Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 2
V1 S I R . Þriðjudaginn 15. október 1963.
Kjartan Jóhannsson læknir kominn í skotfæri á línu og skor-
Varizt til síiasta blóidropa
OLD BOYS — sem eru alls
eklci mjög „gamlir“ kepptu á
laugardagskvöldið á afmælis-
móti Fram á Hálogalandi. Við-
ureign þessara Iiða Fram og
Ármanns var stórskemmtileg
og spennandi og leikurinn fór
út á braut keþpnishörkunnar,
eins og verða vlldi áður, þeg-
ar þessi lið börðust um meistara
stigin.
Leikurinn var allan tímann
hnífjafn og lauk með jafntefli
8:8. 1 hálfleik hafði Fram yfir
4:3. Allir leikmennirnir nema
Hilmar Ólafsson munu hættir
handknattleik, en Stefán Gunn-
arsson mun hafa æft fram að
þessu og Kjartan Jóhannsson,
sem var bezti maður leiksins,
mun hafa æft handknattleik f
Svíþjóð, þegar hann var við
læknisnám þar.
Annars voru þama kempur í
hverju rúmi, bankastjórar, skrif
stofustjórar, fulltrúar, Iæknar,
verkfræðingar og þannig mætti
halda áfram. Var mjög gaman
að horfa á viðureign þeirra, en
e.t.v. var hún fulllöng með til-
liti til heilsu keppendanna að
leik lokum, því það var grunur
margra að á sunnudag hafi fáir
þeirra hreyft sig úr rúminu
vegna harðsperra.
KRVANNLANDS
2. FLOKKS
Á laugardag var leikinn síðasti
knattspyruleikur ársins í Reykja-
vík, en það var úrslitaleikurinn í
2. flokki milli KR og Keflavíkur,
Fyrri leikur þessara aðila endaði
með jafntefli, 0:0 eftir framleng-
ar. Hilmar Olafsson, sem enn er í fullu fjöri í handknattleik jngU; 0g var því háður nýr úrslita-
og leikur með meistaraflokki Fram, er þama fullseinn til að leikur viku síðar.
stöðva Kjartan. Bak við þá eru Guðni Sigurðsson og Stefán KR-ingar hófu leikinn með stór-
Gunnarsson. sókn, sem hélzt framan af leikn-
TVÖ HEIMSMETITOKYO
Tvö ný heimsmet voru
-iett á hinum miklu „prufu“
’eikum í Tokyo um helgina
— bæði í sundi. Þjóðverjinn
Gerhard Hetz setti met í
100 metra fjórsundi á
4.50.2, sem er 8/10 úr sek.
’jetra en hjá Bandaríkja-
manninum Ted Stickles.
Hitt metið setti landi Hetz,
Joachim Klein í 200 metra
skriðsundi, sem hann synti
á 2.00.2 mín., sem er sek-
úndubroti betra en gamla
metið, sem Robert Wink-
les frá Ástralíu á. — Don
Schollander frá Bandaríkj-
unum á annars bezta tím-
ann í sundinu, 1.58.4, sem
ekki hefur enn verið stað-
fest. >
Hetz og Klein unnu báðir tvenn
gullverðlaun, Hetz vann 1500 metra
skriðsund naumlega á 17.48,0, en
Klein vann 100 metra skriðsund á
54.9. Jan Lundin frá Svíþjóð var
með f þessu sundi og varð 6. á
56,6 sek. Hin kornunga sænska
stúlka Ann Kristin Hagberg var
hins vegar einráð í 100 og 200
metra skriðsundunum á 1.02,2 og
2.35,3. Laugarskilyröi eru hin beztu
í Tokyo og má búast við miklum
afrekum í sundkeppninni næsta ár.
Frjálsíþróttakeppnin í Tokyo
bauð aftur á móti ekki upp á
,,topp“-árangra og olli hinum
80.000 áhorfendum á National
Stadium talsverðum vonbrigðum.
Aftur á móti var mikil stemning
í Japönum vegna þess hve frjáls-
íþróttafólki þeirra gekk vel í keppn
inni. Hápunktur fyrri dagsins var
tap Rússans Luisis fyrir Japanan-
um Miki í spjótkasti, en árangur-
inn var heldur slakur, 72,91 m.
Figuerola frá Kúbu vann 100 metr-
ana á 10.3, en Hebauf frá Þýzka-
s Framh. 'á bls. 5.
í dag er útrunninn frest
ur til þess að sækja um 6
ný prestsembætti í Rvík.
12 umsóknir hafa borizt
og birtir Vísir hér myndir
af öllum umsækjendum
og nokkrar upplýsingar
um námsferil þeirra, störf
og fjölskyldu.
Nesprestakall
um, en um miðjan hálfleikinn jöfn-
uðust leikar og áttu bæði liðin góð
tækifæri, en hvorugu tókst að nýta,
þó oft skylli hurð nærri hælum. T.
Framh. á bls. 5.
GERHART HETZ frá Þýzkalandi setti glæsilegt heimsmei í 400 metra fjórsundi á „prufu“keppni
OL f Tokyo um siðustu helgi.
PÉLE — einn snillinganna
í Heimsliðinu
Islendingar til
LONDON
Ferðaskrifstofan Saga er með
ferð til London á prjónunum í
sambandi við hinn stóra knatt-
spyrnuleik Heimurinn—England
en leikurinn er háður í tilefni
af 100 ára afmæli enska knatt-
spymusambandsins.
Við hringdum i gær í Sögu
og spurðum hvemig aðsóknin
væri. Njáll Símonarson, forstjóri
skrifstofunnar varð fyrir svör-
um og sagði að megnið af sæt-
unum væri selt, en um það bil
tíu sæti eru eftir. Ferðin
kostar innan við 6000 krónur, —
ferðalög, fæði og hótel.
Frank M. Halldórsson er fæddur
23. febrúar 1934 í Reykjavik. For-
eldrar Marel Halldórsson verk-
stjóri í vélsmiðjunni Hamri og
Rósa E. Halldórsson. Stúdent frá
Menntaskólanum i Reykjavík
1954. Hóf guðfræðinám við Há-
skóla íslands sama ár. Var veittur
styrkur til guðfræðináms við
Alkirkjustofunina við Genf í
Sviss og Háskólann í Heidelberg
í Þýzkalandi 1957 —’58. Lauk
embættisprófi í guðfræði við Há-
skóla íslands í janúar 1959.
Kynnti sér kirkjulegt safnaðar-
starf og vandamál unglinga í
Bandaríkjunum sumarið 1963.
Kennari við Mýrarhúsaskóla á Sel
tjarnarnesi 1959. Kennari við
Hagaskóla í Reykjavík frá hausti
sama árs. Starfaði meðal drengja
í Reykjavík á vegum Kristilegs
félags ungra manna á árunum
1953 til 1962. 1 stjórn Bræðra-
félags Nessóknar. Ókvæntur.
v'í.
Séra Hjalti Guðmundsson er
fæddur í Reykjavík 9. janúar 1931.
Sonur hjónanna Guðmundar Sæm
undssonar klæðskerameistara og
Ingibjargar Jónsdóttur Eyfjörð
Gekk í Menntaskólann í Reykja-
vík og lauk þaðan stúdentsprófi
1951. Settist í Guðfræðideild Há-
skóla íslands haustið 1954 og
lauk embættisprófi í guðfræði vor
ið 1958. Var vígður 22. nóvember
1959 til að þjóna sjö söfnuðum í
byggðum Vestur-íslendinga að
Mountain í Norður Dakota í
Bandaríkjunum. Var þar þjónandi