinn Olsen hefur blístr að til leiks að lokinni hinni venju- bundnu setningarathöfn. Ekki sízt þegar tillit er tekið til þess að liðið nú skipa 5 þeirra leikmanna Englendinga, sem léku í London í hitteðfyrra. Það sem kemur til með að ríða baggamuninn er rétta stemmningin hjá liðinu og hún er áreiðanlega fyrir hendi, og ekki síður stemmning og hvatning frá áhorfendapöllunum, sem verða ef- laust mjög þétt skipaðir að þessu sinni. í gærdag fórum við inn á Laug- ardalsvöll og horfðum á leikmenn íslands æfa létt fyrir stór átök og fundum að þarna var unnið af ein- lægni og áhuga og verði baráttan í lagi á morgun er við góðu að búast. Svipfur — Framhald af bls. 16. kvöldi sama dags. Við rannsókn í málinu kom fram að ökumaðurinn hafi orðið slyssins var, en hann skýrði svo frá að mikil hræðsla hafi gripið sig og hafi hann því ekið á brott án þess að skeyta um hið slasaða barn. Rúmum tveim klukkustundum eftir að slysið skeði gaf ökumaður- VOLKSWAGEN - 1500 VERÐ: VOLKSWAGEN 1500 KR. 163.780. VOLKSWAGEN 1500 STATION KR. 175.220. Alltaf fjölgar VOLKSWAGEN H E K L A , Laugavegi 170-172 . Sími 11275. inn sig fram við rannsóknarlög- regluna og viðurkenndi að hafa ek- ið á barnið. Jafnframt skýrði hann frá því að hann hafi ekið á 40 — 45 km hraða og hafi slysið borið svo bráðan að, að hann hafi ekki haft svigrúm til að hemla og hafi held- ur ekki reynt að hemla eftir að slysið skeði. Dómur gekk í máli piltsins í saka dómi Reykjavíkur fyrir skemmstu og kvað Gunnlaugur Briem saka- dómari hann upp. Varð ákærði dæmdur í 3 rtiánaða varðhald og sviptur ökuleyfi ævilangt fyrir að hafa orðið valdur að bana drengs- ins með of hröðum og ógætilegum akstri og einnig fyrir að hafa horf- ið af vettvangi án þess að gera lögmætar ráðstafanir, þ. e. að nema staðar á slysstað og kveða lögregl- una á vettvang. Einnig var ákærða gert að greiða allan sakarkostnað. Framhald af bls. 16. Þá sagði tillögumaður það vera almennt menningaratriði að hafa kvöldsölur I smábúðum með afgreiðslulúgu, kíoskum, og að þær yrðu aðeins opnar til 22. Taldi hann það hafa tak- markað þjónustugildi að þess- ar búðir- væru opnar lengur. Hann kvað umræddar tillögur aðeins vera til heimildar á leng- ingu afgreiðslutíma matvöru- verzlana. Hvort úr því gæti orð- ið þótt heimild borgarstjórnar fengist, væri komið undir sam- komulagi milli kaupmanna og afgreiðslufólks. Viðræður hefðu farið fram að undanförnu og hefði þar orðið Ijósara en áður að samþykkt tillagnanna felur ekki í sér lengingu vinnutím- ans. Sigurður Magnússon kvað það öfugþróun að kvöldsölum skuli leyft að selja hvers konar varn- ing, jafnvel gegnum lúgur, á sama tíma sem fullkomnum verzlunum er meinað að selja vörur sínar. Taldi hann sumar kvöldsölur álls ekki uppfylla þær kröfur, sem gerðar eru til almennra verzlana. í tillögunum er gert ráð fyrir að smásöluverzlanir megi vera opnar frá kl. 8—18 alla virka daga nema föstudaga frá 8—22. Á laugardögum megi verzlanir vera opnar til kl. 14 á tímabil- inu 1. maí til 30. september ,en til kl. 16 á tímabilinu 1. októ- ber til 30. aprll. Borgarráð get- ur heimilað tilteknum fjölda verzlana að hafa opið til kl. 22 alla daga nema á einstökum helgidögum. Sala á sælgæti og gosdrykkj- um á að vera óheimil í mjólk- ur- og brauðbúðum. Söluturnar skulu selja kort, vinnu við Búnaðarfélag íslands, og skal sú nefnd starfa að og gera tillögur um framtíðarskip- an landbúnaðarins í heild, FramhaW at bls 16 En ekki leið á löngu þar til Sigurður var orðinn hinn skraf- hreifasti og þá kom öll sagan: — Við vorum þrír saman úti á engjum að taka saman hey. Ég, bóndinn og 10 ára strákur frá Akureyri. Okkur varð sund- urorða 'og ég braut heykvísl í reiði minni. Þeir urðu vondir og fóru að skamma mig. Labb- aði ég þá frá þeim og fór upp í fjall í berjamó. Þá datt mér allt í einu í hug að fara heim. Labb- aði ég síðan af stað yfir Eyjadal, Öxnadal og heiðina. — Þegar ég kom á heiðarbrún ina sá ég, að ég var í Fnjóska- dal, en þar svo bratt niður að ég treysti mér ekki til að fara það. Þá var komið nokkuð langt fram á kvöld og farið að dimma, einnig var komin svarta þoka. Fann ég mér gilskorning, lagði mig og sofnaði. Ég held að ég hafi vaknað milli klukkan 3 og 4. Þá var mér anzi kalt því ég var bara á skyrtunni að ofan og