Vísir - 15.10.1963, Side 5
VÍ SI R . Þriðjudaginn 15. október 1963.
Skólar
Framhald af bls 7
járnsmíði og bifvélavirkjun.
Verður þessi áfangi á tveimur
hæðum og grunnflötur hvorrar
hæðar 450 fermetrar. Er áætlað
áð honum verði lokið haustið
1964.
í Hlíðaskóla hafa bætzt við
8 nýjar kennslustofur á árinu,
fjórar nú og fjórar fyrr á árinu.
Þá má þess geta að kennslu-
stofur í barna- og gagnfræða-
skólum Reykjavíkur eru nú 275
og eru 27 í leiguhúsnæði en
fyrir fimm árum voru þær 191
og 34 í leighúsnæði.
Eins og fyrr segir er þrí-
setningu I bamaskólunum að
heita útrýmt og er nú aðeins
þrísett í eina stofu vegna
þrengsla. Ef litið er aftur til árs-
ins 1958 var þrísett í 60 stofur
i bamaskólunum, eða í 35%
af almennum kennslustofum.
Miðað hefur vel áfram í
gagnfræðaskólunum að því að
einsetja í þá. í fjölmennasta
skólanum, Hagaskóla, sem hef-
ur 23 bekkjardeildir er nú ein-
sett. Ennfremur í Gagnfræða-
skólanum við Vonarstræti og
Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
auk Kvennaskólans sem ætíð
hefuí verið einsettur. Á gagn-
fræðastiginu er þvi einsett í
60 stofur.
K.ðt.
Framhald af bls. 2.
d. björguðu KR-ingar á línu föst-
um skallabolta frá Magnúsi Torfa-
syni og stöngin bjargaði Keflavík
frá marki, er einn KR-inganna
komst inn fyrir. Þegar 3 min. voru
eftir af fyrri hálfleik, fékk Theódór
Guðmundsson boltann á miðjum
velli og sendi til Harðar Markan,
sem lék inn í vítateiginn vinstra
megin og skaut þaðan þrumuskoti
í stöng og inn. Þetta varð eina
mark leiksins og sannkallað sigur-
mark. í síðari hláfleiknum átti KR
mun meira og skapaði sér oft
góð tækifæri, en tókst ekki að bæta
við mörkum. Keflvíkingar áttu einn
ig tækifæri, en KR var betra liðið
í þessum leik og átti sigurinn fylli-
lega skilið. KR-ingarnir voru allir
jafnir og ákveðnir til sigurs og
léku oft vel inni á vellinum. Vörn-
in var betri helmingur liðsins, en
framlínan, sem er skipuð leiknum
piltum, átti við erfiðan andstæðing
að etja, þar sem vörn ÍBK var.
Markvörður ÍBK, Kjartan, var bezti
maður liðsins bæði í þessum leik og
hinum fyrri. Þessi lið ásamt Val og
Fram voru áberandi beztu lið þess-
arar keppni, og þurfa félögin þeirra
ekki að kvíða framtíðinni.
Orslit í riðlunum urðu þessi:
L. U. J. T. M. St.
KR 3 3 0 0 14: 3 6
Akranes 3 1 0 2 12: 7 2
Hafnarfj. 3 1 0 2 4:11 2
Víkingur 3 1 02 2:11 2
l’BK 4 4 0 0 '8: 2 8
Fram 4 3 0 1 8: 1 6
Vestm.eyjar 4 2 0 2 14: 7 4
Valur 4 1 0 3 2:19 2
Þróttur 4 0 0 4 1: 3 0
Leikur ÍBK og Fram, sem Fram
sigraði 1:0, var kærður af ÍBK og
leikinn upp að nýju. ÍBK sigraði
þá 1:0 og sigraði þar með riðilinn.
KLP
Tvö heimsmef —
Framh. af bls. 2.
landi fékk 10.4 og Frakkinn Pique-
mal 10.6.
