Vísir - 24.09.1963, Page 11
VÍSIR . ÞriSjudagur 24. september 1963.
n
17.30 Stump The Stars
18.00 Afrts News
18.15 The Merv Griffin Show
19.00 Exploring
19.55 Afrts News Extra
20.00 World Artists Concert Hall
20.30 The U.S. Steel Hour
21.30 I’m Dickens ... He’s
Fenster
22.00 The Unexpected
Tegar maður hugsar til þess að
þurfa að púla við að slá gras-
flötina s íðar meir, þá get ég varla
Iátið vera, með að hugsa um hvort
ekki sé betra að jarða fræin, en
að sá þeim.
22.30 To Tell The Truth
22.55 Afrts Final Edition News
23.00 Lawrence Welk’s Dance
Party
Árnað heilla
Um síðustu helgi voru gefin
saman í hjónaband af sr. Árelíusi
Níelssyni:
Ungfrú Guðríður Sólveig Frið-
finnsdóttir, (Friðfinns Ólafssonar
forstjóra) og Hermann Árnason
stud. oceon. Miklubraut 78.
Ungfrú Kolbrún KQstjánsdótt
ir og Reynir Jónasson hljóðfæra
leikari Otrateig 12. Heimili þeirra
verður á Húsavík.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni, ungfrú Sigríður Birna
Guðmundsdóttir og Guðbjartur
Vilhelmsson. Heimili þeirra er að
Rauðalæk 22. j
(Ljósm. Studio Guðmundar —;
sími 20900).
Spáin gildir fyrir miðvikudag-
inn 25. sept.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú sýndir mikla fyrir-
hyggju með því að auka þekk-
ingu þína á störfum þínum þar
eða samkeppnin um betri að-
stöðu færist nú í aukana. Þú
verður reynslunni ríkari.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Þú ættir ekki að hika við að
leita þér aðstoðar annarra ef
nauðsyn krefur til að fram-
fylgja málefnum þlnum. Annar
legar hugmyndir kunna að angra
þig-
Tvíburarnir, 22. maf til 21.
júnl: Vanhugsuð sóum fjármuna
gæti auðveldlega orðið að deilu
efni milli náinna félaga. Það
væri hyggilegra að halda sig að
gömlum öruggum starfsaðferð-
um.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þú ættir að vera fullfær um að
meðhöndla þau verkefni, sem
fyrir liggja í dag einn og án að-
stoðar. Talsverðar horfur á að
r-
samræmis muni ekki gæta
heima fyrir í kvöld.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Þú hefur tilhneigingu til að
verða óþolinmóður, þrátt fyrir
að tafir eigi sér ekki stað fyrir
aðra sök en venjulega málsmeð-
ferð. Vingjarnlegar samningaum
leitanir árangursríkar.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Þú kannt að þurfa að hafa tals
verð afskipti af heimilismálun-
um með tilliti til fjármálanna,
áður en allt snýst á ógæfuhlið
ina. Festu ekki kaup á hlutum
í skjótræði.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Það væri hyggilegra fyrir þig
að brjóta ekkj upp á viðkvæm
um ágreiningsatriðum heima fyr
ir í kvöld ef þú vilt hafa frið.
Þú virðist vera órólegur.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Þú hefur yfir að ráða ýmsum
hæfileikum, sem þú gætir fært
þér í nyt, ef þú hefðir trú á
þeim. Efasemdir um gildi sjálfs
manns hindra heilbrigðar fram-
farir.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þú ættir ekki að koma öðr
um upp með það að vera þér
of háðir, því annars getur slíkt
orðið að vana. Þú hefur meira
en nóg áð gera með sjálfan þig.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Þú getur ekki opinberað
öðrum leyndarmál hjarta þíns,
þar eð of margir einstaklingar
eru ófærir um að þegja yfir
lej'ndarmáium. Starfaðu út af
fyrir þig.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Þrátt fyrir að þú hafir
aukna löngun eftir einveru og
næði, þá ættirðu ekki að nota
hana til að kenna í brjósti um
sjálfan þig. Þú hefur ástæðu
til að bera traust til framtíðar
innar.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Þú munt finna meira til
skyldna þinna heldur en að
vanda lætur og nauðsynlegt að
bregðast ekki því trausti,, setn ,
aðrir bera til þín.
