Vísir - 20.11.1963, Síða 9

Vísir - 20.11.1963, Síða 9
VÍSI* . Miðvikudagur 20. nóvember 1963. Vér berum virðingu fyrir og vin- arhug til hinnar brezku þjóðar Ræða forseta Islands í boði \ borgarstjóra Lundúna i gær Háttvirti herra borgarstjóri! Mér og konu minni er það mikill heiður og ánægja, að sitja boð yðar á þessum fornhelga stað, sem fulltrúar íslenzku þjóðarinnar. Bæði staðurinn og gildaskálinn hafa langa og mikla sögu að segja. Hér er andrúmsloftið þrungið af margra alda minningum Lund- únaborgar, brezku þjóðarinnar, — og raunar mannkynssögunn- ar, eins og hún er skráð á Vesturlöndum. Ahrifa þessa hins elzta hluta Lundúnaborgar hinnar miklu, The City of Lon- don, hefur gætt um heim allan, hvar sem peninga- og vöru- skipti eru rekin, og átt einna ríkastan þátt í að skapa þá festu og öryggi, sem rikti I heila öld fram að hinni fyrri heimsstyrj- öld. Mér er Ijúft að minnast þess, hér á þessum stað, að vér ls- lendingar höfum síðustu hálfa öld átt hér marga góða vini, sem hafa stutt oss I stórfelldri uppbygging landsins og atvinnu- veganna. Þeir hafa sýnt oss traust, án málalenginga, og vér höfum gert oss far um að bregðast ekki þvi trausti. Það hefði mátt vera fyrr, að við kæmumst í samband við The City of London, og þann anda festu og framfara, sem hér rikir. íslendingar hafa að vlsu heim- sótt þessa miklu borg um aldir. Og sá var tíminn, fyrir niu öldum, að Engil-Saxar og Islendingar skildu hvors annars tungu að mestu. Hálfur titill sjálfs borgarstjórans, Lord, er bæði engilsaxneska og íslenzka, þó síðari hlutinn, Mayor, sé frá Normandí. Og mér er sagt, að austurendi þessa Gildaskála heiti enn „Hustings", sem er enn þann dag i dag góð og gild íslenzka, „húsþing“, eða sú samkoma, sem haldin er undir þaki, en ekki berum himni. Og sú enska finnst mér, sem Is- lendingi að sjálfsögðu bezt og stílfegurst, sem notar mest af hinum fornu, stuttu og laggóðu engilsaxnesku orðum. Það er fleira skylt með þjóð- um vorum en vér gerum oss daglega grein fyrir. Vér höfum stafrófið, og sjálft nafnið á því, frá engilsöxum, og mörg kirkju- leg orð, sem falla vel við vom eigin málblæ, enda á islenzk kristni mikið af fyrsta þroska sinum að þakka heimsóknum enskra trúboðsbiskupa. En þó er það mest um vert, hve líkt er á komið um stjórn- skipun og stjórnarfar I löndum vomm. Hið íslenzka Alþingi og hið brezka Parlament em bæði af sömu rót mnnin. Brezkur fulltrúi lét svo um mælt á þús- und ára Alþingishátíð íslands, að þó hið brezka Parlament væri móðir annarra Parlamenta-, þá væri Alþingi Islendinga samt amma þeirra. Tjróunin hér á Bretlandi hefir ^ leitt til þess stjórnskipu- lags, sem nú heitir þingræði, og eftir þeirrí fyrirmynd höfum vér á síðustu hundrað árum lag- að vora þingstjóm. Frá Bret- landi hefir svo það skipulag borizt um heim allan til lýð- frjálsra þjóða, og unnið þeim ó- metanlegt gagn. Það köllum vér nú hinn frjálsa heim. Vér höfum hvorir tveggja varðveitt og á- vaxtað vel forna arfleið. Glæsi- leg fortíð gleymist seint, og á ríkan þátt I að tryggja framtfð- ina. Það þjóðskipulag er ótvi- rætt bezt, þar sem þjóðkjörið þing setur lögin, dómarar skýra þau og heimfæra, og ríkisstjórn og starfsmenn framkvæma lög og dóma. Ekkert skipulag er al- fullkomið fyrir skeikult mann- kyn, og sú villan verst að trúa á jarðneskan óskeikulleika i nokkurri mynd, því þá er allt frelsi úr sögunni. Brezkt heimsveldi hefir einn- ig á síðari tímum breytzt í samveldi. Bretar hafa alið upp og oss vel ljóst, að fámenn þjóð er ekki örugg, nema hún búi við gott nágrenni. Atvinnuvegir vor- ir eru fábreyttir, og vér greiðum með fiski og sjávarafurðum mestan hluta þess innflutnings, sem nauðsynlegur er nútíma menningarþjóð. Alþjóðaálit um fiskveiðaland- helgi hefir breytzt á síðari ár- Forseti Islands, herra Asgeir . Ásgeirsson. þjóðir til sjálfstjórnar og sam- starfs, og er það vísast eins- dæmi í heimsveldasögu. Þessi stefna