Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 7

Vísir - 15.10.1963, Blaðsíða 7
VÍSIR . Þriðjudaginn 15. október 1963. 7 Verðmæfum úhöldum sfolíð Um helgina, sennil. í fyrrinótt, var stolið miklu magni af ýmiss konar áhöldum og tækjum úr tveim jarð- ýtum, sem stóðu fyrir sunnan Hval eyraholt við Hafnarfjörð. Ýturnar stóðu á hraunhól um það bil 1 kílómetra fyrir sunnan Hvaleyrarholt og sást vel til þeirra af veginum. Ef einhver hefur séð til grunsamlegra mannaferða í námunda við þær, væri lögregl- unni í Hafnarfirði fengur að slík- um upplýsingum. Þjófurinn brauzt inn í báðar ýt- urnar og stal þar m. a. tveim topp lyklasettum, tveim stjörnulyklasett um og tveim rörtöngum, 5—6 skiptilyklum og nokkrum ,,special“- lykium. Ennfremur slaghömrum, glussatjakk og fleiri áhöldum, Loks var kuldaúlpu stolið. Drengurían er ekki / iífshættu Fjórtán ára drengur Viggó Guð- mundsson, Bústaðahverfi 8, slasað- ist mikið á laugardag er hvell- 'ietta sprakk framan i andlit hans. Félagið hans, er stóð nálægt hon- um, en sneri í hann baki, kastað- ist niður, er sprengingin varð, en slasaðist ekki. Þetta gerðist í litlum kofa sem er áfastur við heimili Viggós. Hann hafði náð í dýnamittúbu og hvell- hettu og ætlaði að kveikja í og „sjá hvað gerðist“. Hann var að fikta við hvellhettuna, þegar sprengingin varð. Hafði Viggo þá tengt þráðinn í hvellhettunni við rafhlöðu. Viggo var fluttur á Landspítal- ann mikið slasaður, en er ekki í lífshættu. ikrítstofur LOFTLiIDA í nýtt húsnæði í marz Samkvæmt þeim upplýsingum sem Vísir hefur aflað sér hefur áætlun um byggingarfram- kvæmdir Loftleiða á Reykjavik- urflugvelli staðizt, og vonir standa til að hægt verði að flytja skrifstofur Loftleiða í hin nýju húsakynni í marz n.k. Auk þess hefur verið slegið upp fyrir kjallara flugstöðvar- byggingarinnar sem verður um 1 þús. ferm. að stærð. Skrífstofubygging sú, sem nú fyrir nokkru var lokið við að steypa upp, er um 800 ferm. að stærð. Allar byggingarfram- kvæmdir hafa gengið mjög vel og hefur verkinu miðað vel á- fram, þó nokkuð hafi verið erf- itt með vinnukraft. Þessa dag- ana er m, a. unnið að því að setja gler í glugga, þá eru og múrarar og rafvirkjar að vinnu í byggingunni. Áætlað var að flytja skrifstof- ur Loftleiða í hina nýju bygg- ingu £ marzmánuði n.k. og eru taldar góðar Iíkur á því að svo verði. B. G. Jjósmyndari Vísis tók þessa mynd í gær og sést fremst á henni grunnur flug- stöðvarbyggingarinnar. Vísitalan Arlega byggðir skólar fyrír hækkar um 6 sfig Kauplagsnefnd hefur reiknað út vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun októbermánaðar 1963.1 Reyndist hún vera 144 stig, eða 6 j stigum hærri en í septemberbyrj- \ un 1963. Vísitalan hækkar um 5 stig vegna nýákveðinnar hækkunar á landbúnaðarvöruverði. Að öðru leyti stafar hækkun vísitölunnar 1. október af hækkun á fatnaðarverði, j á gjöldum pósts og síma o. fl. Síðustu árin hefur ár- lega verið varið um 30 milljón krónum til skóla bygginga í Reykjavík og hefur árangurinn þegar komið