Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 3
3 VÍSIR ——-'ffim Þriðjudaginn 15. október 1963. UMSÆKJENDUR í REYKJAYÍK prestur til 1. ágúst 1962. Er for- maður Karlakórsins Fóstbræðra og hefir verið einsöngvari hjá kórnum, síðast á samsöngvum í vor. Hefur unnið í Veðdeild Lands banka íslands síðan í ágúst 1962. Kvæntur árið 1954 Salóme Ósk Ófeigsdóttur, og eiga þau eina dóttur. Háteigsprestakall ; : líiiife 1 i é! íjili; " {BgpBfc en hún lauk námi við háskólann í Dyflinni sumarið 1958. Prestshjón in í Hvammi eiga þrjú börn, Séra Arngrímur Jónsson er fæddur á Arnarnesi á Galma- strönd 1923, sonur Jóns Páls- sonar trésmíðameistara á Akur- eyri og Kristínar Ólafsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1943 og embættisprófi í guðfræði frá Háskóla íslands 1946. Það sama sumar vígðist hann prestur að Odda á Rangárvöllum, þvl forn- fræga höfuðbóli og hefur gegnt þar prestembætti síðan eða í 17 ár. Fyrir tveimur árum stundaði hann framhaldsnám í Oxford í Englandi í guðfræði og siðalær- dómi kristinsdómsins. Hefur m. a. setið í stjórn samtaka játninga trúarpresta. Kvæntur er hann Guð rúnu Hafliðadóttur frá Hergilsey á Breiðafirði og eiga þau þrjú börn. Ásgeir Ingibergsson er fædd- ur 1928 að Álafossi i Mos- fellssveit, sonur hjónanna Ingi- bergs Runólfssonar, bifreiðastjóra og Sigríðar O. Kristjánsdóttur. Alinn upp í Reykjavlk, þar sem hann gekk í Menntaskólann og tók stúdentspróf 1948. Innritaðist fyrst i heimspekideild Háskólans og lagði stund á Islenzk fræði I tvö ár, en tók síðan fyrir guð- fræði og lauk embættisprófi 1957. Eftir guðfræðiprófið hlaut hann styrk frá Alkirkjuráðinu til náms við Dyflinarháskóla í þrjú miss- eri 1957—58, í trúfræði og kirkju sögu. Vígður að Hvammi í Döl- um 31. ágúst 1958, þar sem hann hefur þjónað siðan. Kvæntur 27. júní 1959 Janet Sunby frá Belfast I Norður-írlandi, kristniboðsfélaga í Eþiópíu á árun um 1953 til 1958, Var vlgður kistniboðsvígslu 28. des. 1952. Hefur verið kennari gagnfræða- stigs I Reykjavík síðan 1959. Kennir nú kristinfræði auk fleiri greina við Gagnfræðaskóla Réttar holts. Hann skrifaði bók um dvöl ina I Eþíóplu,, „Sól yfir Blálands byggðum", en hún kom út árið 1958. Auk þess allmikið af grein- um I blöð og tlmarit. Kvæntur er Felix Kristínu Guð- leifsdóttur og eiga þau 2 börn. Séra Lárus Halldórsson er fædd ur á Selvöllum I Helgafellssveit, sonur Halldórs Helgasonar bónda þar og Kristlnar Hafliðadóttur frá Kljá I Helgafellssveit. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um I Reykjavlk 1941 og embættis- prófi I guðfræði frá Háskóla Is- lands 1945. Hann kynnti sér sjó- mannatrúboð á Norðurlöndum 1949, og síðar kynnti hann sér starfsemi sjúkrahúspresta I Nor- egi og Danmörku. Séra Lárus vígðist til Flateyjar á Breiðafirði 1945 og þjónaði þar I ellefu ár. Síðan veitíi hann um tíma for- stöðu sjómannastofu I Reykjavík, var sóknarprestur á Breiðabóls- stað á Skógarströnd og hefur síð- an starfað sem umferðarprestur á vegum kirkjunnar og þjónað á ýmsum stöðum, svo sem Húsavík, Seyðisf., Sauðárkróki, Hallgríms- kirkju