Vísir


Vísir - 06.09.1963, Qupperneq 6

Vísir - 06.09.1963, Qupperneq 6
6 VI S IR . Föstudagur 6. sept. 1963. m C39 ÁKLÆÐi Á EÍLA v Volkswagen Fiat 1J 00 Volkswagen Station Fiat 1200 VW 1500 Fiatl400 Mercedes Benz 180 Taunus Mercedes Benz 220 Taunus Station Opel Record Moskvitch Opel Caravan Moskvitch Station Opel Capitan Scoda Alpha ’56 Opel Cadet 3koda Kombi Ford Cardinal Skoda Oktavia Ford 2 dvra Scoda Station ’55 Ford Sf Reno Dauphine Ford C Volvo B 18 2 dyra Ford 2 o Volvo Amazon Ford Zepíi. Volvo Station Saab 96 Pobeda Simva 1000 Vauxhall Victor framleiðum áklæði í allar tegundir bíla — Hlífið sætunum í nýja bílnum — — Endurnýið áklæðið í gamla bílnum — Söluumboð: Þórshamar h.f. Akureyri Staðarfell Akranesi Stapafell Keflavík. K.F. Borgfirðinga, Borgarnesi OTUR Hringbraut 121 — Sími 10659 ARIN-OFNAR 1500 og 2000 wött ARIN-GLÓÐIR fást á eftirtöldum stöðum: Véla- og raftækjaverzlun- in h.f. Bankastræti 10 Raftækjastöðin, Laugaveg 64 Jóh. Jóhannesson, Siglu- firði Rafver h.f., Sauðárkróki Véla- og raftækjasölunni h.f., Akureyri IÍEA, Akureyri. Einkaumboð: G. MARTEINSSON H.F. Bankastræti 10 . Sími 15896 KÆRKOMNIR GESTIR Famh. af 4. síðu. góð þjálfun fyrir karlmenn, en síðri fyrir konur, því að hann skortir reisn og göfgi rússneska skólans, hinn sanna ballerínu- stíl, og ljóðræna mýkt. Hnén eru ekki eins bein og krafizt er í klassískum ballettum, arm- stillingar ólíkar og höfuðburð- urinn ekki alltaf í samræmi við línur líkamans. Aftur á móti eiga dönsku dansararnir ekki sinn líka í víðri veröld í lát- bragðslist, fáguðum hópatrið- um, fjörmiklum leik, innlifun í verkefnin og þeirri lifandi hefð, sem setur svip sinn á allar þeirra sýningar. ' Til að vega upp á móti þeim veikleikum, sem fyrirfundust í Bournonville-stílnum, var einn frægasti ballettkennari heims- ins. Vera Volkova, fengin til að kenna danska ballettflokknum gamla rússneska skólann, sem leggur áherzlu á breiðar, tígu- legar línur og hreinan, klassísk- an stíl, mildaðan af Ijóðrænni mýkt. Hefur hún nú dvalizt í Kaupmannahöfn um tólf ára skeið, og undir hennar leiðsögn hafa dönsku dansararnir sam- einað hjá sér hina fornu tækni Bournonville-skólans og hinn látlausa, klassíska, „tíma- Iausa“ stll, sem Volkovu er ein- staklega sýnt um að kenna (eitt fegursta dæmi þessa stíls má sjá hjá Margot Fonteyn, er stundaði nám hjá Mme Volkovu, áður en hún öðlaðist viðurkenn- ingu heimsins sem „prima ball- erina assoluta"). * 1F ér í Þjóðfeikh'úsinU' murí •mí . danski ballettinn.sýna firnm verk, sem ættu að leiða í ljós hæfni dansaranna til að túlka jafnt forna sem nýtízkulega ball etta. Tvö þeirra eru eftir Bourn- onville — La Sylphide, er vekur minningar um rómantíska ball- ettinn á dögum hinnar yndis- legu Taglioni, sem dansaði aðal- hlutverkið í honum og gerði skógardísina dularfullu fræga eins og goðsögn. Kóreógrafían var eftir föður hennar, Philippe Taglioni, ballettmeistara við Par ísaróperuna, en Bournonville samdi síðar nýja kóreógrafíu um sama efni við tónlist eftir Lövenskjold, og hefur sú út- gáfa varðveitzt, en hin fallið í gleymsku. Hinn Bournonville- Margrethe Schanne er einn af frægustu túlkendum La Sylphide. ballettinn er Napoli, ef til vill vinsælastur allra verka hans og venjulega sýndur, þegar mikið er um að vera, t. d. á lokasýn- ingum og öðrum hátíðum. Hér v.erður.sýndur 3. þátturinn, gott dæmi um Bournonville-stílinn eins og hann getur beztur orðið. Þá verður hinn fjörugi og sí- ungi ballett Arthurs Saint-Léon, Coppélia, við tónlist eftir Deli- bes. Hann er gerður eftir ævin- týri þýzka skáldsins Hoffmanns, „Der Sandmann", og var frum- fluttur í Parísaróperunni árið 1870 eftir þriggja ára undirbún- ing. Allir. ballettflokkar hafa hann á leikskrám sínum, en danska útgáfan er að ýmsu leyti frábrugðin öðrum og hefur á- unnið sér mikla frægð. Loks eru tvö verk eftir George Balanchine, hinn heims- þekkta, rússneska kóreógraf, sem starfað hefur í Bandaríki- unum seinustu þrjátíu árin og haft geysileg áhrif á þróun ball- ettsins þar. Hann heldur sig mikið við