1 kvennagreinunum vann Tam-
ara Press eins og vænta mátti í
kúluvarpi og kastaði 17,27. Eins
var Balas frá Júgóslavíu mjög ör-
uggur sigurvegari í hástökki og
stökk 1.80, en tvær japanskar stúlk
ur komu næstar með 1,67 og 1,64.
Japönsk stúlka, I. Yoda, vann 80
metra grindahlaupið og kom mjög
á óvart.
Á sunnudaginn bar það helzt til
tíðinda, að heimsmethafinn I
sleggjukasti, Bandaríkjamaðurinn
Conolly (mátti láta s*ér nægja 3.
sætið með 65,71 metra kasti. Rúss-
inn Kondrasjov vann með aðeins
24 sentimetrum Iengra kasti! Svo
jöfn var keppnin, að fimmti maður,
Ungverjinn Zivotsky, var með
65,56 m. kast. Japaninn Sugarawa
varð annar og vakti geysiathygli.
Bruce Tulloh, „berfætti hlaupagikk
urinn“ fró Englandi, vann bezta
afrek keppninnar og hljóp 5000
metrana á 14.04,2 mín., en næstir
lcomu Bernard frá Frakklandi á
14.06,2 og Svíinn „Esso“ (S. O.)
Larson með 14.06,4. Langstökkið
vann Ter-ovanesjan, eins og búizt
var við, og stökk hann 7,92, en
Finninn Eskola varð annar. Léleg-
asta afrek keppninnar náðist þenn-
an dag. Sigurvegari í kúluvarpi
Þjóðverjinn Birlenbach með litla
16.15. Beztu afrek kvenna þennan
dag voru 200 metrar Hyman frá
Englandi, 23,6, og kringlukast
Press, 54.21.
Þátttakendur í keppninni voru af
ar ánægðir með OL-völlinn, og var
einróma álit, að hann væri „einn
sá bezti 1 heiminum".
Iðngarðar —
Framh. af bls. 1.
Iðngarðar h.f., hafa undan-
farið unnið að fjárútvegun til
framkvæmdanna. Eins og áður
hefur komið fram í fréttum
veitti ríkisstjórnin fyrirteekinu
fyrirheit um 10 milljónir króna
af enska láninu, sem tekið var
s.l. vor en frá þvi var skýrt
I framkvæmdaáætlun rikisstjórn
arinnar. Má segja, að sú byrj-
unarfjárveiting hafi gert Iðn-
görðum kleift að ráðast í þá
miklu framkvæmd sem bygging
umræddra verksmiðjuhúsa er.
Gerðar hafa verið frumteikn
ingar af verksmiðjuhúsunum og
þeim byggingum öðrum, sem
ætlunin er að reisa. En fullkomn
ar teikningar hafa enn ekki ver
ið gerðar. Er ráðgert, að reistar
verði á vegum Iðngarða um 10
byggingar, verksmiðjubyggingar
mötuneyti, verzlanir og fleira.
Verður þvi þarna í rauninni reist
heilt verksmiðjuhverfi. Stærstu
fyrirtækin munu hafa verk-
smiðjubyggingar út af fyrir sig
en einnig munu smærri fyrir-
tæki vera saman um verksmiðju
byggingar.
Það er nýjung hér á landi að
reisa verksmiðjuhús fyrir mörg
iðnfyrirtæki f einu eins og hér
er gert á vegum Iðngarða. Er
gert ráð fyrir því, að nýjung
þessi geti stuðlað að hagkvæm
ari rekstri margra fyrirtækja,
þar eð mörg fyrirtæki munu
þarna geta haft margt sameigin
legt.
Iðngarðar munu afhenda iðn-
rekendum húsin fokheld. En síð
an munu eigendur sjálfir full-
gera húsin. Er reiknað með að
taka muni 5 ár að ljúka bygg-
ingunum.
SKIPAFRÉTTIR
KIPAUTGCRÐ RIKISINS
ISfffn'l ffi‘TV mií •'inffl
$Ss* Skjaldbreið
fer vestur um land til Akureyrar
19. þ. m. Vörumóttaka í dag til
áætlanarhafna við Húnaflóa og
Skagafjörð og Ólafsfjarðar.