í skiptum við aðrar þjóð- ir, og viðurkenning á þeirra rétti, veldur þvi, að Bretland er góður nágranni. Svo hefir hinni fámennu íslenzku þjóð reynzt þrátt fyrir snurður, sem hlaupið hafa á þráðinn, og þó furðu sjaldan. J^and vort liggur I miðju hafi, en Norður-Atlantshafið er nú nokkurs konar Miðjarðarhaf hinna elztu og öruggustu lýð- ræðisþjóða. Þetta er góð lega, um, og Islendingum lífsnauðsyn að stækka landhelgi sína. Þessi hagsmunaárekstur leiddi til al- varlegra átaka, sem hvorki Bret- ar né íslendingar óskuðu eftir. En I þorskastríðinu, sem sumir hafa kallað svo, voru sáttfúsir stjórnmálamenn við völd, og skipherrar á hafinu, sem skipt- ust meir á heilræðum úr ritn- ingunni en skotum. Visast hefði brezkum og íslenzkum víkingum fyrri alda þótt það Iélegt stríð! Viðureign þessari lauk, án slysa, með sátt og samkomu- lagi. Vér hittumst nú sem gaml- ir vinir og góðir nágrannar, meir til að muna allt betur, sem vel hefir verið um sambúð vora. Ef allt ætti að muna og engu að gleyma, sem þjóðum og ætt- um hefir borið á milli, þá væri allri vináttu og velvild útrýmt af jörðinni, og fjandskapurinn einvaldur. Bretár eru kunnir fyrir drengi legar leikreglur og langreyndir I öllum stjórnmálum. Pólitísk orð á ensku máli eru oftar dreg- in af leik og keppni, en síður af vafasömum kennisetningum. Mannúð og umburðarlyndi ein- kenna brezka þjóð. Vrér erum vissulega I tölu ” þeirra þjóða, sem hafa notið og kunna að meta endurtekna brezka baráttu gegn einræði og yfirgangi. Ég gleymi aldrei þvl ári, þegar Bretar stóðu einir I vörninni I síðustu heimsstyrj- öld. Þá var hvorki talið eftir fé né fjör. Ég kom tvisvar til Lundúna meðan á styrjöldinni stóð. Þriðjungur allra húsa I City var jafnaður við jörðu. Rósemi fólksins er mér minni- stæðust. Það kvartaði enginn, hvorki um kulda, skort né lífs- hættu. Það var eitthvað sér- staklega brezkt yfir þessu yfir- lætislausa hugrekki. Það var t. meira í veði fyrir .örlög mann- kýnsins en Bretland eitt saman. Sigri bandamanna eigum vér, eins og margir aðrir, það að þakka, að vér erum frjáls þjóð, og getum haldið áfram ferðinni á þeim brautum frelsis og þing- ræðis, sem liggja frá landnáms- öld, og svo langt fram I tímann, sem augað eygir. Frelsi og sjálf- stjórn er vor sameiginlegi arfur, og framtíðarhugsjón. Við þing- ræði varðveitist jafnvægið bezt milli frelsis og stjórnar. Ég dreg enga dul á það, að vér Islend- ingar berum mikla virðingu fyr- ir og vinarhug til hinnar brezku þjóðar. Herra borgarstjóri! Ég flyt yður beztu þakkir fyrir virðu- legt boð á þessum fornhelga stað, og hinni brezku þjóð vin- arkveðju frá íslendingum. Itölsk strengjasveit væntanleg hingað Itölsk strengjasveit, „I Solisti Veneti", er væntanleg hingað til lands nú I vikunni og mun hún halda hljómleika I Þjóðleikhús- inu 22. nóv., n.k. föstudag. Stjórnandi strengjasveitarinnar er Claudio Scimone en aðal einleikari hennar Piero Toso. „I Solisti Veneti“ er sveit tólf manna, er leikið hafa saman í fjögur ár og aflað sér mikillar viðurkenningar I tónlistarlífi Evrópu. Þeir koma hingað á sjálfs sín vegum, en með nokkr- um styrk frá ítölskum stjórnar- völdum, þar sem þeir leggja sérstaka áherzlu á að kynna FeneyjatónJist fyrri alda, m. a. tónlist eftir Vivaldi, Tar- tini og Bonporti. Undirbúning tónleikanna hér og fyrirgreiðslu sveitarinnar annast Skrifstofa skemmtikrafta. Ekki hafa verið ákveðnir nema þessir einu tón- Ieikar í Reykjavík. Á síðastliðnu ári fóru „I Solisti Veneti" I hljóanleikaferð um meginlandið, Norðurlönd og England og hlutu hvarvetna prýðisdóma. Gagnrýnandi „The Times" sagði m. a.: „I Solisti Veneti“, strengjasveit frá Fen- eyjum hélt fyrstu hljómleika sína á Englandi I Victoria og Albert Museum I gærkveldi og reyndist með beztu sveitum er- lendra hljóðfæraleikara, er við höfum heyrt á síðustu áruro“. Segir blaðið að leikur þeirra Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.