í ljós: þrísetningu í barnaskólum er nú að heita útrýmt og miðar vel áfram að einsetja í gagnfræðaskólana. Skýrði fræðslustjóri, Jónas B. Jónsson frá þessu á fundi með skólastjórum, fréttamönn- um o. fl. í gær. if bíl I tætlur og braut steyptan vegg Leigubifreið stórskemmdist við næsta undarlegan árekstur i Hvammsgerði s. 1. laugardagskvöld. Má heita að önnur hliðin sé með öllu úr bifreiðinni. Leigubifreiðin beið eftir farþeg- uin við hús í Hvammsgerði, en á rr.etían höfðu hemlar bilað í stórri sendiferðabifreið ofar í götunni og kom hún nú með afli miklu aftur á bak niður brekkuna. Lenti hún á miðri leigubifreiðinni, lagði hægri hlið hennar inn og reif hana auk þess í tætlur. Þegar ökumaður sendiferðabif- reiðarinnar varð árekstursins var, sveigði hann frá, en lenti þá á stein steyptum garðsvegg með þeim af- leiðingum, að garðurinn brotnaði. Furðu lítið sá á sendiferðabifreið- inni, þrátt fyrir þessa harkalegu árekstra, fyrst á bíl og síðan steýptan vegg. Hvorugan bílstjórann sakaði við þessar hamfarir, en hins vegar var það hrein mildi, að farþegarnir, sem leigubifreiðin beið eftir, skyldu ekki hafa verið komnir inn í hana. Þá hefði óhjákvæmilega far ið enn verr. Unnið er að framkvæmdum við fjölmarga skóla í Reykjavík og standa fyrir dyrum enn meiri byggingaframkvæmdir. 1 hinu nýja Mýrahverfi hófst bygging Álftamýraskóla í marz s.l. Er unnið að byggingu fyrsta áfanga skólans og er áætlað að henni verði lokið haustið 1964. I honum verða 11 kennslustofur auk sérkennslustofa í kjallara. Sú nýjung verður í Álftamýra- skólanum að salemi verður fyrir sérhverja kennslustofu og í sambandi við hana. Þá verða yfirhafnir nemenda geymdar í kennslustofunum en slíkt hefur gefið góða raun í Hlíðaskóla. Einnig verður ein geymsla i sambandi við hverja kennslu- stofu. Unnið er að frágangi 3. á- fanga Hagaskóla og bætast þar við 11 kennslustofur. Unnið hefur verið að við- bótarbyggingu við Langholts- skóla og er ráðgert að henni verði lokið um næstu áramót. Hafa þar fjórar kennslustofur þegar verið teknar í notkun og tvær munu koma til viðbótar síðar í haust, auk þess tvær í kjallara. Boðinn hefur verið út nýr á- fangi Réttarholtsskóla, íþrótta- hús. Verður það mikið mann- virki og er ætlunin að það þjóni jöfnum höndum skólanum og félags- og íþróttastarfsemi hverfisins, en íþróttastarfsemin í hverfinu hefur mikið verið í höndum Víkings. Á næstunni verður boðinn út fyrsti áfangi byggingar Gagn- fræðaskóla verknáms, en þar mun verða kennsla í tfésmíði, Framh. á bls. 5. Dr. Friðrik iincars- son, yfirlæknir Borprsiúkra- Eaússins Dr. Friðrik Einarsson hefur ver- ið ráðinn yfirlæknir handlæknis- deildar Borgarsjúkrahússins. Þetta var samþykkt á fundi borg arráðs á föstudag. Á sama fundi var ákveðið að ráða Ásmund Brekk an lækni til að vera yfiriæknir röntgendeildar Borgarsjúkrahúss- ins. Sigurlína Gunnarsdóttir var ráð- in forstöðukona og Elínborg Finn bogadóttir matráðskona við sjúkra- húsið. im

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.