Fnmútgáfur afrítum Xilj-
ans á uppboði á morgun
Sigurður Benediktsson efnir
til fyrsta bókauppboðs sfns á
haustinu f Þjóðleikhúskjallaran-
um á morgun og hefst það kl. 5
sfðdegis. Bækumar verða sýnd
ar í dag, frá kl. 2—6 e. h. og
á morgun frá kl. 10 árd. til 4
siðdegis.
Á uppboðinu verða alls seld
54 númer, en megnið af þeim
eru stór ritsöfn og má þar fyrst
og fremst telja afburðafagurt
eintak af öllum bókum Kiljans
í frumútgáfu. Þær eru með öll-
um kápum og í viðhafnarbandi.
Á betra eða fegurra eintak. af
verkum Kiljans verður naumast
kosið. Alls eru bækurnar 46
að tölu.
Af öðrum stórum verkum má
geta Árbókar Ferðafélags Is-
lands í frumútgáfu með öllum
kápum og í skinnbandi, en Ár-
bókin hækkar ört f verði sökum
vaxandi eftirspurnar þvf af
nokkrum árgöngum hennar voru
ekki gefin út upphaflega nema
nokkur hundruð eintök.
Þama verða Almanök Þjóðvina-
félagsins frá upphafi boðin upp,
en þess ber þó að geta að 5
fyrstu árin eru eftirprentanir.
Sömuleiðis verður vestur-ís-
lenzka Almanakið, sem kennt er
við Ólaf Thorgeirsson selt að
undanteknum 4 fyrstu árgöng
unum, sem em mjög fágætir
orðnir. Það ■ almanak var gefið
út f meira en hálfa öld, og er
mjög merk heimild um landnám,
sögu og persónusögu Islendinga
vestan hafs. Má segja að þetta
Viðurkenair —
Framh. af bls. 1.
ir innan. Skipstjórinn á tog-
aranum telur að um 40—45 mfn.
hafi liðið frá því að híft var og
þangað til að varðskipið hafi kom-
ið að togaranum og hafi togarann
rekið fyrir norðvestan kuli og
hörðu austur-falli á þeim tfma.
Jónmundur skipstjóri kvaðst ekki
véfengja mælingar varðskipsins, en
hins vegar vildi hann benda á það,
að miklir erfiðleikar eru fyrir skip
að staðsetja sig nákvæmlega á þess
um slóðum. I réttinum skýrði Jón-
mundur m.a. frá eitthvað á þessa
leið:
— Síðast var híft kl. 2020. Þá
var það, að tundurdufl valt inn
fyrir úr pokanum. Ég hef enga
þekkingu á slíkum hlutum og vissi
því ekki hvort duflið var virkt eða
óvirkt. Með tilliti til þess að 30
manna áhöfn var á skipinu fannst
mér meiru skipta að athuga vel
minn gang i málinu, neldur en að
ggeta að því hvort mig rælci inn
fyrir línuna. Sennilega liðu um 40-
45 mín. frá því að ég hífði, þar til
varðskipið kom að okkur, á þess-
um tíma hefði é ggetað komizt út
fyrir.
Aðspurður hvort hann vissi að
þetta hafi verið varðskip sem kom
siglandi I átt að skipinu svaraði
hann:
— Ég var ekki fullviss um það
en mig grunaði það þvf að skipið
var með kastljós og bar öll ein
kenni varðskipsins.
Jónmundur kvað um 40-45 mín.
hafa liðið frá því að hann hífði
og þar til varðskipið hefði komið
að honum og f réttinum sagði
hann ennfremur eitthvað á þessa
leið: Ég er þeirrar skoðunar að
skipið hafi rekið inn fyrir Hnuna
á þessum tíma.
Dómarinn, Logi Einarsson, yfir-
sakadómari, spurði Jónmund hve-
nær hann hefði sfðast gert staðar
ákvörðun. Jónmundur svaraði þvi
til að síðustu radíómiðanir sem
hann hafi gert hefðu sýnt, að hann
var í stefnu 22. gr. á Malarrifsvita
og 235 gr. á Stafnesvita, en þessar
mælingar hefðu verið framkvæmd-
ar á hádegi á sunnudag.