engu innan undir henni. Til þess að mér yrði ekki eins kalt á hönd- unum tróð ég þeim inn undir skyrtuna. Er ég vaknaði var enn þá þoka, en heldur minni en um kvöldið. Labbaði ég þá af stað norður heiðina og skellti mér niður rétt hjá bænum Mörk, en það er næsti bær sunnan við Vaglaskóg. Síðan labbaði ég í gegnum skóginn, yfir Fnjóská, á brúnni og hélt síðan yfir Vaðlaheiði. Þegar ég var kominn upp á heið- arbrúnina, var ég staddur rétt við veginn. Sá ég þá vörubíl og tókst mér að stöðva hann. En til þess að fá far þurfti ég að „Ijúga“ í bílstjórann. Til Akureyrar kom Sigurður um hádegi, var þá næstum lið- inn sólarhringur frá því að hann lagði af stað. — Dótið mitt er allt fyrir austan, en eitt ér víst, að ég ætla þangað aldrei aftur. — Kannski fer pabbi þangað til þess að sækja það eða bóndinn sendir það, sagði Sigurður að lokum. Stéítarsambandsfundi bænda lauk ekki fyrr en skömmu áður en blaðið fór í prentun í dag. í fundarlok flutti Ingólf- ur Jónsson, íandbúnað- arráðherra, ávarp. Stjómarkjör fór fram á fund- inum í dag. Sverrir Gíslason, bóndi í Hvammi í Norðurárdal, sem verið hefir formaður Stétt- arsambandsins frá upphafi baðst undan endurkosningu og Bjarni Bjarnason á Laugarvatni, sem einnig hefir verið í stjórn frá stofnun sambandsins, baðst og undan endurkjöri. og sömuleið- is Páll Metúsalemsson, Refstað. Fundurinn gerði einar fjór- ar samþykktir um verðlags- mál landbúnaðarins, þar sem tekið er undir þær kröfur um verðlagsgrundvöll landbúnaðar- afurða, sem fulltrúar bænda í sex manna nefndinni hafa lagt fram, og jafnvel gengið lengra í vissum atriðum. Er þar lagt til að lágmarkskaup bóndans verði 150 þús. krónur á ári. En fulltrúar bænda höfðu lagt til í sex manna nefndinni að verðlag á landbúnaðarafurðum hækkaði um 36,5%. Fyrrihluta dags í gær og fram að síðdegiskaffi störfuðu nefnd- ir að athugun tillagnanna, sem fyrir lágu, en síðan var farið að mæla fyrir þeim, ræða þær og afgreiða. Þessar umræður um tillögur og afgreiðsla þeirra stóðu til klukkan að ganga fimm í morgun. Ætlunin hafði verið að ljúka fundinum í gærkvöldi eða nótt, en það reyndist ekki unnt og hófst fundur því að nýju um kl. 9 í rnorgun. Þá fór fram stjórnarkjör og ráðherrann flutti sitt ávarp. Aðalfundur stéttarsambandsins hefir aldrei staðið á þriðja dag fyrr en að þessu sinni. Fulltrúarnir hafa bú ið að Hótel Sögu. Hina nýkjörnu stjórn samtakanna skipa: Einar Ólafsson Lækjar- hvammi, Bjarni Halldórsson Uppsölum, báðir endurkjömir. Þrír nýir menn voru kjörnir i stjórnina þeir Gunnar Guðbjarts son, Hjarðarfelli Snæfellsnesi, Páll Díðriksson, Grírpsnesi, og Vilhjálmur Hjálmarsson Brekku, Mjóafirði. Meðal samþykkta, sem stétt- arsambandsþingið gerði í gær, var ein um nefndarskipun, í sam frímerki, dagblöð, tímarit, rit- föng, rafmagnsöryggi, nýja á- vexti, ís, innpakkað sælgæti, tó- bak, eldspýtur, öl, gosdrykki, heitar pylsur og annað slíkt, en heilbrigðisnefnd verður að á- kveða í einstökum tilfellum hvernig umbúnaði skuli hagað. Söluturnum skal vera lokað kl. 22. Borgarráð getur þó heimilað að fyrirtæki, er selja um sölu- op og eingöngu smurt brauð og annan tilbúinn mat innpakkað- an ásamt mjólk, megi vera op- in til kl. 23.30, að fengnum með mælum lögreglustjóra að þar megi fara fram sala eftir kl. 23.30, en jafnframt ákveðið hve- nær þar skuli loka. Ávarp IngóBfs — Brann Framhald bls 1. Tómas komst að senditækjun- um og sendi út hjálparbeiðni en áður en Eskifjörður gæti svarað þeim hafði rafmagnsleiðslan brunn ið og samband rofnað I bátnum. Reyndu skipbrotsmenn þá að ausa sjó á eldinn en þegar það bar ekki árangur fóru þeir í gúmmíbátinn og reyndu að ná landi en tókst ekki. Voru þeir síðan á reki í 5-6 klukkustundir, blautir og kaldir, þangað til vélbáturinn Ársæll Sig- urðsson II. kom að og bjargaði þeim um borð og sigldi með þá inn til Fáskrúðsfjarðar. Sjópróf fara fram í dag. semst. © Breytingar á lögunum um útflutningstryggingu hafa tryggt bændum fullt verð fyrir all a framleiðsluna. Áður biðu bændur mikinn halla af útflutn- ingsvörum. Útflutningsuppbæt- ur bænda árið 1963 nema í heild 65 millj. króna. Þær eru áætlað- ar 1964 alls 115—130 millj. kr. Að loknu ávarpi ráðherra átti að ganga til stjórnarkjörs.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.