I Reykjavík og Mosfelli 1 Grímsnesi. Þá fór hann I námsferð til Englands og kynnti sér æsku lýðsstarf kirkjunnar. Hann er kvæntur Þórdísi Nikulásdóttur frá Króktúni I Hvolhreppi og eiga þau þrjú börn. Grensásprestakall Séra Ragnar Fjalar Lárusson fæddist árið 1927 að Miklabæ I Skagafirði, foreldrar hans voru séra Lárus Arnórsson og Jensína Björnsdóttir prests á Miklabæ Jóiisönar. Séra Ragnar lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1948 og embættisprófi I guðfræði frá Háskóla íslands 1952. Hann vígðist prestur að Hofsósi 1952 og fékk veitingu fyrir Siglufirði 1955, þar sem hann hefir gegnt prestsembætti síðan. Séra Ragnar Fjalar átti um skeið sæti I stjórn Guðbrands- deildar Prestafélags íslands, hefir verið virkur þátttakandi I starfi Æskulýðssambands kirkjunnar I Hólastifti og ferðazt með íslenzk- um ungmennum á vegum kirkj- unnar erlendis. Kvæntur er hann Herdísi Helgadóttur frá Akureyri og eiga þau 5 börn. Básfaðapresfakall Felix Ólafsson cand. theol og kristniboði er fæddur 1 Reykjavík 20. nóv. 1929, sonur hjónanna Ólafs Guðmundssonar trésmlða- meistara og konu hans Hallfrlðar Bjarnadóttur. Eftir nokkurra ára framhaldsnám hérlendis stundaði hann nám við kirstniboðsskóla Norska lúth. kristniboðssambands ins I Osló I sex ár (1946 — 52), og lauk þaðan prófi vorið 1952. Árið 1953 dvaldist hann við framhaldsnám I ensku I London, en hélt þá um haustið til Addis Abeba I Eþíópíu, þar sem hann las amharisku I eitt ár. Lauk guðfræðiprófi við Háskóla Islands I janúar 1963. Felix var kristni- boði á vegum Sambands ísl. Séra Ólafur Skúlason, er fædd- ur I Birtingaholti I Hrunamanna- hreppi árið 1929, sonur hjónanna Skúla Oddleifssonar umsjónar- manns I Keflavík og Sigríðar Ágústsdóttur bónda og hrepp- stjóra I Birtingaholti. Lauk stúd- entsprófi frá Verzlunarskólanum I Reykjavík 1952 og embættisprófi frá Háskóla íslands 1955. Var kall aður til prestsþjónustu hjá ís- lenzku söfnuðunum á Mountain Norður-Dakota 1955 og vígður sama ár. Þjónaði 7 söfnuðum vestan hafs I 4 og hálft ár, kom heim 1959 og þjónaði Keflavík urprestakalli I nokkra mánuði í fjarveru sóknarprests. Sama ár var hann skipaður æskulýðs- fulltrúi Þjóðkirkju íslands og hefir gegnt því embætti síðan. Undir hann hefir m. a. heyrt sumarbúðastarf þjóðkirkjunnar, unglingaskipti á vegum kirkjunn ar, og hann hefir sótt margar ráð- stefnur og fundi erlendis. Kvænt ur Ebbu Sigurðardóttir úr Reykja vík, og eiga þau tvær dætur. Séra Grímur Grímsson er fædd- ur I Reykjavík 1912, foreldrar hans voru Grlmur Jónsson cand. tlieol. á ísafirði og Kristín Eiríks dóttir frá Hóli I Önundarfirði. Grímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum I Reykjavík 1933 og síðan prófi frá verzlunar- skóla I Kaupmannahöfn. Var lengi skrifari hjá Tollstjóraembættinu I Reykjavlk, en hóf nám I guðfræði við Háskóla íslands og lauk það- an embættisprófi 1954. Sama ár var hann vígður til Sauðlauksdals prestakalls og hefir þjónað því síðan, og jafnframt búið góðu búi I Sauðlauksdal. Einnig hefir hann þjónað