abstrakt form, strang- hreinan stíl, klassískan en þó nýtízkulegan, og gerir óhemju- legar kröfur tæknilega séð til dansara sinna. Hér verða sýnd tvö af verkum hans — La Sonn- ambula eftir óperu Bellinis og Symphony in C, abstrakt ball- ett við C-dúr sinfóníu Bizets, glæsilegt dæmi um stíl Balanc- hines. Eins og áður er getið hér 1 blaðinu, kemur 65 manna hóp- ur frá Konunglega danska ball- ettinum, og verða allir helztu dansarar hans með í förinni, m. a. Margrethe Schanne, Kirsten Simone, Ruth Andersen, Inge Sand, Mette Mollerup, Erik Bruhn, Niels Björn Larsen, Henn ing Kronstam, Verner Andersen, Svend Erik Jensen, Kjeld Noack og Islendingurinn okkar, Frið- björn Björnsson. — SSB. Framhald af bls. 9. Krafa þeirra er, að svertingjar fái til yfirráða -ákveðinn hlöta af Bandaríkjunum til þess að stofna sitt eigið sjálfstæða ríki. Fáist því ekki framgengt hóta þeir uppreisn og skemmdarverk um. Þorsteinn Thorarensen. * Þegar maður sezt inn á kaffi- hús þessa dagana eða hittir kunningja slna á götu, er mest um tvennt talað manna á milli. Það er landsleikurinn við Bret- land á morgun og heimsókn varforseta Bandaríkjanna. ■: Hvor sigrar? Ekki verður að efa, að tugur þúsunda manna mætir á vellin- um annað kvöld til þess að horfa á landsleikinn — eða jafn vel enn fleiri. Miklar bollalegg- ingar eru um, hver verði frammi staða okkar mánna. Sumir eru vongóðir og segja, að vel komi til greina, að landinn vinni sig- ur. Aðrir eru svartsýnir og spyrja, hvernig við eigum að geta unnið beztu menn 60 milljón manna þjóðar. Þó eru þetta náttúrlega ekki beztu menn Breta. Þeir eru í atvinnu mennskunni og það lið sem hing að kemur er lið áhugamanna. En engu að sfður eru það miklar kempur, og vafalaust verður róðurinn þungur fyrir Islend- inga. I gær hittist landsliðið okkar og fór á æfingu inni í Laugar- dal. Ekki eru nema fáir dagar til landsleiksins, og oft hefir verið á það bent, hve slæmt er, að landsliðið skuli ekki geta æft lengur saman, sem hlýtur að vera lífsnauðsynlegt fyrir slíkan leik sem þennan. Meðan svo er, þá þarf engan að furða á því, þó að við stöndum okkur ekki alltaf eins og hetjur í landsleikj um. Hér kemur fátækt íslenzku knattspyrnunnar að nokkru til greina. Fé er ekki fyrir hendi til þess að safna landsliðsmönnum saman víðsvegar að af landinu alllöngu fyrir leikinn og halda þeim uppi hér í Reykjavík við stanzlausar æfingar. Og þá kem ur aftur upp vandamálið um hin mjóu mörk milli áhugamennsk- unnar og atvinnumennskunnar. En þó er það ekkert leyndar mál, að áhugamannalið erlendis njóta margvíslegs stuðnings og fríðinda við þjálfun sína og keppnisundirbúning, þótt leik- mennirnir taki ekki við beinum launum. Að minnsta kosti þarf að sjá svo um, að það sé ekki leikmanni stór fjárhagslegur skaði að taka þátt í keppni, sem fer oft fram langt frá heima byggð hans. En þannig er það þó allt of oft nú. Heimsókn varaforsetans Nú er upplýst, að fá verði sérstakt rúm fyrir varaforseta Bandaríkjanna þá einu nótt, sem hann gistir Hótel Sögu. Hann kvað vera svo stór vexti, enda frá Texas. Hefði maður þó hald ið, að annað eins lúxushótel og bændahótelið ætti rúm fyrir risa, en líklega hefir Bjarni frá Laugarvatni aldrei gist á sínu eigin hóteli. I sænskum blöðum sé ég, að frá því er skýrt að forsetinn hafi að gömlum og góðum sið banda rískra stjórnmálamanna gengið um göturnar og heilsað upp á vegfarendur með handabandi. Mikil eftirvænting ríkir meðal þeirva, sem oftast ganga Austur stræti, hvort varaforsetinn hafi tíma e8a tækifæri til að ganga inn götuna frá Thorvaldsensbaz- ar, fá sér kannski einn Havana- vindil í London og líta á ís- lenzka karlmannamóðinn í gluggum Herrabúðarinnar við Lækjartorg. Ekki er að efa, að varaforsetinn myndi vinna hug og hjarta bæjarbúa á slíkri gönguferð, því hann er sagður maður mjög blátt áfram. Og hver veit nema okkar eigin stjórnmálamenn leggi þá inn á sömu braut og varaforsetinn? .V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.W.'AV/AV.VV.VV.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.