COf. MAÍItN lOONOt*
urinn
Kóngurinn vildi að vísu gjarn
an fá að sjá klefann sem hann
átti nú að búa í, en þar sem hann
átti nú að fara I skemmtiferð
með Krák, þá fannst honum ekki
nema tilhlýðilegt að heilsa upp
á áhöfnina fyrst. Ég vil sjá á-
höfnina Friðrik, sagð; hann. Hans
hátign vill fá að sja áhöfnina,
hrópaði Friðrik. Áhöfnin er tilbú-
in herra, sagði Kaili kafteinn
hreykinn, og benti á stýrimann
inn, sem hafði farið í matrósa-
fötin hans afa síns, hann benti
líka á Tomma, sem stóð teinrétt
ur með pappírshattinn á höfðinu,
og vélameistarann, sem hafði
pússað alia hnappana á einkennis
búningnum sínum þangað til að
þeir glóðu eins og gull. Konungur
inn horfði brosandi á sjómennina
og sagði: Bravó. En Friðrik var
sko ekki eins ánægður. Yðar há
tign yðar hátign hrópaði hann.
Þetta er alveg á mótj reglunum,
þeir eru ekki í einkennisbúningi.
Hann sneri sér að Kalla ösku-
vondur. Hvað er þetta, skipstjóri,
hvernig stendur á þessu, öskraði
hann. Lásuð þér ekki reglurnar
sem ég lét yður hafa? En Kalli
yppti bara öxlum, því að honum
fannst Frikki vera leiðinlegur, og
var þess vegna ekkert að svara
honum. Dragið upp akkerið, hróp
aði kóngurinn. Þetta er á móti
reglunum. Þér getið hoppað fyrir
borð með reglurnar, sagði kóng
urinn óþolinmóður, ég kæri mig
ekkert um þær. Það á að draga
upp akkerið strax. Mér líkar vel
við þetta skip Friðrik.
Kaíli
og
kóng-
Ming hiýtur að hafa verið í
óvenju mikilli geðshæringu, fyrst
hann gleymdi þessu, hugsar Fan,
og nú get ég tekið hana fyrir
sjálfa mig. Á meðan æða Ming og
menn hans um nálægar götur með
byssurnar á lofti. Finnið hann, og
skjótið hann niður skipar Ming.
Hann getur ekki hafa komizt móti honum. Nei .góðan daginn,
langt. Rip, sem ekki er langt und segir Rip, og sér þegar að drekinn
an svipast um eftir felustað, og muni vera ágætur felustaður.
í því kemur dreki einn mikill á Siggi — vantar meiri Rip
Brigitte Bardot fer í náinni
framtíð til London til þess að
leika aðalhlutverkið í kvik-
myndinni „Fagra fuglshöfuð-
ið“. Hún vill nú geta farið
ferða sinna án þess að þekkj-
ast og hún álítur að hún hafi
fundið enn betra ráð til þess
en Gretu Garbo hefur nokkum
tíma hugkvæmzt.
Brigitte Bardot.
Hún ætlar hvorki að setja á
sig hárkollu eða dökk gler-
augu heldur ætlar hún að taka
með sér tvífara, því að nóg
er af þeim.
Ég ætla að senda stúlkumar
út í borgina og svo getur fólk
elt þær og látið mig í friði.
Það verður gaman að heyra
hvernig þetta gengur.
Við höfum frétt hvemig de
Gaulle forseti hagar starfsdegi
sínum:
Frú de GauIIe vekur hann
klukkan 7 og þá fær hann
lítinn morgunverð, svart kaffi
og ristað brauð. Síðan fer
hann úr röndóttu náttfötunum
sínum og í tvíhneppt föt. Kl.
8.15: Hlustar á fréttir i út-
varpinu og hraðar sér siðan
þvert yfir höllina til vinnu-
herbergis síns. Kl. 9: Nánustu
samstarfsmenn hans koma til
fundar við hann. Því má skjóta
De Gaulle.
hér inn í, að á skrifborði for-
setans er enginn sími því að
hann beinlínis hatar síma —
og nánustu vinir hans þora
varla að hringja hann upp.
Kl. 10: Mikilsverðum mönn-
um veitt áheyrn. De GauIIe
byrjar alltaf á sömu setning-
unni: „Hvað hafið þér að segja
mér?“ KI. 13: Hádegisverður
með samstarfsmönnum. Kl. 20:
Forsetinn heldur til íbúðar
sinnar, horfir á fréttir í sjón-
varpinu og snæðir kvöldverð
með eiginkonu sinni. Fer sið-
an í einkakvikmyndahús sitt
og horfir á eina góða gaman-
tmrnH 23; Háttatfmí.