Aðvörunarkerfi —
Framh. af bls. 1.
sagði, að samkvæmt lögum um al-
mannavarnir ætti almannavarnar-
ráð að samræma almannavarnir
um allt land en gert væri ráð fyrir
að almannavarnarnefndir störfuðu
í bæjum og öðrum sveitarfélögum,
Það verður m. a. verkefni almanna-
vamarráðs, að sjá um uppsetningu
viðvömnarkerfis fyrir allt landið
en framkvæmdir í hverju sveitar
félagi verða að öðru leyti að mestu
undir stjóm almannavarnarnefnd-
anna á hverjum stað. Þær nefndir
munu vinna í samráði og samvinnu
við sveitarfélögin.
Ágúst Valfells er nýlega kominn
frá Noregi, þar sem hann kynnti
sér fyrirkomulag almannavarna. En
fyrr í sumar hafði hann heimsótt
Svíþjóð og Danmörku í sama skyni.
Tjáði hann VIsi í gær, að hann
teldi Svia standa fremst á sviði
almannavarna af þessum þremur
þjóðum. Ágúnt sagði, að hann teldi
íslendinga eiga að miða að því að
færa sér í nyt reynslu Norðurlanda
þjóðanna á sviði almannavarna, þ.
e. læra af því, sem reynzt hefði vel
hjá þeim en vara sig á því er þær
hefðu brennt sig á.
sé ómissandi rit hverjum sem
um þessi mál vilja fræðast.
Blanda verður þarna til sölu
frá byrjun og í frumútgáfu. Enn
fremur hæði Biskupasögur Bók-
menntafélagsins og Sögufélags-
ins, Ijósprentun Munksgards af
Codex Frisianus og margt fleira.
ræða til þessa. Ráðuneytisstjór-
inn kvað undirbúning að útgáfu
persónuskilríkja ungmenna vera
í samvinnu við hagstofustjóra
og Þjóðskrána af hagkvæmi-
ástæðum.
Auk vegabréfa unglinga er
gert ráð fyrir því i fyrrrnefndu
frumvarpi á Alþingi að ung-
mennum innan 18 ára sé óheim-
il dvöl í vínveitingastöðum að
kvöldlagi, leigubílum er bannað
að flytja ölvaða unglinga, hert
er á sektarákvæðum og veitt
heimild til upptöku áfengis, sem
menn kunna að hafa meðferðis
á veitingastöðum.
Ilnglingar —
Framh. af bls. 16.
sumar. Heimild væri í lögum frá
stríðsárunum til að krefjast per-
sónuskilrikja, og hún hefði eink-
um verið notuð 1 ýmsum stöð-
um úti á landi. En um almenna
framkvæmd hefði ekki verið að
FÉLAGSLÍF
Kvenfélag Neskirkju. Bazar fél-
agsins verður laugardaginn 9. nóv
ember. Saumafundur til undirbún
ings bazarins verður miðviku-
daginn 16. október kl. 8,30. Félags
heimilið.
KFUM AD. - Munið Hlíðar-
kvöldvökuna sem hefst kl. 8,30.
Kaffi. Takið handavinnu með. Allt
kvenfólk velkomið. Stjórnin.
Prentnám
Tveir piltar, 16 ára að
aldri, geta komizt að
prentnámi (setningu og
prentun) nú þegar.
Gagnfræðapróf skilyrði.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Spítalastíg 10.
Útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður
tengdaföður og afa
TYRFINGS M. ÞÓRÐARSONAR
stöðvarstjóra
sem lést 8. október s.l. fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 16. þ. m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni verð-
ur útvarpað. Fyrir hönd bama okkar móður, systur og
annara ættingja.
Úlla Asbjömsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför föður okkar
JÓNS Þ. BENEDIKTSSONAR
^evnistað við Breiðholtsveg.
Iljalti Jónsson
Sigríður Jónsdóttir
Gyða Jónsdóttir.
H9