Brjánslækjarpresta- kalli um árabil. Séra Grímur er kvæntur Guð rúnu Sigríði Jónsdóttur stjórnar- ráðsfulltrúa Gunnlaugssonar frá Kiðjabergi, og eiga þau 3 börn. Séra Jónas Gfslason er fæddur I Reykjavlk 1926, sonur hjónanna Gísla Jónassonar fyrrverandi skólastjóra og Margrétar Jónu Jónsdóttur. Jónas lauk stúdents- prófi frá Menntask. I Reykja- vík 1946 og embættisprófi I guð- fræði frá Háskóla íslands 1950. Stundaði framhaldsnám I guð- fræði I Noregi 1950 — ’51. Sótti kristileg mót erlendis á háskóla- árunum og oftar. Fékk veitingu fyrir Vík I Mýrdal 1953 og hefir gegnt því embætti síðan. Hefir verið formaður Ríkisútgáfu náms bóka I 10 ár og I stjórn Sambands íslenzkra kristniboðsfélaga frá 1946. Hefir verið fararstjóri ís- lenzkra unglinga á mótum erlend is.. Séra Jónas hefir ritað margt um trúmál, svo sem I Kirkjuritið. Kristilegt Skólablað og Kristilegt Stúdentablað og skrifaði lengi vikulega trúmálaþætti 1 Morgun- blaðið. í fyrra fékk hann styrk frá Vísindasjóði til að kynna sér og rita um siðabótartímann á íslandi. Séra Jónas er kvæntur Am- fríði Ingu Arnmundsdóttur og eiga þau tvo syni. Séra Magnús Runólfsson er fæddur I Reykjavík 1910, sonur Runólfs Eyjólfssonar verkamanns frá Reynivöllum I Suðursveit og Guðrlðar Guðmundsdóttur úr Reykjavík. Magnús lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum I Reykjavík 1931 og embættisprófi I guðfræði frá Háskóla íslands 1934. Stundaði framhaldsnám I trú fræði og kennimannlegri guðfræði I Ósló og kynnti sér kristilegt starf á Norðurlöndum. Árið 1935 réðst hann framkvæmdastjóri KFUM, kristilegs félags ungra manna, I Reykjavík, og gegndi þvl umsvifamikla starfi Iengst af þar til fyrir tveimur árum. Á tímabili, eða frá 1945 til 1946, var hann að- stoðarprestur hjá séra Þorsteini Briem á Akranesi, en tók þá aftur við starfi slnu hjá KFUM. Sfðast liðið ár var séra Magnús gettur prestur I Árnesi, en vinnur nú að kennslustörfum aðallega og æskulýðsmálum. Hann átti sæti 1 stjórn Kristilegs bókmennta- félags um skeið og I stjórn Sam taka játningatrúarpresta, hefir ritað fjölda greina um trúmál og kirkjumál I kirkjulega blöð og tímarit, ennfremur frumsamið og þýtt bækur og rit. Séra Magnús Runólfsson er ókvæntur. Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son er fæddur I Hafnarfirði 1927, sonur hjónanna Guðjóns Sigurðs- sonar garðyrkjubónda I ölfusi og Þórunnar Guðmundsdóttur. Lauk stúdentsprófi I Reykjavík 1950, bjó næsta ár 1 Gljúfurholti f Ölfusi, lauk embættisprófi I guð- fræði frá Háskóla íslands 1954 og vann 1 þjónustu SÍS I Reykjavf: næsta ár. Árið 1955 vígðist hann prestur að Hálsi I Fnjóskadal og hefir gegnt því embætti síðan. Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son hefir verið ritstjóri Æskulýðs- blaðs Þjóðkirkjunnar síðustu árin og I stjórn Æskulýðssambands kirkjunnar I Hólastifti. Hefir ritað margar greinar I Æskulýðsblaðið og fleiri málgögn. Kvæntur er hann Iiristlnu Sigríði Gunnlaugs- dóttur úr Reykjavlk og eiga þau 2 börn. ffl

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.